Dagur - 03.02.1984, Page 10
10 - DAGUR - 3. febrúar 1984
Zkjalwandi a vatnssalerninu. Það er þo ekkert salernisrokk sem þeir leika. Mynd: ESE
Það var skjálfandi hávaði í Fé-
lagsheimilinu á Húsavík er
okkur bar þar að garði. Erind-
ið var að vera viðstaddir 500.
bæjarstjórnarfundinn í sögu
Húsavíkur en af hljóðunum
leit heist út fyrir að Skjálfandi
(flóinn eða fljótið) hefði brotið
sér leið inn í félagsheimilið og
gleypt bæjarstjórnina...
menn, sagði leiðsögukonan okk-
ar og strákarnir róðuðust.
- Frá hvaða blaði eruð þið?
Hver sagði ykkur frá okkur? Við
eigum að koma í RÚVAK á
fimmtudaginn...
Eftir smávegis jaml og japl og
fuður samþykktu strákarnir að
veita viðtal en fyrst ætluðu þeir
að spila fyrir okkur topplagið
þeirra - Nútímastúlkan hún
Nanna sem þeir höfðu fengið lán-
að hjá Eiríki Fjalari.
- Einn, tveir, þrír...
Og ekki bar á öðru. Strákarnir
kunnu á hljóðfærin og slógu ekki
feilnótu. Eiríkur Fjalár, sjálfur
hefði mátt vera himinlifandi.
★★★
- Hvað heitir hljómsveitin,
spurðum við eftir að við höfðum
klappað þeim lof í lófa.
- Svona slappið þið bara af,
sagði leiðsögukona okkar úr mót-
tökunni á Hótel Húsavík.
- Fundurinn er ekki byrjaður.
Þetta er bara krakkahljómsveitin
okkar.
- Krakkahljómsveitin?
- Já, þetta eru smástrákar.
Ferlega sætir en hljómsveitin er
góð. Það eru allir sammála um,
sagði hún.
Allur góður ásetningur um að
fara á bæjarstjórnarfundinn (sem
reyndar var ekki byrjaður) hvarf
út í veður og vind. Þessa hljóm-
sveit urðu lesendur Dags að berja
augum á síðum blaðsins.
★ ★★
- Þetta gengur ekki Halli. Þú
verður að halda áfram svona
sjáðu: Da, da, da -dum, sagði
einhver og Halli muldraði eitt-
hvað, líklega hefur það verið
óprenthæft, a.m.k. heyrðum við
það ekki.
- Hvað? Er fundurinn byrjað-
ur? sögðu fjórar strákaraddir ein-
um rómi þegar við gengum niður
í kjallarann á félagsheimilinu.
- Nei, nei. Þetta eru blaða-
Æfíngarhúsnæðið - undir stiganum niður í kjallarann á félagsheimilinu.
Mynd: gk-.
- Zkjálwandi með setu og tvö-
földu vaffi sagði hljómborðs-
leikarinn sem reyndist heita Sig-
urpáll ísfjörð. Hann tók líka að
sér að kynna hina meðlimina en
þeir eru: Haraldur Steingríms-
son, trommur, Ragnar Pétur
Ólafsson, bassi og Jón Dan,
gítar.
- Hvenær er hljómsveitin
stofnuð?
- 3. janúar 1983 og við erum
á aldrinum 12 til 13 ára, segir Jón
Dan nú.
- Af hverju ákváðuð þið að
stófna hljómsveit?
- Sko. Hann Halli fékk
trommusett í afmælis- eða jóla-
gjöf og þannig byrjaði það, segir
Ragnar bassaleikari.
- En við vorum ekki allir með
frá upphafi, segir Halli.
- Siggi byrjaði ekki fyrr en á
jólunum, nei öskudaginn, ég
meina á sumardaginn fyrsta, seg-
ir Ragnar og við Gylfi erum ekki
klárir á því hvort hann er bara að
stæla Eirík Fjalar.
Svo við gerum nú langt mál
stutt, þá voru allir strákarnir í
Lúðrasveitinni og léku fyrst sam-
an opinberlega á lúðrasveita-
móti í Vestmannaeyjum. Síðan
hafa þeir spilað víða, m.a. hjá
hinum ýmsu klúbbum á Húsavík,
þar af tvisvar hjá Kiwanis og einu
sinni hjá Round Table, en þar
spiluðu þeir frítt. Auk þess hafa
þeir spilað í skólanum og í fé-
lagsheimilinu og á efnisskránni
sögðu þeir vera fullt af lögum,
bæði íslenskum og enskum.
Bubbi og Laddi eru í mestu
uppáhaldi, sögðu þeir en þá voru
samræðurnar rofnar vegna 500.
bæjarstjórnarfundarins á Húsa-
vík. - ESE.