Dagur - 13.02.1984, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
FILMUhusid AKUREYRI
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 13. febrúar 1984
19. tölublað
„Megum ekki hrófla
neitt við genginu“
- og halda okkur við fyrirfram ákveðna launaþróun, segir Ingvar Gíslason, alþingismaöur
„Árangur ríkisstjómarinnar
liggur náttúrlega fyrst og
fremst í því að verðbólgustigið
hefur stórlega lækkað og þetta
er árangur sem við megum
ekki farga. Við megum því
ekki hrófla neitt við genginu
og við verðum að halda launa-
hækkunum innan þeirra marka
sem ráðgert hefur verið, 4-
5%. Ef þetta jafnvægi í gengi og
launum raskast, þá erum við
búin að tapa þessum Ieik,“
sagði Ingvar Gíslason, al-
þingismaður í viðtali við Dag.
Banaslys
á miðunum
26 ára gamall sjómaður lést á
laugardag í sjúkrahúsinu á
Neskaupstað eftir slys sem
hann varð fyrir um borð í tog-
aranum Rauðanúp frá Raufar-
höfn.
Togarinn var að veiðum fyrir
austan land í slæmu veðri er siys-
ið varð. Fékk maðurinn þungt
höfuðhögg og lést hann sem fyrr
segir í sjúkrahúsinu á Nes-
kaupstað.
Maðurinn hét Injgi Viðar As-
geirsson, til heimilis á Raufar-
höfn. Kvæntur og tveggja barna
faðir.
Með
Rudi Knapp
á skíðum í
TalÓl
„Gengisþróunin skiptir gífur-
lega miklu máli í þessu sambandi
og e.t.v. ekki minna máli en þró-
un launamála. Ég held að þróun-
in erlendis í gengismálum hafi
verið nokkuð hagstæð og þar hef-
ur orðið mikil breyting á frá t.d.
árinu 1981, þegar farið var út í
niðurtalningaraðgerðirnar, en
þá var gengisþróunin alls staðar í
kringum okkur ákaflega óhag-
stæð. Þá urðum við að slaka til í
gengismálum vegna útflutnings-
ins. Nú held ég að ekki sé mjög
mikill þrýstingur frá atvinnuveg-
unum á að breyta genginu og að
- Það var ákveðið að halda
áfram viðræðum við Slippstöð-
ina um smíði á nýjum togara
fyrir Útgerðarfélag Akureyr-
inga, sagði Sverrir Leósson,
starfandi formaður stjórnar
ÚA er hann var inntur eftir
niðurstöðum síðasta stjórnar-
flestir telji að það verði að una
við þetta eins og það er. Að
þessu leyti hefur stjórnin mikinn
meðbyr og þá ekki síður vegna
þess að almenningur er farinn að
átta sig á því að lækkun verðbólg-
unnar hefur miklu meiri áhrif til
kjarabóta en menn hafa viljað
vera láta.
Varðandi það ástand sem þeir
verst settu búa við í þjóðfélaginu
vil ég segja það, að reynslan hef-
ur sýnt okkur að þessi almenni
víðtæki samningsréttur er nú orð-
ið ekki til hagsbóta fyrir lág-
launafólkið. Það er miklu betra
fundar.
Viðræður ÚA og Slippstöðvar-
innar um hugsanlega togarasmíði
hafa staðið síðan í haust. Fyrst í
stað fór mestur tíminn í að finna
leiðir til að brúa það bil sent var
milli tilboðs Slippstöðvarinnar og
annarra tilboða sem stjórn ÚA
fyrir láglaunafólkið að fá úrlausn
sinna mála frá samfélaginu eða
ríkisvaldinu og margir verkalýðs-
leiðtogar virðast vera að komast
á þá skoðun. Þeir treysta meira
orðið á ríkisvaldið og úrlausnir úr
þeirri átt heldur en í gegn um
samninga. Ég tel að æskilegt væri
að finna leiðir til að lögfesta lág-
markslausn, en til þess þarf að
finna fjármagn. Þá má ekki
gleyma þeirri skyldu ríkisstjórn-
arinnar að halda uppi atvinnu, en
atvinnulífið er víða mjög
viðkvæmt, t.d. hér á Akureyri,“
sagði Ingvar Gíslason að lokum.
taldi hagstæðari en eftir að bæjar-
stjórn Akureyrar lýsti yfir áhuga
og vilja til þess að hjálpa upp á
sakirnar þá héfur talsverður
skriður komist á þessar viðræður.
- Ég hef alltaf litið svo á að
ÚA ætti að fá nýjan togara í stað
Sólbaks. Fyrirtækið hefur á
Kaupir UA
rað-
smíða-
bátana?
Komið hefur til tals að Útgerð-
arfélag Akureyringa kaupi
raðsmíðabátana sem nú eru í
smíðum í Slippstöðinni á Ak-
ureyri. Kom þessi hugmynd
upp í útgerðarráði í síðustu
viku að sögn Sverris Leósson-
ar, varaformanns stjórnarinn-
ar.
„Það var svona rétt kveikt á
þessari hugmynd í þeim tilgangi
að reyna að auka hráefnisöflun-
ina þangað til hægt verður að
smíða togara fyrir félagið,“ sagði
Sverrir í viðtali við Dag.
„Það hefur lítið verið rætt við
okkur um þetta ennþá, nema
hvað fyrirspurn kom til okkar um
verðið á bátunum,“ sagði Stefán
Reykjalín, stjórnarmaður Slipp-
stöðvarinnar. „Við buðum þeim
báða bátana til kaups á 195 millj-
ónir króna, en bátarnir eru 35 m
og 39 metra langir með vélar inn-
an við þúsund hestöfl, þannig að
þeir eiga að fá víðtækari veiði-
réttindi en togarar. Við teljum
okkur geta afhent annan í júní og
hinn í september. Frá okkar
sjónarmiði væri æskilegra að fá
að smíða fyrir þá togara, en vafa-
laust gæti þetta leyst þeirra vanda
um sinn. Ég tel að þessir bátar
verði mjög vel seljanlegir aftur,
ef til þess kæmi að ÚA keypti
síðar togara," sagði Stefán.
Stefán taldi að ekki yrði nein-
um vandkvæðum bundið að fá
veiðikvóta fyrir bátana þegar þeir
væru seldir. Sverrir Leósson taldi
hins vegar að það gæti orðið erf-
iðleikum bundið, ef marka ætti
sjónarmið sjávarútvegsráðherra
í þessum efnum. HSv.
undanförnum árum gert út fimm
togara og þó að allir séu sammála
um að fiskiskipaflotinn megi ekki
stækka þá getur það ekki talist
stækkun þó ÚA reyni að halda í
horfinu. Menn ættu að reyna að
varast sleggjudóma í þá átt, sagði
Sverrir Leósson. - ESE.
Vatn og meira vatn. Þau voru ófá höfin sem mynduðust í hlákunni, svo enginn komst yfir nema akandi eða í vöðlum.
Mynd: ESE.
Slippstöðin og Útgerðarfélagið:
Togarasmíðinni
haldið til streitu