Dagur - 26.03.1984, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
Heildsala
Smásala
Vöruþróun ræður lífi
eða uauða fyrirtækia
„Vöruþróun ræöur í dag úr-
slitum um líf eða dauða fyrir-
tækja. Samfara aukinni tækni-
þróun styttist líftími hverrar
vörutegundar stöðugt. Mark-
viss vöruþróun er því orðin
grundvaliarforsenda hverju
fyrirtæki, sem vill halda eða
styrkja sína stöðu á markaðin-
um. Félag íslenskra iðnrek-
enda og Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar hafa því ákveðið að
halda námskeið á Akureyri um
gildi vöruþróunar sem stjórn
tækis, þar sem m.a. verður
fjallað um á hvern hátt stjórn-
endur geta nýtt sér nýjustu að-
ferðir við framkvæmd og
stjórnun vöruþróunarverk-
efna,“ sagði Finnbogi Jónsson,
framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélagsins í viðtali við Dag.
Markmið námskeiðsins er að
gera þátttakendur færa um að
finna nýjar framleiðsluhugmynd-
ir, skilgreina þarfir og kröfur
markaðarins, meta raunhæfar
framleiðsluhugmyndir með hlið-
sjón af getu fyrirtækisins og hafa
umsjón með og stjórna fram-
kvæmd vöruþróunarverkefnis.
Fjallað verður um skipulagningu
vöruþróunar með tilliti til há-
marks árangurs og lágmarks
kostnaðar og fleira sem viðkemur
þessum málum. Námskeiðið er
einkum ætlað framkvæmda-
stjórum fyrirtækja á Norðurlandi
og þeim stjórnendum sem bera
ábyrgð á vöruþróun, framleiðslu-
stjórnun og markaðsmálum.
Leiðbeinendur verða Elías
Gunnarsson, ráðgefandi verk-
fræðingur og kennari við Tækni-
skólann og Háskólann, og Páll
Kr. Pálsson, hagverkfræðingur
hjá FÍI, sem jafnframt kennir við
Háskólann.
Námskeiðið verður haldið á
Hótel KEA 5.-7. apríl. Pátttöku-
tilkynningar eiga að berast til
þeirra sem halda námskeiðið fyr-
ir föstudag og þátttökufjöldi er
takmarkaður við 20 manns.
- HS.
Leiruvegurinn:
Fá Stefnis-
menn
vinnu?
„Það hafa tvö fyrirtæki á Ak-
ureyri sýnt því áhuga að fá
vinnu við aksturinn við þetta
verk, en það hefur ekki verið
tekin nein endanleg ákvörðun
I því efni,“ sagði Kjartan Ingv-
arsson framkvæmdastjóri
Vélsmiðju Gunnars og Kjart-
ans sf. á Egilsstöðum, en það
fyrirtæki mun annast gerð 1.
áfanga Leiruvegarins.
„Þessi fyrirtæki eru Barð sf. og
Bifreiðastöðin Stefnir,“ sagði
Kjartan. „Eins og staðan er í dag
eru miklar ltkur á því að Stefnir
fái þetta verk og kemur það til af
því að þeir hafa góðan bílakost
og eins hitt að mér finnst þeir eiga
nokkurn rétt á þessu verki
sem verður unnið á þessu svæði.“
- Hvenær er retKnað með að
hefja framkvæmdir?
„Pað er ómögulegt að segja
nákvæmlega tii um það. Þar geta
hlutir eins og þungatakmarkanir
á vegum haft sitt að segja, það
þarf að koma þungum tækjum
héðan að austan til Eyjafjarðar
og svo mega ekki vera þunga-
takmarkanir á þeim vegum sem
keyra þarf uppfyllingarefnið
eftir. Ég reikna með að þetta
verk taki um einn mánuð ef vel
gengur og ég vonast til þess að
því verði lokið þegar kemur fram
á sumarið og menn huga fremur
að öðrum verkefnum." gk--
Slappað af í göngugötu
Mynd: KGA.
„Samkvæmt áætlun Ríkisút-
varpsins og Pósts og síma sem
nú liggur fyrir er ætlunin að
standa myndarlega að upp-
byggingu dreifikerfisins fyrir
Rás 2 á þessu ári,“ sagði
Þorgeir Ástvaldsson forstöðu-
maður Rásar 2 er við ræddum
við hann í vikunni.
„Það verða settir upp 10 send-
ar f sumar og verða þeir á Grund-
arfirði, Ólafsvík', við Bæi á Vest-
fjörðum, Arnarnesi, Hrútafjarð-
arhálsi, Blönduósi, Prándarhlíð-
arfjalli, Hegranesi í Skagafirði,
Vaðlaheiði og Gagnheiði. Sterk-
ustu sendarnir í þessu dreifikerfi
verða á Gagnheiði 5 kw, 3 kw á
Vaðlaheiði og 2 kw á Hegranesi
og Blönduósi.
Það segir sig sjálft að sumarið
og haustið eru sá tími sem best
hentar til þess að setja þessa
senda upp og strax og fer að vora
fara menn að hugsa sér til hreyf-
ings við þetta verk. í haust mun
því meirihluti Vesturlands, Vest-
firðir, Norðurland og hluti Aust-
fjarða tengjast inn á kerfið og
geta íbúar á þessum svæðum þá
farið að hlusta á Rás 2,“ sagði
Þorgeir Ástvaldsson að lokum.
Pollurinn:
Svart af
loðnu
Mjög mikið hefur verið af
loðnu á Pollinum undanfarna
daga. Menn sem stundað hafa
þar veiðar um árabil muna
ekki eftir öðru eins og ioðn-
unni hefur verið mokað upp.
- Þetta er mjög góð loðna,
sagði einn þeirra sem stunda
veiðarnar í samtali við Dag í gær.
Karlarnir selja loðnuna til
Kaldbaks hf. á Grenivík þar sem
hún er fryst í beitu. Um 700
krónur fást fyrir tunnuna.
J - ESE.
„Það bendir fátt til
breytinga og allar horfur
eru á því að þetta veður
verði út vikuna,“ sagði
Knútur Knudsen veður-
fræðingur í morgun.
„Það verður hæg
norðaustanátt fyrir
norðan, ekki mikið frost
en hér fyrir sunnan verð-
ur þetta bjartara,“ sagði
veðurfræðingurinn.
• Fleiri farar-
stjórar?
Á íþróttasíðum blaðsins í
dag er viðtal við Harald Ólafs-
son, lyftingamann um þau
fáránlegu lágmörk sem ís-
lenska Olympiunefndin hefur
sett lyftingamönnum og einn-
ig frjálsíþróttamönnum fyrir
Olympiuleikana í Los Angel-
es.
Það virðist vera stefna
nefndarinnar að útiloka alla
lyftingamenn frá þátttöku og
sem flesta frjálsíþróttamenn
og svo dæmi séu nefnd þá
þurfa akureyrsku tvfburarnir
Garðar og Gylfi Gíslasynir að
setja Norðurlandamet til þess
að eiga möguleika á að vera
með. Ekki er Ijóst hvað veldur
þessari barnalegu afstöðu
Olympiunefndar Islands en
það skyldi þó aldrei vera að
með þessu móti eigi að rýma
fyrir fleiri fararstjórum?
# „Kafsund“
Olympiu-
nefndarinnar
Á sama tíma og Olympiu-
nefndin virðist ætla að úti-
loka þá íþróttagrein sem fært
hefur íslandi stig á síðustu
Olympiuleikum, þá hefur ver-
ið ákveðið að senda
sundmenn, einn eða fleiri á
leikana. Allir vita hvernig það
sund endar. Viðkomandi
þyrftu að hafa utanborðs-
mótor til þess að ná í milli-
riðla hvað þá meira. Kannski
fararstjórahrúgan ætli að
svamla með? Hvað sem því
líður er Ijóst að þeir hafa ekki
þreytt „kafsund“ síðustu
daga með Olympiuhugsjón-
ina að leiðarljósi.
# Litli mað-
urinn og....
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sagði í sjón-
varpi á þriðjudagskvöld að
loksins væri litli maðurinn
búinn að eignast vin í rfkis-
stjórn og vöktu þau ummæli
verðskuldaða athygli. - Jón
Örn Marinósson sem flutt
hefur frábæra kafla úr
„Jónsbók“ f morgunútvarpi í
vetur gerði þetta að umræðu-
efni og sagði frá heimsókn
litla mannsins á fund ríkis-
stjórnarinnar. Hann var víst
búinn að fara fjórum sinnum
og banka á dyrnar en aldrei
var opnað fyrir honum. Loks
þegar hann fór í fimmta skipt-
ið ýlfraði hann við dyrnar og
þá var strax lokið upp fyrir
honuml! - Og umsjónarmenn
morgunútvarpsins „börn-
uðu“ allt saman með því að
leika lagið „Pínulítill karl“
með Þursafiokknum eftir að
Jón hafði lokið máli sfnu.