Dagur - 14.03.1984, Síða 5

Dagur - 14.03.1984, Síða 5
14. mars 1984 - DAGUR - 5 K ■ "Á,* Félagsvist verður í Freyjulundi föstudaginn 16. mars kl. 21.00. Þriggja kvölda keppni. Nefndin. Kýrnar verða tölvustýrðar Á síðustu árum hefur átt sér stað víða erlendis bylting í fóðrun búfjár með aðstoð tölvunnar. Sérstaklega hefur þróunin orðið ör í alifuglaræktuninni, en nú eru kúabændur óðum að taka þessa tækni í sína þjónustu. íslenskir bændur, sem fóru í bændaferð á Smithfield landbún- aðarsýninguna í London í vetur heimsóttu mjólkurframleiðanda nokkuð fyrir utan borgina. Pessi bóndi var með mjög fullkomna stjórnun á fóðrun mjólkurkúa, með aðstoð tölvu. Allar kýrnar voru með hálsbönd, á þeim var smátæki þar sem númer kýrinnar var skráð. Þegar kýrnar eru svangar fara þær að opi, en standa jafnframt á vog, þær stinga höfðinu inn í opið og með geisla er númer kýr- innar komið til tölvunnar. Þá hef- ur boðum um vigt kýrinnar verið komið til skila einnig og um leið er gerð úttekt á því hvað kýrin á að fá ' mikið af fóðurbæti. Skammturinn miðast við þunga og nythæð daginn áður, eða undanfarna daga. Þá er eftir- leikurinn auðveldur, nú skammt- ar tölvar kjarnfóðrið, sem getur verið t.d. þrjár mismunandi teg- undir. Það dettur niður í fóður- trogið ‘/4 af dagskammtinum. Þegar kýrin hefur lokið við að éta þá fær hún ekki næsta skammt fyrr en eftir 3-4 tíma. Bóndinn sem var heimsóttur taldi ekki ávinning af þessari tækni fyrr en fjöldi mjólkurkúa væri kominn nokkuð yfir 100. Jafnframt upplýsti hann að tölvu- Breyting á gjaldi á fóðurbæti Á fundi Framleiðsluráðs land- búnaðarins um miðjan febrúar var samþykkt að innheimta há- marksgjald af innfluttu kjarn- fóðri er nemi 2.000 kr. á tonn. Þessi ákvörðun Framleiðsluráðs verður að hljóta samþykki land- búnaðarráðherra og krefst reglu- gerðarbreytinga, áður en hún tekur gildi. Framleiðsluráð lagði til að breytingin ætti sér stað frá og með 1. mars. Fóðurbætisgjaldið hefur verið mismunandi hátt miðað við krónur, því það hefur verið 33,33% af cif. verði fóðurvöru. í upphafi þessa árs var gjaldið frá 1.200 kr. og upp í 2.800 kr. á tonn. Fóðurbætisgjaldið mun því lækka á dýrustu erlendu fóð- urblöndunum. STEFNULJÓS skal jafna gefa í tæka tíð. sérfræðingar hefðu mestar áhyggjur af eina veika hlekknum í kerfinu, sem væri kýrnar. í fjósinu á Læk í Hraungerðis- hreppi er tölvustýrð fóðrun og hefur gefist vel. Fleiri bændur hér á landi hafa hug á að koma upp slíku kerfi, enda er það nokkuð öruggt að íslenskir bændur koma til með að tileinka sér þessa tækni á næstu árum. Súkkulaði handa Silju 9. sýning föstud. 16. mars ki. 20.30 í Sjallanum. Aldurstakmark 18 ára. 10. sýning sunnud. 18.mars kl. 20.30 í Sjallanum. Munið leikhúsmatseðilinn. Miðasala í leikhúsinu alla daga frá kl. 16-19 sýningardaga í Siallanum kl. 19.15-20.30. Sími 24073 (leikhús), 22770 (Sjallinn). Leikfélag Akureyrar. Aðalfundur Iðnráðs Akureyrar veröur haldinn í fundasal Trésmiöafélags Akur- eyrar Ráöhústorgi 3, sunnudaginn 18. mars 1984 kl. 14.00. Iðnráð Akureyrar. Félag aldraðra Akureyri Aðalfundur félags aldraðra verður í Húsi aldraðra fimmtudaginn 22. mars og hefst kl. 2 e.h. Fundarefni: Skýrsla stjórnar, byggingamál, fram- tíðarstörf og kosningar. í þættinum önnur mál eru ábendingar og nýjar hugmyndir vel þegnar. Kaffiveitingar og skemmtiatriði. Stjórnin. Lögtaksúrskurður Hér meö úrskuröast lögtök fyrir vangreiddum söluskatti mánaöanna október, nóvember og desember 1983, sem á hefur verið lagöur á Akur- eyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu, svo og fyrir söluskattshækkunum. Ennfremur tekur úrskuröur þessi til þinggjaldahækkana á gjaldendur í um- dæminu, launaskatts 1983 og landflutningagjalds 1983. Svo og úrskuröast lögtök fyrir þungaskatti samkvæmt mæli af díselbifreiðum fyrir mánuöina október, nóvember, desember og janúar sl., þ.e. af bifreiðum meö umdæmismerki A. Loks tekur úrskurðurinn til dráttarvaxta og kostnaöar. Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úr- skurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 13. mars 1984. á skrifstofutækjum og skrifstofuhúsgögnum á Hótel KEA fimmtudaginn 15. mars frá kl. 13-20_________________ Sýnum m.a. IBM PC tölvu ársins 1983 tölvukerfi rafeindaritvélar reiknivélar skrifstofuhúsgögn Ijósritunarvélar FACIT prentaraborð FACIT tölvuborð SKRIFSTOFUVAL HF. SUNNUHLÍÐ ■ SÍMI 96-25004

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.