Dagur - 30.01.1984, Side 11
30. janúar 1984 - DAGUR -11
Svar til
hitaveitustjóra
í síðasta helgarblaði Dags birtust
athugasemdir hitaveitustjóra um
þá tillögu mína, að hitastig vatns
frá hitaveitunni yrði miðað við
hitaþörf húsa í bænum.
í þessari grein sinni heldur
hann því fram, að þessi hugmynd
sé fram komin annað hvort af
misskilningi eða illum hvötum.
Og ekki er látið þar við sitja,
heldur er sagt, að hönnun hita-
veitunnar hafi verið ein mistaka-
saga og látið að því liggja að
gróðasjónarmið hönnuða hafi
ráðið miklu um. Hann virðist
telja, að ég sé óverðugur að
koma fram með tillögur um
rekstur hitaveitunnar vegna
. „fyrri mistaka“ við hönnun
hennar. Ekki ætla ég að fara að
karpa við hitaveitustjóra á opin-
berum vettvangi um hönnun hita-
veitunnar, enda sé ég ekki að það
komi því máli við, sem hér er til
umræðu en það sem hann virðist
setja mest fyrir sig er að kerfið sé
of vítt.
Þetta má til sanns vegar færa,
áætlað var að mesta vatnsnotkun
á m3, hér yrði svipuð og í Reykja-
vík, en komið hefur í ljós að hún
er mun minni. Ef hitaveitan
breytir yfir í mælakerfi, eins og
hitaveitustjóri leggur til, sé ég
enga ástæðu til að ætla annað en
að vatnsnotkun yrði svipuð hér
og í Reykjavík, eins og gert var
ráð fyrir við hönnun.
Hitaveitustjóri finnur tillögu
minni allt til foráttu. Hann birtir
útreikninga, sem virðast við það
miðaðir, að hitastig yrði hækkað
í 90°C og haldið svo háu stöðugt,
eða a.m.k. eins lengi og það er
nú í 80°C.
í tillögu minni er gert ráð fyrir
að hitinn yrði breytilegur eftir
útihitastigi, meðalhitinn á vatn-
inu yrði t.d. 77°C tii 78°C (meðal-
hiti á Akureyri í janúar er -1,5°
C), sem er svipað því sem nú er.
Aðra mánuði yrði hann lægri en
nú er.
Hann bendir á, að óheimilt sé
samkvæmt byggingarreglugerð
að neysluvatn fari yfir 80°C.
Þetta er rétt, en einnig er vitað,
að til eru hitaveitur hérlendis,
þar sem hitastig er hærra. Það
virðist því mögulegt að fá undan-
þágu frá þessu ákvæði. Jafnframt
fullyrðir hann, að mörg óhugnan-
leg slys hafi hent, þar sem kerfis-
hiti er yfir 80°C.
Þetta er vissulega alvarlegt mál
ef rétt er, en ástæðan til þess að
ég „dirfðist" að koma fram með
þessa tillögu mína var meðal ann-
ars sú, að við Akureyringar
bjuggum við þetta „hættulega"
hitastig nokkur fyrstu ár hitaveit-
unnar og veit ég ekki til að nokk-
ur maður hafi kvartað.
Haraldur Sveinbjörnsson.
Erum nú á Norðurlandi.
Við einangrum og
lokum kuldann úti
innblásin steinull
einföld og góð lausn
Umbo&smaður
Akureyri: Magnús Ingólfsson
sími21735 - 23248
Ólafsfjörður: Bjarki Sigurðsson sími 62362
Siglufjörður - Sauðárkrókur:
Örn Ólafsson sími 95-5946
Árskógsströnd:
Sveinn Jónsson Kálfsskinni sími 63165
Dalvík: Brynjar Friðleifsson sími 61214
Grenivík: Friðrik Þorsteinsson sími 33155.
Biönduós: Már Pétursson sími 95-4571
Hvammstangi - Húnavatnssýsla:
Halldór Jóhannsson sími 95-1592
Hofsós:
Stefán Gunnarsson sími 95-6393
HUSA^H
EINANGRUN
Klapparstíg 27 Rvík s=91 -15934
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 1. febrúar nk. kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Valgerður Bjarnadóttir og Gunn-
ar Ragnars til viðtals í fundarstofu bæjarráðs,
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.
Hestamenn! if
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Stolnaö 5 nóv 1928 P O Bo« 348 - 602 Akuiayri
Áskrift, afgreiðsla,
auglýsingar.
Sími 24222
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Hjallalundi 11 c, Akureyri, þingl. eign Hólmfríðar
Pálmadóttur, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka ís-
lands á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febrúar 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Ásabyggð 18, kjallara, Akureyri, þinglesin
eign Frímanns Hallgrímssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl., Ragnars Steinbergssonar hrl. og Tryggingastofn-
unar ríkisins á eignini sjálfri föstudaginn 3. febrúar 1984 kl.
11.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 64., 66. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Strandgötu 23, (götuhæð og viðbyggingu), Ak-
ureyri, þingl. eign Hafnarbúðarinnar h.f. fer fram eftir kröfu inn-
heimtumanns ríkissjóðs, Ara Isberg hdl., Guðmundar Óla
Guðmundssonar hdl., Ásgeirs Thoroddsen, Búnaðarbanka
íslands, Reykjavík, Árna Guðjónssonar hrl. og Tómasar Þor-
valdssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 3. febrúar 1984
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hjallalundi 1e, Akureyri, talin eign Jóseps
Guðbjartssonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka íslands veð-
deildar, Gunnars Sólnes hrl. og Björns J. Arnviðarsonar hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 3. febrúar 1984 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 73. og 76. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983
á fasteigninni Frostagötu 3b, B-hluta, Akureyri, þingl. eign
Barð s.f. fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs, innheimtumanns
ríkissjóðs og bæjarsjóös Akureyrar á eigninni sjálfri föstudag-
inn 3. febrúar 1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri