Dagur - 26.03.1984, Side 7
6 - DAGUR - 26. mars 1984
íþróttamaður
Akureyrar 1983:
Nanna
■ ■ ■■ ■
kjorin
Nanna Leifsdóttir úr KA var kjörin
íþróttamaður Akureyrar 1983 og var kjöri
hennar lýst á þingi Iþróttabandalags Ak-
ureyrar nú um helgina.
Nanna hlaut alls 81 stig af 100 mögu-
legum en í öðru sæti varð kraftlyftinga-
maðurinn Kári Elíson úr KA með 73 stig.
Jónas Róbertsson, knattspyrnumaður úr
Þór varð þriðji með 60 stig, Gylfi Gísla-
son, lyftingamaður úr KA fjórði með 55
stig og Erlingur Kristjánsson, knatt-
spyrnu- og handknattleiksmaður úr KA
fimmti með 50 stig. Alls hlutu 12 manns
atkvæði í kjörinu en það vakti athygli við
verðlaunaafhendinguna að ekkert þeirra
sem skipuðu fimm efstu sætin gat verið
viðstatt. Nanna var að keppa á skíðum
á Siglufirði, Kári keppti í skák í Reykja-
vík, Jónas er erlendis, Gylfi er búsettur í
Svíþjóð og Erlingur var að keppa með
KA gegn Þrótti er verðlaunin voru
afhent. - ESE.
Góður árangur
júdómanna
Tveir ungir piltar frá Akureyri tóku á
dögunum þátt í Unglingameistaramóti
íslands í júdó, og stóðu þeir sig með
mikilli prýði.
Þetta voru þeir Arnar Harðarson og
Benedikt Ingólfsson. Arnar keppti í -65
kg flokki og hafnaði í 2. sæti en Benedikt
keppti í +70 kg flokki og hafnaði í 3. sæti.
Góður árangur hjá piltunum.
Þess má geta að Júdósamband íslands
styrkti piltana til þátttöku í mótinu. Sam-
bandið borgaði flugfarið fyrir þá fram og
til baka, og er ljóst að forráðamenn
Júdósambandsins hafa meiri skilning á
vandamálum dreifbýlisíþróttamanna en
önnur sérsambönd.
Unglinga-
meistaramót
íslands
Ungiingameistaramót íslands fer fram á
Siglufirði dagana 29. mars til 1. apríl nk.
Dagskrá mótsins er þessi:
Fimmtudagur 29. mars:
Mótssetning og fararstjórafundur.
Föstudagur 30. mars:
Stórsvig 13-14 ára.
Svig 15-16 ára.
Ganga allir flokkar.
Laugardagur 31. mars:
Stórsvig 15-16 ára.
Svig 13-14 ára.
Stökk allir flokkar.
Sunnudagur 1. aprfl:
Flokkasvig.
Boðganga.
Mótsslit og verðlaunaafhending.
Gert er ráð fyrir um 200 keppendum á
mótið. Þátttökutilkynningar þurfa að
berast á sérstökum eyðublöðum sem
send hafa verið út eigi síðar en föstudag-
inn 23. mars nk. til mótsstjórnar.
Verndari mótsins er Sparisjóður Siglu-
fjarðar sem gefur m.a. öll verðlaun móts-
ins en alls er keppt í 26 greinum á þessu
móti.
SKANDALL!
- Enn verða Þórsarar fyrir barðinu á dómurum
- Þetta voru slakir leikir, sér-
staklega sá fyrri sem var hreint
hörmulegur, sagði Gylfi Krist-
jánson, þjálfari Þórs í körfu-
bolta en lið hans keppti tvo
leiki gegn Skallagrími í Borg-
arnesi um helgin.
Niðjar þeirra Skallagríms og
Egils Skallagrímssonar sem
fyrrum bjuggu á Borg á Mýrum
hafa verið í mikilli sókn í körf-
unni að undanförnu og á föstu-
dagskvöld uppskáru þeir sinn
fyrsta sigur í deildinni í vetur.
Tóku Þórsara í karphúsið og sigr-
uðu örugglega 96:77 eftir að stað-
an í hálfleik hafði verið 40:39
Skallagrími í vil.
Leikurinn var lengst af í járn-
um og Þórsarar með forystuna í
upphafi. Um miðjan síðari hálf-
leik gáfust þeir svo upp en Borg-
nesingarnir gengu á lagið og sigr-
uðu örugglega.
Stigin fyrir Þór skoruðu: Eirík-
ur 23, Jón H. 15, Guðmundur 15,
Björn 13, Konráð 11.
Seinni leikurinn var svo
skömminni skárri og nú voru
Þórsarar yfir allan leikinn. Sigr-
uðu 79:70 (41:34).
Stigin fyrir Þór: Björn 24, Ei-
ríkur 17, Jón 14, Jóhann Sig. 11,
Guðmundur 7, Konráð 4, Héð-
inn 2.
Reyndar leit lengi vel út fyrir
að ekkert yrði af leiknum því
aðeins annar dómarinn mætti.
Hinn dómarinn hringdi frá Bif-
röst hálftíma fyrir leikinn og
sagðist ekki nenna þessu. Eftir
hringingar út og suður varð það
úr að maður utan úr bæ, réttinda-
laus var fenginn til að flauta en
að sögn Gylfa Kristjánssonar
notaði hann flautuna í hófi.
- Þetta gengur ekki lengur
með þessi dómaramál og nú er
svo komið að við þorum hrein-
lega ekki að fara til Selfoss í
frestaða leikinn gegn UMFL af
ótta við enn einn dómaraskandal-
inn. Þessi leikur þýðir auk þess
ekkert annað fyrir okkur en
ómældan kostnað og því líklegast
að við förum að dæmi Framara
og fleiri liða og mætum ekki,
sagði Gylfi Kristjánsson. - ESE.
Páll jafnaði met
Alfreðs Gíslasonar
- KA náði jöfnu gegn KR
- en Gunnar ólöglegur með KR
KA-menn eru á réttri leið í
botnbaráttunni í handknatt-
leiknum. Eftir að hafa tapað
illilega fyrir Haukum á föstu-
dagskvöld, sýndu þeir í sér
tennurnar gegn Þrótti en töp-
uðu naumlega en náðu svö
jöfnu gegn KR í gærdag. KA
er þó langt frá því að vera vel
á vegi statt í keppninni en ýms-
ar biikur eru á lofti og þrjár
umferðir eftir.
Aðalmál botnbaráttunnar um
helgina er mál Gunnars Gísla-
sonar en það vakti mikla athygli
að KR-ingar tefldu honum ekki
fram í keppninni. Það gengur nú
fjöllum hærra að Gunnar verði
dæmdur ólöglegur með KR og ef
það gengur eftir þá hafa KR-ing-
ar tapað fimm stigum af þeim 14
sem þeir höfðu áður en botnbar-
áttan hófst.
Þróttur - KR 18:15.
Jens Jensson 8 mörk fyrir Þrótt
og Guðmundur Albertsson 7
mörk fyrir KR, voru markahæst-
ir.
Haukar - KA 28:23.
Þetta var dapur leikur hjá KA.
Mörkin skoruðu: Þorleifur 5,
Erlingur, Jón og Logi 4 mörk
hver, Jóhannes 3, Sæmundur 2
og Sigurður 2. Hörður Sigmars-
son varð markahæstur fyrir
Hauka með 11 mörk.
KA - Þróttur 20:22.
KA hélt lengi vel í við Þróttarana
en á lokamínútunum reyndust
Pálarnir og co. sterkari og sigr-
uðu. Mörk KA skoruðu: Þor-
leifur 4, Logi, Jóhannes, Sigurð-
ur 3 hver, Sæmundur, Erlingur
og Jón 2 hver og Ragnar 1.
KR - Haukar 25:18.
Mörkin: Jakob 7 fyrir KR og
Ingimar 5 mörk fyrir Hauka.
Þróttur - Haukar 34:26.
í þessum leik var eina spennan
fólgin í því hvort Páli Ólafssyni
úr Þrótti tækist að slá markamet
Alfreðs Gíslasonar, 21 mark í
einum og sama leiknum. Það
tókst ekki en Páll jafnaði metið
og nagar sig líklega í handabökin
nú fyrir að hafa misnotað þrjú
vítaköst í röð undir lok leiksins.
Mörkin: Páll 21 fyrir Þrótt og Sig-
urgeir og Sigurjón 4 mörk hvor
fyrir Hauka.
KA - KR 17:17.
í þessum leik komust KR-ingar
vel yfir í byrjun en KA-menn létu
ekki deigan síga og jöfnuðu.
Komust síðan yfir en undir lokin
tókst KR að jafna á ný. Mörkin:
Þorleifur 5, Sæmundur 3, Jón,
Pétur, Sigurður og Jóhannes 2
mörk hver og Logi 1. Jakob skor-
aði 7 mörk fyrir KR.
Eftir þessa fyrstu umferð eru
Þróttarar efstir með 20 stig, KR
er með 12, Haukar eru með 9 og
KA.með 5 stig, en þessi röð mið-
ast við að Gunnar verði dæmdur
ólöglegur með KR. - ESE.
26. mars 1984 - DAGUR - 7
eiga að útHoka
okkur alla!“
- Rætt við Harald Ólafsson, lyftingamann
um lágmörk íslensku Olympiunefndarinnar
- Ég fæ ekki annað séð en að með þessum stórfurðulegu lág-
mörkum sé Olympiunefnd Islands að útiloka íslenska lyft-
ingamenn frá þátttöku á Olympiuleikunum. Það er ekki gott
að segja hvaða hvatir liggja þarna að baki en þær eru annar-
legar í meira lagi.
Þetta sagði Haraldur Ólafs- sem komu eins og skrattinn úr lensku Olympiunefndarinnar á
son, hinn snjalli lyftingamaður sauðarleggnum á dögunum cru óvárt?
úr Þór í samtali við Dag er hann liins vegar 315 kg í 75 kg flokki, _ petta kom eins og þruma
var inntur álits á þeim lág- 360 kg í 90 kg flokki og 375 kg í úr heiðskíru lofti. Ég hélt að al-
mörkum sem íslenska Olympiu- 100 kg flokki. þjóðalágmarkið dygði og það ei
nefndin hefur sett. Þessi lág- - Þetta eru fáránleg þaQ sem ég hef fyrst og fremst
mörk hafa vakið mikia furðu lágmörk. Ég ýrði að bæta eigið stefnt að p„ er nn kninn aA æfa
manna og mikil reiði er nú með- íslandsmet um 17.5 kg til aö mánutm^ólyniS
al lyftingamanna og frjáls- eiga möguleika og Gylfi og ana / huga> fimm til sex daga f
íþróttamanna sem einnig hafa Garðar verða að setja Noröur- viku og oft tvisvar á dag Þegar
fundið smjörþefinn af lág- landamet til þess að ná þessum ég æfði hvað mest þá fóru fjórir
mörkum nefndarinnar. þó ekki lágmörkum, sagði Haraldur til fimm tfmar æfin.,nr a de(>i
sé hann eins rammur og þcfur- Olafsson. hverjum. Ég hef fórnað vinnu
mn af lyftingalágmörkunum. aUan þennan tíma sú ákvörö.
Þrír Akureyringar, Haraldur Að sögn Haralds þá er hann Un var tekin í samráði við fjöl-
Olufsson. Gylfi Gíslason og einn stigahæsti íslenski lyftinga- skyldu mína. Það er ekki síst
Garðai Gíslason hafa hingað til maðurinn fyrr og síðar með fjölskyldan sem hefur lagt mik-
verið taldir eiga möguleika á að þeim árangri sent hann hefur ið á sig vegna æfinga minna og
komast á Olympiuleikana og náð nú og 315 kg myndu örugg- mér finnst það því gremjulegt ef
keppa þar í lyftingum. Alþjóð- iega nægja honum til að bæta það á að útiloka okkur á óheið-
legu Olympiulágmörkin í flokk- stigamet'ð verulega. arlegan hátt. Það yrði auðvitað
um þeirra eru: Haraldur í 7? kg - Þessi þyngd. 315 kg hún er visst áfall fyrir mig ef ég kæmist
i ii' ~-T-,, , 1ekj<' mc'r' en svo að ég eygi ekki á Olympiuleikana en áfall-
tlokki - j_0 kg og Garoat i Ifll) möguleika á að Ivfta henni á ið yrði ckki minna fvrir að-
kg flokki - .•>.>() kg. Haraldur og góðum degi en lágmörkin scm standendur mír.a sem hafa lagt
Garðar hafa báðir náð Garðar og Gylfi þurfa að kljást allt í sölurnar til þess að gcra
lágmörkunum og Gylti er við eru bæði ósanngjörn og þennan draum að veruleika,
skammt. fra því. Lágmörk ís- heimskuleg. sagði Haraldur Ólafsson.
lensku Olympiunefndarinnar - Kom þér þessi afstaöa ís- - ESE
fór upp!
árangur Þórsliðsins á Varmá
Þór
- Glæsilegur
Þórsarar komu svo sannarlega
á óvart í úrslitum þriðjudeild-
arkeppninnar í handknattleik
á Yarmá um helgina. Þórsarar
unnu alla þrjá leiki sína og
komast því ásamt Ármenning-
um upp í aðra deild.
Á föstudag léku Þórsarar gegn
Tý og sigruðu örugglega 23:18.
Ármann vann ÍA 33:21. Á laug-
ardag náðu síðan Þórsarar loks
langþráðum sigri á ÍA, 21:19 en
Ármann vann Tý með 25
mörkum gegn 22. Ármann og
Þór voru því búnir að endur-
heimta 2. deildarsætin en Þórsar-
ar létu sér það ekki nægja og í
gær unnu þeir öruggan sigur á
Ármenningum 30:23. Ármann
því sigurvegari í 3. deild Þór í
öðru sæti, Týr í þriðja og ÍA í
fjórða sæti. Þetta þýðir að öllum
líkindum að bæði KA og Þór
munu leika í 2. deild næsta
keppnistímabil, en úrslitin á
Varmá hljóta að verða til þess að
Þórsarar hætti við hugmyndir um
að leggja handknattleikinn á hill-
una. Ef KA fellur þá er fyrirsjá-
anlegt að ferðakostnaður Akur-
eyrarliðanna lækkar mikið og vel
er hugsanlegt að liðin gætu leikið
þrjá leiki í hverri suðurferð og
bætt þannig fjárhagsstöðuna
verulega. - ESE.
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Tvö gulf til
Akureyrar
Tvö gull, fjögur silfur og eitt
brons. Þetta er uppskera Ak-
ureyringanna sem tóku þátt í
íslandsmótinu í vaxtarrækt á
Broadway nú um helgina.
Hörkuspennandi keppni var í
öllum flokkum á mótinu og að-
eins einn maður var öruggur með
sigur. Það var kraftlyftinga- og
aflraunamaðurinn Jón Páll Sig-
marsson sem vann þyngsta flokk-
inn auðveldlega og Jón Páll var
síðan kjörinn lslandsmeistari
ásamt Hrafnhildi Valbjörnsdótt-
ur.
Úrslit urðu annars sem hér
segir:
Konur -52 kg.
1. Rósa Ólafsdóttir R., 2. íris
Erlingsdóttir R.
Karlar -70 kg.
1. Gísli Rafnssón Ak., 2. Sævar
Símonarson Ak., 3. Gestur
Helgason R., 4. Hjörtur Guð-
mundsson Ak.
Karlar -80 kg.
1. Sigurður Gestsson Ak., 2. Júl-
íus Á. Guðmundsson R., 3.
Henry McGibbon Keflavíkur-
flugvelli.
Sigurður Gestsson.
Konur +52 kg.
1. Hrafnhildur Valbjörnsdóttir
R., 2. Aldís Arnardóttir Ak., 3.
Elín Viðarsdóttir R.
Karlar -90 kg.
1. Magnús Óskarsson R., 2. Kári
Ellertsson Ak., 3. Sigmar Knúts-
son Ak.
Karlar +90 kg.
1. Jón Páll Sigmarsson R., 2. Sig-
urður Pálsson Ak.
Mesta keppnin á mótinu var í
þyngri kvennaflokknum en þar
töldu áhorfendur að Aldís Arn-
ardóttir ætti að hafa betur. Svo
fór þó að lokum að Hrafnhildur
sigraði og má vera að hún hafi
notið þess að vera tvöfaldur ís-
landsmeistari. Sigurður Gestsson
vann sinn þriðja titil á jafnmörg-
um íslandsmótum og var hann
talinn sá keppandi sem komst
næst Jóni Páli að getu. - ESE.
Guðrún sigraði
Nönnu aftur
Hin unga og efnilega skíða-
kona, Guðrún H. Kristjáns-
dóttir frá Akureyri gerði sér
lítið fyrir á bikarmóti í svigi á
Siglufírði í gær og sigraði
Nönnu Leifsdóttur, nýbakað-
an íþróttamann ársins á Ak-
ureyri.
Þetta var góð helgi hjá Guð-
rúnu því á laugardag vann hún
bikarmót stúlkna 15-16 ára í svigi
á Akureyri og á hún nú góða
möguleika á að hreppa meistara-
titilinn í bæði stúlkna- og kvenna-
flokki en þar eru þær Nanna nú
efstar c ? jafnar.
Önnur úrslit urðu þessi:
Daníel Hilmarsson frá Dalvík
sigraði í sviginu í karlaflokki á
mótinu á Siglufirði en hann varð
jafnframt í þriðja sæti í stórsvig-
inu. Þar sigraði Guðmundur Jó-
hannesson frá ísafirði og Atli
Einarsson frá ísafirði varð annar.
Nanna sigraði í stórsviginu á
laugardag. Anna Malmquist Ak.
varð önnur og Tinna Trausta-
dóttir Ak. varð þriðja.
15-16 ára flokkur:
Guðrún H. Kristjánsdóttir sigr-
Guðrún H. Krístjánsdóttir.
aði sem fyrr segir í stórsviginu á
þessu móti í Hlíðarfjalli. Snædís
Úlriksdóttir varð önnur og
Bryndís Viggósdóttir varð þriðja.
I piltaflokknum sigraði Björn
Brynjar Gíslason Ak., 2. Brynjar
Bragason Ak., 3. Sigurður
Bjarnason H.
Þá var jafnframt keppt í
punktamóti í svigi, nokkurs kon-
ar aukamóti um helgina og þar
sigraði Kristján Valdimarsson
R., Brynjar Bragason Ak. varð
annar. Snædís Úlriksdóttir R.
sigraði í stúlknaflokki, Bryndís
Ýr Viggósdóttir R. varð önnur og
Erla Bjömsdóttir Ak. þriðja.
Ganga og stökk:
Einar Ólafsson í. sigraði í göngu-
móti helgarinnar og Guðrún
Pálsdóttir S. í kvennaflokki. Þá
sigraði Þorvaldur Ólafsson Ó. í
stökki, stökk 52.5 m. - ESE.