Dagur - 24.02.1984, Síða 9

Dagur - 24.02.1984, Síða 9
8 - DAGUR - 24. febrúar 1984 24. febrúar 1984 - DAGUR - 9 ZIUCRTAl „Ætlar þú með snjóinn með þér til Austurríkis“. sögðu þau á Akureyrarflugvelli þegar far- angurinn var kominn á vigtina og ekki að ástæðulausu. En er það ekki alltaf svo að maður vill hafa vaðið fyrir neðan sig og taka með sér heldur meira en minna þegar farið er til út- landa eða í ferðalög yfirleitt. Hálfsmánaðar skíðafrí var framundan - aðstæður ókunn- ar og vissara að lenda ekki í vandræðum. Raunin varð svo að sjálfsögðu sú að ekki var notaður nema fjórðungurinn af öllum fatnaðinum og dót- inu. Ferðinni var heitið til Austur- ríkis, nánar tiltekið til Zillertal í smábæ sem heitir Mayrhofen, en þangað eru Flugleiðir með skipu- lagðar hópferðir. Þar sem úr þessari tilteknu hópferð varð ekki, var flogið til Luxembourg í stað Innsbruck og farið með bíl til Mannheim, þaðan með hrað- lest til Miinchen og áfram áleiðis til Innsbruck. Farið var úr lest- inni nokkru áður en komið var til Innsbruck og skipt yfir í litla dís- elreið sem gengur upp í fyrir- heitna dalinn Ziller. Mayrhofen er innarlega í dalnum, stendur í 630 m hæð yfir sjávarmáli og íbúar eru um 2 þúsund. Það segir talsvert um þann atvinnuveg sem þar er stundaður að gistirými í bænum eru á 9. þúsund, enda er þetta vinsæll dvalarstaður sumar sem vetur. Dalurinn er þröngur og himinhá Alpafjöllin á alla vegu. Hlíðarnar vaxnar barrskógi og mjög brattar, en ofar eru skíða- löndin. Farið er þangað upp með kláfum, rúman kílómetra upp í loftið, en sums staðar hægt að renna sér á skíðum alla leið niður í dalinn. Margir smábæir eru þarna með stuttu millibili og „skíðapassarnir“ ganga í allar lyftur og önnur farartæki sem flytja fólk á milli svæðanna. Flugleiðir bjóða farþegum sín- um upp á gistingu á aðallega tveimur stöðum, Sporthotel Strass og Café Traudl, sem bæði eru staðsett örskammt frá kláfn- um upp í skíðalöndin. Á Sport- hotel Strass er mikið líf og fjör og þar kemur fólk gjarnan saman að loknum degi á skíðum, fær sér bjór og rabbar um viðburði dagsins. I»ar er innisundlaug, sauna, ljósbaðstofa, billjard, borðtennis og sjónvarpsherbergi, svo eitthvað sé nefnt, auk diskó- teks og frábærs veitingastaðar. Á Café Traudl er andrúmsloftið hins vegar rólegra og afslappaðra og þar er ekki síðra að vera. Sjálfsagt eru til líflegri staðir í tírólsku ölpunum en Mayrhofen, en þarna skortir samt ekki á neitt. Reynsla flestra er sjálfsagt sú að eftir heilan dag á skíðum er lítið þrek til að „stunda lífið“. Þarna er þó hægt að velja úr nokkrum diskótekum og dans- stöðum og fæstir láta fram hjá sér fara skipulögð skemmti- kvöld, Tirolerabend, þar sem boðið er upp á líflega þjóðdansa og tírólska söngva með viðeig- andi jóðli. Tírólarnir eru einstaklega við- felldið fólk og vinalegt. Eins og áður gat er ferðaþjónusta aðalat- vinnuvegurinn, en þó er stundað- ‘ ur nokkur landbúnaður. Kýr eru reknar á beit hátt upp í fjallshlíð- ar á sumrin og lítilsháttar skógar- högg er þarna, svona rétt til heimabrúks. Segja má að skógur- inn sé forsenda byggðar í dalnum, því hann er besta vörnin gegn snjóflóðum. Pau þekkjast vart á þessum slóðum vegna þess að skógurinn hefur verið vernd- aður. Þegar ferðamálafrömuðir vilja reisa nýjar lyftur og veiting- astaði uppi í fjöllunum getur komið til hagsmunaárekstra við landeigendur, rétt eins og við þekkjum hér á landi. Nokkur villidýraveiði er í fjöllunum en þar er að finna hirti, gemsur og ýmiss konar smádýr, sem skilja eftir sig spor í skóginum en verð- ur tæpast vart að öðru leyti. Eins og að líkum lætur hafa ferða- mennirnir haft áhrif á þá inn- fæddu og það var svolítið skond- ið að sjá gamla sveitakonu kjaga um í „moonboots" og við skíða- staf. En hvers vegna eru íslendingar að fara til Austurríkis á skíði, þegar oftast er nægur snjór hér á landi? Það verður að segjast eins og er að því er ekki saman að jafna að vera á skíðum í Ölpun- um og hér á landi. Þó að menn kunni að láta sig dreyma um að reyna að lokka ferðamenn til ís- lands á vetrum til skíðaiðkana, þá komast okkar aðstæður aldrei í hálfkvisti við þær sem þarna er að finna. Hlíðarfjall er eins og lítil þúfa í samanburði við Alp- ana og er það þó talið besta skíðasvæði landsins. Þarna er stillt og stöðugt veðurfar, (það getur nú líka verið það á Akur- eyri, kynni einhver að segja) aldrei skortir snjó og það er alveg sérstök tilfinning að renna sér úr einni lyftunni í aðra, koma við á einhverjum hinna fjölmörgu veit- ingastaða sem eru út um öll fjöll og heyra glaðværa tírólamúsíkina í bland við kyrrðina, sem ríkir þó víðast. Ljúkum þessu með Skúla þætti Steinþórssonar, flugstjóra, sem er gamall Akureyringur, mikill áhugamaður um jóðl og aðra þætti tírólskrar menningar, sem hann tileinkar sér eftir bestu getu. Fór því gjarnan jóðlandi niður brekkurnar í takt við glæsi- legar sveiflurnar. Og hann hafði fleiri áhugamál, nefnilega þýsku og þá ekki síður mállýsku Tíról- anna auk samanburðarmálfræði. Eins og við vitum hafa íslensk nöfn oftast einhverja merkingu og þetta fyrirbæri yfirfærði Skúli á þýsk nöfn með miklum til- þrifum. Eftirfarandi skýringu á merkingu nafns síns fékk Rudi Knapp, leiðsögumaður Flugleiða á staðnum: Rudi heitir fullu nafni Rudolf, en Rudolf samsvarar ís- lenska nafninu Hrólfur, sem áður var Hróðólfur. Það nafn er byggt upp úr orðinu hróður, sem þýðir frægð og ólfur, sem þýðir úlfur. Aumingja Rudi sat því uppi með viðurnefnið „Úlfur hinn frægi“! - HS Sporthotel Strass er rétt við kláfferjuna og Café Traudl skammt frá, aðeins yfir þessa brú að fara. Farið er upp í skíðasvæðin með kláfferjum, rúmlega kílómetra upp í loftið. Mayrhofen er neðst í dalnum. Fæstir láta Tírólakvöld fram hjá sér fara, en þar er mikið glens og gaman. Myndir og texti: HS. Um hálftíma ferðalag frá Mayrhofen er Hintertux-jökull, en þar var þessi mynd tekin í rösklega 3 þúsund metra hæð, sem er litlu lægra en flughæðin milli Akureyrar og Reykjavíkur. T.f.v. er greinarhöfundur, Steinunn Sæ- mundsdóttir (fyrrverandi Islandsmeistari á skíðum), Skúli Steinþórsson, Katr- ín Brynja Hcrmannsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Sæmundur Óskarsson. Mynd: Rudi Knapp. Flugleiðabíllinn gerður klár fyrir jöklaferðina. íslendingarnir reyndu gjarnan að hittast á fyrirfram ákveðnum stað til að fá sér hressingu saman. Þarna eru Katrín Brynja, Skúli, Ólöf, Kári, Rudi, Daði Kárason, Sæmundur, Ragnheiður Valdimarsdóttir og Þórunn Káradóttir. Útsýnið úr fjöllunum er víða mjög fallegt. I hlíðinni handan við dalinn má sjá hvemig barrskógurinn teygir sig í átt- ina að fjallatindunum. „Ég nýt vetrar- fría miklu betur“ - segir Kári Jónasson, frétta- maður á útvarpinu og Alpaaðdáandi „Við komum frá Kitzbúhl til Mayrhofen og vorum þar á skíðum í einn dag. Það er ekki gott að dæma um svæðið eftir svo stuttan tíma, en þarna var mjög skemmtilegt. Þetta er fjölbreytt og skemmtilegt skíðasvæði og skemmtilegt útsýni. Það er ekki gott að bera þetta saman við Kitzbúhl, en á báðum stöðunum eru mjög fjölbreytt skíðasvæði,“ sagði Kári Jón- asson, varafréttastjóri á út- varpinu, sem eins og fram kom heimsótti Zillertal í einn dag ásamt fjölskyldu sinni. „Það sló mig mjög þegar ég fór að skoða bæklinga um Zill- ertal að þarna er áreiðanlega geysilega skemmtilegur sumar- leyfisstaður, ekki síður en fyrir skíðamenn á veturna. Mögu- leikarnir til gönguferða eru óendanlegir. Þarna er hægt að ganga upp um fjöll og firnindi og dvelja í litlum hótelum sem eru upp um allar hlíðar og ekki má gleyma möguleikanum á skíðaferðum á jöklinum, þótt um hásumar sé. Ég er búinn að fara fjórum sinnum í vetrarfrí og mér finnst ég njóta frísins miklu betur þeg- ar ég tek það að vetrinum, held- ur en á sumrin. Maður verður alveg endurnærður og þá er ekki ónýtt að sleppa við vetrar- hvellina í Reykjavík og allt sem þeim fylgir, en að þessu sinni urðu þeir tveir meðan ég var í góðviðri og sól í Ölpunum. Eftir að sumarleyfin lengdust er auðvelt fyrir marga að taka sér þriggja vikna sumarfrí og hálfs- mánaðar vetrarfrí. Auk þess sýnist mér þetta ódýrara en fara í sumarfrí til sólarlanda. Það er hægt að lifa ódýrt í Austurríki. Ég get nefnt dæmi: Hálfur lítri af bjór kostar um 35 krónur ís- lenskar, en t.d. í Svíþjóð kostar bjórinn 80-90 krónur. Það er hægt að fá ágætis kjötrétt á veit- ingastöðum fyrir innan við 100 krónur og mér finnst ódýrt að vera þarna, t.d. miðað við Norðurlöndin,“ sagði Kári Jón- asson að lokum. Ólöf Sigurðardóttir: , /Evintýrí að svífa svona um fjallatinda“ „Mér fínnst það alltaf jafn mikið ævintýri að svífa svona um fjallatinda og ég undra mig stundum á því að þetta skuli virkilega vera ég. Það sem gerir þetta svona heill- andi er frelsið, sambandið við náttúruna og svo þessi glíma við brekkurnar, þar sem maður á allt undir sjálfum sér komið,“ sagði Ólöf Sigurðar- dóttir, húsmóðir og banka- starfsmaður frá Garðabæ, sem var í sinni fjórðu skíða- ferð í Ölpunum og dvaldi ásamt manni sínum, Skúla Steinþórssyni, flugstjóra, á Café Traudl í Mayrhofen. „Þetta er í annað sinn sem við komum til Zillertal og mér sýn- ist þessi staður hafa upp á það sama að bjóða og þekktari staðir, nema hvað hér er öllu rólegra og ódýrara. Hér hef ég heldur ekki lent í biðröðum í Ólöf Sigurðardóttir. lyfturnar, svo neinu nemi. Ég fór smávegis á skíði í „gamla daga“ og þá var það fyrst og fremst útiveran og fé- lagsskapurinn sem skipti máli og maður renndi sér nánast beint af augum. Þegar maður fer svo að geta eitthvað fara önnur atriði að skipta máli, eins og t.d. búnaðurinn, og þó ég segi sjálf frá þá hefur mér farið mikið fram. Fyrst þorði ég ekki einu sinni í stólalyfturnar. Nú förum við á skíði eins oft og mögulegt er, enda held ég bara að þetta sé það skemmtilegasta sem ég geri. Það er alveg ótrúlegt hvað vetrarfrí á skíðum létta manni veturinn. Eftir að ég fór að stunda skíðin að ráði fyrir ör- fáum árum hefur viðhorf mitt til vetrarins gjörbreyst og þurfti raunar ekki skíðafrí í út- löndum til,“ sagði Ólöf að lokum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.