Dagur - 14.03.1984, Qupperneq 3
#14. mars 1984- DAGUR - 3
HITACHI
ferðatæki í miklu úrvali
Fjórðungsþing
hvatti til svæðis-
i
bundins samstarfs
„Það er ekki óeðlilegt að sveit-
arfélög í fjórðungnum vilji efla
með sér svæðisbundið samstarf
um lausn á stærri verkefnum í
framkvæmdum sveitarfélaga
og vegna sameiginlegra at-
vinnu- og byggðahagsmuna.
Eg minni á að á Fjórðungs-
þingi í ágúst 1982 var gerð
samþykkt í þessa veru og þar
kom fram það álit að svona
samtök geti styrkt sambandið
sem heildarsamtök Norðlend-
inga. Því beindi þingið því til
fjórðungsstjórnar og fjórð-
ungsráðs að stuðlað verði að
slíku samstarfi um lausn verk-
efna á afmörkuðum svæðum
innan fjórðungsins.“
Þetta sagði Áskell Einarsson,
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambands Norðlendinga, í viðtali
við Dag í tilefni fréttar á mánu-
dag þess efnis að stærri sveitarfé-
lögin á Norðurlandi vestra væru
Sögusnælda
fyrir börn
Út er komin ný sögusnælda fyrir
börn: „Sagan af vaskafatinu og
fleiri sögur fyrir börn“, eftir
Þórhall Þórhallsson. Tónlist
samdi Sigurður Rúnar Jónsson.
Hér eru á ferðinni líflegar og
hressilegar sögur sem höfundúr
les sjálfur. Sögurnar voru hljóð-
ritaðar í Stúdíó Stemmu.
Snældan fæst í plötu- og bóka-
búðum og kostar aðeins kr. 330.
Söngtónleikar
í Borgarbíói
Laugardaginn 17. mars nk.
verða þriðju tónleikar Tónlist-
arfélagsins á Akureyri á þessu
starfsári.
Á þessum tónleikum koma
fram einsöngvararnir Michael J.
Clarke og Þuríður Baldursdóttir
og flytja lög eftir Arne, Brahms,
Britten, Dvorák, Fauré, Purcell
og Schumann, við undirleik
Kristins Arnar Kristinssonar og
Soffíu Guðmundsdóttur.
Rækjupillunar-
vélinni seinkaði
Nokkrar tafir hafa orðið á af-
hendingu rækjupillunarvéla til
Sigló hf. á Siglufirði en búist er
við vélunum í þessari viku.
- Þetta hefur verið hálf erfið
fæðing en við erum bjartsýnir
þrátt fyrir tafirnar, sagði Sæ-
mundur Árelíusson, fram-
kvæmdastjóri Sigló er við rædd-
um við hann.
Að sögn Sæmundar varð af-
greiðslufrestur á vélunum lengri
en við var búist í upphafi en vél-
arnar ættu þó að öllu forfalla-
lausu að koma til Siglufjarðar í
þessari viku. Verksmiðjan kæm-
ist því vonandi í gagnið í þessum
mánuði. - ESE.
Borgarbíó:
Islenskar myndir
í röðum!
Mikill kraftur hefur nú færst í
sýningar á íslenskum myndum
í Borgarbíói. Atómstöðin hef-
ur verið sýnd þar við góða að-
sókn að undanförnu og nýbúið
er að sýna þar Skilaboð til
Söndru og tvær íslenskar
myndir eru á leiðinni.
Þær myndir sem sýndar verða
á næstunni eru mynd Kristínar
Jóhannesdóttur, Á hjara verald-
ar sem frumsýnd var í fyrra og
að hefja með sér formlegt
samstarf.
Áskell sagði að með tillögun-
um um svæðisbundið og verk-
efnabundið samstarf sveitarfé-
laga hefði verið brotið blað í sögu
sambandsins. Menn hefðu vænst
þess að giftusamlega tækist til,
þannig að komið yrði á sem virk-
ustu samstarfi sveitarfélaga, án
þess að veikja kosti heildarsam-
takanna og styrk þeirra.
Eins og fram kom í fréttinni á
mánudag hefur verið rætt um það
milli manna hvort að því gæti
komið að sveitarfélög á Norður-
landi vestra segðu sig úr Fjórð-
ungssambandinu. Á fundi full-
trúa þéttbýlissveitarfélaganna á
Nl. vestra var þetta ekki sérstak-
lega til umræðu, en hjá einum
fulltrúanna, Hilmari Kristjáns-
syni, oddvita á Blönduósi, kom
fram að „ekki væri tímabært að
segja sig úr Fjórðungssamband-
inu“, eins og það var orðað í
fundargerð. Þetta var ekki um-
ræðuefni fundarins, heldur má
segja að það hafi aðeins borið á
góma, sem bendir til þess að hug-
myndir um úrsögn úr Fjórðungs-
sambandinu eru á kreiki meðal
einhverra sveitarstjórnarmanna.
Dagur hefur heimildir fyrir því
að líklega séu þeir þó færri sem
séu þessarar skoðunar. - HS.
I
: rííimímyíffirmínjM^í^^.
^ ••• • »
TRK 5341E kr. 3.780,- TRK 2200E kr. 9.600,-
TRK 9100E kr. 14.800,-
TRK 6801E kr. 6.030,-
Kassettur.
LN C60 Normal kr. 79,- EX C60 Chrome kr. 133,- Videospólur VHS
LN C90 Normal kr. 98,- EX C90 Chrome kr. 182,- 2ja tíma kr. 520,-
ER C60 Normal kr. 128,- SX C60 Chrome kr. 172,- 3ja tíma kr. 620,-
ER C90 Normal kr. 160,- SX C90 Chrome kr. 210,-
ÍUÍmBUÐIN » 22111
Skíðaskólinn Hlíðarfjalli
Ný námskeið hefjast
á hverjum mánudegi.
Innritun og upplýsingar í Skíðastöðum símar
22280 og 22930.
Allir hafa þessir listamenn lagt
sitt af mörkum við uppbyggingu
tónlistarlífs á Akureyri á undan-
förnum árum, bæði sem leiðbein-
endur og þá ekki síður sem flytj-
endur sígildrar tónlistar.
Sem fyrr segir, verða tón-
leikarnir laugardaginn 17. mars
og hefjast kl. 17.00 í Borgarbíói
á Akureyri.
Miðasala verður í Bókabúð-
inni Huld og við innganginn.
Tónlistarfélagið á Akureyri.
nun að taka upp
mikið af gólfteppum
á mjög hagstæðu verði
til dæmis nælonteppi
frá kr. 235
og
• i
pr. m,
\V
pr m:
vakti þá mikla athygli. Vegna
ágreinings hefur þessi mynd ekki
verið sýnd hér fyrr en nú en sýn-
ingar hefjast um aðra helgi.
Þá mun þess skammt að bíða
að Hrafninn flýgur, hin umtalaða
mynd Hrafns Gunnlaugssonar
verði sýnd í Borgarbíói og miðað
við þessa þróun má segja að
„vorið í íslenskri kvikmynda-
gerð“ hafi loksins náð til Akur-
eyrar. - ESE.
Nú er rétti tíminn til að
teppaleggja fyrir fermingarnar
Teppadeild
HAFNAHSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400