Dagur - 02.04.1984, Síða 7
6 - DAGUR - 2. apríl 1984 2. apríl 1984-DAGUR-7
deild karla eftir, og þar mæta tvo lið ur
Eyjafírði, Reynivík og KA og verður úr-
slitakcppnin á Akureyri.
m
Gottliebs
Þeir Gottlieb Konráðsson frá Ólafsfírði
og Einar Ólafsson frá ísafirði berjast
harðri baráttu um sigurinn í Bikarkeppni
Skíðasambandsins í göngu. Fjölmörg
göngumót hafa farið fram í vetur og er
staða þeirra Einars og Gottliebs þannig að
báðir eru með 70 stig.
Ein keppni er eftir í þessum bikar-
mótum og er sú keppni á sjálfu Lands-
mótinu sem háð verður í Hlíðarfjalli um
páskana. Þar munu úrslitin því ráðast.
Næstu menn eru Jón Konráðsson frá
Ólafsfírði meö 46 stig, Þröstur Jóhannes-
son ísafiröi með 38 stig og Haukur Sig-
urðsson Ólafsfírði með 36 stig.
í kvennaflokki er staðan þannig að
Guðrún Pálsdóttir Siglufirði er efst með
50 stig og María Jóhannsdóttir Siglufirði
önnur með 40 stig.
Blak:
Fyrstu
meist-
KA hefur eignast sína fyrstu íslandsmeist-
ara i blaki, en það var 2. flokkur karlaliðs
fclagsins sem vann það afrck í úrslita-
keppni í Reykjavík á dögunum að bera
sigur úr býtum.
Fimm lið mættu til þessarar úrslita-
kcppni. Lið KA, Lauga, Þróttar N.,
Þróttar R. og Breiðabliks. í sjálfri keppn-
inni urðu úrslit leikja KA þau að liðið
vann Laugaliðið með 2:0 og einnig
Breiðablik og Þrótt N. en tapaði hins veg-
ar 1:2 fyrir Þrótti R.
Virtist því sem Þróttur R. myndi verða
sigurvcgari í mótinu, en piltarnir frá
Laugum voru ekki á því máli og unnu
Þróttara með 2:1. Þurfti því hreinan úr-
slitaleik milli KA og Þróttar R. um titilinn
og þá hafði KA sigur 2:1. Þess má geta að
margir af KA-piltunum í 2. flokki hafa
verið í meistaraflokksliði félagsins í 2.
deild í vetur.
Tveir íslandsmeistaratitlar í blaki eru
því komnir til Norðurlands í vor, því
Völsungsstúlkurnar sigruðu glæsilega í
meistaraflokki kvenna. Þá eru úrslitin í 2.
Guðrún Pálsdóttir frá Sigluflrði er efst í
kvennaflokki.
„Erfitt að
hætta núna“
- segir Ólafur Jensson formaður
handknattleiksdeildar Þórs
„Útlitið er óneitanlega bjart-
ara í dag en það var áður og
ég tel litlar líkur á því að við
förum að hætta ineð handbolt-
ann hjá Þór núna,“ sagði Ólaf-
ur Jensson formaður hand-
knattleiksdeildar Þórs er Dag-
ur ræddi við hann um helgina.
Eins og við skýrðum frá á
dögunum mun hafa komið til tals
að leggja niður handknattleikinn
hjá Þór, og var það vegna slæmr-
ar fjárhagsstöðu deildarinnar.
Síðan þá hefur það gerst að
meistaraflokkslið karla vann sig
upp í 2. deild með miklum glæsi-
brag og það hefur gjörbreytt
myndinni.
„Það er ákaflega erfitt að hætta
núna þegar karlaliðið er búið að
vinna sig upp í 2. deild eftir
þriggja ára veru í 3. deildinni og
kvennaliðið búið að endurheimta
sæti sitt í 1. deild,“ sagði Ólafur.
Hann bætti því við að nú væri
búið að skipa fjáröflunarnefnd
sem væri þegar farin að ráðast að
skuldahalanum. „Það verður
einnig að finna menn til þess að
taka við stjórn deildarinnar því
við sem erum núna í stjórninni
ætlum allir að hætta.“
KA fékk
ekki stig
— Gunnar Gíslason löglegur
með KR-ingum
Ekki gekk sem best hjá hand-
knattleiksliði KA um helgina
er 2. hluti úrslitakeppni neðstu
liðanna í 1. deild fór fram. Lið-
ið tapaði öllum leikjum sínum,
en öllum reyndar með litlum
mun.
Fyrsti leikur KA-strákanna var
gegn Þrótti og vann Þróttur þar
sigur, 26:24. Næst lék liðið gegn
KR og tapaði 17:20 og loks unnu
Haukar KA með 21 marki gegn
17. Önnur úrslit urðu þau að KR
sigraði Hauka 29:23, Haukar
unnu Þrótt 26:21 og Þróttur sigr-
aði KR 26:20.
Gunnar Gíslason - löglegur meö
KR.
Fyrir helgina var dæmt í kæru-
máli Þróttar gegn KR en Þróttar-
ar kærðu KR-inga fyrir að hafa
notað Gunnar Gíslason eftir að
hann hætti að spila knattspyrnu í
Þýskalandi og kom heim. Vildu
Þróttarar meina að Gunnar væri
ólöglegur í handknattleiknum'
hér heima og hefði Þróttur unnið
kæruna hefði KR tapað 5 stigum.
Þá hefði sú staða líka komið upp
að úrslitakeppnirnar í 1. deild,
bæði efstu og neðstu liðanna,
væru ólöglegar því Þróttur hefði
þá átt að vera í keppni efstu lið-
anna en Stjarnan með botnliðun-
um.
En dómstóll Handknattleiks-
sambandsins var á þeirri skoðun
að Gunnar væri löglegur með
KR. Staðan í neðri hluta 1. deild-
arinnar er því þannig í dag að
Þróttur er með 23 stig, KR með
21, Haukar 11 og KA rekur lest-
ina með 3 stig. KA er því fallið í
2. deild og ekkert nema krafta-
verk getur bjargað Haukum. Þeir
yrðu að vinna alla 6 leikina sem
þeir eiga eftir og KR að tapa
öllum sínum leikjum. Vissulega
langsóttur möguleiki:
Það er því nokkuð ljóst að lið-
in sem leika í 2. deild næsta vetur
verða KA, Haukar, Fram,
Grótta, HK, Ármann, Þór Ak.
og annað hvort ÍR eða Fylkir.
Fram og
KA sigruou
Fram sigraði í karlaflokki og
KA í kvennaflokki á opna KA-
mótinu í blaki sem lialdið var
á Akureyri um helgina.
í kvennaflokki léku 6 lið og
varð röð þeirra efstu þannig að
KA varð í fyrsta sæti, Eik í öðru
sæti og 1. deildar lið Víkings í
þriðja sætinu.
í karlaflokki léku 10 lið í
tveimur riðlum. Að riðlakeppn-
inni lokinni léku síðan liðin um
endanlega röð í mótinu og sigraði
þá Fram Víking í úrslitaleik.
Reynivík og KA léku síðan um 3.
sætið og sigraði Reynivík í þeirri
viðureign. Þess má geta að Fram
tapaði ekki nema einum leik í
mótinu, en það var fyrir Skauta-
félagi Akureyrar sem sigraði
Fram 2:1.
Úr leik KA og Fram í karlaflokki.
Sigurður Pálsson varð íslandsmeistarí í þyngri flokknum.
Ungiingameistaramót í skíðaíþróttum
Akureyringar hlutu
flest gullverðlaun
Unglingameistaramót í skíða-
íþróttum var háð á Siglufirði
um helgina. Þar mættu til leiks
174 keppendur víðs vegar af
landinu og stóð keppnin yfir
frá föstudegi til sunnudags-
kvölds. Keppt var í göngu í
Hólsdal en í stökki og alpa-
greinum í Skarðsdal. Mótið
var í umsjón heimamanna og
var framkvæmd þess í alla
staði mjög góð.
Úrslit mótsins urðu sem hér
segir:
Stórsvig drengja 15-16 ára:
1. Björn B. Gíslason A 105,42
2. Brynjar Bragason A 107,70
3. Þór Jónsson A 108,46
Stórsvig stúlkna 15-16 ára:
1. Guðrún H. Kristjánsd. A 100,97
2. Snædís Úlriksdóttir R 101,91
3. Guðrún Alfreðsdóttir S 103,20
Svig stúlkna 13-14 ára:
1. Gerður Guðmundsd. ÚÍA 100,62
2. Fjóla Guðnadóttir Ó 105,02
3. Guðbjörg Ingvarsdóttir í 105,37
Svig drengja 13-14 ára:
1. Valdimar Valdimarss. A 103,27
2. Kristinn Svanbergss. A 103,79
3. Sigurbjörn Ingvarss. f 104,57
Ganga stúlkna 13-15 ára: (gengnir voru 2,5 km) 1. Ósk Ebenesardóttir í 11,36
2. Auður Ebenesardóttir í 11,41
3. Harpa Jónsdóttir Ó 12,46
Ganga drengja 13-14 ára: (gengnir voru 5 km) 1. Magnús Erlingsson S 17,22
2. Óskar Einarsson s 18,21
3. Sveinn Traustason F 19,11
Ganga drengja 15-16 ára: (gengnir voru 7,5 km) 1. Ólafur Valsson S 26,19
2. Ingvi Óskarsson Ó 26,25
3. Baldvin Kárason S 26,27
Stórsvig drengja 13-14 ára:
1. Ólafur Sigurðsson í 97,75
2. Kristinn Grétarsson í 101,52
3. Valdimar Valdimarsson A 101,98
Stórsvig stúlkna 13-14 ára:
1. Ásta Halldórsdóttir í 99,38
2. Þórdís Fjölnisdóttir R 99,47
3. Geröur Guðmundsd. ÚÍA 99,66
Svig drengja 15-16 ára:
1. Björn B. Gíslason A 90,51
2. Guðmundur Sigurjónsson A 91,62
3. Kristján Valdimarsson R 94,33
Svig stúlkna 15-16 ára:
1. Guðrún H. Kristjánsd. A 97,66
2. Snædís Úlriksdóttir R 98,76
3. Kristín Ólafsdóttir R 100,69
Norræn tvíkeppni 15-16 ára:
1. Ólafur Björnsson Ó 524,77
2. Sigurgeir Svavarsson Ó 422,21
3. Randver Sigurðsson Ó 372,59
Alpatvíkeppni drengja 15-16 ára:
1. Björn B. Gíslason A 0,00
2. Kristján Valdimarsson R 60,83
3. ívar Valsson A 64,51
Alpatvíkeppni stúlkna 15-16 ára:
1. Guðrún H. Kristjánsd. A 0,00
2. Snædís Úlriksdóttir R 15,96
3. Kristín Ólafsdóttir R 58,52
Alpatvíkeppni drengja 13-14 ára:
1. Valdimar Valdimarsson A 33,03
2. Bjarni Pétursson í 55,49
3. Kristinn Svanbergss. A 57,47
Alpatvíkeppni stúlkna 13-14 ára:
1. Gerður Guðmundsd. ÚÍA 5,19
2. Ásta Halldórsdóttir í 40,17
3. Guðbjörg Ingvarsdóttir í 41,13
í flokkasvigi stúlkna 13-14 ára
sigraði Reykjavík, í flokkasvigi
drengja 15-16 ára sigraði Húsavík,
í flokkasvigi drengja 13-14 ára sigr-
aði Reykjavík og í flokkasvigi
stúlkna 15-16 ára sigraði Akureyri.
í boðgöngu stúlkna 13-15 ára
sigraði ísafjörður, í boðgöngu
drengja 13-14 ára sigraði Siglufjörð-
ur og í boðgöngu 15-16 ára drengja
sigraði Ólafsfjörður.
Guðrún H. Kristjánsdóttir sigraði
þrefalt. - Sjá frétt neðar á síðunni.
„Duffield
á leiðinni“
Islandsmót 21 árs og yngri í vaxtarrækt:
Akureyringar voru
í þremur efstu sætunum
- í þyngri flokknum - Reykvíkingar grimmir í léttari flokki
Fyrsta íslandsmótið í vaxtar- Reykjavíkur var háð um heljg-
rækt sem haldið er utan ina á Akureyri, en það var Is-
landsmót fyrir 21 árs og yngri.
Var keppt í tveimur flokkum
karla, í öðrum voru þeir sem
voru léttari en 70 kg en þeir
sem voru þyngri voru í hinum
flokknum.
Keppnin fór fram í Dynheim-
um og þar mættu hátt í 200 áhorf-
endur til þess að fylgjast með
keppendum spenna vöðva sína.
Var hörð keppni í báðum flokk-
unum en úrslitin urðu þau að Júl-
íus Ágúst Guðmundsson Reykja-
vík sigraði í léttari flokknum.
Annar varð Gestur Helgason
Reykjavík og Björn Broddason
Akureyri þriðji.
Betur gekk hjá norðan-
mönnum í þyngri flokknum því
þar röðuðu þrír Akureyringar sér
í efstu sætin. Sigurvegari varð
Sigurður Pálsson, Jón Knútsson
varð annar og Einar Guðmann
þriðji.
Akureyri með
flest gullin
Akureyringar hlutu flest gull-
verðlaun á Unglingameistara-
móti íslands í skíðaíþróttum
sem fram fór á Siglufirði um
helgina.
Akureyringar geta þakkað
þetta mjög góðri frammistöðu
þeirra Guðrúnar H. Kristjáns-
dóttur og Björns B. Gíslasonar,
en bæði unnu þau þrefaldan sigur
í sínum flokkum, 15-16 ára
flokkum. Þau unnu í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni. Þá vann
Valdimar Valdimarsson Akur-
eyri tvöfaldan sigur í flokki 13-14
ára, vann svig og alpatvíkeppni.
Alls hlaut Akureyri 9 gullverð-
laun sem var meira en helmingi
meira en þeir staðir sem næst
komu, en það voru Ólafsfjörður
og ísafjörður með 4 gullverð-
laun. Næst kom Siglufjörður með
þrenn, þá Reykjavík og ÚÍA
með tvenn og Húsavík hlaut ein
verðlaun. Eins og venjulega eru
verðlaun Akureyringa í alpa-
greinum en bæði Ólafsfjörður og
Siglufjörður vinna sína sigra í
norrænu greinunum þar sem
keppendur frá þessum stöðum
eru nær einráðir.
Stökk drengja 15-16 ára:
1. Randver Sigurðsson Ó 230,4
2. Ólafur Björnsson Ó 211,6
3. Sigurgeir Svavarsson Ó 136,5
Stökk drengja 13-14 ára:
1. Jón Árnason Ó 190,6
2. Hafþór Hafþórsson s 172,3
3. Magnús Erlingsson s 145,0
Norræn tvíkeppni 13-14 ára:
1. Magnús Erlingsson s 514,30
2. Óskar Einarsson s 495,15
„Ég veit ekki annað en að IVIark
Duffíeld sé á leið til okkar, það
var rætt við hann sl. föstudag og
þá sagðist hann vera að pakka
niður,“ sagði Stefán Gunn-
laugsson forntaður knattspyrnu-
deildar KA er við rædduni við
hann.
Þær sögusagnir komust á
kreik í síðustu viku að Mark
væri hættur við að leika með
KA í sumar og ætlaði sér að
vera áfram á Siglufirði. Þetta
inun að sögn Stefáns Gunn-
laugssonar ekki hafa við rök að
styðjast. „Við vitum ekki annað
en að Mark sé að koma hingað,
hann hefur tilkynnt félagaskipti
í KA og ætlar með liðinu í æf-
ingal'erðina til Ipswich nú í
apríl.“
Akureyrarmót í kraftlyftingum:
„Bangsinn“
mætir
Úrsusi
Akureyrarmótið í kraftlyfting-
um verður haldið í Dynheim-
um nk. laugardag. Allir bestu
kraftlyftingamenn Akureyrar
verða meðal þátttakenda og
auk þess koma góðir gestir úr
Reykjavík á mótið.
Það verður án efa hörkukeppni
í öllum flokkum en líklega munu
átök jötnanna Víkings Trausta-
sonar, heimskautabangsa og
Hjalta Úrsusar Árnasonar, sem
keppir sem gestur á mótinu, bera
hvað hæst. Báðir keppa í 125 kg
flokki og verður keppni þeirra
hér góð vísbending um hvernig
kapparnir standa fyrir íslands-
mótið sem haldið verður í lok
apríl. Hjalti átti nýlega góðar til-
raunir við nýtt heimsmet ungl-
inga í réttstöðulyftu og hver veit
nema þetta met falli í Dynheim-
um á Akureyri. Víst er að báðir
kapparnir munu lyfta vel yfir 800
kg á mótinu.
Af öðrum keppendum má
nefna Sverri Hjaltason sem
nefndur hefur verið „lakkrísinn“
meðal kraftlyftingamanna. Sverr-
ir hefur ákveðið að keppa fyrir
Akureyri í framtíðinni og verður
skemmtilegt að fylgjast með
keppni hans og Flosa Jónssonar í
90 kg flokki.
Þá má nefna að bæði Kári Elí-
son og Freyr Aðalsteinsson eru í
hörkuformi um þessar mundir og
líklegir til afreka og ekki má
gleyma Jóhannesi Hjálmarssyni
og hinum unga og efnilega kraft-
lyftingamanni Helga Eðvarðssyni
sem vex með hverri raun.
- ESE.
„Heimskautsbangsinn“ nærir sig
niilli atríða í keppni.