Dagur - 30.03.1984, Blaðsíða 6
6-DAGUR-30. mars 1984
„Ég get ekki merkt kreppu
í utanlandsferðum landans
enn sem komið er, því við
höfum þegar tekið við fleiri
pöntunum en á sama tíma
í fyrra. Það er hins vegar
ekki útilokað, að bakslag
komi í seglin þegar líðafer
á sumarið, “ sagði Kol-
beinn Sigurbjörnsson,
framkvœmdastjóri Útsýnar
á Akureyri, í samtali við
Dag.
Það þarf varla að kynna Kol-
bein*fyrir Akureyringum. Þó er
hann Reykvíkingur, meira að
segja Vesturbæingur og gallharð-
ur KR-ingur að auki, en hann
hefur verið búsettur á Akureyri í
14 ár. Fyrst starfaði hann hjá
Vélsmiðjunni Odda, en síðan tók
hann til starfa hjá Flugfélagi ís-
lands og sá um söluskrifstofu
Flugleiða um árabil. Þaðan flutti
hann sig yfir á Ferðaskrifstofu
Akureyrar, þegar söluskrifstofan
sameinaðist henni, en eftir stutta
veru þar fór Kolbeinn til Útsýn-
ar, sem þá opnaði söluskrifstofu
á Akureyri. Fram að því hafði
Aðalsteinn Jósepsson séð um Út-
sýnarumboðið á Akureyri með
miklum sóma. Nú er Útsýn með
skrifstofu í Hafnarstræti 98, þar
sem Sigurður Kristinsson starfar
með Kolbeini. Kolbeinn var
spurður hvað hafi orðið til að
vekja áhuga hans fyrir „ferða-
bissnesnum“, eða hvað við eigum
nú að kalla það?
Gestir á Útsýnarkvöldinu fengu lystauka fyrir matinn.
þessum ferðum. Ferðin til
Egyptalands verður farin í októ-
ber og hún stendur í þrjár vikur.
Þetta er eftirsótt ferð og þegar
hafa margir pantað sæti.“
- Hvernig er verð á utanlands-
ferðum í ár?
„Það fer nú svolítið eftir því
við hvað er miðað, en verð á
utanlandsferðum hjá okkur hefur
ekki hækkað síðan í ágúst-sept-
ember á síðastliðnu ári og í
nokkrum tilfellum hefur verðið
lækkað. Það á til dæmis við um
nokkrar hópferðir.“
- Hvað gefur svigrúm til þess?
„Hagstæðir endursamningar
erlendis fyrst og fremst."
- Hvernig er þá salan?
„Hún er góð. Við gerðum t.d.
úttekt á sölunni í okkar leigu-
ferðir um síðustu helgi. Þá kom í
ljós, að við höfum þegar bókað í
um helming sætaframboðsins. Og
þær bókanir hafa allar verið stað-
festar. í heildina erum við með
ívið fleiri bókanir heldur en á
sama tíma í fyrra. Það á síðan
eftir að sjá hvað gerist þegar
kemur fram á sumarið, sérstak-
lega hér á Norðurlandi, því útlit-
ið er nú ekki bjart í atvinnumál-
um okkar þessa dagana.“
- Hvaða sólarlandastaður er
vinsælastur?
„Costa del sol, hann er alltaf á
toppnum, þar fá allir eitthvað við
sitt hæfi, hvort heldur sem um er
að ræða einstaklinga eða fjöl-
skyldur og verðlag er hagstætt.
Næst kemur Algarve í Portúgal,
en það er talsverð aðsókn í þær
ferðir, ekki síst héðan frá Akur-
eyri. Ef til vill ræður þar golf-
áhugi manna einhverju, en ekki
síður verðlagið í Portúgal, sem er
mjög hagstætt."
- Hver er meginmunurinn á
þessum stöðum?
„Kannski sá, að Portúgal ligg-
ur að Atlantshafinu og strend-
urnar því dálítið frábrugðnar því
sem gerist við Miðjarðarhafið.
Sjór er þarna tandurhreinn og
Algarve á sólarstundametið í
Evrópu.“
• Algarve
ódýrasti
kosturinn
- Hvert er ódýrast að fara ef ein-
göngu er sóst eftir sól og afslöpp-
un?
„Til Portúgal ímynda ég mér,
ég reikna með að það sé ódýrasti
kosturinn þegar á heildina er
litið. Þriggja vikna ferð þangað,
miðað við að fjórir séu saman í
húsi, kostar 20 þúsund fyrir
manninn. Og menn geta valið um
hvort þeir eru í húsum, í íbúða-
hótelum eða á venjulegu hóteli.“
- Það eru sem sé sólarlanda-
ferðir og bílaleigubíll um
Evrópu, sem njóta mestra vin-
sælda í ár?
„Já, og með bílnum taka menn
gjarnan sumarhús, t.d. í Þýska-
landi, sem virðist vera ofarlega á
listanum í ár. Við erum hins veg-
ar með sumarhús á okkar snær-
um í vel flestum Evrópulöndum
og verð á þeim er mjög hagstætt.
Ég get nefnt þér sem dæmi, að
það var sjö manna fjölskylda á
okkar vegum í Danmörku. Hús
sem nægði þessari fjölskyldu
kostaði um 6 þ. kr. á viku.“
- Getur þú útvegað mér fjalla-
kofa einhvers staðar?
„Já, viltu hafa hann í Noregi,
Sviss eða Austurríki, já eða í ein-
hverjum öðrum löndum. Komdu
bara við hjá mér og kíkkaðu í
bæklingana.“
- En sveitaóðal í Bretlandi?
„Já, já, ég var einmitt að fá
lista yfir slík sveitasetur í Vestur-
Þýskalandi og Frakklandi, þann-
ig að það er auðvelt mál. Komdu
bara.“ - GS.
Po
nýtw
rtúgcd
vax
andi
vins
œlda
Sigurður Kristinsson starfar á skrif-
stofu Útsýnar á Akureyri.
• Fjölbreytt starf
„Já, Gísli Jónsson, menntaskóla-
kennari, vill nú að við köllum
þetta ferðaútveg, sem í sjálfu sér
er ágætt nafn, en það hefur ekki
unnið sér fastan sess í málinu. Ég
kynntist þessu starfi fyrst eftir að
ég byrjaði hjá Flugfélagi íslands
og það vakti strax þann áhuga
hjá mér, sem lifir enn, og fer
frekar vaxandi. Þetta er fjöl-
breytt starf, það er enginn dagur
eins; það er alltaf eitthvað nýtt að
koma upp á borð okkar sem að
þessu störfum. Þetta er engin
„rútínuvinna". Þar að auki hefur
verið mjög ör þróun í ferðaútveg
okkar íslendinga á undanförnum
árum; það opnast nýjar leiðir ár-
lega.“
- Hvert sækir landinn mest
núna?
„Það er engin c'istefna, land-
inn sækir mun víðar en áður var,
þegar flestra leið lá til Spánar í
sólina. Að vísu sækir landinn enn
í sólina, og kemur til með að gera
það um ókomna tíð, en hann hef-
ur áttað sig á þeirri staðreynd, að
það er víðar sólskin en á Spáni.
Að auki hafa ferðalög breyst á
Kolbeinn Sigurbjörnsson veitir skrifstofu Útsýnar á Akureyri forstöðu.
undanförnum árum. Þannig eru
vetrarfrí orðin mun almennari.
Á veturna sækja menn til sólar-
landa, en ekki síður í snjóinn til
að komast á skíði. En leiðir liggja
til allra átta, það er ekki óalgengt
að sjá á borðinu hjá okkur til-
búna farseðla suður til Afríku,
austur til Asíu, Suður-Ameríku
og Japan, svo eitthvað sé nefnt.“
- Hverjar eru helstu breyting-
arnar sem orðið hafa á ferðavenj-
um landans á undanförnum
árum?
„Mesta breytingin er fólgin f
því, að iandinn er orðinn sjálf-
stæðari á sínum ferðalögum en
áður var. Hér áður fyrr fór
stærstur hluti utanlandsfara með
hópferðum, en nú er allt eins al-
gengt að menn taki sér bíla-
leigubíl og ferðist sjálfstætt. Ég
veit ekki hvað gerðist, ef til vill er
það hægri umferðinni að þakka,
en það eru ekki mörg ár síðan að
það þótti viðburður ef bílaleigu-
bíll var pantaður erlendis fyrir ís-
lending. Nú er þetta daglegt
brauð og menn aka um allar álfur
glaðbeittir. Sennilegasta ástæðan
er sú, að við erum orðnir „sigld-
ari“, við erum orðnir meiri
heimsmenn. Eftir sem áður eru
hópferðirnar vinsælastar, þegar
fólk vill komast í sól og afslöpp-
un, því þá er það ódýrasta og
fyrirhafnarminnsta leiðin."
• Heimsreisurnar
okkar stolt
- Hvaða „skrautblóm" er Útsýn
með í ár?
„Ætli það sé ekki heimsreisan
okkar til Egyptalands, við erum
stoltir af okkar heimsreisum, þar
er um að ræða góðar ferðir á
virkilega hagstæðu verði. Fólk
fær mikið fyrir peninga sína í
Hrafnhildur Ingadóttir vann utanlandsferð í ferðabingói á Útsýnarkvöldi í Sjallanum um sl. helgi.