Dagur - 13.01.1984, Blaðsíða 11
13. janúar 1984 - DAGUR - 11
Haukur Gunnarsson.
„Lýsir
grimmum
raunveruleik“
- Rætt við Hauk Gunnarsson, leikstjóra
„Þessi uppfærsla verð-
ur nokkuð frábrugðin
þeirri sýningu sem var
í Þjóðleikhúsinu, bæði
vegna rýmri aðstæðna
við uppsetninguna og
einnig gerum við
breytingar á sjálfu
verkinu,“ sagði Hauk-
ur Gunnarsson, leik-
stjóri, sem leikstýrir
„Súkkulaði handa
Silju“ hjá Leikfélagi
Akureyrar. Frumsýn-
ing verður um miðjan
febrúar í Sjallanum.
Haukur er akureyrskum leik-
húsgestum að góðu kunnur.
Hann setti upp „Við skiljum"
eftir Kamban á sínum tíma og í
fyrra leikstýrði hann „Bréfber-
anum“ hjá félaginu, en sú sýn-
ing er mörgum eftirminnileg.
Síðan kom Haukur til Akureyr-
ar í haust til að setja upp
„Galdra-Loft“ og æfingar voru
vel á veg komnar þegar sýningin
var sett í frysti þar til næsta
vetur. Á eftir „Silju“ fer Hauk-
ur til starfa hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, þar sem hann set-
ur upp nýtt verk eftir Svein Ein-
arsson. Haukur var spurður um
aðstæður í Sjallanum.
„Mér finnst mjög spennandi
að setja þetta verk upp við þær
aðstæður sem eru í Sjallanum,
þó það geri að vísu nokkrar
kröfur,“ svaraði Haukur. „Það
er spennandi að brjóta sig út úr
þessu hefðbundna rammasviði
og leika á fleiri stöðum en einu
sviði. Við nýtum umhverfið í
Sjallanum. Þannig fara nokkur
atriði verksins fram á skemmti-
stað og þau eru leikin á upp-
hækkuninni við barinn til hliðar
við hljómsveitarpallinn. Þar að
auki byggjum við palla sitt
hvorum megin við hljómsveitar-
sviðið sem einnig er leikið á.“
- Þekktir þú þetta verk fyrir?
„Ég sá þetta verk Nínu í
Þjóðleikhúsinu, en við stokkuð-
um verkið svolítið upp. Það var
upphaflega skrifað fyrir Al-
þýðuleikhúsið, en síðan var það
sett á svið í Þjóðleikhúsinu. Þá
voru ýmis atriði strikuð út, en
nú tökum við nokkur þeirra upp
aftur. Megintilgangurinn með
þeim breytingum sem við ger-
um er að ná raunsærri blæ á sýn-
inguna heldur en var í Þjóðleik-
húsinu."
- Hvernig virkar þetta verk
á þig?
„Þetta leikrit er að uppbygg-
ingu frábrugðið öðrum leikrit-
um, þar sem Nína er ljóðskáld.
Það kemur fram í verkinu í
stuttum og frekar knöppum
senum, sem minna svolítið á
ljóð. Það er því ljóðrænn rammi
utan um þennan bitra raunveru-
leika sem hún er að lýsa.
Tónninn í verkinu er tragisk-
ur, lýsir baráttu verkakonu og
einstæðrar móður, sem gerir til-
raun til að ná tökum á sínu lífi.
En samhliða þessum harmræna
þætti verksins er frásögnin gædd
léttleika og fyndni, þannig að
sýningin á vel heima í Sjallan-
um. Hér er þó ekki um neinn
kabarett að ræða, enda finnst
mér sjálfsagt að setja upp raun-
verulegt leikrit á skemmtistað,
án þess að þess sé krafist að
verkið byggist upp á hlátri og
gríni,“ sagði Haukur Gunnars-
son.
Egill Ólafsson hefur samið
tó'nlist við „Silju“ sem Inga og
Ingimar Eydal flytja milli atriða
við texta eftir Nínu. gs
Hótel Varðborg
Veitingasala
Árshátíðir
Þorrablót
Einkasamkvæmi
Köld borð
Heitur veislumatur
Þorramatur
Smurt brauð
Snittur
Coktailsnittur
Getum lánað diska
og hnífapör
Útvegum þjónustufólk
Sími 22600
Júníus heima 24599
Slgfrfður. Jórunn.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 18. janúar nk. kl. 20-
22 verða bæjarfulltrúamir Sigfríður
Þorsteinsdóttir og Jórunn Sæ-
mundsdóttir til viðtals í fundarstofu
bæjarráðs, Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjori.
Ragnheiður Steindórsdóttir f My fair
Lady.
Leikfélag Akureyrar
My fair
Lady
Sýningar
37. sýning föstudag 13. jan.
kl. 20.30.
38. sýning laugardag 14. jan.
kl. 20.30.
Miðasala opin alla daga kl.
16-19, kvöldsýningardaga
kl. 16-20.30 og dagsýn-
ingardaga kl. 13-15.
Sími24073.
Ósóttar miðapantanir seldar
tveimur tímum fyrir sýningu.
Handhafar áskriftarkorta
á Galdra-Loft hafið sam-
band við miðasölu.
Leikfélag Akureyrar.
ímyndunarveikinni
eftir Moliére verða:
Miðnætursýning föstudaginn 12. janúar kl.
23.30 og laugardaginn 14. janúar kl. 21.00.
r
Flug og gisting
á Hótel Loftleiðum
eða Esju
Tvær nætur
í tveggja manna
herbergi
kr. 2.665-
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR
RAÐHUSTORGI 3 SIMI 96-25000
Helgarferðir
til Reykjavíkur
Janúar-
tilboð
\
Námskeið um
undirbúning og framkvæmd
skipaviðgerða
verður haldið á Akureyri 24.-26. janúar 1984. Nám-
skeiðið er ætlað þeim aðilum í smiðjum sem taka á
móti og skipuleggja skipaviðgerðarverk, vélstjórum
og/eða þeim sem hafa umsjón með viðhaldi skipa
hjá útgerðum.
Á námskeiðinu verður fjallað í fyrirlestrum og með
verklegum æfingum um: Verklýsingar, áætlana-
gerðir, mat á verkum, mat á tilboðum og val viðgerð-
arverkstæða, undirbúning fyrir framkvæmd við-
gerða, uppgjör o.s.frv.
Þátttöku ber að tilkynna fyrir 19. þ.m. í síma 91-
25561 og þar mun Ingólfur Sverrisson veita allar
nánari upplýsingar.
Meistarafélag járniðnaðarmanna.
- Samtök málmiðnaðarfyrirtækja.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
SNORRA KJARTANSSONAR,
Víðikeri, Bárðardal.
Sérstakar þakkir til sveitunga, björgunarsveitamanna og allra
annarra sem réttu okkur hjálparhönd.
Kristbjörg Jónsdóttir, Kjartan Tryggvason,
Vera Kjartansdóttir, Hjörtur Sigurðsson,
Þorgerður Kjartansdóttir, Gunnar Þórólfsson,
Páll Kjartansson, Sigríður Baldursdóttir.