Dagur - 16.01.1984, Blaðsíða 2
2-DAGUR-16. janúar 1984
Saknarðu „Rauða
hússins“ og þeirrar
menningarstarf-
semi sem þar fór
fram?
Magnús Már Magnússon:
Nei alls ekki, ég Ieit þar inn
einu sinni og sór þess eið að
gera það aldrei aftur.
Þorgrímur Daníelsson:
Já, ég leit þar nokkrum
sinnum inn í fyrravetur og lík-
aði vel. Bæinn hefur sett ofan
við að missa húsið.
Vala Valdemarsdóttir:
Ég veit það ekki, ég fylgdist
ekki náið með því sem þar fór
fram.
mmÆ
Pétur Sigursveinsson:
Nei, ég hafði litla hugmynd
um það sem þar var um að
vera.
K/:
Kolbeinn Gíslason:
Nei.
„Bankastöriín eru í flestum til-
fellum skemmtileg . Það er að
vísu ekki skemmtilegt að sitja
á móti manni sem biður um lán
og ekki er hægt að veita fyrir-
greiðslu en yfirleitt getur
maður bjargað fólki, það hefur
verið reynslan þrátt fyrir verð-
bólgu og aðrar hrellingar,“
segir Gunnar Hjartarson sem
veitir forstöðu Sparisjóði
Svarfdæla á Dalvík, en hann er
í „Viðtali Dags-ins“ að þessu
sinni.
Ef við rennum stuttlega yfir
„feril“ Gunnars þá er hann fædd-
ur í Grindavík en fluttist ungur til
Akureyrar þar sem hann bjó
lengi. Þaðan lá leiðin suður til
Hellu á Rangárvöllum en að því
búnu norður aftur og var stefnan
tekin á Dalvík.
„Það er ekki síður skemmtilegt
við bankastörfin að sitja á móti
manni sem kemur með peninga
og leitar ráða varðandi það
hvernig best sé að ávaxta þá, en
það kemur sem betur fer oft
fyrir. Það er hægt að segja það
með betri samvisku en áður að
fólk geti ávaxtað peninga sína í
banka.“
- Á fólk yfirleitt einhverja
peninga til að ávaxta í banka?
„Já, enda væri lítið hægt að
gera ef ekkert kæmi af peningum
inn í sparisjóðinn. Innlánin hér
hjá okkur jukust um 80% á síðsta
ári.“
- Og þú kannt vel við þig í
bankanum?
„Já, mjög vel og ég kann ekk-
ert annað.“
- Og þú lætur til þín taka í fé-
lagsmálum og situr í bæjarstjórn?
„Já ég fór að hafa afskipti af
pólitík þegar ég fluttist hingað,
en ég hef alltaf verið afskaplega
lítið pólitískur."
- Én þú hefur verið búinn að
fá „uppeldið“ bæði á Samvinnu-
skólanum á Bifröst, síðan hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga og hjá
Búnaðarbankanum?
„Já ég var t' skóla hjá Jónasi
frá Hriflu, síðan vann ég hjá Sam-
vinnuhreyfingunni og svona hef-
ur þetta þróast. En það var ekki
pólitík sem varð þess valdandi að
ég fór út í þetta heldur áhugi á
því að láta eitthvað gott af sér
leiða."
- Og hvað getur þú upplýst
mig um ástandið almennt í mál-
efnum Dalvíkinga?
segir Gunnar Hjartarson,
sparisjóðsstjóri
og bæjarstjórnarmaður
á Dalvík
„Það má segja að það sé ekkert
sérstaklega bjart yfir, en við höf-
um ágæt spil á hendinni að mínu
mati og ef okkur tekst að spila
þeim rétt út þá er ég ekki
svartsýnn. Við höfðum áhyggjur
í haust út af byggingariðnaðinum
og vissulega voru þær áhyggjur
ekki ástæðulausar. Það hefur ver-
ið nokkuð atvinnuleysi hjá bygg-
ingariðnaðarmönnum fram að
þessum tíma en ég vona að það
fari að rætast úr.
Við sjáum teikn á lofti um að
svo verði. Kaupfélagið er að
byggja hér stórbyggingu, það var
tekinn grunnur að 8 íbúða fjöl-
býlishúsi á vegum stjórnar
Verkamannabústaða á síðasta ári
og byrjað á uppsteypu og við
vonum að haldið verði áfram
með þá framkvæmd með vorinu.
Þessar tvær stórframkvæmdir
ásamt öðru sem til fellur ættu að
geta komið í veg fyrir áframhald-
andi atvinnuleysi í byggingariðn-
aði.“
- En það er dekkra útlitið
varðandi útgerðina?
„Það er vissulega svo en það
þýðir ekkert að vera að væla yfir
því. Við eigum atvinnutækin og
ef okkur tekst að vinna saman í
þessum efnum þá er ég ekkert
hræddur um atvinnuleysi þar.
Söltunarfélagið er búið að fá leyfi
fyrir rækjuvinnslu og ég reikna
með að togarar Söltunarfélagsins
muni fara á rækjuveiðar. Ef okk-
ur tekst að skipuleggja veiði tog-
aranna allra þá komumst við yfir
þetta erfiðleikatímabil. Þetta
veltur á því hvernig mönnum
tekst að vinna saman og ég er
bara bjartsýnn.“
- Hvað gerir Gunnar Hjartar-
son þegar hann hvílir sig frá því
að telja peninga og vinna að mál-
efnum bæjarfélagsins?
„Ég fer á skíði, aðallega á
gönguskíði en hér við Dalvík er
mjög góð aðstaða til skíðaiðk-
ana, og t.d. upplýstar brekkur á
kvöldin og lyfta. Það er gaman að
skreppa í veiði hérna í kring á
sumrin, bæði í lax og silung en
aðalmálið hjá mér er að ég á
trilluhorn og stunda sjóinn
grimmt á sumrin. Mér leiðist því
alls ekki, hvorki í vinnunni eða í
þeim tíma sem ég hef fyrir mig,“
segir Gunnar Hjartarson. gk
Afreksverk hjá
sjúkrabílsmönnum
Bóndi úr Fnjóskadal hringdi:
Mig langar til að koma á framfæri
þökkum til þeirra manna sem
fóru í sjúkrabílnum á dögunum
til að ná í þá sem slösuðust þegar
rútan fauk út af veginum í
Fnjóskadal.
Eg var sjálfur á leið austur á
Land-Rovernum þennan dag,
með keðjur á öllum hjólum en
þegar ég kom í Víkurskarðið þá
leist mér ekki meira en svo á blik-
una að ég sneri við. Ég hef búið í
Fnjóskadalnum í 52 ár og mitt
mat var það að það væri gjörsam-
lega ófært. Ég sneri því við og á
leiðinni mætti ég sjúkrabílnum.
Ég hef rætt um þetta eftir á við
menn sem eru gjörkunnugir stað-
háttum og það er samdóma álit
þeirra að þessir menn hafi lagt sig
í mikla hættu'í þessum björgun-
arleiðangri. Það hafi ekki verið
nema á færi ósérhlífinna ofur-
menna að takast þessa ferð á
hendur og mér þykir gott til þess
að vita að menn þessir séu til enn
þann dag í dag. Þeir eiga þakkir
skildar fyrir afrekið.
Það eru slökkviliðsmenn sem sjá um akstur sjúkrabílanna. Myndin er frá
hópakstri slökkviliðsmanna í fyrra.
Bílastæði fyr-
ir fatlaða?
Kona hringdi:
Ég vil beina þeim tilmælum til
bæjaryfirvalda og fyrirtækja að
það verði gerð gangskör í því að
merkja bílastæði fyrir fatlaða.
Ég á sjálf erfitt með að komast
leiðar minnar fótgangandi sér-
staklega á veturna og það er
nærri útilokað að fá t.d. bílastæði
nálægt Ráðhústorgi, nema eftir
langa bið með tilheyrandi hring-
akstri.