Dagur - 16.01.1984, Blaðsíða 10
10-DAGUR-16. janúar 1984
Smáauglýsingar
Húsnæði
Herbergi til leigu syðst í Þórunn-
arstræti. Leigist frá 15. jan. Uppl. í
síma 24987 á kvöldin.
Óska eftir að taka á leigu litla
íbúð frá mánaðamótum janúar-
febrúar. Uppl. í síma 41239.
Takið eftir
Ódýr gisting á Akureyri. Bjóðum
upp á ódýra gistingu í góðum og
snyrtilegum herbergjum á eftirtöld-
um gistiheimilum á Akureyri: Skóla-
stíg 5 símar 23648 og 21038,
Hafnarstræti 88 sími 22267,
Tungusíðu 21 símar 22942 og
24842 og Tungusíðu 2 símar
24849 og 25845.
Einbýlishús - Jörð. Óska eftir að
hafa skipti á góðu einbýlishúsi &
bílskúr (samtals 200 fm) á Akur-
eyri og jörð sem á er kúabúskap-
ur. Sé einhver bóndi áhugasamur
er hann beðinn að leggja nafn og
heimilisfang inn á afgreiöslu Dags
merkt: „Algjör trúnaður".
Áskrift - Auglýsingar
Afgreiðsla
Sími 24222
Þjónusta
Get tekið að mér uppsetningu á
alls konar innréttingum. Uppl. í
síma 22494 á kvöldin.
Hreingerningar - Teppahreins-
un. Tökum að okkur teppahreins-
un, hreingerningar og hús'gagna-
hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Atvinna________________
Stelpur eða konur óskast til sölu-
starfa í kvöld- og helgarvinnu.
Uppl. í síma 23657 á milli kl. 11.00
og 13.00 (Jakob).
Teppahreinsun - Teppahreins-
un. Hreinsið teppin sjálf. Leigjum
út nýjar hreinsivélar til hreinsunar
á teppum, stigagöngum, bíla-
áklæðum og húsgögnum. Teppa
land Tryggvabraut 22, sími 2505c
Subaru ’82 til sölu, með háu og
lágu drifi ekinn 25 þús. Uppl. gefur
Sigurður í síma 22520 og eftir kl.
19.00 í síma 21765.
Lancer GL '81 til sölu mjög vel
með farinn og fallegur bíll. Með
mörgum aukahlutum, upphækk-
aður. Uppl. í síma 26232 eða
43534 á kvöldin.
Yfirbyggður Toyota Hi Lux til
sölu, ekinn 18 þús. km. Sumar- og
vetrardekk á felgum, stereo-
útvarp. Ekki bara sá besti í snjó,
heldur alhliða gæðingur. Uppl. í
síma 96-21687.
Sala
Sófasett (3+2+1) til sölu á hag-
stæðu verði. Gott útlit. Uppl. í
síma 24871 á kvöldin.
Furuveggsamstæða til sölu, 2,65
m br. Gott verð ef samið er strax.
Uppl. í síma 24191.
Yamaha rafmagnsorgel B-55
tveggja borða með stól til sölu.
Uppl. í síma41872eftirkl. 18.00.
PGA golfsett til sölu. Lítið notað,
í góðum poka. Hagstætt verð.
Uppl. í síma 22640.
Snjósleði til sölu Yamaha 300
mod. '74. Gott ástand. Uppl. gefur
Lárus Jóhannsson í síma 81261.
Sófasett - Sófasett. Nýlegt og
vel með farið sófasett til sölu 3-2-
1. Alstoppað. Uppl. í síma 24112.
Massey Ferguson vélsleði árg.
'74, 21.5 hestöfl, til sölu. Nýupp-
gerð vél, nýlegt belti. Guðmundur
Theódórsson Austaralandi, Öxar-
firði sími (96) 41111.
Bíltæki til sölu af gerðinni Philips
útvarp & segulband, Beltek magn-
ari & tónjafnari og Beltek 2x50 W
hátalarar. Ath. tækin eru enn i
ábyrgð. Einnig er til sölu á sama
stað Skoda 110 árg. '77 ekinn 57
þús. (einn eigandi) skipti koma til
greina á dýrari bíl. Uppl. í síma
96-26886 eftir kl. 19 á kvöldin.
Bíll + snjósleði. Vil kaupa ódýr-
an bíl og snjósleða sem þarfnast
viðgerðar. Uppl. í síma 26719 eftir
kl. 17.00 á daginn.
Úrbæogbyggð
ATHUGIÐ
Munið minningarspjöld Kvenfé-
lagsins Hlífar. Spjöldin fást í
Bókabúðinni Huld, Blómabúð-
inni Akri, hjá Laufeyju Sigurðar-
dóttur, Hlíðargötu 3 og í síma-
vörslu sjúkrahússins. Allur ágóði
rennur til Barnadeildar FSA.
Vinarhöndin styrktarsjöður Sól-
borgar selur minningarspjöld til
stuðnings málefnum barnanna á
Sólborg. Minningarspjöldin fást
í: Huld, Ásbyrgi, Bókvali. hjá
Júdit í Oddeyrargötu 10 og
Judith í Langholti 14.
Minningarspjöld minningasjóðs
Jakobs Jakobssonar fást í Bóka-
búð Jónasar og í Bókvali.
Minningarkort Glerárkirkju fást
á eftirtöldum stöðum: Hjá Ás-
rúnu Pálsdóttur Skarðshlíð 16a,
Guðrúnu Sigurðardóttur Lang-
holti 13 (Rammagerðinni),
Judithi Sveinsdóttur Langholti
14, í Skóbúð M.H. Lyngdal
Sunnuhlíð og versluninni
Bókval.
F.S.A. hefur borist minningar-
gjöf til minningar um Evu K.
Magnúsdóttur frá G.J.F. og að-
standendum kr. 5.000. Með
þökkum móttekið.
Ásgeir Höskuldsson.
fö«ÐDAGSÍHS\
SÍMIgím®
feitt fréttablaó
STRANDGATA 31
AKUREYRI
Ragnheiður Steindórsdóttir í My fair
Lady.
Leikfélag Akureyrar
My fair
Lady
Sýningar
39. sýning föstudag 20. jan.
kl. 20.30.
40. sýninglaugardag21.jan.
kl. 20.30.
Miðasala opin alla daga kl.
16-19, kvöldsýningardaga
kl. 16-20.30 og dagsýn-
ingardaga kl.13-15.
Sími24073.
Ósóttar miðapantanir seldar
tveimurtímum fyrir sýningu.
Handhafar áskriftarkorta
á Galdra-Loft hafið sam-
band við miðasölu.
Leikfélag Akureyrar.
Sími25566
Á söluskrá:
Búðasfða:
5 herb. einbýlishús, haeð og ris ásamt
bilskúr, ekki alveg fullgert. Skipti á 4ra til
5 herb. raðhúsi á Brekkunni koma til
grelna.
Kjalarsiða:
4ra herb. endaíbúð i fjölbýlishúsi. Tæp-
lega 100 fm. Ástand mjög gott. Verð kr.
1.250-1.3 millj.
Tjarnarlundur:
3ja herb. enbaíbúð (suður), ca. 80 fm.
Ástand gott. Skipti á góðri 2ja herb. Ibúð
á Brekkunni koma til greina. Vorð 960-
980 þúsund.
Grænamýri:
5 herb. elnbýlishús, hæð og ris ásamt
bilskúr, ekkl alveg fuligert. Skiptl á 4ra til
5 herb. raðhúsi á Brekkunni koma til
grelna.
Núpasíða:
4ra herb. raðhús ásamt bílskúr, samtals
ca. 140 fm. Selst fokhelt. Húsnæðiss-
tjórnarlán 585 þús. Telkning á skrifsto-
funni.
Furulundur:
5 herb. raðhús á tveimur hæðum, ca. 132
fm. Skiptl á góðri 3ja herb. Ibúð í 2ja
hæða raðhúsi á Brekkunni koma tll
greina.
Ásvegur:
3ja herb. íbúð, rúmlega 80 fm. Ástand
gott.
Vanabyggð:
Neðri hæð í tvlbýlishúsi ásamt bílskúr,
samtals 140 fm. Sér inngangur.
Okkur vantar miklu fleirl eignir
á skrá, af öllum stærðum og
gerðum.
Verðmetum samdægurs.
Finnar
kaupa
100 tonn
af lamba-
kjöti
Gengið hefur verið frá samn-
ingi við finnska samvinnu-
sambandið. Við kaupum af
þeim 2100 tonn af matarkart-
öflum og þeir kaupa af okkur
100 tonn af dilkakjöti.
Fyrir skömmu var sent sýnis-
horn af þeim kartöflum sem
Finnar munu selja hingað, þær
kartöflur reyndust vera mjög út-
litsfallegar og bragðgóðar.
Á síðastliðnu ári keyptu Finn-
ar af okkur 100 tonn af dilka-
kjöti. Það var samið um þá sölu í
tengslum við komu Finnlands-
forseta Mauno Koivisto hingað
til landsins. Kjötið líkaði vel og
seldist á skömmum tíma. Finnar
greiða hæsta verð fyrir dilkakjöt
sem við fáum erlendis um þessar
mundir.
Fluttar verða inn kartöflur af
þrem afbrigðum sem eru einna
algengust í Finnlandi, það eru af-
brigðin: Rekord, Sabina og
Bintje.
Verðið á kartöflunum frá Finn-
landi verður mjög hliðstætt og
verð á þeim hollensku kartöflum
sem verið er að flytja inn.
Fyrsta sending frá Finnlandi
mun koma á markaðinn í lok
janúar.
Kópaveiði
besta leiðin
- til að halda
selastofninum
niðri
Á aukafundi sýslunefndar
Vestur-Húnavatnssýslu sem
haldinn var 21. desember var
gerð svohljóðandi ályktun varð-
andi seladráp:
„Aukafundur sýslunefndar V.-
Hún. haldinn 21.12. ’83 lýsir
undrun sinni á þeirri aðferð sem
viðhöfð er við að halda niðri sela-
stofninum við landið, þar sem
skotmenn eru verðlaunaðir fyrir
seladráp. Það hefur m.a. leitt til
þess að bændur hafa orðið fyrir
mikilli ágengni skotmanna, jafn-
vel á friðlýstum varplöndum og
selalátrum. Sýslunefndin bendir
á, að mun eðlilegra væri að
styrkja þá sem áður stunduðu
selveiðar og höfðu af því tekjur,
þannig að þeir gætu áfram nýtt
sér kópaveiði í ábataskyni, enda
er sá veiðiskapur raunhæfasta og
eðlilegasta leiðin til að halda
selastofninum niðri.“
FASIEIGNA& |J
SKIPASAUafc
NORÐURLANDS Cí
Amaro-húsinu II. hæð.
Síminn er 25566.
Benedikt Ólafsson hdl.
Sölustjóri: Pétur Jósefsson.
Er við á skrifstofunni alla virka
daga kl. 16.30-18.30.
Sími utan skrífstofutíma 24485.
Þessi samþykkt var samþykkt
samhljóða með öllum greiddum
atkvæðum. Sýslunefndarmenn
líta svo á að enn sé í gildi hið
fornkveðna að „á skuli að ósi
stemma“. Það muni sem sagt
vera heppilegra að vinna á ung-
viðinu, eins og gert er t.d. við
grenjavinnslu, heldur en að skot-
menn séu að þenja sig út og
suður um allan sjó til þess að
skjóta fullorðna seli.