Dagur - 01.02.1984, Page 2
2 - DAGUR -1. febrúar 1984
Ertu flug-
hrædd(ur)?
Pétur Jónsson:
Néi, það er miklu hættulegra
að vera í bíl. Ég hef verið bíl-
stjóri í 50 ár.
Sigurður Árni Sigurðsson:
Jaá - og þó - neei. Hins vegar
er ég með gat á skónum
mínum, líklega þyrfti ég að fá
mér nýja.
Jón Pétursson:
Nei, það er ég ekki. Ég flýg
frekar lítið.
Hörður Sigtryggsson:
Ég ferðast stundum með flug-
vélum, en ég er ekki flug-
hræddur.
Guðlaug Erlendsdóttir:
Svolítið, það er nú ekki mikið
sem ég flýg.
Páll ICIIertsson.
„Það er mjög gott að vera
hérna,“ sagði Páll Ellertsson
sem i haust tók við rekstri Hót-
els Ólafsfjarðar, en hann er
viðmælandi okkar í dag. Páll
tók við rekstri hótelsins 15.
október en hafði fram að því
unnið sem framleiðslumaður og
framreiðslumaður á Akureyri.
„Ætli það hafi ekki verið aðal-
lega löngunin að breyta til sem
olli því að ég fór hingað, og auð-
vitað er það spennandi verkefni
að sjá um rekstur hótels. Ég lærði
matreiðslu á Bautanum á Akur-
eyri og síðan framreiðslu í Sjálf-
stæðishúsinu og eftir að ég hætti
þar sá ég um mötuneyti Vega-
gerðarinnar á Akureyri."
- Hvað er svo freistandi við að
taka að sér rekstur á hóteli?
„Það er ýmislegt. Þar sem ég er
lærður matreiðslumaður og einn-
ig þjónn og hef unnið við þessi
störf er það auðvitað freistandi
að snúa sér að rekstrinum og
kynnast þessu frá öllum hliðum.“
- Og hvernig hefur gengið á
Ólafsfirði?
„Það hefur gengið alveg
þokkalega og mun betur en ég
bjóst við á þessum tíma árs, því
þetta eru daufustu mánuðir árs-
ins sem ég hef verið hér. Hingað
koma engir ferðamenn yfir
vetrartímann eins og gefur að
skilja en hér er klúbba- og félaga-
starfsemi og talsvert að gera í
sambandi við það.“
- Það er þá ekki mikið um
hótelgesti?
„Nei, það er óhætt að segja að
þeir séu fremur sjaldgæfir á þess-
um tíma. Ég bý á hótelinu og oft
á tíðum sefur enginn hérna nema
ég. En inn á milli koma gestir og
Það er stundum sagt að það sé
erfitt að kynnast Akureyringum,
en ég hef ekki fundið fyrir neinu
slíku hér og mér hefur verið vel
tekið. Hér er þægilegt og gott
fólk sem er sjálfu sér nógt um alla
kaupa mér jeppa til þess að kom-
ast hér um og inn á Akureyri.
Annars held ég að flestir Ólafs-
firðingar eigi skíði og snjósleða-
eign er sennilega meiri hér en
víða annars staðar á landinu."
enda er völlurinn hér mjög
skemmtilegur eins og þeir vita
sem hafa spilað á honum.“
- Snúum okkur aftur að þínu
starfi. Eru Ólafsfirðingar dugleg-
ir að fara út að borða?
„Hér er þægilegt
- segir Páll Ellertsson hótelstjóri á Ólafsfirði
það eru þá menn sem eiga við-
skiptaerindi hingað og þess hátt-
ar og þess vegna er nauðsynlegt
að hér sé rekið hótel.“
- Hvernig er að koma svona í
nýtt umhverfi, kann Akureyring-
urinn vel við sig í Ólafsfirði?
hluti því öðruvísi getur það ekki
verið.“
- Þú ert væntanlega búinn að
koma þér upp útbúnaði til þess
að fara á gönguskíði?
„Nei ég er ekki kominn svo
langt ennþá, er bara búinn að
- En þótt þú stundir ekki
skíðaíþróttina þá verður þú
sennilega harður í golfinu næsta
sumar?
„Já ætli það ekki, ég flyt mig úr
Golfklúbbi Akureyrar í klúbbinn
hér og hugsa gott til glóðarinnar
„Nei ekki mjög, en þeir fara
þegar eitthvert tilefni gefst. Eins
og ég sagði þá eru hér ýmis fé-
lagasamtök og í kring um þau eru
veislur og slíkt af og til.“
- Margt starfslið á hótelinu?
„Nei ekki er nú hægt að segja
það, ég er með tvær stúlkur með
mér sem eru hér á vöktum."
— Nú stendur þorrinn yfir, ert
þú ekki með þorramat fyrir Ól-
afsfirðinga?
„Jú ég er með hann og það
virðist mikill áhugi vera fyrir
honum. A bóndadaginn auglýsti
ég hlaðborð með þorramat og
það komu yfir 50 manns í mat þá
um kvöldið auk þess sem ég seldi
fyrir 30 manns út í bæ. Þær við-
tökur voru því góðar.“
- Ætlar þú að setjast þarna að
alveg?
„Ég veit ekki hvað verður, en
ég ætlaði mér að vera að minnsta
kosti í eitt ár hérna og það hefur
ekkert breyst með það.“
llla farið með fánann
Skíðaunnandi skrifar:
Agætu blaðamenn. Hafið þið
veitt athygli forsíðu Skíðablaðs-
ins nr. 3/83????
Mér finnst dapurt að sjá hvern-
ig farið hefur verið með íslenska
fánann á fjölmennu skíðamóti
ungs fólks hér í Hlíðarfjalli og
raunar aðstandendum þess til
vansa. Góðu bendið þeim á að
gera þetta nú ekki á næstu
„leikum“. íþróttamenn hafi ann-
ars verið í fremstu röð með að
sýna fána okkar tilhlýðilega virð-
ingu - þetta hljóta að hafa verið
mistök, sem Skíðablaðið svo aug-
lýsir - sjálfsagt líka af mis-
tökum....
Vinsamleg ábending
Jórunn Ólafsdóttir Brekkugötu
21 Akureyri hafði samband við
Lesendahornið og vildi koma
eftirfarandi á framfæri:
Mig langar til þess að koma á
framfæri vinsamlegri ábendingu
til þeirra sem sjá um að bera út
blöð og bæklinga í hús í bænum.
Þannig er að ég hef orðið táls-
vert fyrir því að blöð sem eru sett
í bréfalúgu hjá mér eru ekki sett
alveg inn um lúguna, heldur rétt
stungið þar í. Þessu fylgir kuldi í
íbúðinni því lúgan er látin standa
hálfopin auk þess sem blöð sem
þannig er gengið frá vilja oft
blotna.
Þetta getur varla verið mikið
atriði fyrir þá sem hlut eiga að
máli, en skiptir hins vegar tals-
verður máli og því vil ég vinsam-
lega fara þess á leit að þetta verði
lagfært.