Dagur - 24.02.1984, Qupperneq 13
iC' -rk-,? J/s — f-5! lACI - v r
24. febrúar 1984 - DAGUR - 13
/
Utvarp föstudags-
kvöld kl. 23.20:
Elísaog
Higgins
verða
kvöldgestir
Jónasar
„Gestir mínir í kvöld eru hið
vinsæla leikarapar, Arnar
Jónsson og Ragnheiður
Steindórsdóttir (eða Higgins
og Elísa), sem hafa sogað til
sín „pupilinn“ hér undanfar-
ið,“ sagði Jónas Jónasson þeg-
ar Dagur sló á þráðinn til hans
til að forvitnast um kvöldgesti
hans.
Um efni þáttarins vildi Jón-
as ekkert segja nema það að
hann sagðist þora að veðja, að
hann fengi þau til að leika
eitthvað fyrir sig. Hvað það
verður kemur í ljós í kvöld en
þátturinn hefst kl. 23.20.
Á.M.
Sjónvarpsunnudag
kl. 20.45:
Þessi
böm!!
„Þetta verk var skrifað 1979 á því
fræga barnaári og sent í samkeppni
sem Ríkisútvarpið efndi til í tilefni af
barnaári,“ sagði Andrés Indriða-
son aðspurður um sjónvarpsleikritið
„Þessi blessuð börn“ sem er á
dagskrá sjónvarpsins á sunnudags-
kvöldið kl. 20.45.
„Samkeppnin gufaði upp en er nú
að koma upp á yfirborðið. Efni
verksins eru hugleiðingar vegna um-
ræðunnar á barnaári um stöðu
barnsins, það var mikið talað um
velferð barna. Þetta verk er mitt inn-
legg í þá umræðu, ég skyggnist inn í
hugarheim 8 ára drengs sem er ráð-
þrota gegn öfugþróun í samskiptum
fullorðna fólksins.
Verkið er stutt, V2 klst. og það ger-
ist í íbúðinni þeirra á þessum hálfa
tíma. Upptakan fór fram í sjón-
varpssal en nokkur atriði voru tekin
upp utanhúss.
Með aðalhlutverkið fer 8 ára
strákur, Hrannar Már Sigurðsson en
pabba hans leikur faðir hans Sigurð-
ur Skúlason." Þess má geta að þetta
er fyrsta leikritið sem Andrés Ind-
riðason skrifar fyrir sjónvarp, en
hann hefur gert stutta leikþætti fyrir
Stundina okkar og eins í áramóta-
skaupum. Hann hefur einnig skrifað
5 bækur, samið 9 útvarpsleikrit og 2
sviðsverk. - Á.M.
Verksmiðju-
Einstakt tækifæri til að eignast
MODEL í MOKKA
Þú þarft að sjá verðið og gæðin til að sannfærast
Opið fra kl. 9.00-17.00 á útsöluloftinu
VERSLUN IÐNAÐARDEILDAR