Dagur - 30.03.1984, Page 3
30. mars 1984 - DAGUR - 3
Rétt er
að venja
rjúpumar við
Það eru margar mergjaðar veiði-
sögur sagðar, ekki síst af rjúpna-
veiðimönnum. Um helgina
heyrði ég eina dágóða. Hún er af
húnvetnskum bónda, sem fór til
berja í tíma og ótíma. Þótti sveit-
ungum mannsins þessi hegðun
hans undarleg, því berjaferðir
hans hófust löngu áður en berja
var von. En karl lét háðsglott
sveitunga sinna ekki aftra sér frá
berjaferðum. Hann var farinn að
huga að berjum snemma vors og
gerði það með reglulegu millibili
allt sumarið fram á haust. Þegar
á hann var gengið svaraði hann
ætíð því sama: Ég er í berjum. En
loks sagði karl sannleikann; ég er
einungis að gefa rjúpunum tæki-
færi til að venjast mér. Með
þessu móti verð ég búinn að
temja þær um það leyti sem
veiðitímabilið hefst og þá get ég
tínt þær upp fyrirhafnarlítið!!
Halló,
strákar
Það bar til hér um árið, þegar
jazzsnillingurinn Benny Good-
man var í laxi vestur í Húnaþingi.
Þá brá hann sér sem oftar í morg-
unsund í sundlaugina við heima-
vistarskólann á Húnavöllum. Þar
voru tveir laxveiðimenn fyrir.
Jazzkóngurinn var hinn hressasti,
veifaði til íslendinganna um leið
og hann sagði eitthvað á þessa
leið: Halló strákar, ég er herra
Goodman. Én landinn hafði nú
ekki trú á því að það gæti staðist,
að Goodman sjálfur væri að
þvæla í sundi uppi á íslandi. Þess
vegna héldu þeir að þama væri á
ferðinni einhver gamansamur
náungi „að sunnan“, þannig að
þeir tóku undir kveðjuna að
bragði: Halló herra Goodman,
ég er Snorri Beiker, sagði annar
og hinn bætti við - og ég er Matti
lögga...
Þœr voru
harðar
undir tönn
Já, margt er skrýtið í kýrhausn-
um, segir máltækið, og stundum
er margt skrýtið í kartöflupokan-
um líka. Það sannfærðist að
minnsta kosti einn af lesendum
blaðsins um. Hann fjárfesti í 2V2
kg af innfluttum kartöflum, sem
hann fékk pakkaðar í snyrtilega
neytendapakkningu. En það fór
í það verra þegar hann ætlaði að
gera sér kartöflurnar að góðu.
Margar þeirra reyndust harðar
sem grjót undir tönn, - þrátt fyrir
mikla suðu -, enda kom í ljós að
um grjótharða leirköggla var að
ræða. Já, þeir kunna að drýgja
uppskeruná sína kartöflubænd-
urnir í útlandinu. Myndin hér að
ofan er af þessum nýstárlegu
kartöflum.
Sparið og
sparið
Nú eru erfiðleikar hjá íslensku
þjóðinni, þið þekkið sönginn,
herðið sultarólina, gætið aðhalds,
étið velling og ekkert múður.
Þetta hafa ýmsar ríkisstofnanir
mátt reyna, þar á meðal sjúkra-
húsin. Á sjúkrahúsinu á Akur-
eyri hefur verið gætt ítrasta að-
halds í rekstrinum undanfarna
mánuði. En nú hefur verið
ákveðið að bæta við nýrri stöðu,
samkvæmt næstum áreiðanlegum
heimildum Dags. í hana á að
ráða skurðlækni, sem eingöngu
kemur til með að starfa við niður-
skurð!!
Hvaða land
er nú það
Ég hitti aldinn Skota á bjórstofu
á járnbrautarstöðinni í Glasgow á
dögunum. Hann var ræðinn karl-
inn og vildi allt um mig vita. En
eitthvað gekk honum illa að
skilja „Oxford-enskuna“ mína,
þannig að ég benti á konu mína
og sagði manninum, að einkarit-
ari minn gæfi allar nánari upplýs-
ingar. Samkvæmt frásögn einka-
ritarans hafði þessi maður ferðast
víða um heiminn, en hann hafði
varla heyrt ísland nefnt. ísland,
sagði hann, þið þurfið þá varla
yfir lækinn til að ná í ís í viskýið.
Síðan spurði hann hvaða mál þar
væri talað. Þegar einkaritarinn
minn sagði honum, að við töluð-
um okkar eigin tungu, þá varð
hann fyrst gapandi. Hann sagðist
tala þýsku, frönsku, ítölsku og
spænsku, auk síns móðurmáls, en
að íslenska væri til, það fannst
karli með ólíkindum.
Bravó
Þessi skemmtilega mynd er að
líkindum nærri því að vera 20 ára
gömul, en hún sýnir eina fræg-
ustu hljómsveit sem Akureyring-
ar hafa átt. Það eru Bravó-bítl-
arnir, sem einna frægastir urðu
fyrir að troða upp með stór-
hljómsveitinni Kinks í Austur-
bæjarbíói forðum. í hljómsveit-
inni voru t.f.v. Helgi Vilberg, nú
skólastjóri Myndlistaskólans,
Kristján Guðmundsson, kennari,
Þorleifur Jóhannsson, smiður og
trymbill hjá Ingimar Eydal og
Sævar Benediktsson, sem nú er
pípulagningamaður á Egils-
stöðum.
Manstu í fyrra?
Fatamarkaður
kl. 13-18
aUa daga
nema
laugardaga
10-12
Stendur í nokkra daga
Sporthúydhf
Fatnaður á fiínu verði
í Brekkugötu 3 (áður Cesar)
gengið inn um portið
Úrvalsvörur + Mikið fyrir lítið