Dagur - 24.02.1984, Blaðsíða 3
24. febrúar 1984 - DAGUR - 3
Bessi Bjarnason og Magnús Ólafsson í góðu formi.
Hemmi Gunn í
Sumargleðinni
Kasper,
Jesper og
Jónatan
Æfingar eru nú hafnar á Karde-
mommubænum hjá Leikfélagi Akur-
eyrar af fullum krafti. Við höfum
áður sagt frá því hér í helgarblaðinu,
að Sunna Borg verður í hlutverki
Soffíu frænku, en því er svo við að
bæta, að Þráinn Karlsson verður
Kasper, Bjarni Ingvarsson verður
Jesper og Gestur E. Jónasson verður
Jónatan. í hlutverki Bastíans bæjar-
fógeta verður Björn Karlsson, leikari
frá Reykjavík sem ekki hefur komið
á svið hjá L.A. áður. í hlutverkum
Kamillu og Tomma verða Halla
Jónsdóttir og Haukur Freysteinsson.
Þá mun Jónsteinn Aðalsteinsson
vera með hlutverk bakarans og ung-
ur áhugaleikari framan úr Firði,
Leifur Guðmundsson bóndi í Klauf,
verður í hlutverki pylsugerðar-
mannsins. Undirleikinn annast tíu
manna hljómsveit undir stjórn Roars
Kvam. Þetta barnaleikrit Thorbjörns
Egner er sígilt og eflaust margir sem
bíða eftir því að verða ungir í annað
eða þriðja, já jafnvel fjórða sinn -
með því að sjá sýninguna, svo oft
hefur þetta vinsæla barnaleikrit verið
sett á svið hérlendis.
Eflaust veröur létt yfir söng-
leiknum um Edith Piaf ef úr
honum verður.
Hver verður
nœsú
söngíákur?
Það er af og til verið að spyrja okkur
hér á blaðinu hvaða söngleikur verði
næst fyrir valinu hjá Leikfélagi Akur-
eyrar. Ekki vitum við það fyrir víst
enda hefur það eflaust ekki verið
ákveðið enn. Hins vegar getum við
sagt ykkur leyndarmál, ef það fer
ekki lengra. Við vitum sem sé að
leikfélagsmenn hafa verið að skoða
söngleikinn um söngkonuna Edith
Piaf, sem naut mikilla vinsælda á
meðan hún var og hét. Hún var lítil
og grönn og söngstíll hennar var sér-
stakur. Nú er bara spurningin; eigum
við einhverja „Edith Piaf“ hér norð-
an fjalla?
Sumargleðin hefur farið um landið
þvert og endilangt sumar eftir sumar
við mikinn hlátur landsmanna. Sveit-
in sem gleðinni veldur hefur lengst af
verið skipuð sömu mönnum, nema
hvað Magnús Ólafsson og Þorgeir
Ástvaldsson komu inn fyrir fáum
árum. Nú dettur Þorgeir út aftur, þar
sem hann er orðinn stjóri á Rás 2. En
í stað hans næsta surnar mun koma
enginn annar en fjörkálfurinn Her-
mann Gunnarsson, sem skemmt hef-
ur íþróttaunnendum og fleiri lands-
mönnum um árabil. Hermann er
mikill æringi og kemur eflaust til með
að hressa upp á Sumargleðina næsta
sumar.
Útyfir
gröfog
daiiða
í síðustu Blöndu sögðum við frá inn-
heimtuaðferðum Rafns okkar
Hjaltalín, sem þóttu mannlegar og
jafnframt árangursríkar, jafnvel
gagnvart félausum mönnum!! í Vík-
urblaðinu lásum við um „krónumál-
ið“ svokallaða, sem hófst með því að
Félagsheimili Húsavíkur var gert að
greiða eina krónu til ríkisins, eða
hljóta verra af. En þetta er ekki eina
krónan sem vantar í ríkiskassann,
því Víkurblaðið segir frá öðru
krónumáli:
„Nú hefur annað mál rekið á
fjörur Víkurblaðsins. og slær það
krónumálinu hinu fyrra algjörlega
við. Fyrir skömmu barst bréf frá
sýsluskrifstofunni til konu nokkurrar
á skráð heimilisfang hennar, þ.e.a.s.
það heimilisfang sem skráð var á inn-
heimtuseðilinn því þetta var jú
rukkun. Á seðli þessum stóð að kon-
an skuldaði eina krónu í opinber
gjöld og til þess að losna við allan
óþarfa innheimtukostnað væri best
fyrir hana að koma og greiða krón-
una hið snarasta“.
Þannig var nú það, en það getur
orðið bið á því að konan láti sjá sig
því hún lést fyrir þrem árum, að sögn
Víkurblaðsins. Það er því greinilegt
að skattheimtan nær út yfir gröf og
dauða og gefur Albert eflaust drjúgt
í aðra hönd, ef marka má sagnir um
framhaldslíf!!
Bylting
á Tímanum
Miklar hræringar hafa verið á dag-
blaðinu Tímanum að undanförnu,
eins og lesendur Dags hafa eflaust
orðið varir við. Nú líður að þeirri
stundu að nýir stjórnendur taki við
blaðinu og þá er búist við byltingu.
Mesta byltingin mun verða fólgin í
því að nafni blaðsins verður breytt úr
„Tíminn“ í „Nútíminn" og jafnframt
er gælt við þá hugmynd að gera blað-
ið að síðdegisblaði. Þessi atriði munu
þó ekki vera frágengin enn, en víst er
að miklar mannabreytingar verða á
blaðinu.
ÞETTA FYRIRTÆKI
ER VAKTAÐ
SECURITAS
Viðvörunarkerfi:
SECURITAS setur upp
alþjóölega viðurkennd
öryggiskerfi:
• Innbrotavarnakerfí
• Eldvarnakerfi
• Rakaskynjara
• Frysti- og kæliskynjara.
ÖRYGGI í STAÐ
ÁHÆTTU
í lið með þér
Fagleg innsýn og reynsla Securitas
kemur öllum viðskiptavinum fyrirtækisins
til góða, bæði stórum og smáum.
Öryggisverðir Securitas hljóta sérþjálfun
í fyrirbyggjandi eftirlitsstörfum og eru
því hæfari til þess að tryggja öryggi
fyrirtækis þíns en ella.
SF
I REYKJAVI'K, KÓPAVOGI. GARÐABÆ,
HAFNARFIROI. SELTJARNARNESI,
MOSFELLSSVEIT OG AKUREYRI.
AKUREYRI SÍMI (96)26261
AÐALSKRIFSTOFA SÍÐUMÚLI 23 REYKJAVÍK SÍMI (91) 687600