Dagur - 03.02.1984, Qupperneq 5
3. febrúar 1984 - DAGUR - 5
Það var rífandi stemmning í Borgar-
bíói þegar hljómleikar Vzl hófust
þar fyrir velfullu húsi. Þarna voru
mættir andstæðingar og velunnarar
hljómsveitarinnar, forvitnir ná-
grannar og einstaka foreldrí, afar og
ömmur. Allt fékk þetta lið, þó
nokkuð fyrir sinn snúð, því Vi’l er
lipur og leikin hljómsveit.
Undirritaður sat hljómleikana
fram að hléi (hrökklaðist samt ekki
burtu vegna leiðinda) og ég verð að
segja að lkl kom mér talsvert á
óvart. Greinilegt að drengirnir lugu
engu þegar þeir sögðu í viðtali á
dögunum að þeir hefðu æft óstjórn-
lega að undanförnu. Lögin sem ég
heyrði voru flest mjög góð en einn
galli finnst mér á gjöf Njarðar. Hug-
myndir virðast flestar sóttar til
BARA-Flokksins.
Þó ekki sé leiðum að líkjast þá
verða Vil að gjöra svo vel að gera
sér grein fyrir þessu og finna sinn
eigin stíl. Þetta er ekki sagt hljóm-
sveitinni til lasts og með þessu er
heldur ekki verið að segja að Vil
kópíeri Stóra-Bróður vísvitandi.
Nóg um það.
Eftir hlé er mér sagt að hljóm-
sveitin hafi farið á kostum og þá sér-
staklega í laginu „Zorba“. Hrifning
viðstaddra var mikil og á xkl mikinn
heiður skilið fyrir þarft framtak.
Mér þætti reyndar gaman að sjá
þessa sveit með virkilega góðum
söngvara... - ESE.
Þessi vika
Victorious Dub .... Linton Kwesi Johnson
Boogie Man .................. Frakkarnir
That’sAll ...................... Genesis
The Walk .......................... Cure
Swing ............................ Yello
Love Cats ......................... Cure
Owner Of A Lonely Heart ............ Yes
New Song ................. Howard Jones
Pop Goes My Love ................ Freeze
Only For Love ................... Limahl
S&
*Ui
Geislagólu 14
Föstudagur 3. febrúar
Mánasalur:
Opnað kl. 19.00.
Ingimar Eydal leikur létta tónlist fyrir matargesti.
Sólarsalur:
Opnað kl. 22.00.
Ingimar Eydal skemmtir ásamt hljómsveit til kl. 03.
Laugardagur 4. febrúar
Sólarsalur:
Opnað kl. 18.00. Ljúf dinnertónlist.
Stórhljómsveit Ingimars Eydal heldur uppi fjörinu til kl. 03.
Ath. Mánasalur lokaöur vegna einkasamkvæmis.
Sunnudagur 5. febrúar
Reykjavfkurkvöld
Húsið opnað kl. 19.30.
Frábær matur, stórglæsileg skemmtiatriði,
ferðabingó og gestur kvöldsins Davíð Oddsson.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur til kl. 01.
Forsala á aðgöngumiðum er í Sjallanum
hjá yfirþjóni fimmtudag - föstudag og laugardag
frá kl. 17.00-19.00.
SiMtut
f Geislagölu U
SJ" Aðalfundur
AKUHEYm/' Hestamannafélagsins Léttis
verður haldinn í félagsmiðstöð Lundarskóla
sunnudaginn 12. febrúar 1984 kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar og nefnda.
5. Stofnun kvennadeildar.
6. Önnur mál.
Stjórnin.
9999
• • • •
Þegar við lítum í „Dag“ þann
27.1. ’84 getum við ekki annað
en ritað þessar línur:
Að 'kl sé næst virtasta
hljómsveit Akureyrar?? Nei,
víð sem ritum þetta bréf telj-
umst til þess hóps sem áheyr-
endur. heita, við andmælum
þessum staðhæfingum. Erum
við hér mörg sem vitum betur.
Að okkar (og margra annarra)
mati teljum við: Bara-
flokkinn, Des, Art, xhl vera
virtustu hljómsveitir þessa
bæjar. Við byggjum þetta á
smekk okkar og annarra.
Skorum við þvt' á þig (ese)
að taka viðtal við Des og Art
hið snarasta.
Des og Art.
Takk.
Samtök um hollustuvernd áheyr-
enda á Stór-Akureyrarsvæðinu.
Aths.
Staðhæfing? í greininni sagði:
Telst því líklega næst elsta og
næst virtasta hljómsveit bæjar-
ins á dægurvettvangi.
Smekkur virðist hins vegar
vera loðið hugtak og teygjan-
legt en Des og Art eru hins
vegar beðnar að láta sjá sig
hér á ritstjórnarskrifstofum
Dags hið snarasta. - ESE.
Rymingarsala
hefst mánudaginn 6. febrúar
og stendur í eina viku
Stórkostlegur afsláttur á ýmsum vörum,
til dæmis:
Dömuflauelsbuxur áður 300 kr, nú 180 kr.
Puffins karlmannabuxur áður 715 kr, nú 550 kr.
Strigaskór verð frá 120 kr.
Bómullarbolir áður 125 kr, nú 85 kr.
Spariskyrtur karlmanna
áður 300 kr, nú 150 kr.
Stígvél stærðir 22-24
áður 155 kr, nú 60 kr.
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 sími 22275