Dagur - 05.03.1984, Side 1
GULLSMIÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
TRÚLOFUNAR-
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 5. mars 1984
28. tölublað
Varð
fyrir
snjósleða
á gangstétt
Ellefu ára gömul stúlka varð fyrir
snjósleða á föstudagskvöldið og
axlarbrotnaði. Stúlkan var á ferð
eftir gangstétt við Höfðahlíð hjá
Glerárskóla þegar slysið varð.
Debet
og
kredit
- bls. 2
Mikil ásókn í
rækjuvinnsluleyfi
- Vinnslubeiðnir Ólafsfirðinga og Grenvíkinga eru í athugun
Mikil ásókn hefur verið í
rækjuvinnsluleyfi að undan-
förnu og hefur sjávarútvegs-
ráðuneytið úthlutað nokkrum
slíkum til aðila á Norðurlandi
á síðustu vikum.
Að sögn Jóns B. Jónassonar,
skrifstofustjóra í ráðuneytinu þá
fékk hlutafélagið Dögun hf. á
Sauðárkróki nýlega vinnsluleyfi
og sömu sögu er að segja um
Árnes hf. sem hyggst reisa rækju-
verksmiðju á Árskógssandi. Sigl-
firðingar og Dalvíkingar hafa
fengið sín leyfi en nú er til athug-
unar að veita aðilum á Ólafsfirði
og Grenivík slík leyfi.
- Það eru þrír aðilar á Ólafs-
firði sem sótt hafa um leyfi og
þeir hafa haft góð orð um að
starfrækja slíka rækjuvinnslu í
sameiningu. Að því er við best
vitum þá er verið að ganga frá
þessum málum á Ólafsfirði nú og
þegar samstarfsgrundvöllurinn
liggur fyrir þá verður tekin af-
staða til þess hvort leyfið verður
veitt. Það sama er að segja um
þá aðila á Grenivík sem sótt hafa
um leyfi, sagði Jón B. Jónasson.
- Hefur komið til tals að setja
kvóta á þessar djúprækjuveiðar?
- Það er hlutur sem kemur ör-
ugglega í framtíðinni en á meðan
verið er að afla sér vitneskju um
veiðina og ástand stofnsins, þá
hefur ekki komið til tals að setja
kvóta. Eftir því sem veiðin eykst
þá verður aukin áhersla lögð á
rannsóknir og ég býst við því að
Hafrannsókn muni auka rækju-
leit og eftirlit með rækjumiðum í
sumar. ' - ESE.
■ ;
Mynd: KGA,
Verkalýðsfélagið
á Húsavík:
Semja
sér við
atvinnu-
rekendur
Við viljum helst ekkert vita af
því sem er í þessum samning-
um VSÍ og ASÍ. Það vita það
allir að það er enginn ofsæll af
því að lifa af 12 þúsund krón-
um á mánuði, sagði Helgi
Bjarnason, formaður Verka-
lýðsfélags Húsavíkur er blaða-
maður Dags ræddi við hann.
Á aðalfundi verkalýðsfélagsins
fyrir skömmu var samþykkt til-
laga frá stjórn félagsins um að
taka ekki afstöðu til samninga
ASf og VSÍ en óska þess í stað
eftir viðræðum við atvinnurek-
endur á svæði verkalýðsfélagsins
sem nær yfir S.-Þingeyjarsýslu.
Að sögn Helga Bjarnasonar
hófust þessar viðræður á þriðju-
dag og snúast þær um ýmis atriði
sem verkalýðsfélagið vill fá lag-
færingu á.
Ekki mun vera gerð krafa til
grunnkaupshækkunar umfram
aðra hópa. -ESE.
Innflutningsbanni á fiskiskipum aflétt í haust?
„Það hefur ekki verið
rætt um framlengingu“
- Það er verið að vinna að
stefnumörkun um með hvaða
hætti verði staðið að endumýj-
un skipastólsins en það er al-
veg Ijóst að við núverandi að-
stæður verður farið hægt í sak-
ímar. hefur ekki verið
rætt um að framlengja þetta
innflutningsbann sem sett var
en jafnvel þó það verði afnum-
ið þá liggur fyrir að ný skip
þurfa að fá veiðiheimildir í ís-
lenskri landhelgi.
Þetta sagði Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra er
Dagur spurðist fyrir um hvort
það stæði til að aflétta innflutn-
ingsbanni á fiskiskipum sem sett
var til tveggja ára haustið 1982. í
grein sem Gísli Konráðsson,
framkvæmdastjóri Útgerðarfé-
lags Akureyringa ritar í Dag í
fyrri viku er gefið í skyn að inn-
flutningsbanninu verði aflétt í
ágústmánuði nk. og þá verði hæg
heimatökin fyrir ÚA að flytja inn
„ódýran“ togara og spara þannig
skattborgurum stórfé, sem ella
kynni að fara til Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri.
Að sögn Halldórs Ásgrímsson-
ar þá telur hann eðlilegast að
endurnýjun fiskiskipa ráðist af
því hvort viðkomandi aðilar séu
reiðubúnir að leggja í þær miklu
fjárhagslegu skuldbindingar sem
því eru samfara. Þá skipti í sjálfu
sér ekki máli hvort skipin eru
fengin hér heima eða erlendis
frá.
- Það er verið að vinna að
þessari stefnumörkun en það er
ekki gert ráð fyrir því að ný skip
fái kvóta á þessu ári og ákvarðan-
ir varðandi næsta ár verða ekki
teknar fyrr en seint á þessu ári,
sagði Halldór Ásgrímsson. ESE.