Dagur - 01.02.1984, Síða 1
latinn
Sígurður Óli Brynjólfsson,
bæjarfulltrúi og kennari á Ak-
urcyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri í gær á
fimmtugasta og fimmta aldurs-
ári.
Sigurdur ÓIi Brynjólfsson
var fæddur í Ytra-Krossanesi
8. september 1929. Hann hóf
ungur kennslu við Gagnfræða-
skólann á Akureyri og þar
starfaði hann í um þrjá ára-
tugi. Samhliða kenndi hann
við Iðnskólann og síðustu árin
hafa ekki aðrir skólar notið
kennslukrafta hans.
Sigurður Óli var bæjarfuU-
trúi fyrir Framsóknarflokkinn
í nær 22 ár, jafnframt því sem
hann starfaði í ýmsum nefnd-
um og ráðum bæjarins, m.a.
bæjarráði og skólanefnd, þar
sem hann var lengi formaður.
Auk-þess gegndi Sigurður Óli
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Framsóknarflokkinn, var m.a.
um tíma í miðstjórn flokksins
og stjórn Framsóknarfélags
Akureyrar og undanfarin ár
hefur hann átt sæti í blaðstjórn
Dags. Einnig var hann vara-
formaður í stjórn Kaupfélags
Eyflrðinga til dauðadags og
ýmis önnur trúnaðarstörf tók
hann sér á hendur og leysti
farsællega.
Með Sigurði Óla er genginn
stórbrotinn persónuleiki, mik-
iil mannvinur og góður
drengur. Blessuð sé minning
hans. Dagur sendir eftirlif-
andi eiginkonu hans, Hólm-
fríði Kristjánsdóttur og fjöl-
skyldu innilegar samúðar-
kveðjur. - GS.
67. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 1. febrúar 1984
14. tölublað
500. fundur bæjarstjórnar Húsavíkur var haldinn í gær. Fyrsti fundurinn var haldinn 31. janúar 1950 og eru því 34
ár síðan bæjarstjórn Húsavíkur kom saman til fyrsta fundar. Á fundinum í gær var m.a. samþykkt tillaga um að
stofna framkvæmdalánasjóð í bænum og lagði Húsavíkurkaupstaður fram 100.000 krónur sem stofnframlag.
- ESE/Mynd gk.
„Slippstöðin smíði
togara fyrir ÚA“
Sverrir Hermannsson, iðnað-
arráðherra mun leggja það til í
ríkisstjórninni á næstunni að
Útgerðarfélagi Akureyringa
verði heimilað að láta smíða
nýtt skip í stað Sólbaks og að
SÍippstöðinni á Akureyri verði
falið það verkefni.
- Ég hef lagt fram tillögu í
ríkisstjórninni um að fjármagn
verði útvegað til þess að hægt sé
að standa undir viðgerðum á
skipastólnum.
Ég á von á því að
þetta mál skýrist innan tíðar og
við verðum við óskum skipa-
smíðastöðvanna. Slippstöðin á
Akureyri þarf meira fjármagn og
ég mun sækja það afar fast að Út-
gerðarfélagi Akureyringa verði
gert kleift að endurnýja flota sinn
og byggja nýtt skip þar í stað
Sólbaks, sagði Sverrir Her-
mannsson í viðtali við Dag.
- Hvernig líst þér á hugmyndir
forráðamanna Slippstöðvarinnar
sem lagðar hafa verið fram í
skipasmíðanefnd um að tveir
menn verði ráðnir til að leita
verkefna erlendis?
- Mér líst mjög vel á allt nýtt
sem mönnum dettur í hug. Deyfð
og doði er mér ekki að skapi en
hingað til höfum við verið allt of
seinir og ekki nógu hugmynda-
auðugir og því líst mér vel á
þessa tillögu, sagði Sverrir Her-
mannsson. - ESE.
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra:
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
. SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
Álagningarprósenta útsvara á Akureyri:
- jafnvel lægri
11%
„Það hefur engin ákvörð-
un verið tekin um álagn-
ingarprósentu útsvara, en
það verður gert þegar
komin verður glögg
mynd á fjárhagsáætlun,
þannig að við sjáum hvað
fjárhagurinn Ieyfir,“
sagði Sigurður Jóhannes-
son, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins á Akur-
eyri, í samtali við Dag.
Samkvæmt heimildum Dags
liggja nú fyrir frumdrög að fjár-
hagsáætlun fyrir bæjarsjóð Akur-
eyrar vegna nýbyrjaðs árs. Þar er
reiknað með 11% útsvarsálagn-
ingu, í stað 12,1% álagningar á
fyrra ári. Þá var „raunútsvar"
hins vegar ekki nema 6,75%
vegna óðaverðbólgunnar, en ef
reiknað er með 20% verðbólgu á
þessu ári verður „raunútsvar" í ár
9,2% miðað við 11% álagningu.
Sigurður var spurður hvort vilji
væri til þess meðal bæjarfulltrúa
Framsóknarflokksins að lækka
útsvarsprósentuna enn frekar, ef
í ljós kæmi svigrúm til þess við
gerð fjárhagsáætlunar.
„Já, við höfum fullan áhuga á
því, ef það reynist mögulegt, því
við vitum að slíkt kemur sér vel
fyrir gjaldendur. Við höfum
einnig hug á því að lækka að-
stöðugjöldin á þeim atvinnu-
greinum sem erfiðast eiga upp-
dráttar, til að efla atvinnulífið í
bænum. En það er ekki útséð um
það enn, hvort þetta verður
framkvæmanlegt," sagði Sigurð-
ur Jóhannesson.
„Við munum styðja tillögur til
lækkunar á álagningarprósentu
útsvara, ekki síst vegna þess að
fasteignagjöldin hækkuðu óeðli-
lega milli ára samkvæmt vilja
vinstri meirihlutans,“ sagði Sig-
urður J. Sigurðarson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins, í sam-
tali við Dag. „Eins og aðstæður
eru í þjóðfélaginu núna, þá telj-
um við það skyldu sveitarfélaga
að lækka álögur á gjaldendur eins
og hægt er. Við vitum að það er
víða þröngt í búi og flestir verða
að gæta aðhalds. Það þarf Akur-
eyrarbær líka að gera og ég held
að hægt sé að bæta tekjumissinn
með hagræðingu og sparnaði í
rekstri bæjarfélagsins sem á að
vera meira kappsmál en að auka
álögurnar á bæjarbúa,“ sagði Sig-
urður J. Sigurðsson.
Brotist
inn í
Garðshorn
Um helgina var framið innbrot
í verslunina Garðshorn á
mótum Hamarstígs og Byggða-
vegar. Þjófarnir fóru þar inn
og munu hafa stolið talsverðu
magni af tóbaki, aðallega
sígarettum.
Þá var gerð tilraun til innbrots
í útibú KEA við Hlíðargötu. Sást
til ferða þjófsins við verslunina
og kom að honum styggð og forð-
aði hann sér.
Þegar við höfðum samband við
rannsóknarlögregluna á Akur-
eyri fengust þær upplýsingar að
unnið væri að rannsókn hlerunar-
málsins í Hjallalundi en ekkert
var að frétta af þeirri rannsókn.