Dagur - 02.04.1984, Blaðsíða 3
2. apríl 1984 - DAGUR - 3
Um 100 manns á stofn-
fundi Búseta á Akureyri
- Jón Arnþórsson var kosinn formaður
Um 100 manns sóttu stofnfund
Búseta á Akureyri, sem hald-
inn var á Hótel KEA þriðju-
dagskvöldið 27. mars. Þar af
gerðust 68 stofnfélagar og á
miðvikudaginn bættust 13 til
viðbótar við stofnfélaga-
skrána, en hún verður opin til
15. aprfl nk. Jón Arnþórsson
var kosinn formaður húsnæðis-
samvinnufélagsins Búseta Ak-
ureyri.
Fundarstjóri á stofnfundinum
var Valur Arnþórsson og þegar
hann hafði sett fundinn með
nokkrum orðum skýrðu Sigurður
Jóhannesson og Júlíus Thorar-
ensen frá störfum undirbúnings-
hópsins. Einnig kynnti Reynir
Ingibjartsson, 'starfsmaður Bú-
Heiðurstónleikar Jakobs Tryggvasonar:
Húsfyllir í Akur-
eyrarkirkju
Húsfyllir var í Akureyrar-
kirkju á tónleikum, sem haldn-
ir voru 25. mars, til heiðurs
Jakob Tryggvasyni, en hann
hefur gegnt organistastörfum
við kirkjuna nær samfellt frá
árinu 1941.
Hér var þó ekki um kveðjutón-
leika að ræða, því að Jakob gegn-
ir enn fullu starfi við kirkjuna eða
á meðan væntanlegur eftirmaður
hans er að ljúka námi erlendis.
Á tónleikum þessum sungu undir
stjórn Jakobs: Kirkjukór Akur-
eyrarkirkju, Geysiskvartettinn
og Söngfélagið Gígjan og
voru mörg lögin sem sungin voru
eftir hann. Undirleikarar voru
við sum laganna en einnig að-
stoðaði hljómsveit úr Tónlistar-
skóla Akureyrar en Jakob var
skólastjóri Tónlistarskólans í nær
aldarfjórðung. Þóttu tónleikar
þessir takast með ágætum.
Mikið hefur verið um að vera í
Akureyrarkirkju á liðnum
vikum, því að fyrr í mánuðinum
var þar haldin kirkjuvika með
fjölbreyttu efni og var kirkjan
þéttsetin kvöld eftir kvöld en
kirkjuvikunni lauk með fjölsóttri
guðsþjónustu þar sem Dr. Sigur-
björn Einarsson, biskup, prédik-
aði. Margir tóku þátt í þessari
kirkjuviku, bæði lcikir og lærðir
og af mjög góðri þátttöku má
ætla að slík tilbreytni í starfi
kirkjunnar mælist vel fyrir. -
Fermingar hefjast í Akureyrar-
kirkju næsta sunnudag, 1. apríl.
Búnaoarfélag Hrafnagilshrepps:
Byggingu álvers
mótanælt
Álversmál voru í brennidepli
á aðalfundi Búnaðarfélags
Hrafnagilshrepps sem haldinn
var fyrir skömmu, en í ályktun
fundarins um þessi mál segir
m.a.:
Fundurinn harmar þann sam-
drátt sem orðið hefur í atvinnulífi
í Eyjafirði, sem og um allt land.
Samt sem áður átelur fundurinn
harðlega þann áróður sem rekinn
er um þessar mundir í skjóli
minnkandi atvinnu, fyrir bygg-
ingu álvers við Eyjafjörð, og
mótmælir algjörlega byggingu
slíks iðjuvers, nema fyrir liggi
áður einsýnar og ómótmælanlegar
rannsóknarniðurstöður, er sýni
harðlega
að slíkur rekstur sé algjörlega
hættulaus fyrir lífríki fjarðarins
og landgæði hans. Jafnframt
dregur fundurinn í efa, að bygg-
ing álvers, sé sá happafengur fyr-
ir atvinnulíf í Eyjafirði, sem
margir vilja vera láta. Til lausnar
vanda atvinnulífsins, bendir
fundurinn á hina fjölmörgu
möguleika, sem fyrir hendi eru í
smærri iðnaði, svo sem rafeinda-
iðnaði, endurvinnslu hvers
konar, fullvinnslu afurða og
fleira. Fái íslenskt hugvit að
njóta sín, og sé slíkum greinum
sköpuð sömu skilyrði, sem þeirri
stóriðju sem fyrir er í landinu.
Ályktunin var samþykkt, gegn
tveim mótatkvæðum.
Skátar selja
fermingarskeyti
Skátafélögin á Akureyri verða
nú um fermingardagana eins
og undanfarin ár með sölu á
fermingarskey tum.
Tilgangur þessarar sölu er ann-
ars vegar þjónusta við bæjarbúa
og hins vegar er þetta aðal fjár-
öflunarleið skátafélaganna í
bænum.
Útsölustaðir eru við útibú
KEA: Hrísalundi, Byggðavegi og
Höfðahlíð. Auk þess verður selt
í skúr á horni Hlíðarbrautar og
Austursíðu svo og í skátaheimil-
inu Hvammi.
Opnunartími sölustaða er kl.
13-17 alla fermingardagana.
Sérstaklega skal bent á að tek-
ið verður á móti skeytapöntunum
í síma 21812 alla fermingardag-
ana frá kl. 10 til kl. 17.
seta í Reykjavík, starfið þar.
Mjög líflegar umræður voru á
fundinum og mikið spurt. Stofn-
samningurinn var samþykktur og
einnig ályktanir til alþingis-
manna, þar sem skorað var ein-
dregið á þá að láta ekki dragast
að afgreiða til laga frumvarp fé-
lagsmálaráðherra um Húsnæðis-
stofnun ríkisins, þar sem m.a. er
gert ráð fyrir að félög eins og
húsnæðissamvinnufélög fái heim-
ild til lána úr byggingasjóði
verkamanna. „Það er mjög brýnt
fyrir þær þúsundir fólks sem
gengið hafa í húsnæðissamvinnu-
félögin að þegar verði sett sér-
stök löggjöf um húsnæðissam-
vinnufélög og búseturétt," sagði
í áskoruninni, sem var samþykkt
samhljóða.
I stjórn auk Jóns Arnþórsson-
ar, formanns, voru kosnir Gylfi
Guðmarsson, Björn Snæbjörns-
son, Jón Baldvin Pálsson og Hall-
dóra Jóhannsdóttir. í varastjórn
eru Jónína Pálsdóttir, Jakob
Björnsson og Bjarni Reykjalín.
- HS.
Frá stofnfundi Búseta á Akureyri.
Toshiba örbylgjuofninn fæst hjá okkur
Verið velkomin og kynnist því hvernig hægt er að matreiða allan venjulegan mat í Toshiba örbylgjuofninum
á ótrúlega stuttum tíma. Hvers vegna margir réttir verða betri úr Toshiba ofninum en gömiu eldavélinni.
Og þér er óhætt að láta börnin baka.
Og síðast en ekki síst. Svo þú fáir fullkomið gagn af ofninum þínum höldum við matreiðslunámskeið fyrir
eigendur Toshiba ofna.
Nýkomin búsáhöld fyrir örbylgjuofna.
Blomberg
þvottavélar, ísskápar
og eldavélar.
Viðurkennd gæðavara.
2ja ára ábyrgð.
Tilboðsverð á
eldavélum
með 2 bakaraofnum
með klukku og gufu-
gleypi. Staðgreiðslu-
verð kr. 18.500.
Tótu barnastóllinn nýkominn.
Sérstaklega hentugur og þægilegur í flutningi.
smá heimilistæki í úrvali,
til dæmis:
Hitateppi:
Tilvalin gjöf handa pabba og mömmu
eða afa og ömmu.
Einnig kaffikönnur,
handhrærivélar ásamt fylgi-
hlutum, brauðristar með hita-
grind, eggjasjóðarar,
straujárn með og án gufu,
hraðgrill og ótal margt fieira.
Búsáhöld í úrvali
m mm nylagnir
WnAr s"
■ Uawl VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400.
Verslið hjá fagmanni.