Dagur - 25.01.1984, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
67.árgangur
Akureyri, miðvikudagur 25. janúar 1984
11. tölublað
Hundur át
svefnlyf
og drapst
- Við viðurkennum að við
höfðum ekki leyfi til þess að
hafa tíkina lausa en það breytir
því ekki að okkur finnst vægast
sagt illa að þessu staðið. Eitr-
inu er dreift um útivistarsvæði
og í þessu tilfclli virðist hafa
verið um gífurlega mikið magn
að ræða, sögðu hjónin Kristján
Jóhannesson og Helga Nóa-
dóttir í samtali við Dag en þau
lentu í því fyrir helgina að írsk-
ur veiðihundur sem þau áttu,
drapst eftir að hafa étið kjöt
með svefnmeðalinu Fenemal
sem ætlað var til þess að svæfa
hrafna.
- Ég harma það að þetta skuli
hafa gerst en ég ítreka að það var
á allan hátt staðið löglega að
þessu af hálfu meindýraeyðis.
Hér var ekki um neitt óvenjulegt
magn af lyfinu að ræða og því var
komið fyrir í nágrenni Gróðrar-
stöðvarinnar undir ströngu eftir-
liti, sagði Valdimar Brynj-
ólfsson, heilbrigðisfulltrúi Akur-
eyrarbæjar er Dagur bar þetta
mál undir hann.
Valdimar sagði að Jón Bjömsson
meindýraeyðir hefði komið
svefnlyfinu fyrir til þess að svæfa
hrafna sem höfðu unnið spjöll á
trjágróðri í Gróðrarstöðinni og
hann og tveir aðrir menn hefðu
verið á varðbergi og fylgst með
ferðum í nágrenninu. Þeir hefðu
séð hundinn í nágrenninu en þeg-
ar að var gáð kom í ljós að engin
spor voru þar sem lyfinu var
komið fyrir.
- Ég dreg þó ekki í efa að
hundurinn hefur komist í lyfið en
það hefur gerst síðar og án þess
að eftirlitsmennirnir sæu til, sagði
Valdimar.
- En er ekki einkennilegt að
hundurinn skuli hafa drepist af
venjulegum skammti af svefnlyf-
inu?
- Ég kann engar skýringar á
því. nema e.t.v. þær að hann hafi
étið mjög mikið af kjötinu sem
lyfið var sett í. Venjulega sofna
hrafnarnir ekki einu sinni af lyf-
inu. Þeir vankast um stund en ná
sér svo að fullu, sagði Valdimar
Brynjólfsson.
Bæði Valdimar og Jón Bjömsson
meindýraeyðir sögðu að eigendur
hundsins hefðu oftsinnis verið
varaðir við því að láta hundinn
ganga lausan. Þeim áminningum
hefði í engu verið sinnt og eig-
endurnir því oftar en einu sinni
gerst brotlegir við lög um hunda-
hald. Jón Björnsson, meindýra-
eyðir tók það fram að hann væri
þeirrar skoðunar að það hefði
verið illa hugsað um hundinn og
hann vissi til þess að hundurinn
hefði í vetur fundist illa haldinn
úti í Þorpi.
Blaðið bar þessi ummæli Jóns
undir Kristján og hann sagði að
þetta væri gjörsamlega út í hött,
það gæti hver sem er vitnað um
að vel var um hundinn hugsað og
hún hefði aldrei verið illa haldin
af kulda og vosbúð. - ESE/HJS.
Sjá nánar bls. 7.
„Breytir engu um líf-
daga meirihlutans“
- segir Jón Sigurðarson um stóriðjufillögu sína í bæjarstjórn
„Tilgangur minn meö þess-
um tillöguflutningi var að fá
vilja meirihluta bæjarstjórn-
ar í stóriðjumálinu á hreint,“
sagði Jón Sigurðarson, vara-
bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, í samtali við Dag.
Tillaga Jóns, um stuðningsyfir-
lýsingu við stóriðju við Eyja-
fjörð, ef rannsóknir sýni að með
því sé lífríki hans ekki stofnað í
hættu, var samþykkt í bæjar-
stjórn í gær, með atkvæðum fram-
sóknar-, sjálfstæðis- og alþýðu-
flokksmanna. „Það hafa staðið yfir
viðræður við erlenda aðila um þátt-
töku í byggingu álvers við Éyja-
fjörð. í þeim umræðum þarf vilji
sveitarstjórna að liggja fyrir.
Eftir samþykkt tillögu minnar
þurfa menn ekki að fara í neinar
grafgötur um vilja bæjarstjórnar
Akureyrar, því hún er það skil-
merkilega orðuð, að hún skilst.“
- Veldur þetta einhverjum
bresti í meirihlutasamstarfi Fram-
sóknarflokksins með Alþýðu-
bandalaginu og Kvennaframboð-
inu?
„Nei, það tel ég ekki, enda
gengu flokkarnir óbundnir til
þessa samstarfs varðandi afstöðu
til stóriðjunnar. Það er því ekk-
ert óeðlilegt þótt nýr meirihluti
myndist nú um þetta mál og það
breytir engu um lífdaga þess
meirihluta sem verið hefur og
verður væntanlega áfram,“ sagði
Jón Sigurðarson. - GS.
Fjörugar umræður urðu á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær og margar framboðsræður haldnar, enda komu
fjölmargir áheyrendur á fundinn, nokkuð sem bæjarfulltrúar eiga ekki að venjast. Rætt var um atvinnumál og
spunnust umræður einkum um álver eða ekki álver við Eyjafjörð. Hér mælir Jón Sigurðarson fyrir samþykkt
atvinnumálanefndar. MyndiKGA.
Siglfirðingur:
Vinna hefst
líklega í
febrúar
Enn hefur ekki verið gengið
endanlega frá samningum á
milli Siglfirðings hf. og Slipp-
stöðvarinnar um breytingar á
togaranum Siglfirðingi í frysti-
togara. Gunnar Ragnars, for-
stjóri Slippstöðvarinnar sagði
í samtali við Dag að þeir stæðu
í stöðugu sambandi við útgerð-
ina og allt benti til þess að tog-
arinn yrði tekinn upp í slipp í
Iok febrúar.
- Mér skilst að það séu ýmis
mál sem útgerðin á eftir að ganga
frá áður en við getum gengið frá
samningum en vissulega væri
ágætt að fá þetta verkefni eins og
staða mála er í dag. Þetta er að
vísu ekkert risaverkefni en þó
talsvert stórt, sagði Gunnar
Ragnars.
Að sögn Gunnars er stöðugt
leitað nýrra verkefna og m.a. er
öllum möguleikum á hugsanleg-
um viðskiptum við erlenda aðila
haldið opnum.
Varðandi Bergvíkina, sem nú
er verið að vinna við hjá Slipp-
stöðinni án þess að ábyrgð fyrir
nauðsynlegum lánum liggi fyrir,
sagði Gunnar Ragnars:
- Við erum að berjast í þessu
upp á von og óvon til þess að
halda uppi atvinnu. Það er svo
spurningin hvort nauðsynleg
fyrirgreiðsla fæst. - ESE.
Símahlerun í Hjallalundi
Um helgina komst upp um
símahlerun sem átt hefur sér
stað í fjölbýlishúsi við Hjalla-
lund á Akureyri, og var málið
samstundis kært til rannsókn-
arlögreglu bæjarins.
íbúar í fjölbýlishúsinu voru að
vinna við að mála í sameign.
Þurftu þeir að fjarlægja lok sem
er á stofni símans í húsinu og sáu
þá torkennilegan hlut þar inni.
Var kallað á lögreglu og við at-
hugun hennar og tæknimanns
frá Pósti og síma kom í ljós að
hér var um segulbandstæki að
ræða og höfðu vírar verið tengdir
úr því inn á eitt ákvéðið númer í
húsinu.
„Það fannst hlerunartæki í fjöl-
býlishúsi á Akureyri um helgina
og málið er í rannsókn. Þetta er
það eina sem ég get sagt um mál-
ið á þessu stigi,“ sagði Ófeigur
Baldursson sem hefur rannsókn
málsins með höndum hjá rann-
sóknarlögregiunni.
„Það var fenginn verkstjóri
frá okkur til þess að fara með lög-
reglunni á staðinn," sagði Ársæll
Magnússon umdæmisstjóri Pósts
og síma.
„Þetta er auðvitað brot á fjar-
skiptalögum og þess vegna
stranglega bannað," sagði
Ársæll. „í 22. grein fjarskiptalaga
segir: „Enginn má án heimildar
taka við fjarskeytum, myndum
eða öðrum fjarskiptamerkjum
eða hlusta á fjarskiptasamtöl.
Ekki má heldur skrá neitt slíkt,
tilkynna það öðrum eða nota sér
það á nokkurn hátt.“
/
- En lögreglan getur fengið
undanþágu?
„Það segir í 19. grein fjar-
skiptalaganna: „Þrátt fyrir fyrir-
mæli 1. málsgreinar má veita lög-
reglunni aðgang að því að hlusta
á símtöl þegar öryggi landsins
krefst þess eða um mikilsverð
sakamál er að ræða, enda hafi
dómsmálaráðherra í hvert skipti
fellt skriflegan úrskurð um að svo
skuli gert.““
Ársæll sagði einnig að svona
mál hefðu ekki komið upp áður.
„Við erum afskaplega óhressir
yfir þessu og við munum hafa
augun betur opin gagnvart svona-
lögðuðu en verið hefur.
♦