Dagur - 06.02.1984, Síða 1
GULLSMIÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 6. febrúar 1984
16. tölublað
„Borinn
sökum
sem ég
vildi ekki
sitja
undir“
Guðmundur Ómar Guð-
mundsson, formaður Tré-
smiðafélags Akureyrar, sem
átt hefur sæti í byggingamefnd
„Verkalýðshallarinnar“ svo-
kölluðu við Skipagötu hefur
sagt sig úr nefndinni. Við
spurðum hann hvað hefði vald-
ið því?
„Ég var borinn sökum sem ég
vildi ekki sitja undir og þess
vegna sagði ég mig úr nefndinni
þann 20.janúar sl.“
- Hverjar voru þessar sakir?
„Ég vil ekki tjá mig ýtarlega
um þær að svo komnu máli svo ég
verði ekki jarðaður. Ég get þó
sagt að ágreiningur var uppi um
það hvernig ætti að taka á málum
verktaka og hönnuða hússins,
hvort ætti að láta annan aðilann
standa við samning sinn en hinn
ekki. Þetta hefur smátt og smátt
verið að eiga sér stað og það varð
til þess að ég sagði af mér.“
- Hvað getur þú sem formað-
ur Trésmiðafélags Akureyrar
sagt mér um ástandið hjá þínum
mönnum?
„Það hefur verið slæmt það
sem af er þessu ári en þó held ég
að það sé betri tónn í mönnum
síðustu daga. Það fyrirtæki sem
reiknað er með að fái vinnuna við
útvarpshúsið, Pan hf., þarf senni-
lega á fleiri mönnum að halda og
þá eru jafnvel uppi áform um að
Híbýli fjölgi mönnum hjá sér á
meðan fyrirtækið er að ljúka við
sín verkefni sem í gangi eru.
Ég held að ástandið sé ekki svo
slæmt framundan næstu 6-8 mán-
uði, það bendir ýmislegt til þess
að það komi verkefni þannig að í
augnablikinu er ekki bein ástæða
til svartsýni," sagði Guðmundur
Ómar Guðmundsson. gk-.
„Hér
byggist
allt a
■ r
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra:
„Overjandi að bæta
við nýjum togara“
— ÚA fær ekki kvóta út á Sólbak
- Það hefur komið fram áhugi
á að Slippstöðin fái að smíða
togara fyrir Útgerðarfélag Ak-
ureyringa og það mál hefur
verið rætt í ríkisstjórninni. Mín
skoðun hefur þó ekki breyst.
Miðað við ástand fiskimiða og
stærð flotans þá er óverjandi
að bæta nýju skipi við. Það eru
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
mér sammála um, sagði Hall-
dór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra í samtali við Dag.
Ástæðan fyrir því að þetta mál
var borið undir sjávarútvegsráð-
herra nú, eru ummæli Sverris
Hermannssonar, iðnaðarráð-
herra í Degi, um að hann muni
þrýsta á eftir því í ríkisstjórninni
að Slippstöðin fái að smíða tog-
ara fyrir ÚA. Þessu hefur svo
Gísli Konráðsson, framkvæmda-
stjóri svo svarað á þá leið að
hann skilji ekki hvað vaki fyrir
iðnaðarráðherra. Framkvæmda-
stjórar ÚA séu því andvígir að
skipastóll fyrirtækisins verði auk-
inn og það sé ekki hlutverk ÚA
að halda uppi atvinnu í Slipp-
stöðinni.
Að sögn Halldórs Ásgrímsson-
ar þá er fyrirsjáanlegur talsverð-
ur samdráttur í sjávarútvegi og
það segi sig því sjálft að ekki sé
forsvaranlegt eins og málum er
háttað að minnka kvóta skipanna
enn með því að bæta við nýjum
togara.
- Það verður auðvitað að huga
að framtíðarmáium Slippstöðvar-
innar. Þetta fyrirtæki er nauðsyn-
legt fyrir fiskiskipaflotann en
samt sem áður er það ekki bara
mál ríkisstjórnarinnar að hjálpa
upp á sakirnar. Fleiri aðilar
hljóta að eiga þar hlut að máli.
Fyrirtækið verður einnig að afla
sér aukinna verkefna og ég get
bent á að nú þegar Akureyringar
hafa samþykkt byggingu álvers
þá ætti Slippstöðin að hafa sömu
möguleika á að smíða fyrir það og
Stálvík hafði til að smíða fyrir ál-
verið í Straumsvík.
- En hvað með ÚA? Hefur sá
möguleiki aldrei verið ræddur að
fyrirtækið fengi kvóta út á
Sólbak?
- Það hefur verið minnst á það
en þær reglur sem lagðar hafa
verið fram af ráðgjafanefndinni
varðandi kvótaskiptinguna gera
ekki ráð fyrir að svo geti orðið.
Sólbakur er úrelt skip og fyrir-
tækið hefur fengið bætur fyrir að
leggja togaranum, sagði Halldór
Ásgrímsson. ESE.
Fyrsta íshokkykeppni vetrarins var háð í gær á félagssvæði Skautafélags Akureyrar. Lið SA og Skautafélags Reykja-
víkur kepptu og sigruðu sunnanmenn með 5:3. Fyrstu lotuna vann SR 3:0 og þá aðra 2:0 og það var því rétt í lokin
að Akureyringar fengu rönd við reist og unnu síðustu lotuna 3:0. - ESE/Mynd: KGA.
„Ogþú íþróttir Blóm r
líka em a
bamii á þorra
mitt sínum - Helgi
Brútus" stai Hallgrímsson skrifar
- bls. 4 — bls. 6—7 - bls. 9
Eldur
ískúr
við Kald-
baksgötu
- Skemmdir ekki vemlegar
Aðfaranótt sl. sunnudags kom
upp eldur í skúr við Kaldbaks-
götu, þar sem bílasprautun var til
húsa. Unnið hafði verið í
skúrnum fram eftir kvöldi, en kl.
2.35 urðu vegfarendur varir við
að eldur logaði upp úr þaki hans.
Tveir bílar voru í skúrnum, en
þeim tókst að bjarga út lítið
skemmdum. Rúmlega hálfa
klukkustund tók að ráða niður-
lögum eldsins og urðu skemmdir
ekki verulegar. Talið er að eldur-
inn hafi kviknað út frá blásara,
sem skilinn hafði verið eftir í
gangi þegar skúrinn var yfirgef-
inn. -GS
- bls. 9