Dagur - 16.01.1984, Qupperneq 12
RAFGEYMAR Heitdsala
í BÍLINN. BÁTINN, VINNUVÉLINA Slllásala
HAGI HF. HEFUR GODA
REKSTRAR MÖGULEIKA
- segir Jón Sigurðarson, formaður atvinnumálanefndar
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hefur fylgst mjög náið með
þróun mála varðandi Haga, í
kjölfar þess að forráðamenn
fyrirtækisins tilkynntu að þeir
myndu selja það og hætta
rekstrinum. Atvinnumála-
nefnd telur að gera þurfi úttekt
á fyrirtækinu þ.á m. að meta
þau rekstraráform sem eigend-
ur Haga hafa og hvernig hugs-
anlega mætti reka fyrirtækið í
framtíðinni.
Jón Sigurðarson, formaður
nefndarinnar, sagði að þegar
þessar upplýsingar lægju fyrir,
myndi atvinnumálanefndin að
líkindum gera tillögur um það
hvort og hvernig bæjarstjórn Ak-
ureyrar komi inn í þetta mál, eða
öllu heldur framkvæmdasjóður.
Jón sagði að um yrði áð ræða
svipaða úttekt og gerð hafi verið
á K. Jónssyni og Co á sínum
tíma, sem leiddi til þess að bær-
inn annaðist lánafyrirgreiðslu til
fyrirtækisins.
Jón sagði að fullur hugur væri
á því meðal bæjarfulltrúa allra
flokka að koma þessu fyrirtæki til
hjálpar ef nokkur möguleiki væri
á. Jón sagði hins vegar að menn
vonuðu í lengstu lög að kaupend-
ur fengjust að fyrirtækinu eða
núverandi eigendur þess héldu
áfram rekstrinum, því það væri
ekki hlutverk bæjarins að reka
svona fyrirtæki. Hann sagðist
trúa því að þetta fyrirtæki ætti
talsverða möguleika. hs
Verður Haga hf. komið til hjálpar?
mmmm
Mynd: KGA.
Átök innan Menningarsamtaka Norðlendinga:
KRISTINN SAGÐI AF SÉR
FORMENNSKU SAMTAKANNA
álykti
um álver
Jón Siguröarson, formaður
atvinnumálancfndar Akureyr-
arbæjar, hefur lagt fram tillögu
í nefndinni varðandi álver við
Eyjafjörð. Lagt er til að þar
sem nú séu hafnar viðræður
við erlenda aðila um slíkt iðju-
ver eigi bæjarstjórn að álykta
um málið og láta í Ijós jákvæð-
an vilja til að fá slíkt atvinnu-
fyrirtæki í bæinn.
í tillögu Jóns Sigurðarsonar er
gert ráð fyrir að bæjarstjórn
álykti á þá leið að eðlilegt sé talið
að næsta stóriðjuver sem reist
verði á íslandi verði staðsett v'.ð
Eyjafjörð, enda sé tryggt að lít-
ríki fjarðarins sé ekki stefnt í
hættu með rekstri þess.
Jón sagði í viötali við Dag að
þar sem nú væru hafnar viðræður
um þetta mál við erlenda aðila og
kynning á því væri ófært annað
en Akureyringar létu í ljós hug
sinn til málsins. hs
24 megavött
frá Kröflu
Raforkuframleiðsla hefur
gengiö vel í Kröfluvirkjun að
undanförnu og hefur afkasta-
getan verið í kringum 24 mega-
vött.
Að sögn vélstjóra við virkjun-
ina sem blaðamaður Dags ræddi
við þá munar um minna og oft
mun Kröflurafmagnið hafa
forðað raforkuskorti á Norður-
og Austurlandi, ekki síst í des-
embermánuði sl.
Um 17 manns starfa nú við
virkjunina, þar af 12 vélstjórar og
að sögn viðmælanda Dags hefur
mannlíf verið ágætt þar efra.
Færð hefur verið góð og menn
því yfirleitt komist allra sinna
ferða það sem af er árinu. ese
Veður
Áfram er reiknað með all-
miklu frosti norðanlands
með hægri norð-austanátt
í dag en norð-vestanátt á
morgun. Ekki er reiknað
með snjókomu, nema ef til
vill við ströndina. Á mið-
vikudaginn er spáð suð-
vestanátt og þá verður
frostið eitthvað minna, en
þó 6-8 gráður. í vikulokin
verður hitastigið að líkind-
um komið um frostmark og
þá má einnig búast við ein-
hverri snjókomu.
„Nú er það?“ sagði Kristinn
G. Jóhannsson er við slógum
á þráðinn til hans og spurðum
hann hvort hann væri fyrrver-
andi formaður Menningarsam-
taka Norðlendinga, en sögu-
sagnir hafa verið á kreiki um
það að hann hafi sagt af sér
sem formaður þar.
„Ég ber ekki ábyrgð á því sem
um mig er sagt og held að þetta
hljóti að vera vitleysa,“ sagði
Kristinn. „Ég er núverandi
formaður Menningarsamtaka
Norðlendinga og þar við situr."
„Kristinn lagði fram afsagnar-
beiðni sem formaður á síðasta
fundi,“ segir hins vegar Valgarð-
ur Stefánsson sem á sæti í stjórn
samtakanna. „Á þann fund vant-
aði bæði Þóreyju Aðalsteinsdótt-
ur varaformann og Atla Guð-
laugsson gjaldkera og við sem
vorum á fundinum skoruðum á
Kristin að endurskoða afstöðu
sína og segja þá af sér þegar allir
væru viðstaddir þannig að hægt
væri að ræða málið. Kristinn tók
það ekki til greina og fór af fund-
inum,“ sagði Valgarður.
- Þess má geta að stjórnar-
fundur í Menningarsamtökunum
er fyrirhugaður á morgun og er
áformað að ræða þetta mál þar
og fá í það niðurstöðu. gk
# KR-ingar
læra
KR-ingar eru, eins og Akur-
eyringar vita, mjög duglegir
við að kaupa leikmenn frá
öðrum félögum, sérstaklega
í handknattleik og knatt-
spyrnu. Það kom því ekki á
óvart þegar KR sendi þrjá
menn til enska liðsins Liver-
pool fyrir helgina að fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnu-
deildarinnar skyldi vera einn
þremenninganna. Hann er
auðvitað að fara til Liverpool
til þess að læra af stjóranum
þar hvernig á að bera sig að
þegar leitað er eftir nýjum
leikmönnum, hvað mikla pen-
inga á að bjóða o.s.frv. Önnur
félög íslensk sem senda
menn til félaga erlendis í
námsferðir hafa hingað til lát-
ið nægja að senda leikmenn
og þá aðallega þjálfara.
• Ingvar
ritstjóri
Hinn kunni heiðursmaður,
Þórarinn Þórarinsson, rit-
stjóri Tímans, lætur af störf-
um á þessu ári og hafa marg-
ir mætir menn verið nefndir
sem arftakar hans. Meðal
þeirra sem taldir eru koma
sterklega til greina eru Magn-
ús Bjarnfreðsson og þeir
Helgi H. Jónsson og Helgi
Pétursson á fréttastofu
Útvarps. Enn einn sterkur
kandidat í baráttunni um rit-
stjórastólinn er sagður Ingv-
ar Gíslason, alþingismaður
og fyrrverandi menntamála-
ráðherra.
Lítið mun vera hæft í þeirri
„frétt“ Alþýðublaðsins að
Magnús Ólafsson, hagfræð-
ingur og tengdasonur Þórar-
ins muni senn taka við rit-
stjórastóli af Elíasi Snæland
Jónssyni, ritstjóra Tímans.
Magnús á eftir eitt ár í fram-
haldsnámí ( Þýskalandi og
hvað þá tekur við er óvíst.
Forráðamenn hins nýja út-
gáfufélags Tímans, Nútím-
ans, munu hins vegar hafa
mikinn áhuga á að fá Elías í
framkvæmdastjórastólinn.
# En Erlingur
heyrir ekki
Dropar Tfmans voru snjallir
á dögunum þegar þeir lögðu
til að Erlingur Sigurðarson,
umsjónarmaður þáttarins
Daglegs máls í útvarpinu, tæki
málfar manna á Rás 2 til sér-
stakrar athugunar. Þetta er
auðvitað góð hugmynd en
því míður er aðeins einn stór
galli á gjöf Njarðar. Erlíngur
heyrir ekkert frekar í Rás 2 en
aðrir Norðlendingar. Eina
ráðið væri því að Dropar
beittu sér fyrir því að Norð-
lendingar og aðrir þeir sem
ekki heyra í Rás 2, fengju
hana sem fyrst.