Dagur - 05.03.1984, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 5. mars 1984
5. mars 1984 - DAGUR - 7
Tveir Skotar til
Siglufjarðar?
„Því er ekki að leyna að við leikmenn til liðs við okkur í
erum að velta þeim möguleika sumar,“ sagði Karl Pálsson
fyrir okkur að fá tvo skoska formaður Knattspyrnufélags
Golfþing:
Islandsmót
árið 1985
á Akureyri
- liýtt forgjafarfyrirkomulag
Segja má að aðalmál Golfþings
sem haldið var í Borgarnesi um
síðustu helgi hafi verið sam-
þykkt sú er gerð var um að
taka upp nýtt forgjafarkerfi
kyifinga, svokallað „Gongo-
kerfi“.
Þetta kerfi er allfrábrugöið
því kerfi sem viðhaft hefur verið
og ekki gott að útlista það í
stuttri blaðagrein. í upphafi
keppnistímabilsins hækka allir
kylfingar um 2 högg í forgjöf og
síðan breytist forgjöf þeirra eftir
hvert einasta mót sem þeir taka
þátt í, jafnt til hækkunar sem
lækkunar. Þá verður forgjöfin
endurskoðuð mánaðarlega og
kylfingar nánast skikkaðir til að
skila reglulega inn skorkortum
sínum.
Á þinginu í Borgarnesi var
endanlega gengið frá því að ís-
landsmótið f golfi 1985 verði
haldið á velli Golfklúbbs Akur-
eyrar að Jaðri. Þá kom fram tii-
laga um að næsta Golfþing verði
háð á Akureyri en því máli var
vísað til stjórnar GSÍ.
Samþykkt var tillaga um að
stjórn GSÍ veitti 50 þúsund krón-
um til útbreiðslu og verði þeirri
upphæð varið þannig að fá af-
reksmenn í íþróttinni til þess að
heimsækja staði þar sem golf á
eða hefur átt erfitt uppdráttar og
nýja golfklúbba.
Mótaskrá golfklúbbanna er nú í
burðarliðnum. Ljóst er að
Norðurlandsmótið verður í sum-
ar haldið á hinum nýja velli á
Sauðárkróki. Hin „stóru“ mót
s.s. opna Húsavíkurmótið og
opna Ólafsfjarðarmótið verða á
sínum stöðum eins og venjulega
og hjá Golfklúbbi Akureyrar ber
hæst Jaðarsmótið sem verður um
verslunarmannahelgina, Ingi-
mundarmótið sem verður í ágúst
og önnur opin mót sem dreifast
á hinar ýmsu helgar sumarsins.
„Við byrjuðum I lok janúar,
héldum þá fund og eftir það
höfum við æft þrisvar í viku,“
sagði Þorsteinn Ólafsson sem
þjálfar 1. deildarlið Þórs í sum-
ar er við ræddum við hann.
„Við höfum verið með eina
inniæfingu þar sem við höfum
verið í lyftingum og svo léttum
boltaæfingum á eftir. Tvær æfing-
ar hafa verið úti, og við höfum
reynt að vera sem mest með
bolta, eftir því sem veður og færð
hefur leyft. Ég reikna svo með að
í lok mars sleppum við lyftingun-
um og förum að vinna að úthald-
inu.“
- Hvað eru margir sem æfa?
„Það eru svona 20 manns og
þar af hafa verið nokkrir úr 2.
flokki. Nokkrir eru fyrir sunnan
en ég reikna með að hópurinn
verði um 20 manns þegar þeir
koma og einhverjir falla út.
Þetta leggst bara vel í mig. Það
er góður andi í liðinu og full
ástæða til bjartsýni því það eru
allir tilbúnir til að leggja mikið á
sig til þess að árangur okkar geti
orðið sem allra bestur í surnar,"
sagði Þorsteinn.
„Ég kom 8. febrúar og fyrsta
æfingin var strax þann sama
dag,“ sagði Gústaf Baldvins-
son þjálfari 1. deildarliðs KA
er við spjölluðum við hann fyr-
ir helgina og spurðum hvað
knattspyrnumenn félagsins
væru að aðhafast þessa dag-
ana.
„Við höfum verið með þrjár
æfingar í viku. Tvær af þeim hafa
verið kraftæfingar, við höfum
hlaupið úti og síðan farið inn á
eftir og farið í „lyftingapró-
gram“. Þriðja æfingin hefur svo
verið boltaæfing innanhúss.“
- Hvað eru margir sem sækja
æfingar?
„Þeir eru ansi margir, ég held
að ég hafi séð framan í 28 andlit
ef allir eru taldir með sem hafa
mætt á æfingar og strákar úr 2.
flokki þar á meðal. Það getur
verið að við verðum að fækka
eitthvað í hópnum.“
- Gústaf sagði að nú færi hann
að bæta við fjórðu æfingunni á
viku og þeir KA-menn færu að
fara meira út. „Ég er ansi bjart-
sýnn á þetta allt saman, bjart-
sýnni en ég var þegar ég kom.
Strákarnir eru mjög áhugasamir
og það er kraftur í þeim,“ sagði
Gústaf.
Haraldur náði
OL-lágmarkinu
Siglufjarðar, en Siglfirðingar
sem hafa misst eitthvað af
mannskap frá í fyrra leika sem
kunnugt er í 2. deild.
„Þjálfarinn okkar, Billy Hogd-
son er að athuga þetta mál fyrir
okkur í Skotlandi, og það er ekki
ólíklegt að línurnar skýrist áður
en langt um líður hvort af þessu
verður eða ekki.
Ég held að það megi fullyrða
að þetta séu ódýrustu menn sem
hægt er að fá, a.m.k. hafa kröfur
þeirra íslensku leikmanna sem
við höfum rætt við verið þannig
að það er ekki hægt að ganga að
þeim. Það má segja að gegnum-
gangandi séu þær kröfur upp á um
35 þúsund krónur á mánuði auk
húsnæðis og svo er verið að tala
um að fela þetta fyrir skattinum.
Það er hins vegar mikið at-
vinnuleysi í Skotlandi, og aragrúi
þar af snjöllum knattspyrnu-
mönnum sem hægt er að ráða
hingað í vinnu upp á sömu býti og
aðrir hér búa við og svo myndu
þeir leikameð okkur.En þrátt fyr-
ir að málið sé í alvarlegri athugun
núna hefur ekki verið tekin nein
endanleg ákvörðun," sagði Karl
Pálsson.
aði nú á 130 kg í snörun. Lengi
vel leit út fyrir að Haraldur
myndi falla út þar sem hann gerði
fyrstu tvær lyfturnar ógildar en í
þriðju tiiraun flaug þyngdin upp.
Haraldur átti síðan mjög góða
aukatilraun við nýtt íslandsmet,
132,5 kg en sú tilraun mistókst
naumlega.
í jafnhöttun byrjaði Haraldur
á þeirri þyngd sem hann þurfti til
að tryggja sér lágmarkið og far-
seðilinn til Los Angeles og 165 kg
reyndist létt þyngd. f annarri til-
raun reyndi Haraldur við „300 kg
múrinn“ en 170 kg reyndust hon-
um ofviða að þessu sinni.
- Það er bara tímaspursmál
hvenær ég tek þessa þyngd. Ég
stóð létt upp með þetta og einu
sinni hefði það verið gulltryggt
upp fyrir höfuð, sagði Haraldur í
samtali við Dag en hann líkt og
Guðmundur Sigurðsson lyftinga-
kappi, hefur sýnt mikið öryggi í
að lyfta þeim þyngdum sem hann
á annað borð hefur getað staðið
undir og rétt sig upp með.
- ESE.
Konráð Óskarsson var í góðu formi og skoraði 26 stig.
Mynd: KGA.
Haraldur Óiafsson I keppni á mót-
inu um helgina. Mynd: ESE.
Haraldur Ólafsson, lyftinga-
maðurinn snjalli úr Þór náði
um helgina Olympiulágmark-
inu í lyftingum í 75 kg flokki.
Haraldur lyfti samtals 295 kg
sem er jafnt lágmarkinu.
Haraldur sem keppti um fyrri
helgi á Sweden Cup-mótinu í
Svíþjóð og lyfti þá 125 kg í
snörun og 160 í jafnhöttun, byrj-
Loksins sigur á
Grindvíkingum
Loksins í fjórðu tilraun tókst
Þór að sigra lið UMFG í 1.
deildinni í körfuknattleik, en
liðin mættust í íþróttahöllinni
sl. laugardag. Úrslitin 108:98
fyrir Þór, en reyndar skoruðu
Þórsarar 112 stig en fjögur
þeirra voru ekki færð inn
vegna mistaka ritara.
Maður dagsins að þessu sinni
var Björn Sveinsson sem hrein-
lega fór hamförum í leiknum, og
þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
Björn hefur ekki í annan tíma
leikið betur, hann var sterkur í
vörninni, fljótur að áttá sig á
möguleikum sem gáfust í sókn-
inni og í fyrri hálfleik skellti hann
23 stigum á Grindvíkingana.
Það gat ekki farið hjá því að
þetta hefði þau áhrif að Þór tæki
leikinn í sínar hendur. Segja má
að í fyrri hálfleik hafi Þórsarar
„jarðað“ andstæðingana og sem
dæmi um yfirburðina má nefna
að staðan breyttist úr 11:10 í
39:18 og í hálfleik höfðu Þórsarar
skorað 60 stig gegn 42. Er mjög
óvenjulegt í körfuknattleik að lið
skori 60 stig í fyrri hálfleik.
Það er erfitt að „halda haus“
þegar svona yfirburðir eru á
dagskrá, menn missa einbeiting-
una og jafnvel örlar á kæruleysi.
Það gerðist hjá Þórsurum í síðari
hálfleiknum og Grindvíkingarnir
voru fljótir að ganga á lagið. Þeir
Ólafur Jóhannsson og Hjálmar
Hallgrímsson fóru líka að hitta úr
hverju skoti og skyndilega var
komin spenna í leikinn. Staðan
var 70:63 eða aðeins 7 stiga
munur. En Þórsarar bættu við sig
og munurinn fór aftur upp á við
og var þetta Í5—18 stig fram undir
lok leiksins að Grindvíkingar
náðu að minnka hann nokkuð.
í heildina góður leikur hjá Þór
þótt kafli í síðari hálfleik væri
slakur. Björn Sveinsson sem fyrr
sagði yfirburðamaður, Konráð
mjög frískur og sömuleiðis Jón
Héðinsson.
Stig Þórs: Björn Sveinsson 37,
Konráð Óskarsson 26, Jón Héð-
insson 18, Ríkharð Lúðvíksson
og Eiríkur Sigurðsson 8 hvor,
Guðmundur Björnsson 6, Jó-
hann Sigurðsson 4, Hrafnkell
Tulinius 2. - Stigahæstir Grind-
víkinga voru Hjálmar Hallgríms-
son með 27 og Eyjólfur Guð-
laugsson 22 stig.
Þetta var síðasti heimaleikur
Þórs í 1. deildinni í vetur. Liðið
á eftir 3 útileiki, tvo gegn Borg-
arnesi og einn gegn UMFL.
S o* 0 u e ir að gei ra?
Þorsteinn Ólafsson Þór: Gústaf Baldvinsson KA:
G n
Nanna Leifsdóttir, nýkomin heim frá OI-
ympíuleikunum í Sarajevo, mátti lúta í
lægra haldi fyrir hinni ungu og stórefni-
legu Guðrúnu H. Kristjánsdóttur Akur-
eyri er þær mættust í Bikarmóti SKÍ í
Hlíðarfjalli.
Keppt var í stórsvigi og eftir fyrri ferð-
ina hafði Guðrún tímann 50,89 en Nanna
var með 51,56. Þrátt fyrir að Nanna næði
síðan bestum tíma í síðari umferð tókst
henni ekki að vinna upp muninn. Röð
efstu varð þessi:
Guðrún H. Kristjánsdóttir A 107,36
Nanna Leifsdóttir A 107,95
Hrefna Magnúsdóttir A 109,66
Ingigerður Júlíusdóttir D 110,89
Tinna Traustadóttir A 110,92
Ásta Ásmundsdóttir A 111,43
Guðrún J. Magnúsdóttir A 117,35
Karlarnir kepptu einnig í stórsvigi og
segja má að þar hafi orðið óvænt úrslit
einnig. Árni G. Árnason frá Húsavík og
Daníel Hilmarsson frá Dalvík sem voru í
efstu sætunum eftir fyrri ferðina féllu báð-
ir úr í síðari ferðinni. Guðmundur Sigur-
jónsson Akureyri náði þá hins vegar lang-
bestum tíma og skaust úr 5. sæti í það
efsta. Röð efstu manna:
Guðmundur Sigurjónsson
Björn Víkingsson
Olalur Harðarson
Ingólfur Gíslason
Brynjar Bragason
Rúnar I. Kristjánsson
Haukur Bjarnason
A 103,27
A 104,02
A 104,07
A 105,04
A 106,05
A 106,14
R 106,44
Fyrstu tölur
í Lands-
keppninni
Fyrstu tölur sem Trimm-nefnd Skíða-
sambands íslands hefur sent frá sér varð-
andi Trimmlandskeppnina eru miðaðar
við 15. febrúar sl. Tölurnar eru aðeins frá
12 stöðum á landinu. Hafa þau svör feng-
ist á mörgum stöðum að mikill áhugi virð-
ist vera á keppninni, en þó hefur lítið bor-
ist inn af skráningarspjöidum víða. Þær
tölur sem þegar liggja fyrir eru þessar:
Reykjavík 543
Akureyri 174
ísafjörður 152
Siglufjörður 120
Húsavík 80
Ólafsfjörður 66
Hafnarfjörður 17
Bessastaðahreppur 14
Héraðssamb. N.-Þing. 11
Laugarvatn 10
Raufarhöfn 9
Ljóst er aö staðirnir norðanlands eins
og Siglufjörður, Ólafsfjörður og Húsavík
standa vel að vígi í keppninni, og jafnvel
Akureyri. - Hins vegar er svo langt til
loka keppninnar að vonlaust er að vera
með nokkrar vangaveltur þar að lútandi
en tækifærið notað til þess að hvetja fólk
til að taka þátt í keppninni og láta ekki
undir höfuð leggjast að skiia inn skráning-
arspjöldunum þegar tími er kominn til
þess.
Þórsarar skora eitt af mörkum sínum. Mynd: KGA.
Brotlending
Þórsaranna!
„Þótt við höfum unnið eina
fimm útileiki í röð þá fer því
fjarri að það sé kominn ein-
hver stöðugleiki í liðið, og
þessi leikur var vægast sagt
dapur hjá okkur,“ sagði Guð-
jón Magnússon þjálfari Þórs í
handboltanum éftir að liðið
tapaði með 12 marka mun á
heimavelli fyrir Akranesi um
helgina.
Já, 12 marka ósigur var stað-
reynd og hafa sennilega fáir
reiknað með því eftir fimm úti-
sigra liðsins að undanförnu. Úr-
Eins og mönnum er kunnugt
hefur kvennalið Þórs í hand-
knattleik unnið sér rétt til að
leika í 1. deild næsta keppnis-
tímabil eftir ársveru í 2. deild-
inni.
Sl. föstudagskvöld kom
kvennalið Akraness sem leikur í
slitin voru 35:23 fyrir Akranes,
lítið um varnarleik og því skorað
rétt um eitt mark á mínútu að
jafnaði.
„Það virðist sem það sé ekki
betra fyrir okkur að leika heima.
Annars er varla hægt að tala um
heimavöll hjá okkur, það heyrist
lítið af hvatningarópum af áhorf-
endapöllunum og í þessum leik
yfirgnæfðu nokkrir stuðnings-
menn Akranessliðsins alla
heimamenn.
En það afsakar ekki þennan
slaka leik okkar. Skagamenn
1. deild í heimsókn og lék vin-
áttuleik gegn Þór. Var leikið í
2x20 mínútur. Er skemmst frá
því að segja að Þór hafði yfir-
burði í Ieiknum og sigraði með 15
mörkum gegn 7. Er því ljóst að
Þórsstúlkurnar eiga fullt erindi í
1. deildar keppnina og það hafa
þær reyndar sýnt oft í vetur.
komu eins og grenjandi ljón í
leikinn sem hafði mikla þýðingu
fyrir þá upp á úrslitakeppnina.
Okkur vantar allt of marga þetta
eina sanna keppnisskap og því
fer sem fer. Það er varla hægt að
segja að reynt hafi verið að klóra
í bakkann hvað þá meira.“
Það er litlu við þessi orð Guð-
jóns að bæta, leikur Þórs getur
varla farið neðar en hann gerði
að þessu sinni og Skagamennirnir
höfðu ávallt örugga forustu í
leiknum. Staðan í hálfleik 16:11
þeim í vil og lokatölurnar sem
fyrr sagði 35:23.
Mörk Þórs: Guðjón Magnús-
son 6, Sigurður Pálsson 5, Gunn-
ar Gunnarsson 4, Oddur Sigurðs-
son 2, Ingólfur Samúelsson 2,
Kristinn Hreinsson 2, Hörður
Harðarson 1 og Baldvin Hreið-
arsson 1.
Og þá er það úrslitakeppni 4
efstu liða um tvö laus sæti í 2.
deild næsta vetur. í hana fara
Þór, Týr, Ármann og Akranes,
svo framarlega sem Skagamenn
ná einu stigi gegn ÍBK í síðasta
leik sínum. Leikin verður tvöföld
umferð og dregið um keppnis-
staði.
Stelpurnar
sterkar