Dagur


Dagur - 14.03.1984, Qupperneq 9

Dagur - 14.03.1984, Qupperneq 9
14. mars 1984-DAGUR-9 Mark Duffield til KA Skoski leikmaðurinn Mark Duffield sem leikið hefur með Siglfirðingum undanfar- in ár hefur tiikynnt félaga- skipti yfir í KA. Mun hann koma til Akureyrar um næstu mánaðamót. KA fær þar mjög stcrkan miðvallarspilara, en Mark er mikill harðjaxl sem gefur aldrei þumlung eftir á vellinum. Fleiri lið vildu fá hann til sín, m.a. Framarar, en Mark hefur sem sagt .ákveðið að klæðast hinum gula búningi KA í sumar. Er ekki nokkur vafi á aö hann mun styrkja KA-liöið mikið. Rússarnir koma! Leikur Islands og sovésku heimsmeistaranna í handknatt- leik hefst í íþróttahöllinni á Akureyri kl. 19.30 á föstudags- kvöld. Eins og fram kom í Degi sl. mánudag er ekki annað vitað en að Alfreð Gíslason muni leika þennan leik, jafnvel þó það verði eini leikurinn af þremur sem Sov- étmennirnir leika hér á landi sem hann getur mætt í. Er ekki að efa að mörgum mun þykja fengur í því að sjá Alfreð á fjölum Hallar- innar að nýju. Um sigurmöguleika íslenska liðsins er best að hafa sem fæst orð. Heimsmeistarar Sovét- manna eru af flestum taldir bestu Konráð Jóhannsson. Konni hættur „Já það er rétt, ég er hættur keppni í kraftlyftingum og hef flutt mig úr húsnæði lyftinga- manna hér í bænum og æfi nú í íþróttahöllinni með öðrum þar,“ sagði Konráð Jóhanns- son er Dagur ræddi við hann. Konráð hefur vakið talsverða athygli fyrir skjótan árangur í kraftlyftingum en ekki er ýkja langt síðan hann hóf að æfa og keppa í þeirri íþrótt. Við spurð- um hann hvað hefði valdið því að hann hefur nú hætt keppni þótt hann ætli að æfa áfram. „Ég er ekki tilbúinn að gefa neitt út á það, það væri sennilega best að spyrja aðra um það,“ sagði hann. Urslitin í 3. deild handknattleiksmenn heims í dag og víst er að þar fara engir auk- visar. Einn leikmanna sovéska liðsins hefur leikið listir sínar hér á Akureyri, en það er fyrirliði liðsins, Belov, sem kom hingað með sovésku félagsliði árið 1982. Kl. 13 á föstudag verður tekin um það endanleg ákvörðun hvort af þessum leik verður, en það eina sem getur komið í veg fyrir það er að ekki gefi til flugs frá Reykjavík. En ef veðurguðirnir gefa grænt ljós mun forsala að- göngumiða hefjast í Sporthúsinu og Hlíðasporti kl. 14 á föstudag, og er ekki að efa að þar verður þröng á þingi því allir vilja sjá heimsins bestu handknattleiks- menn „að störfum" á Akureyri. Úrslitakeppnin í 3. deild karla hefst á föstudagskvöld í íþróttahöllinni á Akureyri með viðureign Þórs og Armanns. Reiknað er með að þessi leikur hefjist um kl. 21 en að honum loknum leika svo hin liðin Týr og Akranes. Á laugardag hefst keppnin kl. 15 með leik Akraness og Ár- manns og Týr og Þór leika um kl. 16.15. Keppnin hefst kl. 13.30 á sunnudag með leik Týs og Ár- manns en síðan leika Þór og Akranes. Hin úrslitaumferðin verður í Reykjavík eða að Varmá um aðra helgi. Úrslitakeppni botnliðanna í 1. deild hefst á Akureyri um aðra helgi og verður leikið á föstudag, laugardag og sunnudag. Þar leika Þróttur, KR, KA og Haukar um tvö sæti í 1. deild næsta keppnis- tímabil og standa KR og Þróttur langbest að vígi í þeirri keppni en liðin taka stigin úr leikjum vetrarins með sér í úrslitin. Engar æfingar Gunnar Níelsson baðvörður í íþróttahöllinni á Akureyri hafði samband við umsjónarmann íþróttasíðunnar. Kvaðst hann vilja koma því á framfæri að eng- ar æfingar yrðu í Höllinni á laug- ardag og sunnudag, og kvaðst hann harma það mjög. Mikil gróska hjá júdómönnum Síðastliðinn föstudag var haldið fyrsta svokallaða Akureyrar- meistaramót í júdó. Júdóráð Ak- ureyrar gekkst fyrir mótinu og kostaði öll verðlaun. Keppendur voru 31 og var þeim skipt í sex flokka. Mikil keppni var í flest- um flokkum enda öllum brögðum beitt. Glímurnar voru flestar ákaflega skemmtilegar á að horfa enda voru keppendur alls ófeimnir við að reyna að koma bragði á hvorn annan. Ekki skal gengið í grafgötur um að þessir ungu júdómenn munu ná langt ef þeir halda áfram á sömu braut, slík var framganga þeirra á mótinu. Vert er að geta þess hér að júdó hefur nú verið iðkað um árabil á Akureyri og gaman er frá því að segja að hróður íþróttarinnar hefur aldrei verið meiri (hér) ef litið er á tölu æfingafélaga. Röð efstu manna varð þessi: Kvennafiokkur: 1. Þóra Þórarinsdóttir 2. Svala Björnsdóttir 3. Ágústa Malmquist. Opinn flokkur: 1. Þorsteinn Hjaltason 2. Jón Óðinn Óðinsson 3. Arnar Eðvarðsson 4. Benedikt Ingólfsson. Þungavigt: 1. Árni Ólafsson 2. Trausti Harðarson 3. Karl Jónsson. Millivigt: 1. Baldur Stefánsson 2. Ólafur Herbertsson 3. Hjálmar Hauksson 4. Vernharður Þorleifsson. Léttvigt: 1. Tryggvi Heimisson 2. Jón Árnason 3. Júlíus Björnsson. Fluguvigt: 1. Kristján Ólafsson 2. Gunnlaugur Sigurjónsson 3. Kristófer Einarsson. Þ.H. 1-X-2 1-X-2 Einar Pálmi Árnason liefur nú tekið forustuna í keppninni. Hann skellti sér á 7 leiki rétta um síðustu helgi og hefur þvi fengið 12 rétta eftir 2 umferðir sem þýðir 50% árangur. Tryggvi Gíslason og l’álnii Matthíasson voru skanimt á eftir nieð 6 rétta hvor en lestina rak Eiríkur S. Eiríksson seni liafði 5 rétta og var að vonuni óhress. Tryggvi hefur samtals 10 leiki rétta en þcir Pálmi og Eiríkur eru með 9 hvor. En það er löng leið framundan hjá spekingunum. Tryggvi Gíslason. 10 Aston Villa-Nott.Forest Everton-lpswich Leicester-West Ham Man.Utd.-Arsenal Norwich-Luton Notts C.-Coventry Southampton-Liverpool Stoke-Birmingham Tottenham-WBA Watford-QPR Wolves-Sunderland Leeds-Grimsby Pálmi Matthíasson. 9 Aston Villa-Nott.Forest Everton-Ipswich Leicester-West Ham Man.Utd.-Arsenal Norwich-Luton Notts C,-Coventry Southampton-Liverpool Stoke-Birmingham Tottenham-WBA Watford-QPR Wolves-Sunderland Leeds-Grimsby Einar Pálmi Árnason. 12 Aston Villa-Nott.Forest Everton-Ipswich Leicester-West Ham Man.Utd.-Arsenal Norwich-Luton Notts C.-Coventry Southampton-Liverpool Stoke-Birmingham Tottenham-WBA Watford-QPR Wolves-Sunderland Leeds-Grimsby Eiríkur Eiríksson. 9 Aston Villa-Nott.Forest Everton-Ipswich Leicester-West Ham Man.Utd.-Arsenal Norwich-Luton Notts C.-Coventry Southampton-Liverpool Stoke-Birmingham Totlenham-WBA Watford-QPR Wolves-Sunderland Leeds-Grimsby 1-X-2 1-x-2

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.