Dagur - 14.03.1984, Blaðsíða 5
14. mars 1984 - DAGUR - 5
K ■ "Á,*
Félagsvist
verður í Freyjulundi föstudaginn 16. mars kl.
21.00. Þriggja kvölda keppni. Nefndin.
Kýrnar verða tölvustýrðar
Á síðustu árum hefur átt sér stað
víða erlendis bylting í fóðrun
búfjár með aðstoð tölvunnar.
Sérstaklega hefur þróunin orðið
ör í alifuglaræktuninni, en nú eru
kúabændur óðum að taka þessa
tækni í sína þjónustu.
íslenskir bændur, sem fóru í
bændaferð á Smithfield landbún-
aðarsýninguna í London í vetur
heimsóttu mjólkurframleiðanda
nokkuð fyrir utan borgina. Pessi
bóndi var með mjög fullkomna
stjórnun á fóðrun mjólkurkúa,
með aðstoð tölvu.
Allar kýrnar voru með
hálsbönd, á þeim var smátæki þar
sem númer kýrinnar var skráð.
Þegar kýrnar eru svangar fara
þær að opi, en standa jafnframt
á vog, þær stinga höfðinu inn í
opið og með geisla er númer kýr-
innar komið til tölvunnar. Þá hef-
ur boðum um vigt kýrinnar verið
komið til skila einnig og um leið
er gerð úttekt á því hvað kýrin á
að fá ' mikið af fóðurbæti.
Skammturinn miðast við þunga
og nythæð daginn áður, eða
undanfarna daga. Þá er eftir-
leikurinn auðveldur, nú skammt-
ar tölvar kjarnfóðrið, sem getur
verið t.d. þrjár mismunandi teg-
undir. Það dettur niður í fóður-
trogið ‘/4 af dagskammtinum.
Þegar kýrin hefur lokið við að éta
þá fær hún ekki næsta skammt
fyrr en eftir 3-4 tíma.
Bóndinn sem var heimsóttur
taldi ekki ávinning af þessari
tækni fyrr en fjöldi mjólkurkúa
væri kominn nokkuð yfir 100.
Jafnframt upplýsti hann að tölvu-
Breyting á
gjaldi á
fóðurbæti
Á fundi Framleiðsluráðs land-
búnaðarins um miðjan febrúar
var samþykkt að innheimta há-
marksgjald af innfluttu kjarn-
fóðri er nemi 2.000 kr. á tonn.
Þessi ákvörðun Framleiðsluráðs
verður að hljóta samþykki land-
búnaðarráðherra og krefst reglu-
gerðarbreytinga, áður en hún
tekur gildi.
Framleiðsluráð lagði til að
breytingin ætti sér stað frá og
með 1. mars.
Fóðurbætisgjaldið hefur verið
mismunandi hátt miðað við
krónur, því það hefur verið
33,33% af cif. verði fóðurvöru. í
upphafi þessa árs var gjaldið frá
1.200 kr. og upp í 2.800 kr. á
tonn. Fóðurbætisgjaldið mun
því lækka á dýrustu erlendu fóð-
urblöndunum.
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
sérfræðingar hefðu mestar
áhyggjur af eina veika hlekknum
í kerfinu, sem væri kýrnar.
í fjósinu á Læk í Hraungerðis-
hreppi er tölvustýrð fóðrun og
hefur gefist vel. Fleiri bændur hér
á landi hafa hug á að koma upp
slíku kerfi, enda er það nokkuð
öruggt að íslenskir bændur koma
til með að tileinka sér þessa tækni
á næstu árum.
Súkkulaði
handa Silju
9. sýning föstud. 16. mars
ki. 20.30 í Sjallanum.
Aldurstakmark 18 ára.
10. sýning sunnud. 18.mars
kl. 20.30 í Sjallanum.
Munið leikhúsmatseðilinn.
Miðasala í leikhúsinu alla daga frá kl.
16-19 sýningardaga í Siallanum kl.
19.15-20.30.
Sími 24073 (leikhús), 22770 (Sjallinn).
Leikfélag Akureyrar.
Aðalfundur
Iðnráðs Akureyrar
veröur haldinn í fundasal Trésmiöafélags Akur-
eyrar Ráöhústorgi 3, sunnudaginn 18. mars 1984
kl. 14.00.
Iðnráð Akureyrar.
Félag aldraðra
Akureyri
Aðalfundur félags aldraðra verður í Húsi
aldraðra fimmtudaginn 22. mars og hefst
kl. 2 e.h.
Fundarefni: Skýrsla stjórnar, byggingamál, fram-
tíðarstörf og kosningar. í þættinum önnur mál eru
ábendingar og nýjar hugmyndir vel þegnar.
Kaffiveitingar og skemmtiatriði. Stjórnin.
Lögtaksúrskurður
Hér meö úrskuröast lögtök fyrir vangreiddum
söluskatti mánaöanna október, nóvember og
desember 1983, sem á hefur verið lagöur á Akur-
eyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu, svo og fyrir
söluskattshækkunum. Ennfremur tekur úrskuröur
þessi til þinggjaldahækkana á gjaldendur í um-
dæminu, launaskatts 1983 og landflutningagjalds
1983. Svo og úrskuröast lögtök fyrir þungaskatti
samkvæmt mæli af díselbifreiðum fyrir mánuöina
október, nóvember, desember og janúar sl., þ.e.
af bifreiðum meö umdæmismerki A. Loks tekur
úrskurðurinn til dráttarvaxta og kostnaöar.
Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úr-
skurðar þessa.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
13. mars 1984.
á skrifstofutækjum og skrifstofuhúsgögnum á Hótel KEA
fimmtudaginn 15. mars frá kl. 13-20_________________
Sýnum m.a. IBM PC tölvu ársins 1983
tölvukerfi
rafeindaritvélar
reiknivélar
skrifstofuhúsgögn
Ijósritunarvélar
FACIT prentaraborð
FACIT tölvuborð
SKRIFSTOFUVAL HF.
SUNNUHLÍÐ ■ SÍMI 96-25004