Dagur - 01.02.1984, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR
í BfLINN. BÁTINN, VINNUVÉLINA
Heildsala
Smásala
Enn árekstrar
á mótum
Hrafnagils-
og Þórunnar-
strætis
Tveir harðir árekstrar urðu á
mótum Þórunnarstrætis og
Hrafnagilsstrætis seinnipart
sunnudags með stuttu millibili;
annar varð „fyrir kaffi“, en hinn
„eftir kaffi", eins og heimildar-
maður blaðsins orðaði það. Ekki
urðu slys á fólki, en ökutækin
skemmdust mikið. Þessi gatna-
mót eru varasöm og á þeim hafa
orðið margir harðir árekstrar.
Þriðji áreksturinn á þessum
sömu gatnamótum varð á föstu-
dag. - GS.
Atvinnuaukningin:
Mest í
þjónustu-
greinum
Mun fleiri ný störf bættust við
í þjónustugreinum hér á landi
á síðasta áratug, heldur en var
í grunngreinunum svonefndu.
Sérstaklega á þetta við um
höfuðborgarsvæðið, þar sem 7
manns bættust við í þjónustu-
greinar, á móti einum í grunn-
greinar. Utan Siiðvesturlands
var þetta í jafnvægi.
24.253 nv störf sköpuðust í at-
vinnulífi Islendinga frá 1971-
1981. Þar af voru 14. 935 á Suð-
vesturlandi, en 9.318 í öðrum
landshlutum. í grunngreinunum,
þ.e. sjávarútvegi, landbúnaði,
iðnaði og samgöngum, bættust
við 1.890 störf á Suðvesturlandi,
en 4.118 störf sköpuðust í öðrum
landshlutum. í þjónustugreinun-
um snerist dæmið hins vegar við.
Þar bættust við 13.045 ný störf á
Suðvesturlandi, en ekki nema
5.200 störf í öðrum landshlutum.
Af þessu má ráða, að atvinnu-
sköpun í grunngreinunum vítt og
breitt um landsbyggðina á síðasta
áratug hefur skapað atvinnu-
möguleika í þjónustugreinum á
höfuðborgarsvæðinu. - GS.
„Rauðkau hcldur lágfleyg á flugvellinum á Ólafsflrði eftir óhappid á laugardaginn.
„Okkur vantar
ekki flugvélar“
en flugið verður óhagkvæmara án „Rauðku“ segir
Sigurður Aöalsteinsson, framkvæmdastjóri FN
„Við eigum nóg af flugvél-
um, höfum reyndar lengi átt
of mikið af flugvélum, þann-
ig að við verðum ekki í vand-
ræðum með að þjóna okkar
viðskiptavinum þó ein vélin
hafi gengið úr skaptinu,“
sagði Sigurður Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands, í
samtali við Dag.
Eins og fram kom í Degi á
mánudaginn hlekktist Piper
Chieftain vél félagsins, sem í dag-
legu tali kunningja var kölluð
„Rauðka", á í lendingu í Ólafs-
firði á laugardaginn. Ljóst er að
vélin er mikið skemmd og óvíst
hvort borgar sig að gera við hana.
Úrskurðar Tryggingafélagsins í
því sambandi er að vænta í næstu
viku. Sigurður var spurður nánar
um flugvélakostinn.
„Því er ekki að neita, að Chief-
tain vélin var sérstök í okkar
flugflota hvað varðar stærð og
flughraða, sem gerði hana hag-
kvæma á okkar lengri leiðum;
frá Akureyri til Egilsstaða, ísa-
fjarðar og Reykjavíkur um Ól-
afsfjörð. I hennar stað höfum við
Astec, sem flýgur sæmilega hratt
og hentar vel á þessum leiðum,
en hann er of lítill. Mitsubishi-
vélin er stærri, og við komum til
með að nota hana talsvert í stað-
inn fyrir Chieftaininn, en hún er
dýrari og óhagkvæmari í rekstri.
Þá er ekki annað eftir en Otter-
inn, sem er það stór vél að hún er
dæmd til að fljúga þessar leiðir
hálf tóm að öllu jöfnu. Ég hef
því ekki áhyggjur af því að við
leysum ekki vanda kúnnans,'en
þetta verður dýrara flug fyrir
okkúr, á meðan við höfum ekki
Chieftain vél eða aðra sambæri-
lega,“ sagði Sigurður Aðalsteins-
son. - GS.
Siglufjörðúr:
Mokafli
rétt við
bæjardyrnar
„Þaö hefur aflast vel núna og
bátarnir eru aö fá þetta hérna
rétt við bæjardyrnar,“ sagði
Kristján Rögnvaldsson hafnar-
vörður á Siglufirði er við rædd-
um við hann fyrir helgina.
Kristján sagði að tíðarfar frá
áramótum hefði verið mjög
slæmt og lítið hægt að róa. En
undir helgina fór veðrið batnandi
og þá veiddist vel. Þannig kom
Máfur sem er 12 tonna bátur inn
með 8 tonn sem var að mestu
leyti ufsi og Guðrún Jónsdóttir
var með 5 tonn. Talsvert var af
þorski í aflanum.
Talsvert mun hafa verið um
góðar lóðningar fyrir helgina og
lóðaði bæði á þörsk og ufsa. Eru
menn á Siglufirði bjartsýnir á
framhaldið og að bátarnir muni
halda áfram að afla vel og ekki er
verra að stutt er að fara eftir fisk-
inum. gk.
Jogurt
á fernum
væntanleg
frá Mjólkur-
samlagi KEA
Mjólkursamlag KEA hefur tekið
í notkun nýja átöppunarvél fyrir
fernur, sem eykur afköstin um
þriðjung frá því sem var. Þar
með gefst tækifæri til að auka
fjölbreytni í mjólkurvörum á
fernum frá samlaginu, t.d. er í
bígerð að hefja pökkun á jógúrt
í fernur á næstunni, að sögn Þór-
arins Sveinssonar, samlagsstjóra.
stjóra.
Nýja átöppunarvélin er norsk,
en sú sem var fyrir var sænsk.
Vegna þessara breytinga þarf
einnig að skipta um umbúðir, en
að útliti til eru þær nær nákvæm-
lega eins. Hins vegar eiga nýju
fernurnar að vera sterkari. -GS.
Veður
„Það verður að líkindum
sunnan og suðvestanátt hjá
ykkur nyrðra og gott veður
næstu tvo sólarhríngana eða
svo,“ sagði spámaður Veður-
stofunnar í samtali við blaðið
í morgun. Með morgni spáði
hann sunnanátt og búast má
við nokkrum strekkingi þeg-
ar líða fer á daginn, en eng-
um iátum þrátt fyrir það.
Hitastig verður um og neðan
við frostmark, en hugsanlegt
er að hitamælirinn komist 1-2
gráður upp fyrir núllið þegar
best lætur á morgun. Á
föstudaginn taldi spámaður-
inn líkur fyrir suðvcstanátt,
en hann átti ekki von á úr-
komu.
# Treholt og
símahleranir
Handtaka norska njósnarans
Arne Treholt hefur vakið
verðskuldaða athygli, en
maðurinn sá var uppvis að
þjónkun við KGB á kostnað
öryggis Noregs og NATO. Á
sama tíma kom upp sérstætt
sakamál á Akureyri, þegar
upp komst um sfmahleranir í
fjölbýlishúsi á Akureyri. Gár-
ungarnir hafa löngum kunn-
að að finna samhengi i svona
stórmálum. Þannig segir
sagan, að hlerunartækjunum
hafi verið komið fyrir vegna
Treholts. Hann hafi sem sé
verið væntanlegur til Akur-
eyrar með norska landsliðinu
í handknattleik. En úr því
varð ekki, þar sem upp komst
um strákinn Tuma áður en
ferðin var farin. Hins vegar
gleymdist að taka tækin
niður áður en lögreglan
komst í máliðl!
# Hver verður
bankastjóri?
Bankastjórastöður hafa
löngum þótt eftirsóknarverð-
ar, ekki síst hjá Búnaðar-
bankanum. Nú bollaleggja
menn hver verði ráðinn í
stöðu Magnúsar heitins frá
Mel. Samkvæmt „kerfinu" á
Sjálfstæðisflokkurinn þessa
stöðu. Sunnanblöðin hafa
nefnt ýmsa ráðherra flokks-
ins sem líklega bankastjóra,
en Dagur hefur það fyrir satt,
að Lárus Jónsson, alþing-
ismaður og formaður fjárveit-
inganefndar, muni hreppa
stöðuna.
# Árekstra-
gatnamót
Sl. sunnudag urðu tveir harð-
ir árekstrar á gatnamótum
Þórunnarstrætis og Hrafna-
gilsstrætis. Á mótum þessara
stræta hafa áður orðið harðir
árekstrar og hefur biðskylda
á umferð um Hrafnagilsstræti
þar engu breytt. Þessir tíðu
árekstrar hljóta að vera um-
ferðarnefnd áhyggjuefní og
þeir krefjast þess að hún að-
hafist eitthvað til að sporna
gegn því að sama þróun
haldi áfram. Umferðarljós
hafa reynst vel hér I bæ og
nú standa Ijósin á mótum
Skipagötu og Kaupvangs-
strætis ónotuð. Væri ekki ráð
að flytja þau á mót áður-
nefndra stræta.