Dagur - 27.01.1984, Page 6

Dagur - 27.01.1984, Page 6
6 - DAGUR - 27. janúar 1984 Félagar í Passíukórnum héldu uppi gleðinni í söngnum af myndugleik, eins og þeim einum er lagið. -adyin var að sjálfsögðu mætt; Ragnheiður Steindórsdóttir með eiginmanni sínum, Jóni Þórissyni. Síðastliðið laugardagskvöld varð „Ladyin“ fertug, alltso þá var fertugasta sýn- ingin á May fair Lady hjá Leikfélagi Akureyrar. Af því tilefni var að sjálfsögðu haldin heljarmikil miðnæt- urveisla að lokinni sýningu. Sjallinn bauð öilum mann- skapnum í mat upp í „Mánasal“ af rausnarskap, en síðan var drukkið og dansað fram á rauða nótt. Og áfram verður haldið við að sýna Ladyina í Sam- komuhúsinu og effer fram sem horfír má búast við fímmtugsafmælisveislunni 25. febrúar! Ljósmyndari Dags var að sjálfsögðu á staðnum í fertugsafmælinu og hér á síðunni má sjá sýn- ishorn af gleðskapnum. -GS. Higgins gamli þurfti náttúrlega að vanda um við Elísu, en í góðu samt. Sunna Borg lét sitt ekki eftir liggja við tiltektina að loknu borðhaldi. Starfsfólk Sjallans sá til þess að allir fengu nóg að bíta og brenna. Sjálfur prófessorinn; hann Arnar Jónsson, átti afmæli þennan dag og varð hann fjörutíu og eins árs Og að sjálfsögðu var Doolittle gamli mættur; Þráinn Karlsson í öllu sínu veldi. Myndir: GS.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.