Dagur - 24.02.1984, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 24. febrúar 1984
Bautinn - Smiðjan—...
Erum farín að taka á móti
pöntunum í fermingarveislur.
Pantið tímanlega.
„ Kvotaskiptingin er
reiðarslag tyrir okkur“
- segir Krístleifiir Meldal hjá Kaldbaki h.f. á Grenivík
- Við erum dæmi um það
versta sem getur átt sér stað í
sambandi við þessa kvótaskipt-
ingu. Ef kvótinn verður í lík-
ingu við það sem við óttumst
nú þá er það reiðarslag fyrir
plássið og mér sýnist í fljótu
bragði að þá verðum við að
loka fyrirtækinu í júní og opna
það ekki aftur fyrr en eftir ára-
mót.
Þetta sagði Kristleifur Meldal,
yfirverkstjóri hjá frystihúsi Kald-
baks hf. á Grenivík er hann var
inntur áiits á áhrifum fyrirhug-
aðrar kvótaskiptingar. Að sögn
Kristleifs þá nam vinnsla frysti-
hússins á síðasta ári um 2.600
tonnum en tvö loðnuveiðiskip,
Hákon og Súlan lögðu upp meg-
inhluta aflans eða um 1.600 tonn.
Nú fá loðnuveiðiskipin hins vegar
að öllum líkindum engan þorsk-
veiðikvóta og frystihúsið verður
því að gera sér að góðu kvóta
Núps BA sem nýlega var keyptur
til Grenivíkur og kvóta heima-
báta.
- Núpur fær kvóta upp á 562
tonn miðað við slægðan fisk og
það sýnist mér að sé það hráefni
sem verður aðaluppistaðan hjá
okkur á þessu ári. Heimabátarnir
hafa hingað til farið suður á net
þegar línuveiðunum lýkur og ef
það gerist einnig nú þá lítur allt
út fyrir að þeir taki út kvótann
fyrir sunnan. Ef þetta gerist þá er
öruggt að við verðum að loka í
júní og þá opnum við ekki fyrr en
eftir áramót. Þetta er reiðarslag
fyrir plássið því Kaldbakur hefur
hingað til veitt um 80-100 manns
atvinnu að sumarlagi. Jafnvel
hugsanleg rækjuvinnsla sem
veitti kannski 20 manns atvinnu
myndi engu breyta um það hörm-
ungarástand sem þá skapaðist,
sagði Kristleifur Meldal.
- Eigið þið von á að fá leið-
réttingu ykkar mála?
- Pað er erfitt að segja til um
það en eins og málum er háttað
þá er það auðvitað óréttlátt að
ekki sé tekið tillit til þess afla-
magns sem hingað hefur borist til
hafnar. Þessi kvótaskipting er
vafalaust eina færa leiðin en það
breytir því ekki að við erum lík-
lega sá staður á landinu sem
þyngst fær höggið, sagði Krist-
leifur Meldal.
-ESE.
Fólk í hrakning-
um á Vatnsskardi
— varÖ að skilja bflana eftir
Fólk sem var á leið frá Blöndu-
ósi norður yfír Vatnsskarð
lenti þar í miklum hrakningum
í fyrrinótt. Ofsaveður var á
heiðinni og varð fólkið að
skilja bíla sína eftir en tveim
flutningabflum tókst síðan að
brjótast áfram yfír.
- Fólkið kom hingað um
klukkan þrjú um nóttina og þeir
sem lengst höfðu verið á ferðinni
voru búnir að vera níu tíma á
leiðinni frá Blönduósi, sagði Ás-
björg Jóhannsdóttir, hótelstjóri í
Varmahlíð í samtali við Dag.
Alls báðust átta manns nætur-
gistingar en einhverjir héldu
ferðinni áfram. Veðrið gekk síð-
an niður um nóttina og um morg-
uninn komst fólkið upp á Vatns-
skarð til þess að ná í bílana. Þess
má geta að í góðu færi er hægt að
aka þessa leið á rúmum hálftíma.
- ESE.
Hrafninn flýgur:
Ovíst um
- Það hefur ekkert komið til
tals ennþá að sýna þessa mynd.
Við höfum ekki borið okkur
eftir því og það hefur ekki
heyrst orð frá framleiðanda
myndarinnar, sagði Arnfínnur
Arnfínnsson í Borgarbíói í
samtali við Dag er hann var
spurður að því hvenær Hrafn-
inn flýgur, nýjasta mynd Hrafns
Gunnlaugssonar yrði sýnd þar.
sýningu
Arnfinnur sagði að Borgarbíói
væri lítill akkur í að sýna þessar
íslensku myndir. Það borgaði sig
ekki að sýna myndirnar, útvega
sýningarmann og borga ljós og
hita fyrir aðeins 40 krónur á með-
an framleiðandinn heimtaði 110
krónur af hverjum miða.
Ekki náðist í Hrafn Gunn-
laugsson, framleiðanda myndar-
innar vegna þessa máls, en Hrafn
dvelur nú erlendis. - ESE.
Fyrsti viðskiptavinur útibús Alþýðubankans á Akureyri var Sigurbjörn
Birkir Bjömsson, níu ára. Hann fékk sér bankabók og hlaut óvænt að
launum 10 þúsund krónur frá bankanum en ákveðið hafði verið að
heiðra fyrsta viðskiptavininn. Stefán Gunnarsson, bakastjóri býður pilt-
inn velkominn en Kristín Jónsdóttir, útibússtjóri fylgist með.
Mynd: ESE.
Alþýðubankiim
fékk leyfið
Útibú Alþýðubankans á Akur-
eyri verður opnað í dag. Úti-
búið er til húsa að Ráðhústorgi
5 þar sem Tomma-hamborg-
arar voru áður til húsa en
húsnæðið hefur staðið tilbúið
frá því sl. haust.
Með opnun útibúsins er
löngum meðgöngutíma lokið.
Fyrirhugað var að opna útibúið
sl. haust en þá stóð á leyfi frá við-
skiptaráðherra. Stjórn Alþýðu-
bankans og forystumenn úr
verkalýðshreyfingunni hafa síðan
unnið að því að fá leyfi fyrir úti-
búinu en viðskiptaráðherra lagð-
ist gegn því á þeim forsendum að
nefnd sú sem skipuð var til
endurskoðunar bankakerfisins
hefði ekki skilað áliti. Banka-
málanefndin skilaði svo áliti í
fyrradag og þar sem umsögn
hennar mælir ekki gegn opnun
viðkomandi útibús þá ákvað ráð-
herra að veita leyfið.
Starfsmenn í útibúi Alþýðu-
bankans hér á Akureyri verða
fjórir talsins. Útibússtjóri verður
Kristín Jónsdóttir en starfsmenn
útibúsins munu sinna allri al-
mennri bankastarfsemi.
Þess má geta að ákveðið hefur
verið að hafa útibúið opið í há-
deginu milli kl. 12 og 13 en þess í
stað verður lokað á milli kl. 13 og
14. - ESE.
Veður
Allt útlit er fyrir áfram-
haldandi suðvestanátt, sem
getur orðið nokkuð hvöss.
Henni fylgja hlýindi eins og
verið hefur undanfarið,
alla vega til morguns, en
þá fer hægt kólnandi. Á
mánudag snýst áttin í
norðrið og má búast við
frosti, en ekki er reiknað
með hvassri eða afgerandi
norðanátt. Sem sagt -
meinleysisveður með
hlýindum fyrst í stað, lægir
og kólnar um og eftir helg-
ina.
Nýkomin
fataefiii
ímiklu
úrvali
Efiiií
fermmgarfötín
Gardínukappar
liHi
Barnafatnaður í úrvali.
Alltaf eitthvað nýtt.
Yæntanlegt í næstu viku:
Buxur og peysur
á aldur 6-12 ára.