Dagur - 28.03.1984, Side 9
28. mars 1984 - DAGUR - 9
Landsmót
skíðamanna
í Hlíðarfjalli:
Undirbúningur er
í fullum gangi
„Undirbúningur fyrir Lands-
mótið er í fullum gangi og hef-
ur reyndar staðið yfir í allan
vetur,“ sagði Þröstur Guð-
jónsson formaður Skíðaráðs
Akureyrar er við ræddum við
Frá þingi Í.B.A. um helgina.
Mynd: KGA.
99
Húsaleigan er að
drepa
- segir Knútur Otterstedt formaður ÍBA
„Það var samþykkt á þessu
þingi að beina þeirri áskorun
til bæjaryfirvalda að fram-
kvæmdum í Hlíðarfjalli yrði
haldið áfram. Reyndar hafa
engar fjárveitingar verið til
nýframkvæmda þar undanfar-
in ár ef undan er skilin bygging
verkstæðishúss. Það hefur
ekkert gerst í því að halda
áfram uppbyggingu í Hlíðar-
fjalli.“
- Þetta sagði Knútur Otter-
stedt formaður íþróttabandalags
Akureyrar er við ræddum við
hann, en ársþing bandalagsins
var haldið um helgina og var
Knútur endurkjörinn formaður
þess.
„Málum er nú þannig komið
því miður að aðstöðuleysið í
Hlíðarfjalli er farið að hafa þau
áhrif að aðsókn hefur minnkað
og við erum auðvitað ekki
ánægðir með þá þróun mála,“
sagði Knútur. Þing ÍBA gerði
einnig tvær aðrar samþykktir og
Allt á
fullri ferð
99
i
QQ
„Það er allt á fullri ferð hjá
okkur og æft af krafti þrisvar í
viku,“ sagði Guðmundur
Svansson er við ræddum við
hann, en Guðmundur þjálfar
1. deildar lið Þórs í knatt-
spyrnu kvenna.
„Við byrjuðum að æfa 25.
febrúar í snjónum og eftir að þær
stelpur í liðinu sem voru einnig í
handboltanum voru búnar þar
höfum við æft þrisvar í viku.
Tvær æfinganna eru útiæfingar en
ein æfingin er tekin í lyftingar.
Mæting hefur verið mjög góð,
þetta 19-27 stelpur á æfingum og
mikill hugur að standa sig vel í
sumar.“
Þór sigraði í 2. deild kvenna í
fyrra og leikur nú í Norður-Aust-
urlandsriðli 1. deildar. Guð-
mundur sagðist vera mjög óhress
með þessa riðlaskiptingu sem nú
var tekin upp í 1. deildinni, enda
er hún eingöngu til komin svo
félögin á S.-Vesturlandi þurfi
ekki að leggja út í ferðakostnað.
Þess má geta að æfingarnar
hjá Þór eru á þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudögum og
hefjást kl. 18.30 alla dagana.
hann, en Landsmót skíða-
manna verður háð í Hlíðar-
fjalli um páskana.
„Það er geysimikið verk að
halda svona mót, og undirbún-
ingurinn er tímafrekur,“ sagði
Þröstur. „Það má segja að við
höfum byrjað að huga að þessu
strax í haust, og þegar kemur að
mótinu sjálfu verða 50-60 manns
sem taka þátt í framkvæmdinni."
- Er þetta dýrt fyrirtæki?
„Já. Beinn kostnaður verður
um 100 þúsund krónur og á ég
þá við verðlaunapeninga og þess
háttar, en framkvæmdin í heild
er mun dýrari. Þetta er stórt
verkefni en það er akkur fyrir
okkur að fá þetta mót og standa
myndarlega að framkvæmd þess.
Keppendur verða 70-80 en ég
reikna með að þeir sem koma til
Akureyrar um páskana vegna
mótsins muni skipta hundr-
uðum.“
- Er nægur snjór í Hlíðar-
fjalli?
„Já það vantar ekkert á það.
Á svæðinu þar sem mótið fer
fram er kappnógur snjór svo við
erum ekkert áhyggjufullir þess
vegna. Við vinnum bara af full-
um krafti við undirbúninginn og
stefnum að því að halda hér gott
mót um páskana," sagði Þröstur.
fjallaði önnur þeirra um málefni
Skautafélags Ákureyrar en hin
um húsaleigumál íþróttafélag-
anna.
„Við viljum að það verði tekin
ákvörðun um framtíðarsvæði
Skautafélagsins. Það hefur verið
talað um að félagið fái svæði við
syðri enda tjarnarinnar en málið
er ekki frágengið. Þessi óvissa
hefur háð félaginu, og er jafnvel
talað um að ef félagið á að vera á
núverandi svæði 3-5 ár í viðbót
verði farið í það að setja þar upp
vélfryst svell.
Það var samþykkt tillaga til
bæjarstjórnar um að styrkur
bæjarins til ÍBA verði framvegis
í samræmi við hækkun á húsa-
leigu í íþróttahúsum bæjarins en
í þeim málum hefur hallað mikið
á okkur að undanförnu. Tíma-
gjaldið í Skemmunni og Glerár-
skóla hefur hækkað um 117% á
rúmu ári en styrkurinn til ÍBA
hefur ekki hækkað nema um
30,8% á sama tíma. Húsaleigan
er að drepa félögin,“ sagði Knút-
ur Otterstedt.
- Alfreð Þorsteinsson sem á
sæti í stjórn ÍSÍ mætti á þingið
um helgina. Gerði hann grein
fyrir samningaviðræðum ÍSI við
Flugleiðir um frekari afslátt fyrir-
tækisins til íþróttafélaganna. Þá
fjallaði hann einnig um lyfjamál
íþróttamanna en Alfreð er for-
maður lyfjanefndar ÍSÍ og hafa
þau mál er undir nefndina heyra
verið nokkuð í sviðsljósi að
undanförnu.
1-X-2 1-X-2
l’ kki gerðu spekingarnir neinar stórar rósir í síðustu viku. Eiríkur S.
Kiríksson náði hestuni úrangri og var með 6 lciki rétta, Einar Pálmi
5, Tryggvi 4 og Pálmi rak lestina með 3 leiki rétta.
- Eirikur S. Eiríksson segist vera koininn á sigurbraut, og nú kynn-
ir hann nýtt kerfi fyrir áhuganiönnuin um knattspyrnugetraunir. Kall-
ar haun það „leynilögreglukerfið" og byggist það á því að setja 2 við
alla leiki seðilsins. Einstaklega einfalt í franikva'nid en við bíðuni í
eina viku og sjáuni hvern árangur það gefur.
Einar Pálnii heldur forustunni með 24 leiki rétta eftir 4 vikur, en
hinir snillingarnir herjast harðri baráttu. Tryggvi Gíslason með 19
rélta og þeir Eiríkur S. Eiríksson og Pálmi Matthíasson eru með 18
lciki livor.
Tryggvi Gíslason. Birmingham-A.Villa ..................... 2
Coventry-Arsenal .................... 2
Everton-Southampton ................. 2
Ipswich-Luton........................ 2
Leicester-Norwich ................... x
Notts C.-Nott. For................... 2
Stoke-Sundcrland .................... 1
Watford-Liverpool ................... 2
« WBA-Man. Utd................................. 2
West Ham-QPR......................... x
Cardiff-Chelsea ..................... 2
Leeds-Sheff.Wed ..................... 2
Birmingham-A.Villa .................. 2
Matthíasson. Coventry-Arsenal ..................... 1
Everton-Southampton ................. 2
lpswich-Luton ....................... 1
Leicester-Norwich ................... 1
Notts C.-Nott. For................... 2
Stoke-Sundcrland .................... x
Watford-Liverpool ................... 1
WBA-Man. Utd........................ 2
West Ham-QPR......................... 1
Cardiff-Chelsea ..................... 2
A—k Leeds-Sheff.Wed ...................... 1
Einar Pálmi Birmingham-A.Villa ................... x
Árnason. Coventry-Arsenal ..................... 2
Everton-Southampton ................. 1
Ipswich-Luton........................ 1
Leicester-Norwich ................... 1
Notts C.-Nott. For................... 1
Stoke-Sunderland .................... 1
Watford-Liverpool ................... x
WBA-Man. Utd....................... 2
West Ham-QPR......................... 1
Cardiff-Chelsea ..................... x
Leeds-Sheff.Wed ..................... x
Eiríkur Eiríksson. Birmingham-A.Villa ................... 2
Coventry-Arsenal .................... 2
Éverton-Southampton ................. 2
Ipswich-Luton........................ 2
Leicester-Norwich ................... 2
Notts C.-Nott. For................... 2
Stoke-Sunderland .................... 2
Watford-Liverpool.................... 2
WBA-Man. Utd....................... 2
West Ham-QPR.......................... 2
Cardiff-Chelsea ..................... 2
Leeds-Sheff.Wed ...................... 2
1-X-2 1-x-2