Dagur - 02.04.1984, Síða 12
Nýi Golfinn er kominn.
Leitið upplýsinga
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Verðmun á kjarn-
fóðri mótmælt
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjaröar var haldinn á
fimmtudag og föstudag. Fund-
inn sóttu um 50 manns, þar af
24 með atkvæðisrétt. Á fund-
inum fluttu Ingi Tryggvason og
Þórarinn Sveinsson erindi um
verðlags- og félagsmál land-
búnaðarins. Samþykktar voru
ályktanir m.a. um kjarnfóður-
skatt og sölusvæðaskipulagið í
mjólkurframleiðslu.
Mótmælt var þeim mikla verð-
mun sem er á kjarnfóðri vegna
mismunandi skatta eftir því hvort
fóðrið er blandað heima eða
innflutt, en verðmismunur getur
numið á annað þúsund kr. á
tonnið. Lögð var áhersla á að
þetta yrði jafnað og sú mismunun
sem orðin er vegna þessa leiðrétt.
Sami skattur verður settur á allt
kjarnfóður og hann lækkaður frá
því sem nú er.
Þá var samþykkt ályktun um
að sölusvæðaskipulag í mjólkur-
framleiðslu verði tekið til endur-
skoðunar, þannig að auðveldara
verði að hafa stjórn á fram-
leiðslutegundum og verðjöfnun
milli samlaganna verði auðveld-
ari. Mikið var rætt um frumvarp
til laga um atvinnuréttindi í land-
búnaði og var það samþykkt með
nokkrum breytingum.
Sveinn Jónsson og Sigurgeir
Garðarsson hættu í stjórninni og
í stað þeirra komu Haukur
Steindórsson og Pétur Helgason.
Haukur Halldórsson var kjörinn
formaður. HS
Framsóknarflokkurinn:
Miðstjómarfundur
á Akureyri
Aðalfundur miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins verður hald-
inn á Akureyri dagana 27.-29.
apríl. Fundurinn verður hald-
inn á Hótel KEA og hefst kl.
16.30 föstudaginn 27. og ætlað
er að honum Ijúki um hádegi á
sunnudegi.
Að lokinni setningu mun for-
maður flokksins, Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
flytja yfirlitsræðu, og síðan verða
skýrslur ritara og gjaldkera og að
þeim loknum almennar um-
ræður.
Aðalmál fundarins verður til
umræðu á laugardegi en það er
„Atvinnuþróun næstu ára“.
Verður fjallað um málið í hóp-
umræðum en það síðan afgreitt
á sunnudegi. Kosningar for-
manns og annarra æðstu manna
Framsóknarflokksins verða síð-
degis á laugardag og þá um
kvöldið verður kvöldverður og
samkoma. - HS.
Vindrellan í Grímsey eftir breytingarnar -
Guðmundssyni.
Innfellda myndin er af Hailiða
Myndir: GS.
Siglfirðingi S.I. breytt í frystitogara:
Breytingarnar kosta
15-18 milljónir króna
í næsta mánuði verður hafist
handa við að breyta skuttogar-
anum Siglfirðingi í frystitogara
í Slippstöðinni á Akureyri.
Talið er að verkið muni taka
átta til tíu vikur og er áætlaður
kostnaður við breytingarnar á
bilinu 15 til 18 milljónir króna.
.Gunnar Júlíusson, útgerðar-
maður á Siglufirði sagði í samtali
við Dag að nú hefði verið gengið
frá öllum lánafyrirgreiðslum
vegna breytinganna. Breyting-
arnar á Siglfirðingi yrðu sams
konar og þær breytingar sem
gerðar voru á Akureyrinni á sín-
um tíma, nema hvað ekki yrði
sett karfaflökunarvél í Siglfirð-
ing.
Að sögn Gunnars er enn ekki
ljóst hvort bræðsla verður sett
um borð í Siglfirðing en slík
maskína kostar um 3.5 milljónir
króna hingað komin. Langur af-
greiðslufrestur er á þessum vél-
um og því væri óvíst hvort þeir
myndu kaupa slíka bræðslu.
- ESE.
Grímsey:
Vind-
rellan
í gang
- Sparar heimilum
tugþúsundir króna
Norðan frá heimskautsbaug
berast þær fréttir að vindrellan
í Grímsey sé tekin að snúast og
yljar hún nú þeim eyjarskeggj-
um sem búa í húsunum tveim
sem tengd eru við relluna.
- Við settum relluna af stað sl.
fimmtudag og hún fór þegar í
stað að framleiða varma, sagði
Hafliði Guðmundsson, umsjón-
armaður vindrellunnar er blaða-
maður Dags náði tali af honum.
Hafliði sagði að vel hefði geng-
ið að setja vindrelluna upp að
nýju, en sem kunnugt er þá fauk
hún af undirstöðunum í ofsaveðri
sl. haust. Að þessu sinni voru
slegnir nokkrir varnaglar og m.a.
var spaðinn minnkaður um 70
sentimetra auk þess sem undir-
stöður rellunnar voru styrktar
sérstaklega.
Að sögn Hafliða á vindrellan
að geta hitað upp miðstöðvarvatn
fyrir tvö hús en varmaframleiðsl-
an hefst í u.þ.b. fjórum vindstig-
um. Allt í allt tekur það um viku
tíma að ná heppilegu hitastigi en
það á svo að geta haldist stöðugt
svo fremi sem einhver vindur
leiki um Grímsey.
- Við komumst að því núna
þegar við prófuðum relluna í átta
vindstigum að við getum stjórnað
snúningnum með því að breyta
blaðhæðinni í vatnsbremsunni.
Þetta þýðir að við getum nánast
notað relluna í öllum veðrum og
a.m.k. upp í 12 vindstig, sagði
Hafliði.
Vindrellan í Grímsey verður
nú í reynslu næsta árið og munu
menn frá Háskóla íslands koma
í eyna á mánaðarfresti og fylgjast
með því að rellan vinni eins og
lög gera ráð fyrir. Ef allt gengur
að óskum þá verður um gífurleg-
an eldsneytis- og þar af leiðandi
gjaldeyrissparnað að ræða. Talið
er að í 120 fermetra húsi í Gríms-
ey séu notuð um sex tonn af olíu
á ári til upphitunar en það lætur
nærri að það magn kosti um 51
þúsund krónur, komið á tanka
eyjarskeggja. - ESE.
„Það verður suðlæg átt
á Norðurlandi næstu
daga,“ sagði veður-
fræðingur í samtali við
okkur í morgun. „Það
verður milt veður, lítil
sem engin úrkoma og
þótt hugsanlegt sé að
kólni eitthvað þá er
óhætt að segja að þið
fáið hlýtt og gott
veður.“
# Barnið féll
óvænt niður...
Morgunblaðið var með aldeil-
is sérlega skemmtilega frétt
á innsíðu hjá sér fyrir helg-
ina, en hún fjallaði um 17 ára
norska stúlku sem fór á sal-
erni vegna niðurgangs en
kom þaðan út með nýfætt
barn í fanginu! Stúlkutetrið
sem ekki hafði hugmynd um
að hún væri með barni en
vissi af niðurgangi sínum,
varð heldur en ekki hissa.
„Þegar ég leit niður í salern-
isskálina sá ég að þetta var
barn,“ hafði Mogunbiaðið eft-
ir hinni undrandi stúlku. Hún
þreif barnið upp úr salernis-
skálinni, þerraði það og
hringdi síðan á sjúkrabíl.
Þegar á sjúkrahúsið kom var
barnið vigtað og var það 3250
grömm, myndarlegur piltur
en ekki fylgdi sögunni hvort
móðirin hafði fengið oft i
magann á meðgöngutíman-
um.
# Stöðumæla-
sekt á
villigötum
Fyrr í vetur skýrðum við frá
kjánalegu máli sem upp kom
í Reykjavík. Þá fékk mætur
Akureyringur senda stöðu-
mælasekt frá lögreglustjór-
anum í Reykjavík vegna bif-
reiðar með U-númeri sem
hafði verið iagt ólöglega.
Maðurinn skeytti þessu engu
enda átti hann engan bíl með
U-númeri og til Reykjavíkur
hafði hann ekki lagt leið sína
í lengri tíma, hvað þá notað
sér stöðumælaþjónustuna.
# Eignaður
bíllinn
í tvígang
Akureyringurinn ansaði því
ekki kröfu lögreglustjórans
og taldi að sjálfsögðu að mál-
ið væri úr sögunni. En svo er
þó ekki, þó lögreglustjórinn í
Reykjavík hafi í sjálfu sér
ekki gert meira í málinu - í
bili a.m.k. Hin nýja hlið á mál-
inu er sú að nú nýlega fékk
Akureyringurinn bréf frá
sýslumanninum í S.-Múla-
sýslu og er hann vinsamleg-
ast beðinn um að greiða bif-
reiðaskattinn af títtnefndri U-
bifreið sem allra fyrst. Sonur
mannsins kom að máli við
blaðið og sagði þessa sögu
og bætti því jafnframt við að
þar sem yfirvöld landsins
væru þetta staðráðin i að
eigna karli föður hans bílinn,
þá væri gamli maðurinn að
hugsa um að greiða skattinn
og biðja svo um að fá bílinn
sendan í pósti.