Dagur - 30.03.1984, Side 7

Dagur - 30.03.1984, Side 7
30. mars 1984-DAGUR-7 r , ySópran- söngkonur eru í kippum Katrín Sigurðardóttir, sópransöngkona, er á „línunni“, en hún heldur konsert á Húsavík á sunnudaginn - Katrín Sigurðardóttir? - Já, það er hún. - Sópransöngkona? - Já, það er rétt. - Ætlaðir þú ekki að verða píanóleikari? - Jú, ég byrjaði að læra píanó- leik þegar ég var 8 ára heima á Húsavík og lauk síðan námi sem tónmenntakennari frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík. - Fór þá að hallast yfir í sönginn? - Já, það má segja að þá hafi söngurinn tekið við. Ég fór í Söngskólann í Reykjavík. Að vísu var ég við kennslu heima á Húsavík í millitíðinni, en sótti allt- af tíma suður. Loks flutti ég al- farið þangað og tók söngkennara- próf frá Söngskólanum árið 1980. Síðan hef ég verið um skeið við framhaldsnám, bæði í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. - Þú komst fyrst fram á sviði í Meyjarskemmunni hjá Þjóð- leikhúsinu fyrir tveim árum eða svo, er það ekki rétt munað hjá mér? - Jú, raunar, og síðan hef ég verið með þrjú hlutverk hjá ís- lensku óperunni, í Töfraflaut- unni, Nikkadó og Miðlinum í vetur. En mitt aðalstarf núna er söngkennsla við Söngskólann og þar er ég einnig undirleikari. - Það er sem sé ekki hægt að lifa af söngnum? - Nei, því miður. - En það er draumurinn? - Já, vissulega er það draumur- inn. - Sérðu fram á að hann rætist? - Ja, ég bara vona að hann rætist. - Þá í íslensku óperunni? - Það veit ég ekki, ég er hrædd um að það verði ekki hægt að lifa af söng við íslensku óperuna næstu 10 árin. En kannski verður það síðar, maður vonar það að minnsta kosti og trúir raunar ekki öðru. - Ertu ánægð með þá þróun sem orðið hefur í íslensku söng- lífi undanfarín ár? - Já, því undanfarin ár hafa ís- lendingar sýnt vaxandi áhuga á sönglist, sem má ekki síst þakka tilkomu íslensku óperunnar. Þar opnaðist grundvöllur fyrir því að sýna meira, því áður hafði í mesta lagi verið ein óperusýning á ári í Þjóðleikhúsinu. Nú, það er stans- laust eitthvað um að vera hér í sönglistinni, það er aldrei dauður tími. - Nú er kominn nokkur reynsla á íslensku óperuna, sem nú er á sínu þriðja starfsári. Hefur starf- semin verið eins og þig dreymdi um þegar ýtt var úr vör? - Já, ég held að hún hafi starf- að eins og við var að búast af slíku ungviði. Hún á náttúrlega enn við ýmsa erfiðleika að etja, t.d. er öll aðstaða fyrir söngvara og aðra starfsmenn við sýningar mjög ófullnægjandi. En ég held að hún hafi farið mjög vel af stað. - Nú eigum við marga söngv- ara, ekki síst sópransöngkonur, er hart barist um hituna? - Já, það eru margir um hit- una, það er alveg rétt, og það komast ekki allir að í einu. Og það úir og grúir af sópransöng- konum, þær eru framleiddar í kippum. Auðvitað er samkeppni á milli okkar, en ég vil ekki kalla það harðan bardaga; það væri nær að kalla það skemmtilegan bar- daga, þvf vissulega er þetta bar- átta. - Ég frétti að þú værir að koma norður með tónleika ? - Já, ég ætla að syngja í Sam- komuhúsinu á Húsavík á mánu- daginn og að Ýdölum á þriðju- daginn. Það fer svo eftir því hvernig gengur hvort við förum víðar. Þessir tónleikar verða ekki með hefðbundnu formi, þannig að ég á eftir að sjá í hvaða jarðveg efnisskráin fellur. - Hvernig eru þeir óvenjuleg- ir? - Þeir verða að því leytinu óvenjulegir, að við ætlum að taka þarna atriði úr Miðlinum, eins og það kom fyrir á sviðinu í Gamla bíói og þar nýt ég aðstoðar Viðars Eggertssonar, leikara. Þar að auki verð ég með íslensk og ítölsk lög ásamt óperuaríum. Auk þess mun undirleikarinn minn, Þorsteinn Gauti Sigurðsson, leika einleik á píanó. Efnisskráin verður því fjölbreytt. - Þú ert Húsvíkingur, það er ekki rúm fyrir söngkonu þar? - Nei, því miður. - Færðu heimþrá? - Já, mig langar oft heim í vík- ina, því þar á ég rætur. - Þú ert dóttir Sigurðar Hall- marssonar og Herdísar Birgis- dóttur, sem bæði eru kunn fyrir leiklist á Húsavík. Þar að auki áttu Hallmar Sigurðsson fyrir bróður, sem hefur atvinnu af leiklist. Er þetta eitthvað sem er í blóðinu? - Já, ég hugsa það, það er eng- in leið til að losna við þetta; ég held að það sé engin von til að berja þetta niður, enda vona ég bara að áframhald verði á. Það var mikið sungið og spilað á mínu æskuheimili og þegar fjölskyldan hittist er um fátt annað rætt en söng og leiklist. - Hefur þú ef til vill unnið leik- sigra á sviðinu í Samkomuhúsinu á Húsavík? - Nei, það get ég ekki sagt. Ég komst þar einu sinni á svið sem lítið barn og sagði eina setningu. Því til viðbótar lék ég undir á píanó þegar Fiðlarinn á þakinu var sýndur á Húsavík. Þar eru afrek mín með Leikfélagi Húsavíkur upptalin. - Manstu þessa setningu? - Ha, ha, já það held ég, hún var eitthvað á þessa leið: „Við viljum vera kjurr, herra Puntila. Það var nú ekki stórkostlegra en það. - Hvernig er að koma heim og syngja? - Ég hef einu sinni áður verið með tónleika á Húsavík og það var afskaplega erfitt; ég held að ég hafi sjaldan verið eins nervus eins og þá. Maður þekkir öll and- litin sem maður sér í salnum; þarna er Gunna og þarna er Jón og þarna er fólkið hinumegin við götuna og handan við hornið. Maður er búinn að alast upp með þessu fólki og maður heldur kannsi að það líti enn á mann sem Kötu litlu. En það er gaman að koma heim og sigrast á þessu og finna hlýhug og þakklæti fólksins í víkinni heima. En konsertar þar eru persónulegri en endranær og þess vegna erfiðari. - Ég vona aðykkur gangi vel á sunnudaginn, þakka þér fyrir spjallið Katrín. Bless. - Þakka þér sömuleiðis. Bless. - GS Blómabúðm Laufás auglýsii 111 fermingargjafa: Meðal annars, skartgripaskrín, gullhringir, men, rúnaletur lampar, styttur, málsháttaplattar og margt fleira. ^ ★ ☆ ★ ^ Sænskar trévörur nvkomnar ★ ☆ ★ Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið úrvals gróðurmold á 16 krónur pokann. - Biðjið um KAMBAMOLD, það tryggir gæðin. Gerið verðsamanburð. Verslið þar sem er hagstæðast Aukin þjónusta næsta mánuð (fermingarmánuður). Opið í Hafnarstræti laugardaga 9-16 og 9-12 sunnudaga. Næg bflastæði. Blómabúðin Laufás Bantam krani Tilboð óskast í Bantam vírakrana. Kraninn er mikið yfirfarinn og í góðu lagi. Nánari upplýsingar veitir lagerstjóri í síma 96-21300. Tilboð sendist til: Slippstöðvarinnar hf. c/o fjármálastjóri Pósthólf 437, 602 Akureyri. íbúðir til sölu: Erum að hefja sölu á 10 íbúðum í fjölbýlishúsi við Meiasíðu 2. 3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk, sameign frágengin. Verð þ. 1. apríl 1984: 2ja herb. kr. 767.700,00 3ja herb. kr. 1.013.750,00 4ra herb. kr. 1.068.925,00 ATH: Lán Húsnæðismálast. ríkisins þ. 1. jan. 1984. Einhleypingar 2-4ra manna fjölskylda 5-6 manna fjölskylda 7 og fleiri kr. 502.000,00 kr. 639.000,00 kr. 748.000,00 kr. 864.000,00 Draupnisgötu 7m ■'ö 96-23248 - Pósthólf 535 - 602 Akureyri. Þökkum öllum þeim er sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu GUNNAR JÚLÍUSDÓTTUR Grænugötu 12, Akureyri Árni Stefánsson, Júlíus Kristjánsson, Stefán Árnason, Vaka Jónsdóttir, Gunnlaugur Árnason, Bergþóra Guðmundsdóttir, Ingibjörg Ösp, Gunnur Ýr og Elva.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.