Dagur - 23.01.1984, Page 12
MdlE
Akureyrí, mánudagur 23. janúar 1984
ÞJÓNUSTA
FYRIR
r r m •
HAÞRYSTISLONGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Strandferöa-
skipin hefðu
orðið þrjú
- segir forstjóri Skipaútgerðarinnar
„Nýja Esjan hefur reynst okk-
ur mjög vel og við hefðum
gjarnan viljað hafa fleiri slík
skip, en því miður er ekki útlit
fyrir að það verði í bráð,“
sagði Guðmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Skipaút-
gerðar ríkisins í samtali við
Dag.
„Upphaflega var ætlunin að
smíða þrjú skip fyrir Skipaút-
gerðina og ég er viss um að það
hefði orðið, ef innlendar skipa-
smíðastöðvar hefðu sýnt málinu
áhuga,“ sagði Guðmundur. „Við
lögðum okkur fram um að kynna
þeim þetta verkefni og þrjár
stærstu skipasmíðastöðvarnar
hérlendis höfðu haft útboðsgögn
undir höndum í hálft ár áður en
smíði Esjunnar var boðin út.
Þrátt fyrir það kom aðeins eitt
tilboð, frá Stálvík, en það var
þannig unnið, að það lýsti ekki
áhuga af þeirra hálfu og Esjan
var smtðuð í Bretlandi. Satt að
segja eru þetta einhver þau
mestu vonbrigði sem ég hef orðið
fyrir síðan ég kom hér í Ríkis-
skip. Þetta varð til þess, að
stjórnvöld höfðu ekki áhuga á að
láta smíða fleiri skip, en þess í
stað voru keypt notuð skip er-
lendis frá,“ sagði Guðmundur.
Það kom fram í samtalinu við
Guðmund, að Esjan er stærra
skip en þeir skuttogarar sem
smíðaðir hafa verið innanlands á
undanförnum árum, en smíða-
verð lægra. Guðmundur áætlaði
að sambærilegt skip kostaði í dag
nálægt 180 m. kr. Það væri því
ekki lítils virði fyrir innlendu
skipasmíðastöðvarnar, að hafa
slíkt verkefni í dag.
„Ég er nú ekki búinn að sjá að
þessi skip hefðu verið smíðuð,
jafnvel þótt Esjan hefði verið
smíðuð hér innanlands," sagði
Gunnar Ragnars hjá Slippstöð-
inni, þegar þetta mál var borið
undir hann. „Við höfðum næg
verkefni þegar smíði Esjunnar
var boðin út, þannig að það hefði
verið sýndarmennska af okkur að
gera tilboð. Þar að auki efast ég
um að við hefðum verið sam-
keppnisfærir við Bretana, þar
sem þeirra tilboð var niðurgreitt
um 16% af breska ríkinu. Við
höfum sérhæft okkur í smíði
fiskiskipa og vildum halda okkur
við þau á meðan verkefni voru
fyrir hendi,“ sagði Gunnar
Ragnars.
Vetrarkyrrð. Mynd: KGA.
íslenska sauðkindin er lífseig:
Lifðu af hörkufrost
lengst uppi á fjöllum
Þau sluppu við sláturhúsið í
haust, ærin og lömbin hennar
tvö en það var skammgóður
vermir. I allan vetur hefur ærin
ráfað með lömbin um afréttina
í hörkufrostum og matarlítil en
hún lifði það þó ásamt öðru
lambinu að sjá björgunarsveit-
ina koma til hjálpar.
- Við höfðum grun um það að
ærin héldi sig á Hvassafellsdal en
sökum veðurs og annarra
ástæðna þá komumst við ekki til
að vitja um hana fyrr en nú, sagði
Haraldur Skjóldal á Akureyri í
samtali við Dag.
- Við fundum ána og annað
lambið eftir nokkra leit inni við
svonefnda Draga en annað lamb-
ið var horfið. Við fundum þó leif-
arnar af því skömmu síðar og það
bendir allt til þess að það hafi
frosið fast við jörðina og fuglar
hafi svo komist í það. Það var
mjög mikill klaki í báðum kind-
unum og við höfðum engin ráð
önnur en að skera hann lausan.
Reyndar var ærin það illa farin að
við urðum að skera hana en
lambið var hresst og það komum
við með heim. Líklega hefur ærin
ekki verið nægilega vel á sig
komin.
Hún kviðrifnaði sl. vor og
var því mögur í haust, sagði Har-
aldur Skjóldal. - ESE.
„Það hefur veríð fremur lítil
vinna hér að undanfömu sem
kemur til af því að Stakfellið
hefur verið í viðgerð úti í Nor-
egi og er þar enn,“ sagði jó-
hann A. Jónsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Þórshafnar h.f. er við ræddum
við hann um helgina.
„Þessi viðgerð sem togarinn er
í er tilkomin vegna bilunar í raf-
alnum. Þetta kom fljótlega í ljós
eftir að skipið kom hingað og var
reynt að lagfæra það í Slippstöð-
inni á Akureyri en án árangurs.
En þar sem þessi bilun kom upp
innan ábyrgðartímans var gripið
til þess ráðs að sigla skipinu til
Noregs þar sem viðgerð fer nú
fram. Togarinn fór 14. janúar og
við eigum von á honum heim
fyrir næstu helgi.
Já, þetta þýðir auðvitað
atvinnuleysi hér því við eigum
ekki annan togara. Bátarnir eru
ekki byrjaðir að róa nema þeir
minnstu sem hafa farið 2-3 róðra
en þeir fengu ekki neitt. Við
verðum því bara að bíða í róleg-
heitunum þangað til togarinn
kemur.
Við eigum ekki von á neinu
atvinnuleysi hér þegar Stakfellið
kemur, ef það fiskar eðlilega,
enda hefur ekki verið neitt
atvinnuleysi hér í vetur og við
erum ekki svartsýnir hérna nema
ef eitthvað óvænt kemur upp í
þessu svokallaða kvótamáli. Við
vitum auðvitað ekkert hvernig
kvóta Stakfellið kemur til með að
fá þar sem um svo nýtt skip er að
ræða en við trúum því ekki að
þannig verði á málum haldið að
við verðum að sitja hér atvinnu-
laus,“ sagði Jóhann.
Veður
í dag verður suð-vestan
átt um land allt, með
skafrenningi og élja-
gangi. Reiknað er með
hægviðri hér fyrir
norðan, en við suður og
vesturströndina verður
hvasst. A morgun er
spáð austanátt, en síðar
snýst hann I norðan og
norð-austan átt, sem á
að haldast fram á föstu-
dag.
# Góður
sjónvarps-
þáttur
í gærkvöld hóf nýr sjón-
varpsþáttur göngu sína,
„Tökum lagið“ undir stjórn
Jóns Stefánssonar, sem
hafði hressilegan kór Lang-
holtskirkju sér til fulltingis.
Auk þess var söngfólk meðal
áhorfenda og Jón hvatti
landsmenn til að taka undir
og til að auðvelda þeim það
birtust textar iaganna á
skjánum. Það er skemmst
frá að segja að þessi þáttur
var hressilegur og lofaði
góðu um framhaldið. Eflaust
hefur „allt landið og miðin“
ómað af kröftugum söng á
sunnudagskvöldið.
# Ladyin fertug
Þá hefur My fair Lady verið
sýnd 40 sinnum í gamla sam-
komuhúsinu og öll fyrri sýn-
ingarmet Leikfélagsins löngu
fokin. Margir sýningargestir
hafa komið langt að til að sjá
herlegheitin og enginn hefur
haldið vonsvikinn heim. Sýn-
ing Leikfélagsins hefur því
skapað beinar og óbeinar
tekjur fyrir bæjarfélagið og
sannað enn og aftur, að kröft-
ug leiklistarstarfsemi er
ómissandi þáttur í bæjarlíf-
inu. Gamla sýningarmetið átti
söngleikurinn Nituce, sem
sýndu var fyrir réttum 20
árum. Vonandi þurfa Akur-
eyringar ekki að bíða enn í 20
ár efir næsta söngleik.
# Samdráttur í
skemmtana-
lífi
„Kreppan“ mun nú vera farin
að segja til sín í skemmtana-
lífinu, enda ekki óeðliegt að
þar geri minnkandi auraráð
fyrst vart við sig. Á föstu-
dagskvöldið var t.d. lítið um
aö vera á skemmtistöðum
Akureyrar. Sumir voru án
gesta og leigubílar hreyfðust
varla. Laugardagskvöldið var
hins vegar ögn líflegra.