Dagur - 27.02.1984, Síða 1

Dagur - 27.02.1984, Síða 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 67. árgangur Akureyri, mánudagur 27. febrúar 1984 25. tölublað Opnun Alþýðu- bankans bls. 3 Heil sla af lesenda- bréfum bls. 2 Fólabað. Maraþonknattspyrnukapparnir úr KA spiluðu í tæpar 30 klukkustundir. Inn á milli fengu þeir stutta hvíld og þá veitti ekki af að baða þreytta fætur. Sjá nánar íþróttir í opnu. Mynd: KGA. Mrs- stúlk- urnar Sjá íþróttir íopnu Bjöm Dag- bjartsson og huldufólkið bls. 8-9 GRIMSEY: Kvótinn senn fylltur - klárast e.t.v. strax í næsta mánuði legn óánægja er nú meðal ómanna og útgerðarmanna leð þann kvóta sem Gríms- tjarbátum hefur verið úthlut- - Mönnum finnst þetta alltof mikill samdráttur enda bjuggust þeir við hærri kvóta eftir gott fiskerí undanfarin ár, sagði Stein- unn Sigurbjörnsdóttir, fréttarit- ari Dags er við ræddum við hana. Að sögn Steinunnar eru gerðir út þrír 11 tonna bátar frá Gríms- ey og einn 29 tonna, auk trilluút- gerðar. Grímseyingar hafa aflað mjög vel að undanförnu þrátt fyr- ir slæmar gæftir og t.a.m. reru þeir 12 daga í röð í janúar og byrjun febrúar. Fiskurinn hefur því yfirleitt verið einnar náttar og mjög góður. Ef svo heldur fram sem horfir þá verða Grímseying- ar búnir að fiska kvóta sinn í mars eða byrjun apríl en hvað þá tæki við treysti Steinunn sér ekki til að spá um. Vegna góðra aflabragða hefur verið mikil vinna í Grímsey að undanförnu og hefur talsverður fjöldi aðkomumanna verið þar í vinnu. - ESE „Ekkert til að hrópa húrra fyrir - Þessir samningar eru auðvit- að ekkert til að hrópa húrra fyrir en ég er þeirrar skoðunar að lengra hafi ekki verið kom- ist án átaka, sagði Jón Helga- son, formaður Einingar er hann var spurður álits á samn- ingum ASI og VSÍ sem félags- menn Einingar munu taka af- stöðu til í almennri atkvæða- greiðslu á morgun og á mið- vikudag. - Þessir samningar færa verst setta fólkinu innan vérkalýðs- hreyfingarinnar mestu bæturnar. Kaupmáttarskerðingin stöðvast og ég fyrir mitt leyti á ekki von á því að það sé hægt að gera mikið betur eins og staðan er í dag. Breytist forsendur hins vegar á samnings- tímabilinu þá er alltaf sá mögu- leiki opinn að grípa til uppsagn- arákvæðanna, sagði Jón Helga- son. - Nú eigið þið margt sameigin- legt með félögum eins og Dags- brún í Reykjavík. Kemur það þér á óvart að Dagsbrúnarfélagar skuli fella samningana með slík- um meirihluta og raun ber vitni? - Það kemur á óvart að þetta skuli gerast á síðustu stundu en Dagsbrúnarmenn hafa eftir því sem ég kemst næst verið uggandi um hag einstakra hópa innan fé- lagsins, t.d. hag hafnarverka- manna. Það er auðvitað þeirra réttur hvort þeir samþykkja eða fella samkomulagið og það er meðal annars þess vegna sem við grípum til þessarar allsherjarat- kvæðagreiðslu nú. Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum alls- herjaratkvæðagreiðslu um kjara- samninga og ég tel það eðlilegt að úrslit þessa máls verði á ábyrgð fólksins, sagði Jón Helga- son. Samningur ASÍ og VSÍ hefur undanfarna daga verið kynntur félagsmönnum Einingar á Akur- eyri, Dalvík, Ólafsfirði, Hrísey og á Grenivík en kosið verður á skrifstofum verkalýðsfélaganna eða í skólahúsum á milli kl. 11 og 20 báða dagana. - ESE. Loðdýra- bændur stofna fóður- stöð á Dalvík „Ég tel að það sé stórt spor fram á við í málefnum okkar loðdýrabænda að koma upp þessari stöð,“ sagði Úlfar Ara- son loðdýrabóndi á Sólbergi í Eyjafirði er við ræddum við hann, en Úlfar er formaður undirbúningsnefndar sem vinnur að stofnun fóðurstöðv- ar á Dalvík. Ætlunin er að sú stöð sjái öllum loðdýrabúum í Eyjafirði og Fnjóskadal fyrir fóðri, en búin á þessu svæði munu vera 15 talsins. „Þetta kemur til með að breyta ansi miklu fyrir okkur,“ sagði Úlfar. „Það má reikna með að við fáum ódýrara fóður frá stöðinni en við höfum keypt hingað til þar sem hún verður stór óg hagkvæm, og með þessu opnast einnig sá möguleiki að reka fóðurbíl sem myndi aka fóðrinu heim að búunum og setja það þar á tanka.“ Fóður fyrir loðdýrabúin á svæðinu hefur til þessa verið framleitt á tveimur stöðum, hjá Kaldbaki á Grenivík og á loð- dýrabúinu á Böggvistöðum við Dalvík, en ætlunin er að á þeim stöðum verði fóðurframleiðslu hætt. Kaupfélag Eyfirðinga á Dalvík hefur boðið fram húsnæði fyrir hina nýju fóðurstöð á Dalvík, og nú stendur fyrir dyr- um að loðdýrabændurnir á svæð- inu stofni með sér félagsskap vegna reksturs stöðvarinnar. gk-

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.