Dagur


Dagur - 27.01.1984, Qupperneq 13

Dagur - 27.01.1984, Qupperneq 13
Utvarp á laugardag kl. 21.20: „Ætli Jóhann Már sé ekki vinsælasturu - segir Hilda Torfadóttir, umsjónarmaður „Sveitalínunnar44 - Þetta hefur gengið af- skaplega vel. Ég er búin að vera með þáttinn síðan 11. júní og er búin að tala við nokkur hundruð manns. Ég hef svo til undantekningar- laust fengið mjög góðar við- tökur hjá því fólki sem ég hef hringt í. Það eru 2 eða 3 sem ekki hafa viljað ræða við mig, en það er ekki stórt brot af öllum þessum fjölda. Þetta sagði Hilda Torfadótt- ir, er hún var innt eftir því hvernig hefði gengið með þátt- inn „A sveitalínunni“, sem er á dagskrá annað kvöld. Jóhann Már. - Ég tek fyrir einn hrepp í hverjum þætti og í næsta þætti tek ég fyrir Skefilstaðahrepp í Skagafirði. Ég vinn þetta þannig, að þegar ég er búin að ákveða hvaða hrepp ég ætla að taka fyrir, tala ég við einhvern sem þekkir til í hreppnum. Fæ þannig upplýsingar um ábú- endur á bæjunum og slíkt. Því næst hringi ég í fólkið í hreppnum og ef ég hitti á ein- hvern áhugaverðan fer ég með hann í upptöku og tek upp símtal við hann. Allir velja sér lög og oft er erfitt að útvega þau lög sem beðið er um. Eg á eitthvað af plötum sjálf, ÚT varpið á Akureyri á dálítið, en þó nokkuð þarf ég að fá frá tónlistardeild útvarpsins í Reykjavík. Ef fólk biður um lög sem ég held að verði erfitt að útvega bið ég það að velja sér varalag og ég dáist að því hvað fólk er ákveðið í hvaða lög það vill hlusta á. Ætli ég megi ekki segja að Jóhann Már sé vinsælastur, en það eru því miður ekki til nema fá lög með honum á hljómplötum. Annars er tónlistarvalið mjög fjölbreytt, dægurtónlist, klass- ík og allt þar á milli. - Hver hafa viðbrögð fólks verið? - Mér virðist á öllu að það sé þó nokkuð hlustað á þáttinn. Ég hef fengið mikið af bréfum, um jólin fékk ég dá- lítið af jólakortum og á laugar- dagskvöldum eftir þáttinn stoppar síminn ekki. Það er aðallega gamalt fólk sem hringir, það er oft að leiðrétta ef ég hef farið rangt með, ég er oft með gamlar heimildir og þær eru ekki alveg pottþéttar og einnig er það að þakka mér fyrir þáttinn. Um daginn hringdi í mig hestamaður sem hafði farið ríðandi um sveitina sem ég var að lýsa og hann sagðist hafa upplifað það aftur við að hlusta á þáttinn, sagði Hilda Torfadóttir. - HJS. Hildá Torfadóttir. Sjónvarp á laugardag kl. 23.05: WoodyAlIen í bananastuði Seinni myndin á laugar- dagskvöldið nefnist Ban- anastuð. Hefst hún kl. 23.05. Fielding Mellish er ósköp venjulegur maður, sem skyndilega lendir í hringiðu pólitískrar bylt- ingar í bananalýðveldinu San Marcos í Suður- Ameríku. Fielding finnst eins og eitthvað vanti í hversdagslífið, en gerir sér ekki grein fyrir hvað það er. Eftir langa röð af óvæntum uppákomum, m.a. misheppnað ástar- ævintýri með Nancy, uppgötvar Fielding að hann hefur gaman af að taka þátt í byltingunni. Þegar leiðtogi San Marc- os er ráðinn af dögum er Fielding kosinn leiðtogi þjóðarinnar. Hann fer aftur til Bandaríkjanna í fundaferð og örlögin haga því svo að hann hitt- ir Nancy aftur. HJS. Woddy Allen Sjónvarp á laugardag kl. 21.05: „ Guli Rollsinn “ Fyrri myndin á laugar- með hinum ýmsu eigend- ir bílinn handa konu sinni sem notar hann til aö dagskvöldið er „Guli um hans og hvernig í sárabætur, eftir að hafa smygla vini sínum til Júg- Rollsinn", hefst hún kl. Rollsinn verður örlaga- gleymt brúðkaupsafmæli óslavíu, svo hann geti 21.05. Myndin fjallar um valdur í lífi þeirra allra. þeirra hjónanna. Stríðið stjórnað starfsemi and- gula bifreið af gerðinni Fyrsti eigandinn er ensk- skellur á og bíllinn kemst spyrnuhreyfingarinnar Rolls Royce, er fylgst ur sendiherra, sem kaup- í hendur Gerdu Millet, þar í landi. HJS. Hótel Varðborg Veitingasala Árshátíðir Þorrablót Einkasamkvæmi Köld borö Heitur veislumatur Þorramatur Smurt brauð Snittur Coktailsnittur Getum lánað dlska og hnífapör Útvegum þjónustufólk Sími 22600 Júníus heima 24599 27. janúar 1984 - DAGUR -13 Ragnheiður Steindórsdóttir f My falr Lady. Leikfélag Akureyrar My fair Lady Sýningar 41. sýning föstudag 27. jan. kl. 20.30. 42. sýning laugardag 28.jan. kl. 20.30. Miðasala opin alla daga kl. 16-19 kvöldsýningardaga kl. 16-20.30. Sími 24073. Ósóttar miðapantanir seldar tveimur tímum fyrir sýningu. Sýningum fer að fækka Leikfélag Akureyrar. ÖLL ÞJÓNUSTA FYRIR Háþrýstislöngur. tengi&barka í BÍLINN, SKIPIÐ EÐA VINNUVÉLINA PRESSUM TENGIN Á • VÖNDUÐ VINNA Ný og stærri tæki ÞÓRSHAMAR hl. SÍMI 96-22700 HVAR SEM ER • HVENÆR SEMER VÆT - Útboð Fyrir hönd Innkaupastofnunar ríkisins er hér með óskað eftir tilboðum í múrverk innan- húss í hluta áfanga II a Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri. Útboðsgögn verða afhent hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík og Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen (VST hf), Glerárgötu 36, Akureyri, frá og með mánudegi 30. janúar nk., gegn skilatryggingu kr. 2000- Tilboð, sem borist hafa, verða opnuð hjá Inn- kaupastofnun ríkisins Borgartúni 7, Reykjavík þriðjudaginn 7. febrúar nk. kl. 11.00.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.