Dagur - 06.02.1984, Side 8
8 - DAGUR - 6. febrúar 1984
MINNING
T Þórður H. Friðbjamarson
Fæddur 15. sept. 1909 - Dáinn 25. janúar 1984
- Lítil kveðja frá Minjasafninu á Akureyri
„Maðurinn stígur, maðurinn hnígur,
móður og sár af Hfs síns þraut. “
Enda þótt þessar Ijóðlínur skáldsins
Matthíasar Jochumssonar megi
heimfæra upp á flesta þá menn, sem
langan starfsdag eiga að baki, þegar
þeir hverfa af jarðlífssviðinu, þá
verða þær mér sérstaklega hugstæð-
ai nú, þegar ég minnist vinar míns
Þórðar H. Friðbjarnarsonar, safn-
varðar við Minjasafnið á Akureyri,
sem kvaddur var hinstu kveðju síð-
astliðinn laugardag.
Hann steig, eins og allur þorri
manna, frá bernsku og æsku til
manndóms og þroska, varð vel að
manni til líkama og sálar og sparaði
hvorki hönd né hug til að vinna að
eflingu og framgangi þeirra mála,
sem hann tók ástfóstri við.
Mér er þetta fyrst og fremst ljóst,
af störfum hans við Minjasafnið á
Akureyri, en því helgaði hann, af
sérstakri elju og fágætri samvisku-
semi, krafta sína um 22ja ára bil.
Fyrir tilverknað Jónasar Krist-
jánssonar gerðist Þórður starfsmað-
ur þessa óskabarns þeirra Jónasar
og félaga hans í stjórn safnsins, þeg-
ar það reis það á legg að vera opnað
almenningi í húsi nýkeyptu, af
dæmafárri bjartsýni. Þar var enginn
baggamunur áhuga stjórnenda og
starfsmanns. Stjórnin, með Jónas,
Ármann Dalmannsson og síðar
Sverri Pálsson, í fararbroddi, sýndi
fágætan áhuga og vilja til stórræða
út á við og starfsmaðurinn eini,
álíka elju innanstokks. Hann setti
þar á svið og bjó til sýnis, af litlum
efnum, hið myndarlegasta safn
muna, sem vakið hefir athygli gesta,
fyrir haganlega uppsetningu og góða
umgengni. Sömuleiðis var hann
ávailt opinn fyrir því að draga að
safninu muni, er því mættu verða til
vegs og virðingar.
Tveim dögum fyrir andlát hans
átti ég símtal við hann um aðkall-
andi vandamál safnsins. Var áhugi
hans á þeim, sem jafnan áður, vak-
andi og leitandi hagkvæmustu úr-
lausnum þeirra. Hafði honum þá
tekist að bjarga málunum að nokkru
og snérust umræður okkar um fram-
tíðina. Um hana hafði hann ákveðn-
ar hugmyndir, sem allar snérust um
það hvernig best yrði fyrir safninu
séð og hvernig vegur þess yrði sem
mestur. Og þó kannski megi segja
að sumar hugmyndir hans ættu ekki
samleið með þeim fyrirætlunum,
sem nú eru efst á baugi, þá stóð að
baki þeim einlægur vilji og ákveðinn
til að safnið mætti eflast og dafna
þannig, að það yrði sem traustastur
hlekkur eyfirskrar menningarkeðju
á komandi tímum. Fyrir þennan
áhuga og þessa framsýni, stendur
Minjasafnið í óborganlegri þakkar-
skuld við þennan vökumann sinn.
Að sjálfsögðu var Þórður orðinn
„móður af lífs síns þraut“ og er það
aðeins eðlilegur gangur, eftir jafn
langan starfsdag og hann átti að
baki, en sár held ég að hann hafi
ekki verið. Dreg ég þá ályktun af
því, að jafnan mun hann hafa átt
góð skipti við sína samferðamenn
og hann sá fósturbarn sitt, Minja-
safnið, vaxa, bæði að umfangi og
áliti og þar með starf sitt bera ríku-
legan ávöxt, en það held ég að hljóti
að verða hverjum hugsandi manni
bestu verkalaunin.
Ég kveð svo þennan dygga þjón,
með þakklæti og virðingu og bið
honum allrar blessunar á æðra til-
verustigi.
Eftirlifandi aldinni eiginkonu
hans, börnum og öðrum ástvinum,
sendi ég, fyrir hönd Minjasafnsins á
Akureyri, innilegar samúðarkveðj-
ur.
Páll Helgason.
MINNING
Ý Snorri Kjartansson
Víöikeri
Þegar fullorðnir menn eða rosknir,
gamlir menn og örvasa standa í
ákvæðisverki með lífsvon sína og
þrá, að semja ævisögu sína eftir
upplituðum myndablöðum minning-
anna, inn í margar bækur: „ Afstrakt
í listum, sértekinn, óhlutstæður, sem
líkir ekki eftir raunveruleikanum,“
stendur í Orðabók Menningarsjóðs
á einum stað.
Svo deyja þessir gömlu menn og
að okkur setur harm, en hvernig
hefðum við brugðist við, hefðum við
misst þá unga án sögu? Enginn er án
sögu. En svo fellur ógæfan yfir, þeg-
ar ungur maður deyr, eins og við
köllum það, og staddur í miðri sögu
sinni og ekki nærri það, að maður
hugði.
Hinn 29. desember síðastliðinn
varð voveiflegur atburður í mínum
gamla Bárðardal þegar hinn óvenju
vaski drengur aðeins 35 ára garnall,
Snorri Kjartansson í Víðikeri, féll á
hálku til ólífis fram af gilbarminum
við Svartá.
Þeir höfðu verið að hlú að heimil-
israfstöðinni sinni bræðurnir Snorri
og Páll, en í Víðikeri hefir verið
starfrækt rafstöð alla tíð síðan 1930
að þeir Víðikersfeðgar virkjuðu
Grjótána og flesta mikla hluti bar
þar upp á eitt hátíðavor: Endur-
byggja bæinn, kaupa vörubílinn,
halda hina rómuðu brúðkaupsveislu
þeirra Margrétar og Kára, og svo
var langþráður síminn lagður til
fremstu bæja eftir dalnum um haust-
ið. Mörgum árum seinna byggðu
Kjartan og drengir hans aðra raf-
stöð við hina silfurtæru Svartá og
það var við þá stöð sem slysið varð.
Margra fórna hafa árnar krafist
ærinna, umliðin meir en 50 ár, í tíð-
um mannaferðum til eftirlits um
langa og oft hættulega leið í stór-
viðrum, og mikið efnistjón oft hlot-
ið fyr á árum þegar stíflur hafa
brostið, en þvílíkrar fórnar hafði áin
aldrei krafist, eða hinn mikli forlaga-
valdur er vér lútum og ofar stendur
áætlunum manna.
Víðiker í Bárðardal er e'rfið jörð
að halda í byggð og búa á þar sem
hún er staðsett nánast uppi á Fljóts-
heiði, þvf víðáttu landflæmi sem
Tómas frændi minn jarðfræðingur
skrifaði eitt sinn um prófritgerð en
hann gjörþekkti þar til hvar hann
hlaut hluta síns uppeldis. Að þessari
heiði liggja ekki minna en fimm
sveitarfélög svo að segja til allra
átta, og um hana mátti kalla dreifða
að vísu strjála byggð og mátti þar
telja eitt sinn nær þrjátíu býli, sem
fólk hafði hafst við um lengri eða
skemmri tíma, þó nú sé öidin
önnur. En Víðiker stendur hér enn
og heldur varðstöðu sinni, með
nokkrum hætti, kynni einhver að
segja, á mörkum hins byggilega og
óbyggilega, en þrátt fyrir það hér,
með sitt fólk og sitt fé og ber stór-
býlisyfirbragð bæði mannaverk öll
og það innra mannlíf sem lifað er
þar.
Og þó að vetrarfönn byrgi hér sýn
til jarðar meir en hálft árið oft, þá
kemur jörðin stundum sem græn og
ný undan snjónum þegar aftur
vorar, og keppist við að spretta áður
en aftur syrtir að, en það eru líka oft
snemma á ferð gróðurnálar vestan í
ásnum þegar sólin skín. Héðan hefir
oft þurft að sækja langt til fanga til
fjærstu afréttarlanda því margs þarf
búið við þar sem umsvif eru mikil og
hátt er horft. Og svo leynir sér hér
á afviknum stað jarðvarmi, þó ekki
hafi enn til gagns orðið, en í ljúfri
samvinnu við sína hvítu hjörð hafa
kynslóðir komið og farið.
En það er eitt sem hér má allra
síst vanta, það er fólk. Og þess
vegna er fráfall Snorra Kjartans-
sonar ennþá átakanlegra harmsefiii,
ekki bara foreldrum hans og syst-
kinum og frændaliði öllu, heimilinu
og jarðabótum sem hann átti svo
drjúgan og kraftmikinn aðdrátt til,
og oft sótt um eyjar og útnes og öll-
um föngum stefnt heim að Víðikeri.
Heldur er fráfall hans sem bióðtaka
úr þeirri lífkeðju sem eitt sveitarfé-
lag er, á mörkum öræfa landsins í
sinni 'varðstöðu, en með sogkraft
hins iðandi mannlífs á næsta leiti.
Og mér verður að horfa til bæjar-
ins gegnt Víðikeri, þar sem Engidal-
ur þraukar í nokkrum þráa gegn til-
litslitlum tíðaranda, en nú horfa þau
döpur þaðan eftir hollvini sínum
Snorra hvar ekki er nú lengur að
finna, og svo munu margir grannar
gera í dag. Ég hafði ekki þekkt
þennan unga mann nema af orð-
spori einu, sem ekki var heldur von,
þar til ég var nokkra daga í sam-
verki með honum þegar verið var að
hefja Stóru-Tjarnaskólann úr jörð,
og þá var hann það ungur að varla
vorum við, sem nú erum gamlir
menn taldir fullharðnaðir á hans
aldri. En manni varð nærri að stansa
í verki og horfa til Snorra í Víðikeri
hvernig hann handfjatlaði sements-
pokana og timburstaflana þar á
vinnustaðnum, og hvað honum ung-
um virtist það liggja beint við að
hann tækist á við átakavond verk-
efni, en ekki var hann nostursamur
um vinnugallann sinn eða að hann
teldi vettlingatök þar hæfa. Kannski
hefði hann einhvern tímann átt að
hlífa sér meir, en af hverju hefði
hann átt að gera það maður af þess-
ari gerð?
Þegar Tryggvi Guðnason í Víði-
keri hinn kunni rausnarbóndi,
fjallagarpur og fylgdarmaður um
öræfi íslands dvaldi eitt sinn í hléi
við hraunkambinn úfinn ásamt
Pálma Hannessyni og sagði honum
fyrirætlanir stnar varðandi Víðiker,
þá var það saga þeirra framkvæmda
sem urðu þar á næstu árum og hafa
verið að ske fram að þessu, en Pálmi
minntist eftirminnilega að Tryggva
látnum. Hvort sem nú fer að draga
af ferð, en ekki hefir þar kennt
hnignunar hin síðari ár í handbragði
þeirra Kjartans og drengja hans, en
þó áfallið sé Kjartani þungt,
bráðum orðinn þreyttur og slitinn,
ef til vill þegar í dag, þá spretta líka
hratt úr grasi börnin þeirra Páls og
Sigríðar í staðinn. Systurnar, þær
Þorgerður og Vera eru nú fjarri sínu
gamla góða óðali en búa með sínum
fjölskyldum á Húsavík en verða
áfram sömu hollvættir síns æsku-
heimilis og síns frændsfólks. Svo
halda máski einhverjir að konur hafi
ekki komið nálægt sögukorninu
hans Snorra og sögu Víðikers, en
það er nú öðru nær.
Sigrún Þorvaldsdóttir kona
Tryggva var hin mesta öndvegis-
kona svo var hún bæði glæsileg og
skáldmælt, en stóð fyrir umsvifabú-
rekstri og stóru heimili og mikilli
ferðamannaþjónustu meðan ævi
entist, og í ýmsu hefir sjálfsagt
Snorra svipað til afa síns og ömmu.
Og þá kom inn í sögu Víðikers
frænka mín Kristbjörg Jónsdóttir
frá Stóruvöllum glöð og góð og dug-
leg sem engum kom á óvart sem
vissi um fólkið hennar. Hún er
mamma hans Snorra og allt í einu
orðin lífsreynd og bráðum gömul
kona, sem ekki tekur oftar á móti
sínum stóra dreng eins og áður þeg-
ar hann kom úr verinu með aflahlut
sinn. Og síst er að sjá að Sigríður
Baldursdóttir frá Grýtubakka unga
konan hans Páls láti merkið falla
sem ber þar yfir heiðina.
Það var hinn 7. janúar á nýbyrj-
uðu árinu, að óvenjumikill fjöldi
fólks ók um austurbakka Skjálf-
andafljóts, sem var nýskafin fönnin
af. Það kembdi skafrenninginn úr
vesturfjallinu alveg niður að auðum
álnum í fljótinu. Það var eins og
hlýhugur Bárðdælinga og annarra
þeirra sem mættu eða hugsuðu til
jarðarfararinnar að Lundarbrekku,
hefðu stöðvað óveðurshamfarir síð-
ustu daga líkast því er Skaftfellingar
stöðvuðu framrás hraunsins eld-
messudaginn, en eflaust hefir þó
æðri máttur haft þar hönd í bagga.
Það var hinn ágæti prestur okkar í
Staðarfellsprestakalli nú um skeið
sr. Kristján Róbertsson sem flutti
minningarræðu sína: Huggunarrík-
an kærleiksboðskap hins trúaða
manns og viturleg ályktunarorð um
ungs manns ævi. Snillitónar ómuðu
um kirkjuna þegar Sigríður lista-
konan úr Mývatnssveitinni lék á
fiðluna sína, og kirkjukór Skútu-
staðasóknar söng sig þannig til
fólksins, að nærri lét að gleðisöngur
hljómaði um kirkjuna, þó sorgin
biði að baki alls þessa.
Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjá
alefling andans og athöfn þörf. -
Hlýlegt var það og falleg sögulok að
bjóða til samverustundar í barna-
skólanum á eftir jarðarförinni, og
að liðnum degi gefa veitingar að
Víðikerssögu hætti þó dagur unga
mannsins ljómi enn á lofti.
Ég sendi ykkur öllum samúðar-
kveðju sem mest hafið misst, og bið
ykkur Guðs blessunar, og á svo með
ykkur góðar og ljúfar minningar,
slíkar endast mönnum lengi.
Jón Jónsson
Fremstafelli.
Bæjarstjórn
Húsavíkur
leggur
100 þ. kr. í
framkvæmdasjóð
- Hlutverk sjóðsins að öiva
atvinnulíf í kaupstaðnum
Lögð hafa verið drög að fram-
kvæmdalánasjóði á Húsavík
sem á að hafa það markmið
með höndum að örva atvinnu-
starfsemi á Húsavík. Tillaga
þess efnis var samþykkt ein-
róma á bæjarstjórnarfundi á
Húsavík á dögunum, en sá
fundur var jafnframt sá 500. í
röðinni frá upphafi.
Tillagan sem samþykkt var
hljóðar svo: „Bæjarstjórn Húsa-
víkur samþykkir að stofna fram-
kvæmdalánasjóð og leggja fram
sem stofnframlag 100 þúsund
krónur.
Hlutverk framkvæmdalána-
sjóðsins verði að örva atvinnu-
starfsemi á Húsavík m.a. með
því að veita þeim aðilum sem
hyggjast reisa atvinnuhúsnæði,
lán til greiðslu á gatnagerðar-
gjöldum og heimtaugagjöldum
hitaveitu og rafveitu. Bæjarstjórn
felur bæjarráði að semja nánari
reglur fyrir framkvæmdalána-
sjóðinn."
Nokkrar umræður spunnust
um þetta mál á bæjarstjórnar-
fundinum en allir þeir sem til
máls tóku lýstu yfir stuðningi við
tillöguna þó einstaka fyndist hún
e.t.v. ganga of skammt. Var m.a.
nefnt að sjóður sem þessi ætti að
auðvelda fólki að koma þaki yfir
höfuðið. ESE.
Gunnar
Bergmann
efstur á
skákþingi
UMSE
Skákþing U.M.S.E. hófst 15.
janúar. í meistaraflokki eru 18
keppendur og eru tefldar 7 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Að
loknum fjórum umferðum eru
efstir og jafnir þeir: Gunnar
Bergmann, Smári Ólafsson, Jón
Björgvinsson og Hjörleifur Hall-
dórsson allir með 3 vinninga.
í unglingaflokki eru 8 kepp-
endur. Efstur er Reimar Helga-
son.
Jólahraðskákmót U.M.S.E.
var haldið 8. jan. í Skákhúsinu.
Þátttakendur voru 31. Sigurveg-
ari varð: Jakob Kristinsson með
15 v. af 18. Annar varð Jón
Björgvins. með 14 v., þriðji-fjórði
Jón Garðar Viðarsson og Sigur-
jón Sigurbjörnsson með 12 v.
hvor.