Dagur - 23.01.1984, Page 6
6 - DAGUR - 23. janúar 1984
Kjarnagangan:
Einar
vann
Hauk
- Fjögur sekúndubrot
skildu í lokin
Einar Ingvason frá ísafirði bar
nauman sigur úr býtum í Kjarna-
göngunni sem fram fór í Kjarna-
skógi í síðustu viku. Fékk Einar
tímann 27.00 mín. og bar sigur-
orð af Hauki Eiríkssyni, Akur-
eyri sem fékk tímann 27.04. í
þriðja sæti varð svo Jón Kon-
ráðsson frá Óiafsfirði á 28.12
mín.
Það er Skógræktarfélag Eyfirð-
inga sem stendur að Kjarna-
göngumótinu og var að þessu sinni
keppt í fjórum flokkum. Fyrst
kepptu 12 ára og yngri, síðan 13-16
ára, síðan kom karlaflokkurinn 17-
33 ára og loks var keppt í flokki 34
ára og eldri. Auk þess gerðust trimm-
arar á öllum aldri, m.a. heilu fjöl-
skyldurnar sporgöngumenn
keppnismannanna og þótti Kjarna-
gangan mjög vel heppnuð að þessu
sinni. Mótið fór fram á upplýstri
braut í Kjarnaskógi og fengu allir
þeir sem gengu viðurkenningu frá
Skógræktarfélagi Eyfirðinga.
í karlaflokknum voru gengnir 8.8
km eða fjórir hringir í brautinni
sem Sigurður Aðalsteinsson sá um
að leggja. Tíu keppendur voru í
flokknum og luku níu þeirra
keppni. í fjórða sæti varð Ingþór
Eiríksson, A á 29.37 og fimmti
varð Ingþór Bjarnason á 33.34.
Síðan komu Páll Jónsson D, Árni
Antonsson A, Jóhannes Kárason A
og Guðmundur Brynjarsson A, en
Finnur V. Gunnarsson Ó, sem stóð
sig mjög vel fyrstu þrjá hringina
lauk ekki keppni.
í flokki 34 ára og eldri sigraði
Sigurður Aðalsteinsson örugglega
á 23.17 en í þessum flokki voru
gengnir 6.6 km. Jón Björnsson
varð annar á 25.59, Þorlákur Sig-
urðsson þriðji á 27.11 en síðan
komu Rúnar Sigmundsson, Teitur
Jónsson, Einar Kristjánsson og
Pórarinn Sigurðsson en allir kepp-
endur voru frá Akureyri.
í flokki 12 ára var aðeins einn
keppandi, Baldvin Þ. Ellertsson, A
og fékk hann tímann 47.52.
Hörkukeppni var hins vegar í
flokki 13—16 ára en þar sigraði
Ingvi Óskarsson Ó, á mjög góðum
tíma 22.08. Annar varð Frímann
Ásgeirsson Ó, á 22.21 og þriðji
varð Gunnar Kristinsson Á, á
23.29. Síðan komu Rögnvaldur
lngþórsson A, Ólafur Björnsson Ó
og Sigurgeir Svavarsson Ó en
gengnir voru 6.6 km.
- ESE
Blak:
Fyrstu stigin til
KA-stúlknanna
unnu sanngjaman 3:1 sigur á Víkingi í 1. deild
Blakstúlkur KA unnu kær-
kominn sigur um helgina er
Víkingsstúlkurnar komu í
heimsókn. Fyrir leikinn var
KA án sigurs en að þessu sinni
áttu stúlkurnar ekki í neinum
vandræðum með að tryggja sér
bæði stigin. Unnu öruggan 3:1
sigur.
f fyrstu hrinunni var um algera
einstefnu að ræða. KA-stúlkurn-
ar skorðuð hvert stigið á fætur
öðru og svo mikill var munurinn
á liðunum að helst leit út fyrir að
Víkingsstúlkurnar væru í ein-
hverri annarri íþróttagrein. Hrin-
an endaði líka 15:0 og staðan 1:0
fyrir KA.
í annari hrinu spyrntu Víking-
ar við fótum og kom mótspyrna
þeirra KA greinilega á óvart.
- Yfirburðirnir í fyrstu hrin-
unni voru það miklir að stúlk-
urnar sofnuðu á verðinum, sagði
Sigurður Harðarson, þjálfari eftir
leikinn.
Víst er það að KA-stúlkur
sváfu á verðinum og vöknuðu
ekki af værum blundi fyrr en Vík-
ingar höfðu tryggt sér sigur í
hrinunni 10:15. Staðan því 1:1.
Síðustu tvær hrinurnar voru
svo nánast formsatriði frá hendi
KA. Þriðja hrinan fór 15:6 og í
þeirri fjórðu vann KA 15:2. Ör-
uggur 3:1 sigur í höfn og gleði
stúlknanna með þessi fyrstu stig í
deildinni að vonum mikil.
- Þetta var sigur liðsheildar-
innar. Stúlkurnar sýndu marga
ágæta takta og vörðust vel. Það
var einkum góð lágvörn sem skóp
þennan sigur, sagði Sigurður
þjálfari eftir leikinn.
- ESE
ÍS - Þón 88-69
Tap eftir
hrakninga
Leikmenn Þórs fengu
lögreglufylgd í Hagaskóla
Þórsarar urðu þess heiðurs að-
njótandi í gær að fá lögreglu-
fylgd á keppnisstað í 1. deild-
arkeppninni í körfuknattleik.
Kom þetta ekki til af góðu,
heldur hafði bfll sá sem þeir
höfðu til umráða í Reykjavík
gefið sig og því stóðu þeir eins
og glópar í óveðrinu er lögregl-
an sá aumur á þeim og keyrði
þá upp I Hagaskóla. Ekki hafði
þetta nein áhrif á Ieikinn til
hins betra því Þórsarar töpuðu
örugglega fyrir ÍS, 69:88.
Þórsarar áttu aldrei neina
möguleika í þessum leik. Það var
rétt í byrjun að þeir héldu í við
ÍS. Komust í 7:6 en ÍS breytti
stöðunni í 24:14 og í leikhléi var
staðan 42:29. í seinni hálfleik
bættu ÍS um betur og lokastaðan
varð 88:69.
Jóhann Sigurðsson var bestur
Þórsara í þessum leik og skoraði
12 stig. Guðmundur átti mjög
góðan leik í seinni hálfleik og
skoraði þá 14 stig, 18 stig í leikn-
um og hirti fjölda frákasta. Aðrir
sem skoruðu fyrir Þór voru: Ei-
ríkur 14, Konráð 11, Björn 8,
Ríkharð Lúðvíksson 4 en hann
vakti mikla athygli í vörninni og
Bjarni Bjarnason 2.
Guðmundur Jóhannesson
skoraði mest fyrir ÍS eða 20 stig
og Árni Guðmundsson skoraði
19. - ESE
Jóhann Sigurðsson (nr. 7) átti ágætan leik með Þór.
Álagastaður Þórsara
Það er eins og það séu einhver
álög á íþróttasamskiptum Þórs
og UMFL í fyrstu deildinni í
körfuknattleik. í fyrsta leiknum
sem fram átti að fara á Selfossi,
mættu engir dómarar og Þórsar-
ar máttu því hafa sig heim eftir
langa og stranga fýluferð. Leik-
urinn var settur á að nýju og nú
rétt komust Þórsarar á áfanga-
stað áður en veðurguðirnir
gripu í tauminn. Um helgina
áttu síðan Þórsarar aftur að
halda á Selfoss og leika seinni
útileikinn gegn UMFL en þá
festu þeir rútu sína í ófærð í
Þrengslunum og urðu að snúa
við.
- Við lögðum upp laust fyrir
þrjú á laugardaginn en leikur-
inn átti að hefjast klukkan
fjögur. Allt gekk svo vel þar til
við komum í Þrengslin en þá
var ofanhríðin og skafrenning-
urinn orðinn svo mikill að ekki
sást út úr augum. Rútan fór út
af og það var rétt með herkjum
að við gátum mokað okkur
lausa, sagði Gylfi Kristjánsson,
þjálfari Þórs er Dagur náði sam-
bandi við hann í Reykjavík á
laugardagskvöldið.
- Við lentum í bílalest á
bakaleiðinni og ferðin gekk
hægt. Bílarnir voru stöðugt að
fara út af veginum eða þeir fest-
ust og við vorum því vinsælustu
mennirnir í bílalestinni. Full
rúta af körfuboltamönnum sem
voru duglegir að ýta þegar með
þurfti, sagði Gylfi.
Þórsarar komust svo ekki til
Reykjavíkur fyrr en rúmlega
fimm og þá fyrst gátu þeir
hringt á Selfoss og látið vita um
þessa hrakningaferð sína. Engir
dómarar höfðu þá komist á
Selfoss en að sögn Gylfa þá
myndu dómararnir ef þeir kæm-
ust á staðinn, flauta leikinn á og
UMFL ynni því 2:0.
- Ef þannig fer, þá getum við
alltaf kært og KKÍ hlýtur að
taka röksemdir okkar til greina,
sagði _ESE