Dagur - 04.04.1984, Blaðsíða 2
2-DAGUR-4. apríl 1984
Margrét Blöndal:
Nei.
Sigríður Valdemarsdóttir:
Nei, ég horfði á einn og einn
þátt en skildi aldrei neitt í
þessu.
Skafti Helgason:
Nei, þetta er vonlaust efni.
Gunnlaugur Stefánsson:
Já, af því að Eiríkur er svo
feiminn.
Kolbeinn Gíslason:
Nei, ég sakna ekki Dallas.
„Fólk þarf ekki að
leita eftir öllu
til Reykjavíkur“
Mynd: Ray Philiips.
Arnar Björnsson.
verkefni nú og það fyrsta sem við
ætlum okkur er að ná góðri fót-
festu á Akureyri og öðrum kaup-
stöðum á Norður- og Austur-
landi. Viðtökur hafa verið já-
kvæðar en stærsta vandamálið
nú eru póstsamgöngurnar. Póst-
samgöngur við Húsavík eru satt
að segja ekki upp á það besta en
þessu verðum við að fá breytt og
ég er ekki hræddur um að það
takist ekki.
- Hvaða þjónustu bjóðið þið
upp á?
- Við verðum með alla venju-
iega framköllun á litmyndum og
svo kópíeringar og stækkanir. Það
eina sem við verðum ekki með er
að við kópíerum ekki slides-
myndir yfir á pappír. Þá má
nefna eitt sem hefur verið feyki-
lega vinsælt hjá okkur en það eru
myndastækkanir á platta. Þetta
hefur vakið verðskuldaða athygli
og við munum auðvitað reyna að
bæta þessa þjónustu eftir föngum
með vaxandi eftirspurn. Annars
höfum við lagt áherslu á að rasa
ekki um ráð fram og þess í stað
byggt fyrirtækið upp hægt og ró-
lega. Hraðinn sem mörg fyrirtæki
virðast leggja alla áherslu á er
ekki að okkar skapi. Það er í
sjálfu sér allt í lagi með að skila
myndunum fljótt og vel en það
má ekki bitna á gæðunum. Það
eru ekki og verða ekki okkar
vinnubrögð.
- Hvernig kemst almenningur
í samband við ykkur?
- Við erum nú með umboðs-
mannakerfi í uppbyggingu en
auk þess erum við að kanna
möguleikana á að fólk hafi sam-
band við okkur. Fái senda poka
sem hægt er að senda í pósti til
baka með filmunni í. Síðan fær
viðkomandi myndirnar sendar til
baka og getur þá gengið úr
skugga um að allt sé eins og best
verður á kosið - og borgað okkur
þá. Það er tvennt sem vinnst við
þetta fyrirkomölag að okkar
mati. Fólk þarf ekki að hlaupa til
næsta umboðsmanns og ná þang-
að í filmuna aftur og eins sér fólk
vöruna áður en það greiðir fyrir
hana. Þannig ætti okkur að takast
að skapa gagnkvæmt trúnaðar-
traust okkur og viðskiptavininum
til hagsbóta. - ESE.
— Rætt við Arnar Björnsson hjá Mynd hf. á Húsavík
- Það sem við munum fyrst og
fremst leggja áherslu á er gott
og náið samband við okkar
viðskiptavini. Fólk á að geta
treyst því að fá fyrsta flokks
vinnu á filmunum sem það
sendir inn og ég er sannfærður
um að sú skoðun verður fljót-
lega ofan á að fólk á lands-
byggðinni þurfi ekki að feita
eftir öllum hlutum til Reykja-
víkur. Það ætluin við okkur að
sanna með þessu fyrirtæki.
Það er Arnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Myndar hf. á
Húsavík sem hefur orðið en þetta
fyrirtæki sem stofnað var sl. sumar
er nú komið á fullan skrið í fram-
köllunarstarfseminni og forráða-
menn þess hyggjast ekki láta
staðar numið fyrr en þeir hafa
tryggt sér öflugan markað á
Norður- og Austurlandi.
Að sögn Arnars Björnssonar
þá er Mynd hf. hlutafélag en
hluthafar eru alls 40 talsins sem
flestir eiga lítinn hlut í fyrirtæk-
inu.
- Þetta er í raun ákaflega snið-
ugt rekstrarform og ef þetta
gengur vel hjá okkur þá ætti
brautin að vera rudd fyrir fleiri
slík fyrirtæki. Þróunin erlendis
t.d. í þessum atvinnuvegi sýnir að
þar spretta upp lítil fyrirtæki sem
eiga samskipti við færri aðila en
stóru fyrirtækin en öll samskipti
verða jafnframt persónulegri og
betri, sagði Arnar en auk hans
vinnur hjá fyrirtækinu Ray
Phillips, filmutæknifræðingur
sem búsettur hefur verið á Húsa-
vík sl. níu ár. Það var Ray sem
sá um öll innkaup og skipulagn-
ingu fyrirtækisins í upphafi en í
framtíðinni mun hann sinna
tæknihliðinni á meðan Arnar sér
um markaðsmálin.
- Ég er nú að byrja á þessu
„Heimsklassahótel
í Kjarnaskógi“
— Á öðrum stað og af öðrum aðilum segir stjórn N.L.F.A.
í Degi mánudaginn 19. mars sl.
mátti sjá þessa fyrirsögn á forsíðu
ásamt mynd af myndarlegu fram-
taki félaga og velunnara Náttúru-
lækningafélags Akureyrar.
Að gefnu tilefni vill stjórn
N.L.F. A. taka það skýrt fram, að
þær hugmyndir, sem reifaðar eru
í undirmálsgrein á forsíðu og
nánar greint frá inni í blaðinu,
hafa ekki verið lagðar fyrir stjórn
N.L.F.A. til umsagnar fyrir birt-
ingu í blaðinu og því algerlega
birtar á ábyrgð greinarhöfundar.
Á þessu ári mun þessi áfangi
byggingar heilsuhælis N.L.F.A.
verða fokheldur og mun stjórn og
félagar N.L.F.A. vinna áfram
sem hingað til með aðstoð vel-
unnara að uppbyggingu þessari
til heilla almenningi þessa lands
og verður í engu hvikað frá
markmiði félagsins, en um það
segir í 2. grein laga þess, „að
markmið félagsins sé að byggja
og starfrækja heilsuhæli á
Norðurlandi, sem rekið verði í
svipuðum stíl og hælið í Hvera-
gerði. Einnig að vinna að út-
breiðslu og éflingu náttúrulækn-
ingastefnunnar í hvívetna. Á
ákvæðum þessarar greinar getur
engin breyting orðið.“
Sjálfsagt er og nauðsyn að
byggja ráðstefnuhótel og þá á
öðrum stað. Þeir, sem áhuga
hafa, geta þá bundist samtökum
um þann þátt.
Stjórn N.L.F.A. vill vegna
margra fyrirspurna lýsa því yfir,
að lögum félagsins verður fylgt
og áfram verður haldið af krafti
að uppbyggingu þessa mjög svo
þarfa heilsuhælis.
Stjórnin þakkar öllum, sem
þessu máli hafa lagt lið, og lætur
þá von í ljósi, að brátt megi hefja
starfrækslu þessa heilsuhælis við
Kjarnaskóg.
Stjórn N.L.F.A.