Dagur - 30.03.1984, Qupperneq 11
30. mars 1984 - DAGUR - 11
Þannig geta sæluhúsin litið út á hálendinu.
œvinvyn en
margt ber að
varasf ‘
segir Porsteinn Pétursson um vetrar-
ferðir um óbyggðir á vélsleðum
„Það er stórkostlegt ævintýri
að geta ferðast um landið með
þessum hætti. Það er hægt að
fara ótrúlega langt á ör-
skömmum tíma og komast til
staða sem ekki eru eins að-
gengilegir með öðrum hætti.
Þó að landið sé oftast alhvítt
yfir að líta á þessum tíma árs
getur það verið aiveg ótrúlega
fallegt og fjölbreytilegt,“ sagði
Þorsteinn Pétursson, lögreglu-
maður og vélsleðakappi, í við-
tali við Helgardag, þegar hann
var spurður að því hvað væri
svona merkilegt við það að
þvælast um hálendið á urrandi
vélsleða um hávetur.
Þeir verða margir urrandi vél-
sleðarnir á ferðinni um aðra helgi
ef að líkum lætur og veðurguð-
irnir lofa, því þá á að stofna Fé-
lag vélsleðaeigenda og fundar-
staðurinn ekki af lakari endan-
um. Ef allt fer að óskum og veður
verður milt og gott má búast við
nokkur hundruð vélsleða-
eigendum og öðrum áhuga-
mönnum á mótsstaðinn sem
verður í Nýjadal, sem sumir kalla
Jökuldal, og aðrir hafa því nefnt
Nýja-Jökuldal. Þetta er á Sprengi-
sandsleið skammt frá Tómasar-
haga vestan við Tungnafells-
jökul. Þarna eru tvö stór sæluhús
sem hvort um sig tekur 80-100
manns og eitthvað af smærri
byggingum, „ansi myndarleg
byggð" eins og Þorsteinn komst
að orði.
„Það er margt að varast þegar
ferðast er um óbyggðir á vélsleð-
um. Menn geta lent í ýmiss konar
hvörfum ef ekki er farið gætilega,
sleðarnir geta bilað, óveður getur
brostið á fyrirvaralítið og svo
mætti lengi telja. Menn verða að
vera undir það búnir að komast
ekki til byggða þegar þeir ætla sér
og þá ríður á að vera vel útbúinn.
Helst þurfa menn að vera með
þannig útbúnað að þeir geti lifað
í snjóskafli í nokkra daga og
þannig ættu menn að vera útbún-
ir í hvert einasta sinn sem þeir
fara úr byggð á vélsleðunum, því
fljótt skipast veður í lofti, eins og
máltækið segir. Þá er mjög slæmt
ef menn eru einir á ferð, fara án
þess að hafa skipulagt ferðina
áður og látið vita um það hvert
ferðinni var heitið,“ sagði Þor-
steinn.
Dagskrá mótsins í Nýjadal
verður mjög fjölbreytt og að
verulegu leyti verður byggt á því
að kenna mönnum öryggisatriði
og hvernig eigi að bera sig að í
vetrarferðum. í bréfi sem undir-
búningsnefnd mótsins sendi frá
sér segir m.a.:
„Undirbúningsnefnd þessa
móts vonast til að þessi hugmynd
um sameiginlegt mót allra áhuga-
manna um vetrarferðir hljóti
góðan hljómgrunn þátttakenda.
Mót þetta geti orðið upphaf að
árlegum viðburði. Sjónarmið
okkar er að ferðirnar til og frá
mótsstað séu hin besta skemmtun
og æfing fyrir alla. Ferðalög um
öræfi íslands eru að okkar áliti
óviðjafnanleg. Munum svo eftir
því að fara öll varlega og undir-
búa okkur vel.“
Gert er ráð fyrir að allir til-
kynni um þátttöku sína í mótinu
og tilgreini helst fyrirhugaða leið,
brottfararstað og tíma. Mótið
hefst kl. 15 á laugardag, en
mönnum er velkomið að koma
fyrr. Þátttakendum er bent á að
taka vel eftir veðurspá næsta
miðvikudagskvöld í sjónvarpi og
eftir auglýsingum mótsstjórnar á
fimmtudag í útvarpinu. Ef veður-
útlit verður mjög vont verður
mótinu frestað um viku.
í undirbúningsnefnd mótsins
eru eftirtaldir: Vilhelm Ágústs-
son, Þorsteinn Pétursson, Sigurð-
ur Baldursson, Kristján Grant,
Karl Grant og Jóhannes Kára-
son.
Þessa menn er alla hægt að
finna í símaskrá á Akureyri nema
Karl Grant í Reykjavík. Til
þeirra eiga þátttökutilkynningar
að berast. - HS.
Vélsleðamenn við skála Jöklarannsóknarfélagsins á Langjökli.
'CfjX. Hinar viðurkenndu
babyejörn barnavörur
Baðborð ★ Burðarpokar
Skiptitöskur Vagnhengi
Rúmhengi ★ Skammel
Ömmustolar
Koppar ★ Stólkoppar
Smekkir ★ Dotakassar
Burðarrúm sem getur
verið kerrupoki og m.fl.
Opið laugardaga kl. 10-12.
Kartöflubændur
Fræðslufundur um kartöflurækt verður haldinn að
Freyvangi miðvikudaginn 4. apríl og hefst kl. 13.00.
Framsögumenn verða:
Ólafur Guðmundsson deildarstjóri
bútæknideildar, Hvanneyri.
Sigurgeir Ólafsson sérfræðingur í
jurtasjúkdómum, Keldnaholti.
Magnús Sigsteinsson bygginga- og bútækniráðunautur
Búnaðarfélags íslands.
Kjartan Ólafsson, ráðunautur
Selfossi.
Félag kartöflubænda við Eyjafjörð.
IGNIS
kæli- og frystiskápar 310 I
Tilboðsverð 16.980 kr.
Einnig (Ignis) eldavélar
4ra hellu
Tilboðsverð 11.350 kr.
Oseyri 6, Akureyri . Pósthólf432 . Sfmi 24223