Dagur - 26.03.1984, Page 6

Dagur - 26.03.1984, Page 6
6 - DAGUR - 26. mars 1984 íþróttamaður Akureyrar 1983: Nanna ■ ■ ■■ ■ kjorin Nanna Leifsdóttir úr KA var kjörin íþróttamaður Akureyrar 1983 og var kjöri hennar lýst á þingi Iþróttabandalags Ak- ureyrar nú um helgina. Nanna hlaut alls 81 stig af 100 mögu- legum en í öðru sæti varð kraftlyftinga- maðurinn Kári Elíson úr KA með 73 stig. Jónas Róbertsson, knattspyrnumaður úr Þór varð þriðji með 60 stig, Gylfi Gísla- son, lyftingamaður úr KA fjórði með 55 stig og Erlingur Kristjánsson, knatt- spyrnu- og handknattleiksmaður úr KA fimmti með 50 stig. Alls hlutu 12 manns atkvæði í kjörinu en það vakti athygli við verðlaunaafhendinguna að ekkert þeirra sem skipuðu fimm efstu sætin gat verið viðstatt. Nanna var að keppa á skíðum á Siglufirði, Kári keppti í skák í Reykja- vík, Jónas er erlendis, Gylfi er búsettur í Svíþjóð og Erlingur var að keppa með KA gegn Þrótti er verðlaunin voru afhent. - ESE. Góður árangur júdómanna Tveir ungir piltar frá Akureyri tóku á dögunum þátt í Unglingameistaramóti íslands í júdó, og stóðu þeir sig með mikilli prýði. Þetta voru þeir Arnar Harðarson og Benedikt Ingólfsson. Arnar keppti í -65 kg flokki og hafnaði í 2. sæti en Benedikt keppti í +70 kg flokki og hafnaði í 3. sæti. Góður árangur hjá piltunum. Þess má geta að Júdósamband íslands styrkti piltana til þátttöku í mótinu. Sam- bandið borgaði flugfarið fyrir þá fram og til baka, og er ljóst að forráðamenn Júdósambandsins hafa meiri skilning á vandamálum dreifbýlisíþróttamanna en önnur sérsambönd. Unglinga- meistaramót íslands Ungiingameistaramót íslands fer fram á Siglufirði dagana 29. mars til 1. apríl nk. Dagskrá mótsins er þessi: Fimmtudagur 29. mars: Mótssetning og fararstjórafundur. Föstudagur 30. mars: Stórsvig 13-14 ára. Svig 15-16 ára. Ganga allir flokkar. Laugardagur 31. mars: Stórsvig 15-16 ára. Svig 13-14 ára. Stökk allir flokkar. Sunnudagur 1. aprfl: Flokkasvig. Boðganga. Mótsslit og verðlaunaafhending. Gert er ráð fyrir um 200 keppendum á mótið. Þátttökutilkynningar þurfa að berast á sérstökum eyðublöðum sem send hafa verið út eigi síðar en föstudag- inn 23. mars nk. til mótsstjórnar. Verndari mótsins er Sparisjóður Siglu- fjarðar sem gefur m.a. öll verðlaun móts- ins en alls er keppt í 26 greinum á þessu móti. SKANDALL! - Enn verða Þórsarar fyrir barðinu á dómurum - Þetta voru slakir leikir, sér- staklega sá fyrri sem var hreint hörmulegur, sagði Gylfi Krist- jánson, þjálfari Þórs í körfu- bolta en lið hans keppti tvo leiki gegn Skallagrími í Borg- arnesi um helgin. Niðjar þeirra Skallagríms og Egils Skallagrímssonar sem fyrrum bjuggu á Borg á Mýrum hafa verið í mikilli sókn í körf- unni að undanförnu og á föstu- dagskvöld uppskáru þeir sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur. Tóku Þórsara í karphúsið og sigr- uðu örugglega 96:77 eftir að stað- an í hálfleik hafði verið 40:39 Skallagrími í vil. Leikurinn var lengst af í járn- um og Þórsarar með forystuna í upphafi. Um miðjan síðari hálf- leik gáfust þeir svo upp en Borg- nesingarnir gengu á lagið og sigr- uðu örugglega. Stigin fyrir Þór skoruðu: Eirík- ur 23, Jón H. 15, Guðmundur 15, Björn 13, Konráð 11. Seinni leikurinn var svo skömminni skárri og nú voru Þórsarar yfir allan leikinn. Sigr- uðu 79:70 (41:34). Stigin fyrir Þór: Björn 24, Ei- ríkur 17, Jón 14, Jóhann Sig. 11, Guðmundur 7, Konráð 4, Héð- inn 2. Reyndar leit lengi vel út fyrir að ekkert yrði af leiknum því aðeins annar dómarinn mætti. Hinn dómarinn hringdi frá Bif- röst hálftíma fyrir leikinn og sagðist ekki nenna þessu. Eftir hringingar út og suður varð það úr að maður utan úr bæ, réttinda- laus var fenginn til að flauta en að sögn Gylfa Kristjánssonar notaði hann flautuna í hófi. - Þetta gengur ekki lengur með þessi dómaramál og nú er svo komið að við þorum hrein- lega ekki að fara til Selfoss í frestaða leikinn gegn UMFL af ótta við enn einn dómaraskandal- inn. Þessi leikur þýðir auk þess ekkert annað fyrir okkur en ómældan kostnað og því líklegast að við förum að dæmi Framara og fleiri liða og mætum ekki, sagði Gylfi Kristjánsson. - ESE. Páll jafnaði met Alfreðs Gíslasonar - KA náði jöfnu gegn KR - en Gunnar ólöglegur með KR KA-menn eru á réttri leið í botnbaráttunni í handknatt- leiknum. Eftir að hafa tapað illilega fyrir Haukum á föstu- dagskvöld, sýndu þeir í sér tennurnar gegn Þrótti en töp- uðu naumlega en náðu svö jöfnu gegn KR í gærdag. KA er þó langt frá því að vera vel á vegi statt í keppninni en ýms- ar biikur eru á lofti og þrjár umferðir eftir. Aðalmál botnbaráttunnar um helgina er mál Gunnars Gísla- sonar en það vakti mikla athygli að KR-ingar tefldu honum ekki fram í keppninni. Það gengur nú fjöllum hærra að Gunnar verði dæmdur ólöglegur með KR og ef það gengur eftir þá hafa KR-ing- ar tapað fimm stigum af þeim 14 sem þeir höfðu áður en botnbar- áttan hófst. Þróttur - KR 18:15. Jens Jensson 8 mörk fyrir Þrótt og Guðmundur Albertsson 7 mörk fyrir KR, voru markahæst- ir. Haukar - KA 28:23. Þetta var dapur leikur hjá KA. Mörkin skoruðu: Þorleifur 5, Erlingur, Jón og Logi 4 mörk hver, Jóhannes 3, Sæmundur 2 og Sigurður 2. Hörður Sigmars- son varð markahæstur fyrir Hauka með 11 mörk. KA - Þróttur 20:22. KA hélt lengi vel í við Þróttarana en á lokamínútunum reyndust Pálarnir og co. sterkari og sigr- uðu. Mörk KA skoruðu: Þor- leifur 4, Logi, Jóhannes, Sigurð- ur 3 hver, Sæmundur, Erlingur og Jón 2 hver og Ragnar 1. KR - Haukar 25:18. Mörkin: Jakob 7 fyrir KR og Ingimar 5 mörk fyrir Hauka. Þróttur - Haukar 34:26. í þessum leik var eina spennan fólgin í því hvort Páli Ólafssyni úr Þrótti tækist að slá markamet Alfreðs Gíslasonar, 21 mark í einum og sama leiknum. Það tókst ekki en Páll jafnaði metið og nagar sig líklega í handabökin nú fyrir að hafa misnotað þrjú vítaköst í röð undir lok leiksins. Mörkin: Páll 21 fyrir Þrótt og Sig- urgeir og Sigurjón 4 mörk hvor fyrir Hauka. KA - KR 17:17. í þessum leik komust KR-ingar vel yfir í byrjun en KA-menn létu ekki deigan síga og jöfnuðu. Komust síðan yfir en undir lokin tókst KR að jafna á ný. Mörkin: Þorleifur 5, Sæmundur 3, Jón, Pétur, Sigurður og Jóhannes 2 mörk hver og Logi 1. Jakob skor- aði 7 mörk fyrir KR. Eftir þessa fyrstu umferð eru Þróttarar efstir með 20 stig, KR er með 12, Haukar eru með 9 og KA.með 5 stig, en þessi röð mið- ast við að Gunnar verði dæmdur ólöglegur með KR. - ESE. 26. mars 1984 - DAGUR - 7 eiga að útHoka okkur alla!“ - Rætt við Harald Ólafsson, lyftingamann um lágmörk íslensku Olympiunefndarinnar - Ég fæ ekki annað séð en að með þessum stórfurðulegu lág- mörkum sé Olympiunefnd Islands að útiloka íslenska lyft- ingamenn frá þátttöku á Olympiuleikunum. Það er ekki gott að segja hvaða hvatir liggja þarna að baki en þær eru annar- legar í meira lagi. Þetta sagði Haraldur Ólafs- sem komu eins og skrattinn úr lensku Olympiunefndarinnar á son, hinn snjalli lyftingamaður sauðarleggnum á dögunum cru óvárt? úr Þór í samtali við Dag er hann liins vegar 315 kg í 75 kg flokki, _ petta kom eins og þruma var inntur álits á þeim lág- 360 kg í 90 kg flokki og 375 kg í úr heiðskíru lofti. Ég hélt að al- mörkum sem íslenska Olympiu- 100 kg flokki. þjóðalágmarkið dygði og það ei nefndin hefur sett. Þessi lág- - Þetta eru fáránleg þaQ sem ég hef fyrst og fremst mörk hafa vakið mikia furðu lágmörk. Ég ýrði að bæta eigið stefnt að p„ er nn kninn aA æfa manna og mikil reiði er nú með- íslandsmet um 17.5 kg til aö mánutm^ólyniS al lyftingamanna og frjáls- eiga möguleika og Gylfi og ana / huga> fimm til sex daga f íþróttamanna sem einnig hafa Garðar verða að setja Noröur- viku og oft tvisvar á dag Þegar fundið smjörþefinn af lág- landamet til þess að ná þessum ég æfði hvað mest þá fóru fjórir mörkum nefndarinnar. þó ekki lágmörkum, sagði Haraldur til fimm tfmar æfin.,nr a de(>i sé hann eins rammur og þcfur- Olafsson. hverjum. Ég hef fórnað vinnu mn af lyftingalágmörkunum. aUan þennan tíma sú ákvörö. Þrír Akureyringar, Haraldur Að sögn Haralds þá er hann Un var tekin í samráði við fjöl- Olufsson. Gylfi Gíslason og einn stigahæsti íslenski lyftinga- skyldu mína. Það er ekki síst Garðai Gíslason hafa hingað til maðurinn fyrr og síðar með fjölskyldan sem hefur lagt mik- verið taldir eiga möguleika á að þeim árangri sent hann hefur ið á sig vegna æfinga minna og komast á Olympiuleikana og náð nú og 315 kg myndu örugg- mér finnst það því gremjulegt ef keppa þar í lyftingum. Alþjóð- iega nægja honum til að bæta það á að útiloka okkur á óheið- legu Olympiulágmörkin í flokk- stigamet'ð verulega. arlegan hátt. Það yrði auðvitað um þeirra eru: Haraldur í 7? kg - Þessi þyngd. 315 kg hún er visst áfall fyrir mig ef ég kæmist i ii' ~-T-,, , 1ekj<' mc'r' en svo að ég eygi ekki á Olympiuleikana en áfall- tlokki - j_0 kg og Garoat i Ifll) möguleika á að Ivfta henni á ið yrði ckki minna fvrir að- kg flokki - .•>.>() kg. Haraldur og góðum degi en lágmörkin scm standendur mír.a sem hafa lagt Garðar hafa báðir náð Garðar og Gylfi þurfa að kljást allt í sölurnar til þess að gcra lágmörkunum og Gylti er við eru bæði ósanngjörn og þennan draum að veruleika, skammt. fra því. Lágmörk ís- heimskuleg. sagði Haraldur Ólafsson. lensku Olympiunefndarinnar - Kom þér þessi afstaöa ís- - ESE fór upp! árangur Þórsliðsins á Varmá Þór - Glæsilegur Þórsarar komu svo sannarlega á óvart í úrslitum þriðjudeild- arkeppninnar í handknattleik á Yarmá um helgina. Þórsarar unnu alla þrjá leiki sína og komast því ásamt Ármenning- um upp í aðra deild. Á föstudag léku Þórsarar gegn Tý og sigruðu örugglega 23:18. Ármann vann ÍA 33:21. Á laug- ardag náðu síðan Þórsarar loks langþráðum sigri á ÍA, 21:19 en Ármann vann Tý með 25 mörkum gegn 22. Ármann og Þór voru því búnir að endur- heimta 2. deildarsætin en Þórsar- ar létu sér það ekki nægja og í gær unnu þeir öruggan sigur á Ármenningum 30:23. Ármann því sigurvegari í 3. deild Þór í öðru sæti, Týr í þriðja og ÍA í fjórða sæti. Þetta þýðir að öllum líkindum að bæði KA og Þór munu leika í 2. deild næsta keppnistímabil, en úrslitin á Varmá hljóta að verða til þess að Þórsarar hætti við hugmyndir um að leggja handknattleikinn á hill- una. Ef KA fellur þá er fyrirsjá- anlegt að ferðakostnaður Akur- eyrarliðanna lækkar mikið og vel er hugsanlegt að liðin gætu leikið þrjá leiki í hverri suðurferð og bætt þannig fjárhagsstöðuna verulega. - ESE. íslandsmótið í vaxtarrækt: Tvö gulf til Akureyrar Tvö gull, fjögur silfur og eitt brons. Þetta er uppskera Ak- ureyringanna sem tóku þátt í íslandsmótinu í vaxtarrækt á Broadway nú um helgina. Hörkuspennandi keppni var í öllum flokkum á mótinu og að- eins einn maður var öruggur með sigur. Það var kraftlyftinga- og aflraunamaðurinn Jón Páll Sig- marsson sem vann þyngsta flokk- inn auðveldlega og Jón Páll var síðan kjörinn lslandsmeistari ásamt Hrafnhildi Valbjörnsdótt- ur. Úrslit urðu annars sem hér segir: Konur -52 kg. 1. Rósa Ólafsdóttir R., 2. íris Erlingsdóttir R. Karlar -70 kg. 1. Gísli Rafnssón Ak., 2. Sævar Símonarson Ak., 3. Gestur Helgason R., 4. Hjörtur Guð- mundsson Ak. Karlar -80 kg. 1. Sigurður Gestsson Ak., 2. Júl- íus Á. Guðmundsson R., 3. Henry McGibbon Keflavíkur- flugvelli. Sigurður Gestsson. Konur +52 kg. 1. Hrafnhildur Valbjörnsdóttir R., 2. Aldís Arnardóttir Ak., 3. Elín Viðarsdóttir R. Karlar -90 kg. 1. Magnús Óskarsson R., 2. Kári Ellertsson Ak., 3. Sigmar Knúts- son Ak. Karlar +90 kg. 1. Jón Páll Sigmarsson R., 2. Sig- urður Pálsson Ak. Mesta keppnin á mótinu var í þyngri kvennaflokknum en þar töldu áhorfendur að Aldís Arn- ardóttir ætti að hafa betur. Svo fór þó að lokum að Hrafnhildur sigraði og má vera að hún hafi notið þess að vera tvöfaldur ís- landsmeistari. Sigurður Gestsson vann sinn þriðja titil á jafnmörg- um íslandsmótum og var hann talinn sá keppandi sem komst næst Jóni Páli að getu. - ESE. Guðrún sigraði Nönnu aftur Hin unga og efnilega skíða- kona, Guðrún H. Kristjáns- dóttir frá Akureyri gerði sér lítið fyrir á bikarmóti í svigi á Siglufírði í gær og sigraði Nönnu Leifsdóttur, nýbakað- an íþróttamann ársins á Ak- ureyri. Þetta var góð helgi hjá Guð- rúnu því á laugardag vann hún bikarmót stúlkna 15-16 ára í svigi á Akureyri og á hún nú góða möguleika á að hreppa meistara- titilinn í bæði stúlkna- og kvenna- flokki en þar eru þær Nanna nú efstar c ? jafnar. Önnur úrslit urðu þessi: Daníel Hilmarsson frá Dalvík sigraði í sviginu í karlaflokki á mótinu á Siglufirði en hann varð jafnframt í þriðja sæti í stórsvig- inu. Þar sigraði Guðmundur Jó- hannesson frá ísafirði og Atli Einarsson frá ísafirði varð annar. Nanna sigraði í stórsviginu á laugardag. Anna Malmquist Ak. varð önnur og Tinna Trausta- dóttir Ak. varð þriðja. 15-16 ára flokkur: Guðrún H. Kristjánsdóttir sigr- Guðrún H. Krístjánsdóttir. aði sem fyrr segir í stórsviginu á þessu móti í Hlíðarfjalli. Snædís Úlriksdóttir varð önnur og Bryndís Viggósdóttir varð þriðja. I piltaflokknum sigraði Björn Brynjar Gíslason Ak., 2. Brynjar Bragason Ak., 3. Sigurður Bjarnason H. Þá var jafnframt keppt í punktamóti í svigi, nokkurs kon- ar aukamóti um helgina og þar sigraði Kristján Valdimarsson R., Brynjar Bragason Ak. varð annar. Snædís Úlriksdóttir R. sigraði í stúlknaflokki, Bryndís Ýr Viggósdóttir R. varð önnur og Erla Bjömsdóttir Ak. þriðja. Ganga og stökk: Einar Ólafsson í. sigraði í göngu- móti helgarinnar og Guðrún Pálsdóttir S. í kvennaflokki. Þá sigraði Þorvaldur Ólafsson Ó. í stökki, stökk 52.5 m. - ESE.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.