Dagur - 03.02.1984, Side 15

Dagur - 03.02.1984, Side 15
3. febrúar 1984 - DAGUR - 15 Reykj avíkurkynning á sunnudag Reykjavíkurkynningar hafa stað- ið yfir að undanförnu og ein slík verður í Sjallanum á Akureyri nk. sunnudagskvöld. Leikarar, söngvarar og dansarar sem hlut eiga í glæsilegu listalífi og fjöl- breyttu skemmtanalífi höfuð- borgarinnar koma fram á þessum kynningarkvöldum, en fyrirliði Reykvíkinganna sem að kynning- arkvöldunum standa er Davíð Oddsson borgarstjóri sem mun ávarpa gesti. Mikill hluti þeirra sem heim- sækja Reykjavík árlega eru inn- lendir ferðamenn sem leggja leið sína til Reykjavíkur í viðskipta- ferðum, verslunarferðum og skemmtiferðum. Færst hefur í vöxt að til Reykjavíkur komi fólk í helgarferðir og noti þá tækifær- ið til að fara í leikhús, sjá nýjar kvikmyndir, heimsækja söfn, líta inn í verslanir borgarinnar eða veitingastaði og bregða sér á dansleik á einhvern hinna fjöl- mörgu skemmtistaða borgarinn- ar. Borgaryfirvöldum í Reykjavík er ljóst að vinna þarf að upplýs- ingastarfi um höfuðborgina fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn sem þangað koma. Samstarfs- nefnd um ferðamál í Reykjavík hefur á síðastliðnu ári unnið að ýmsum verkefnum sem snúa að almennu kynningar- og upplýs- ingastarfi fyrir ferðamenn. Nú er efnt til almennrar kynn- ingar á nokkrum stöðum á land- inu m.a. með það fyrir augum að kynna fyrir landsmönnum hvað er að gerast í borginni á sviði menningar, lista og í skemmtana- lífinu. Á kynningarkvöldinu í Sjallanum á Akureyri nk. sunnu- dagskvöld verður borinn fram kvöldverður og að því búnu hefj- ast skemmtiatriði. Þar koma m.a. fram leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur, söngvarar frá fs- lensku óperunni, tískusýning verður frá Modelsamtökunum þar sem sýndar verða tískuvörur úr verslunum á Akureyri og Ragnhelður Steindórsdóttlr I My falr Lady. Leikfélag Akureyrar My fair Lady Sýningar 43. sýning föstudag 3. febr. kl. 20.30. Uppselt 44. sýning laugardag 4. febr. kl. 20.30. Miðasala opin alla virka dagakl. 16-19, kvöldsýning- ardaga kl. 16-20.30. Sími 24073. Ósóttar miðapantanir seldar tveimur tímum fyrir sýningu. Húsvíkingar athugið sæta- ferð með Birni. Sýningum fer að fækka Leikfélag Akureyrar. Reykjavík. Bingó verður spilað og eru vinningar utanlandsferð og tvær helgarferðir til Reykja- víkur með Flugleiðum sem veitt hafa mikilsverðan stuðning vegna þessara kynningarkvölda. Loks verður stiginn dans. Veislustjóri og. kynnir verður Hermann Ragnar Stefánsson. Fram- kvæmdastjórar kynningarkvöld- anna eru Ölafur Jónsson og Skúli Björnsson. Forsala á kynningarkvöldið í Sjallanum er á föstudag og laug- ardag kl. 17-19 hjá yfirþjóni. Dansleikur laugardagskvöld 4. febrúar Hljomsveitin Casablanca leikur fyrir dansi Porramatur Eins og undanfarin ár er þorramatur okkar í sérf lokki hvað verkun og gæði snertir 4 ;4 Hver skammtur inniheldur: Hangikjöt—Heitan uppstúf Nýtt kjöt—Heitar kartöflur Saltkjöt - Heita rófustöppu Súra sviðasultu-Súran hval Súr eistu Súrt pressað kjöt (lundabaggi) Hákarl Harðfisk—Flatbrauö Smjör-Laufabrauð Verð kr. 295. Afsláttur fyrir hópa -^A-. 0 Opið alla daga frá kl. 08.00-20.00. ◄3^ KUimotai! SÍMI: 96-22 200 Útvál a* fatnaðt yjattiafa1 D6ffitíS^90’00 DÖIttStV.oo 690,0° iBatí^’ tui B“taIogЫiia a fX abútat Tepp; á séSðu vetði Útsölunni lýkur á miðvikudagskvöld

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.