Dagur - 30.01.1984, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
f
67.árgangur
Akureyri, mánudagur 30. janúar 1984
13. tölublað
Álverssamningar?
mm mr m m m m m mM. ■ ■ a ■ ■■ r m r mm ■■ r m
- Ég er ánægður með þessa
samþykkt en hún nægir mér
ekki. Ég vona að allur almenn-
ingur við Eyjafjörð og helst
víðar verði sammála og ein-
huga um þetta þjóðþrifafyrir-
tæki. Ég fékk það í gegn á fjár-
lögum að fé yrði veitt til þess
að gera mengunar- og dreifing-
arspá og mér er mikið í mun að
þetta fyrirtæki verði fljótlega
að veruleika. Ég er elskur að
þessu landsvæði, Akureyri og
Eyjaflrði af sérstökum ástæð-
- Kanadíska fyrirtækið ALCAN sýnir málinu mikinn áhuga
um því að sá litli þroski sem ég
kann að hafa meðtekið á lífs-
leiðinni var tekinn út þar.
Petta sagði Sverrir Hermanns-
son, iðnaðarráðherra m.a. er
samþykkt bæjarstjórnar Akur-
eyrar frá fyrri viku um stuðnings-
yfirlýsingu í stóriðjumálinu var
borin undir hann. Að sögn Sverr-
is Hermannssonar þá má búast
við allt að tveggja ára samnings-
tímabili í þessu máli og hann
væri ekki úrkula vonar um að
hægt væri að hefja samningsum-
leitanir þegar á þessu ári. Bygg-
ing stóriðju tæki langan tíma og
því væri um að gera að hraða
undirbúningi eftir föngum, þann-
ig að allt væri tilbúið ef ákveðið
yrði að ráðast í stóriðju við Eyja-
fjörð.
- Það er a.m.k. tveggja ára
fullt starf fyrir mjög stóran hóp
manna að byggja álver af þeirri
stærðargráðu sem nú er talað um.
Petta er að vísu mjög stórt álver.
Pað er tvöfalt stærra en upphaf-
lega var ráð fyrir gert.
- Hafið þið einhverja samn
ingsaðila í huga? Einhverja sem
hafa sýnt sérstakan áhuga á að
taka þátt í byggingu álvers við
Eyjafjörð?
- Ég get ekki neitað því að
ALCAN, kanadískt fyrirtæki,
eitt það stærsta í heimi á sínu
sviði hefur sýnt þessu mikinn
áhuga og fleiri eru inni í mynd-
inni. Þetta á einnig við um kís-
ilmálmverksmiðjuna og ég er
mjög ánægður með það hve vel
hefur verið unnið í stóriðju-
nefnd.
- Verður þá ekki að hugsa raf-
orkumálin upp á nýtt og það
fljótlega?
- Það liggur auðvitað í augum
uppi að raforkuframkvæmdir
verða að haldast í hendur við
orkusöluna en þó mega þær ekki
vera á undan. Viðsemjendur
okkar mega aldrei fá þá hugmynd
að við neyðumst í stóriðju vegna
þess að við eigum raforku í stór-
um stíl, sagði Sverrir Hermanns-
son. - ESE.
Á sunnudögum gefa menn sér stundum tíma til að líta upp frá brauftstritinu, fá sér jafnvel göngutúr og spá í nátl -
úruna - sem æði oft er eins og hið besta bíó. Mynd: KGA
Borgarbíó
vill
80 krónur
„Ástæöan fyrir því að við
höfum ekki sýnt „Skilaboð til
Söndru“ á Akureyri er einfald-
lega sú að Borgarbíó hefur vilj-
að fá meira í sinn hlut af hverj-
um aðgöngumiða en við viljum
sætta okkur við,“ sagði
Guðný Halldórsdóttir sem er
framkvæmdastjóri Umba,
fyrirtækisins sem stóð að gerð
myndarinnar.
„Það var ætlun okkar að Akur-
eyri yrði fyrsti staðurinn utan
Reykjavíkur sem myndin yrði
sýnd á, en þar sem forráðamenn
Borgarbíós fóru fram á 80 kr. af
hverjum aðgöngumiða sem seld-
ur er á 150 krónur hefur ekki orð-
ið af því enn. Allir aðrir aðilar
sem hafa tekið myndina til sýn-
inga hafa látið sér nægja 40 krón-
ur af hverjum miða. Én þetta er
ekki endanlegt, ég ætla að reyna
að ræða betur við þá hjá Borgar-
bíói og sjá hvort ekki fæst botn í
málið,“ sagði Guðný.
Stórfyrirtæki í Árskógshreppi:
„Pað er heiðríkja
yfir þessu öllu“
„Stofnfundur fyrirtækisins var
haldinn þann 11. janúar og það
eru komnir 170-180 hluthaf-
ar,“ sagði Sveinn Jónsson í
Kálfsskinni er við ræddum við
hann fyrir helgina, en Sveinn
var á dögunum kjörinn for-
maður hins nýja fyrirtækis Ár-
vers sem stofnað hefur verið í
Árskógshreppi. Tilgangur
fyrirtækisins er að koma af
stað rækjuvinnslu í hreppnum,
frystingu til að byrja með en
einnig niðurlagningu þegar
fram líða stundir.
„Það eru allar útgerðirnar hér
í sveitinni sem standa að þessu,
Árskógshreppur, einstaklingar
og Kaupfélag Eyfirðinga sem á
þriðjung og hlutafé er komið yfir
7 milljónir króna. Einstakling-
arnir sem standa að þessu eru yfir
150 talsins."
- Þannig að það er mjög mikil
samstaða í þessu máli í
hreppnum?
„Já, það er ákaflega skemmti-
legt að vinna að þessu vegna þess
hversu fólkið tekur virkan þátt í
þessu og sýnir áhuga sinn á því að
einhverjar nýjungar eigi sér stað
í atvinnulífinu hérna. Það er
heiðríkja yfir þessu öllu.
Við höfum mikinn áhuga á því
að byrja rækjuvinnsluna niðri á
Árskógssandi þar sem við höfum
fengið leigt húsnæði og þá með í
huga fleiri framleiðslugreinar en
rækjuvinnslu eins og niðurlagn-
ingu og slíkt.
Við höfum í huga að byggja
verksmiðjuhús á iðnaðarsvæði
sem við erum að skipuleggja fyrir
sveitarfélagið og þar yrði rækju-
vinnsla til frystingar ásamt niður-
suðu sem yrði til þess að hægt
yrði að hafa lengri vinnutíma í
verksmiðjunni á hverju ári.
Það verða 7 bátar af 9 stærri
bátum hér í hreppnum sem
stunda rækjuveiðarnar héðan í
sumar, 40-70 tonna bátar. Ef vel
gengur má hugsa sér að þetta geti
veitt allt að 30 manns vinnu mið-
að við tvær vaktir í verksmiðj-
unni en 14—16 manns til að byrja
með.“