Dagur - 16.01.1984, Page 6
6 - DAGUR -16. janúar 1984
16. janúar 1984 - DAGUR - 7
Þorsteinn Bjarnason
var óstöðvandi hjá ÍBK
Landsliðsmaðurinn Þorstéinn
Bjarnason hjá ÍBK rcyndist
Þórsurum erfiður er Þór og
ÍBK mættust í bikarkeppni
KKÍ á Akureyri um helgina.
Þorsteinn hitti úr öllum mögu-
legum og ómögulegum færum,
sérstaklega í upphafi síðari
hálfleiks og frábær leikur hans
skóp öðru fremur öruggan sig-
ur IBK í leiknum, 68:57.
- Sóknarleikurinn var mjög
lélegur hjá okkur í þessum leik.
Boltinn var ekki látinn ganga og
liðið vann ekki saman eins og
heild. Og þegar Þorsteinn er í
þessum ham, þá er ekki von á
góðu, sagði Gyifi Kristjánsson,
þjálfari Þórs eftir leikinn.
í upphafi benti þó margt til
þess að Þórsarar gætu velgt úr-
valsdeildarliðinu undir uggum.
Þór komst í 10:2 strax í byrjun en
Keflvíkingar náðu að saxa á for-
skotið og jöfnuðu 14:14. Eftir
það var leikurinn í járnum út
fyrri hálfleik. Jafnt 22:22 en svo
sigu Keflvíkingar fram úr og
staðan í leikhlé var 27:24 ÍBK í
hag.
í upphafi seinni hálfleiks tók
Þorsteinn Bjarnason svo góðan
- ÍBK sigraði Þór 68:57 í bikarnum.
Björn skorar fyrir Þór.
Mynd: KGA.
sprett og raðaði körfunum. Hitti
úr ótrúlegustu færum og ÍBK jók
muninn.
Þórsarar tóku þá það til
bragðs að setja mann á Þorstein
en spiluðu eftir sem áður svæð-
isvörn. Þetta gaf góða raun og
nú tóku Þórsarar að saxa á for-
skot Keflvíkinganna. Þegar átta
mínútur voru til leiksloka höfðu
Keflvíkingar náð sínu mesta for-
skoti í leiknum en þá skildu 21
stig liðin en þegar upp var staðið
var munurinn 11 stig. Það var
því of seint í rassinn gripið að
taka Þorstein úr umferð og ör-
uggur sigur ÍBK var í höfn.
Besti maður vallarins var Þor-
steinn Bjarnason sem skoraði 26
stig fyrir ÍBK. Jón Kr. Gíslason
átti einnig góðan leik fyrir Suður-
nesjamenn en aðrir sýndu ekkert
sérstakt.
Hjá Þór stóð enginn
upp úr meðalmennskunni. Sig-
urður Ingimundarson skoraði 14
stig fyrir ÍBK í leiknum og Jón
Kr. 12 en hjá Þór var Björn
Skúlason stigahæstur með 16 stig.
Eiríkur Sig. skoraði 13, Jón Héð-
insson 12, Stefán Friðleifsson,
Guðmundur Björnsson og Kon-
ráð Óskarsson fjögur stig hver og
Jóhann Sigurðsson skoraði tvö
stig.
Þórsmót í svigi:
Guðrún kom
mest á óvart
- Skaut mörgum körlunum ref
fyrir rass
Guðrún H. Kristjánsdóttir, hin
kornunga skíðakona úr KA
kom mest á óvart á fyrsta
skíðamóti vetrarins sem haldið
var í Hlíðarfjalli um helgina.
Guðrún sem keppti í flokki 15-
16 ára stúlkna fékk tímann
87.66 sek. en þessi tími hefði
nægt henni til þriðja sætis í
karlaflokki á sama móti.
Tinna Traustadóttir.
Önnur úrslit voru þessi:
Kvennaflokkur:
1. Tinna Traustadóttir KA 89,92
2. Anna M. Malmquist KA 92,71
3. Ásta Ásmundsdóttir Karlaflokkur: KA 92,91
1. Erling Ingvason KA 87,01
2. Ingólfur Gíslason Þór 87,26
3. Valþór Þorgeirsson KA 88,31
15-16 ára stúlkur:
1. Guðrún H. Kristjánsd. KA 87,66
2. Arna ívarsdóttir Þór 95,49
3. Helga Sigurjónsd. Þór 97,80
15-16 ára drengir:
1. Björn B. Gíslason KA 83,23
2. Gunnar Reynisson Þór 91,61
3. Brynjar Bragason KA 104,97
13-14 ára stúlkur:
1. Kristín Jóhannsd. Þór 95,98
2. Hulda Svanbergsd. KA 97,14
3. Jórunn Jóhannesd. Þór 97,53
13-14 ára drengir:
1. Valdemar Valdemarss. KA 82,02
2. Kristinn Svanbergss. KA 85,88
3. Kári Ellertsson Þór 91,62
Næsta mót í Hlíðarfjalli næst-
komandi laugardag þá fer fram
KA-mót í stórsvigi.
„Verð
trúlega
áfram“
-segir Guðjón Guðmundsson
- Ég á ekki von á öðru en ég
verði áfram hjá Þór, sagði Guð-
jón Guðmundsson, miðvallar-
leikmaðurinn sterki sem var
markahæsti leikmaður Þórsliðs-
ins á síðasta ári með átta mörk,
er blaðamaður Dags ræddi við
hann í morgun.
Ástæða spurningarinnar var
sú að Guðjón gengur eins og svo
margir aðrir með uppsagnarbréf
frá Slippstöðinni upp á vasann og
gæti því orðið atvinnulaus 1.
mars nk.
- Það er auðvitað forsendan
fyrir því að ég verði áfram að ég
fái einhverja vinnu, sagði Guð-
jón Guðmundsson. ese
„Ekkert
komið á
hreint"
- segir Guðjón Guðjónsson
- Það er ekkert komið á hreint
ennþá, sagði Guðjón Guðjóns-
son, bakvörðurinn knái hjá KA í
samtali við Dag er hann var
spurður að því hvort hann væri
genginn í ÍBK að nýju.
Sem kunnugt er þá hefur farið
nokkur umræða fram um hugsan-
leg félagsskipti Guðjóns og
t.a.m. hefur DV munstrað hann
yfir í ÍBK, af meira kappi en
forsjá, annan hvern dag.
- Þetta skýrist allt nú í vik-
unni, sagði Guðjón og það er því
ýmislegt sem bendir til þess að
KA haldi honum áfram. ese
TRIMM- M
LANDSKEPPNI
15. JANUAR - 30. APRÍL 1984
AAWr á
SK\Ð\\
A SKIBUM
REGLUR
MERKIÐ
N (ALI.AR TEQ. SKÍOA GiLDA).
ALL7 S£M GKRA PABF ER
I. AD FARA 5 SINNUM Á SKÍOf, 1 KLST. I
2 AD FVLlA ÖT SKRANíNQARSPJALDID.
3. AD SENDA SPJALDK) ÖVRAX 0« SKJLVRDUNUM HEUR VERK) FULLNÆGT T)L SOlU ANNAS f SKÍDAFÉLÓGIN
SKÍOAFÉLAGSINS A STAÐNUM EDA TIL THIMMNEFNOAR 8.K.Í. PÓSTHÓLF MS.
802 AKUREYfil.
KAUPID MERKI KEPPNINNAR.
PAÐ ER TIL Úfi MÁLMI EÐA TAUI
OG KOSTAR KR. 80.-
ffT' SKÍÐASAMBAND
I3T ÍSLANDS
TRIMMNEFND
PÓ3THÓLF 546
602 AKUREYRI
SÍMI 96-22722
KEPPNIN ER A MILLI BÆJA OG HÉRACA AISLANDIOG VFRfJA URSLfT MIOUD VIO IBÚATÖLU. AUJR GFTA
VÉRK) MEO. AflÍDANDl ER AD SKRÁNINGAR5PJÖLDUNUM SE SKILAD JAFNSKjOfT OQ SKILYRDUNUM
HEFUR VERID FULLNÆGT (S SINNUM. I KLST. i 5ENNI. 8VO AD HÆGT SÉ AO FYLGJASf MEfJ PÁTTTÖKUNNI.
f.F SKRANINGAHSPJÖLD ERU EKKl VM) HENDINA. NÆGIR AÐ SKRIFA NAFN FÁITTAKANDA, HEIMILi OG
HÉRAD OG 5ENDA FRAMKVÆMOAAOILUM.
DAGUR
96-24222
I*
HS-V0RUM1ÐAR SF
PRENT5MIBJA 8JttHNS JÚNSS0NAK
r'AOfTsJN • SftKMXC TtOVNFM • WNHíMlj;
ALLIR A
Nú ættu landsmenn, allir sem geta komið því við, að fara að spenna á sig skíðin og
halda af stað. Trimmlandskeppnin á skíðum 1984 hófst nefnilega í gær, og stendur
yfir til 30. apríl.
Það er Trimm-nefnd Skíðasambands íslands sem stendur að keppninni, en aðset-
ur nefndarinnar er á Akureyri. Keppnin er ekki keppni á milli landa eins og var í
keppninni í fyrra, heldur er ætlunin að landsmenn berjist innbyrðis um verðlaun þau
er veitt verða í keppninni.
Keppnin er stigakeppni milli héraða. Einnig má stofna til keppni milli bandalaga,
héraðssambanda, félaga, sveitarfélaga, skóla og hópa svo eitthvað sé nefnd. Til þess
að vera fullgildur þátttakandi í keppninni þarf viðkomandi að fara a.m.k. 5 skíða-
ferðir eða æfingar er taki minnst eina klukkustund hver.
Á skíðastöðunum (á Akureyri, í Hlíðarfjalli og Kjarnaskógi) liggja frammi skrán-
ingarspjöjd fyrir þátttakendur. Þeir skrá nöfn sin á spjöldin og annað sem þar er sagt
fyw um og skila inn að því loknu. í keppninni verða veitt þrenn aðalverðlaun, bikar
fyrir bestu þátttöku í kaupstað sem hefur 10 þúsund íbúa eða fleiri, bikar fyrir bestu
þátttöku í kaupstað sem hefur 2-10 þúsond íbúa og bikar fyrir bestu þátttöku hjá
héraðssambandi.
Full ástæða er til þess að hvetja almenning til þess að taka þátt í þessari keppni,
og er upplagt fyrir ýmis fyrirtæki að koma á keppni við önnur og fleira í þeim dúr.
Eins mætti hugsa sér keppni á milli skóla. í hverjum kaupstað og hjá hverju héraðs-
sambandi ættu menn að leggjast á eitt um að gera þessa keppni sem veglegasta. Hér
fer á eftir fréttatilkynning sem Trimm-nefnd Skíðasambands íslands hefur sent
fjölmiðlum í tilefni keppninnar.
Á haustþingi Skíðasambands íslands á Húsavík hinn 29. okt. sl. var ákveðið að
koma á Trimm-Iandskeppni á skíðum 1984, eins konar framhaldi af Norrænu fjöl-
skyldulandskeppninni, sem háð var sl. vetur. f stað þess að þá var keppni milli
Norðurlandanna, verður nú miðað við keppni milli héraða og bæja hér innanlands.
Trimmlandskeppnin fer fram 15. janúar - 30. aprfl 1984.
Keppni þessi er liður í þeirri viðleitni íþróttasamtakanna að efla almenningsíþrótt-
ir í landinu og koma til móts við þá mörgu sem óska eftir að keppa að einhverju
ákveðnu marki, þótt þeir séu ekki í keppnisíþróttum. Jafnframt er höfð í huga holl-
usta þess að hver og einn stundi einhverja íþrótt við sitt hæfi og er þessi keppni m.a.
framlag Skíðasambandsins í þá átt.
Framkvæmd þessarar keppni er í stórum dráttum sú að yfirstjórn er í höndum
Trimm-nefndar SKÍ, en innan hvers íþröttahéraðs er framkvæmdin falin héraðs-
samböndum, íþróttabandalögum og skíðaráðum. Þessir aðilar munu svo skipuleggja
keppnina með aðstoð stjórnar íþrótta- og ungmennafélaga hinna einstöku byggðar
laga. Þær leita síðan samstarfs við skóla, vinnustaði, áhugahópa o.fl. á félagssvæði
þeirra. Þá er gert ráð fyrir að einstök bæjar- eða sveitarfélög keppi innbyrðis sín í
milli auk aðalkeppninnar sbr. lið 9 í keppnisreglum sem fylgja hér með.
Þar sem hin Norðurlöndin hafa svipaða keppni hvert um sig á þessu ári, þá er
ákveðið að nota sama merki áfram og notað var í Fjölskyldulandskeppninni sl.
vetur.
Merkin verða til sölu hjá framkvæmdaaðilum á hverjum stað og kosta kr. 60 pr. stk.
Það er von Trimmnefndar SKÍ að keppni þessari verði vel tekið meðal landsmanna
og í því sambandi væntir nefndin góðs samstarfs við starfsmenn blaða, hljóðvarps og
sjónvarps um að koma upplýsingum um þetta mál á framfæri.
Nefndin mun leitast við að fá upplýsingar úr héruðum með jöfnu millibili og gefa
upp tölur um þátttöku hverju sinni til fréttamanna. Hjálagt fylgja reglur keppninnar
hér með. .
í Trimm-nefnd SKÍ
Hermann Sigtryggsson, formaður
Sigurður Aðalsteinsson, ritari
Hallgrímur Indriðason, gjaldkeri.
Öruggt hjá
Þórssfúlkum:
Unnu
helstu
keppi-
nautana
- Þessi úrslit komu okkur
ekki á óvart. Við vorum stað-
ráðnar í að sigra og hefna ófar-
anna í fyrri leiknum og það
tókst svo um munaði, sagði
Sólveig Birgisdóttir, leikmaður
með 2. deildarliði Þórs í hand-
knattleik eftir að Þórsstúlkurn-
ar höfðu unnið sætan sigur
gegn helstu keppinautum sín-
um í ÍBV í Vestmannaeyjum.
Þórsstúlkurnar unnu svo sann-
arlega afrek í þessum leik. ÍBV-
liðið er erfitt heim að sækja og
það segir svo sannarlega sína
sögu um getu Þórs-liðsins að
stúlkurnar unnu þennan leik með
tíu marka mun, 24:14.
Þór komst í 4:0 og í fyrri hálf-
leik munaði þetta tveim til fjór-
um mörum á liðunum. ÍBV náði
að minnka muninn í eitt mark í
seinni hálfleik en þá tóku Þórs-
stúlkur af skarið og settu allt í
botn og unnu öruggan sigur.
Ekki er hægt að gera upp á
milli einstakra leikmanna í þessum
leik. Liðið barðist allt sem ein
heild en drýgst við markaskorun
var Inga Huld Pálsdóttir. Lið
Þórs og ÍBV eru nú efst og jöfn í
deildinni. - ESE
Kristinn Hreinsson, Þórsari, þrumar knettinum í netið.
Mynd: KGA.
JAFNTEFLI I
HÖRKULEIK
Þær voru æsispennandi loka-
mínúturnar í Ieik Þórs og topp-
liðsins Týs frá Vestmannaeyj-
um í þriðju deildar keppninni
í handknattleik. Þór hafið haft
yfir lengst af leiknum og undir
lokin fengu Þórsarar enn frek-
ari tækifæri til að gera út um
leikinn. Staðan 18:17 þeim í vil
en þá skorar Sigurlás Þorleifs-
son jöfnunarmarkið fyrir Týr-
ara.
Þórsarar hófu þennan leik af
miklum krafti. Komust í 2:0 og
síðan 5:3 og í leikhléi er staðan
9:8 Þór í hag. í upphafi seinni
hálfleiks komast Þórsarar svo í
14:11 en Týrarar jafna 14:14.
Aftur nær Þór góðu forskoti
18:16 en Týrarar skora tvö síð-
ustu mörkin.
Það var klaufalegt fyrir Þórs-
ara að tapa stigi í þessurn leik.
Þeir áttu fullt af tækifærum undir
lokin en auk þess klúðruðu þeir
einum fimm vítaköstum í leikn-
um. Þá hafði það sitt að segja að
Sigurður Pálsson aðalmarkaskor-
ari liðsins var meiddur en hann
leikur væntanlega með gegn
Aftureldingu í næsta leik.
Markahæstur Þórsara í leikn-
um var Oddur Sigurðsson með
fjögur mörk en mörkin dreifðust
að þessu sinni mjög jafnt milli
manna.
Týrarar standa nú best að vígi
í deildinni. Hafa aðeins tapað
tveim stigum. Ármann og Aftur-
elding hafa tapað fjórum stigum
hvort félag og Þór fimm stigum.
Víst er að það verða þessi lið sem
fara í úrslitakeppnina. ese
Haraldur Olafsson kjörinn
„Lyftingamaður Akureyrar"
Haraldur Ólafsson er fjölhæfur lyftingamaður. Hér er hann í keppni í kraft-
lyftingum á Grétarsmótinu. Mynd: ESE.
Haraldur Ólafsson, hinn snjalli
lyftingamaður úr Þór var út-
nefndur „Lyftingamaður
ársins“ á aðalfundi Lyftinga-
ráðs Akureyrar unt helgina.
Haraldur er vel að þessum titli
kominn en helstu keppinautar
hans á stigamótum ársins voru
kraftlyfingamaðurinn Kári
Elíson og lyftingamaðurinn
Garðar Gíslason.
Það er óþarfi að kynna Harald
Ólafsson fyrir Akureyringum.
Hann hefur verið í fararbroddi
íslenskra lyftingamanna um
margra ára skeið og þrátt fyrir að
hann sé aðeins 21 árs að aldri,
hefur hann staðið í eldlínunni í
ein sjö ár. Haraldur hefur lagt
geysihart að sér á æfingum að
undanförnu og það er leitun að
íslenskum íþróttamanni sem æfir
jafn mikið og hann. Flesta daga
vikunnar æfir hann tvisvar á dag
og Haraldur hefur fyrir löngu sett
stefnuna á Olympíuleikana í Los
Angeles og var reyndar einn fyrsti
íslendingurinn sem náði þeim
lágmörkum sem Olympíunefndin
hefur sett.
í lok febrúar mun Haraldur
taka þátt í „Sweden Open“ -
opna sænska mótinu, ásamt fimm
öðrum íslenskum lyftingamönn-
um, tvíburabræðrunum Gylfa og
Garðari Gíslasonum frá Akur-
eyri, bræðrunum Baldri og Birgi
Borgþórssonum úr KR og Ingv-
ari Ingvarssyni einnig úr KR. Á
þessu móti verður barist um ol-
ympíusætin fjögur en telja má
næsta víst að Haraldur Ólafsson
verði einn þeirra fjögurra sem
verja munu heiður Islands í Los
Angeles. Þó Haraldur keppi í ol-
ympískum lyftingum þá hefur
hann sýnt og sannað að hann er
liðtækur kraftlyftingamaður og
stóð sig m.a. frábærlega vel á
Grétarsmótinu í desember sl.
Á aðalfundi LRA var kjörin
ný stjórn og gáfu allir fyrri stjórn-
armeðlimir kost á sér að nýju.
Eina breytingin er sú að fjölgað
var í stjórninni um tvo og koma
þeir Flosi Jónsson og Konráð Jó-
hannsson inn í stjórnina sem að
öðru leyti er skipuð þeim Frey
Aðalsteinssyni sem verður
formaður, Kári Elíson ritari,
Halldóra Kristjánsdóttir gjald-
keri, Jóhannes Hjálmarsson og
Haraldur Ólafsson.
- Það má segja að reksturinn
hafi gengið nokkuð vel á árinu og
við lítum björtum augum til
framtíðarinnar, sagði Freyr
Aðalsteinsson, formaður LRA í
samtali við Dag.
Freyr sagði að á árinu væri
fyrirhuguð sýninga- og keppnis-
ferð til vinabæjar Akureyrar í
Grænlandi en svipuð ferð var far-
in til Færeyja fyrir nokkrum
árum og tókst hún mjög vel.
Næsta stórmót er Akureyrarmót-
ið í kraftlyftingum sem haldið
verður í mars en auk þess verður
vafalaust mikið um minniháttar
mót á árinu. - ESE