Dagur - 04.04.1984, Síða 6
6-DAGUR-4. apríl 1984
„Boðskapurinn í þess-
um leik er fyrst og
fremst vinátta, það
vilja allir vera góðir og
Egner villsýna fram á,
að með vináttu megi
breyta öllu til betri
vegar, þannig að meira
að segja ræningjar geti
orðið heiðarlegt fólk. “
Þetta hafði Theodór Júlíusson að
segja um boðskap Kardemommu-
bæjarins, sem Leikfélag Akureyrar
frumsýnir á sunnudaginn. Theodór
er leikstjóri, Þráinn Karlsson hefur
gert leikmyndina, Viðar Garðarsson
lýsinguna, Freygerður Magnúsdóttir
hefur saumað búninga á fólkið, en
Anna Torfadóttir hefur gert dýra-
gervin. Ræningjana þrjá; Kasper,
Jesper og Jónatan, leika þeir Þráinn
Karlsson, Bjarni Ingvason og Gestur
E. Jónasson. Sunna Borg er í hlut-
verki Soffíu frænku og Björn Karls-
son er Bastían bæjarfógeti. í öðrum
hlutverkum eru Marinó Þorsteins-
son, Gunnar Rafn Guðmundsson,
Jónsteinn Aðalsteinsson, Leifur
Guðmundsson og Guðlaug Bjarna-
dóttir. Haukur Steinbergsson og
Halla Jónsdóttir eru í hlutverkum
barnanna, Tomma og Kamillu, en
ásamt þeim koma nokkur börn fram
í sýningunni, auk hunda, katta, hesta
og kameldýra, svo einhver séu
nefnd. Og ekki má gleyma Ijóninu.
Alls cru 28 manns á sviðinu þegar
flest er, en auk þeirra leikur 11
manna hljómsveit Tónlistarskólans
stórt hlutverk í sýningunni undir
stjórn Roars Kvam.
Boðskapurinn góður
Þetta er í annað skiptið sem Karde
mommubærinn er settur á svið hjá
Leikfélagi Akureyrar og í þrígang
hefur leikurinn verið settur upp hjá
Þjóðleikhúsinu. Þar að auki er
ákveðið að leika hann í 4. skiptið þar
á bæ næsta leikár. Ekki má heldur
gleyma hljómplötunni með leiknum,
sem er ein sú vinsælasta meðal barn-
anna. Hvað er það sem gerir þetta
verk Thorbjörns Egner svona
vinsælt?
„Það er eflaust þessi góðvilji í
verkinu, sem hefur gert það vinsælt,
en auk þess er það fjölbreytt og mik-
ill fjöldi af leikurum kemur fram;
það er sem sé alltaf eitthvað um að
vera á sviðinu," svaraði Theodór.
„Þar að auki samdi Egner mjög
skemmtilega tónlist við leikinn, sem
til er á hljómplötu ásamt stórum
hluta af leiknum. Þessi hljómplata
hcfur ekki orðið til þess að draga úr
vinsældum verksins, nema síður sé.“
- Hvernig gekk að koma öllu
þessu fólki fyrir á sviðinu í Sam-
komuhúsinu?
„Það gekk bara nokkuð vel, en þar
naut ég góðs af því að hafa verið að-
stoðarmaður Þórhildar Þorleifsdótt-
ur við uppfærsluna á My Fair Lady,
sem einnig var fjölmenn sýning. Sú
reynsla er mér dýrmæt. Auk þess
finnst mér léttara að stilla upp mörgu
fólki á leiksviði þegar tónlist er notuð
til að styðja sýninguna.“
Theodór Júlíusson er Siglfirðingur
að uppruna og þar steig hann fyrstu
sporin á leiksviði. Frá Siglufirði lá
leiðin til annarra landa, en eftir
heimkomuna settist Theodór að á
Ræningjarnir; Jónatan, Kasper og Jesper, Gestur E. Jónasson, Þráinn Karlsson og Bjarni
Ingvason.
ísafirði og starfaði þá mikið með
Litla lcikklúbbunum. Síðan lá leiðin
til Siglufjarðar aftur og þaðan fór
Theodór til Dalvíkur og loks til Ak-
ureyrar 1978, þar sem hann hefur
starfað hjá Leikfélagi Akureyrar
síðan. Theodór hefur sett upp leikrit
með áhugamannafélögum, fyrst með
Leikfélagi Siglufjarðar fyrir um það
bil 12 árum, en Kardemommubærinn
er fyrsta verkið sem hann leikstýrir
með Leikfélagi Akureyrar. Hann var
spurður hvernig tilbreytni það væri,
að fara af sviðinu út í sal til að
stjórna.
„Ég vissi svo sem að hverju ég
gekk og mínir vinnufélagar hafá tek-
ið mér vel og verið hjálpsamir. Ég er
Bæjarbuar í Kardemommubæ fylgjast með hetjudáð ræningjanna.
að eðlisfari stjórnsamur maður,
þannig að mér fellur þetta ekki illa.
En ég er leikari að aðalstarfi og
þannig verður það áfram. Hins vegar
er það góð tilbreyting að takast á við
leikstjórn af og til.
- Er annað að setja upp fyrir börn
en fullorðna?
„Nei, þar geri ég engan greinar-
mun á. Ég þekki það best sjálfur, að
leikurum hættir til að fara út í ærsla-
gang og tóma vitleysu þegar þeir
leika fyrir börn. En þetta má ekki
gera að ástæðulausu, því börnin eru
ekki síðri leikhúsgestir en fullorðnir,
þannig að það má ekki kasta hönd-
unum til barnaleikrita, þau hafa upp-
eldislegt gildi, ekki síst leiklistarlega
séð. Þar að auki tel ég þetta ekki
barnaleikrit, heldur leikrit sem öll
fjölskyldan getur notið í sameiningu.
Ég er líka viss um að margir þeirra
fullorðnu hafa séð þennan skemmti-
lega leik á barnsárum sínum, jafnvel
fyrir einum 25 árum, þegar hann var
fyrst sýndur í Þjóðleikhúsinu. Ég er
illa svikinn ef þeir hinir sömu hafa
ekki gaman af að rifja söguna upp
með því að sjá Kardemommubæinn
aftur. Það er nú einu sinni grunnt á
barnið í okkur öllum.“
Einlæg gleði
í formála Thorbjörns Egner að
Kardemommubænum segir hann á
þessa leið: „Kardemommubær er lít-
ill bær, langt héðan og mjög fáir vita
um hann. Hann er nokkuð undar-
legur bær og margt skeður þar sem
ekki skeður annars staðar. Þar ganga
til dæmis asnar um göturnar og
stundum koma eitt eða tvö kameldýr
labbandi.
Sólin skín þar næstum alltaf, fólkið
er ánægt og skeytir ekki um önnur
vandamál en sín eigin og þau smá-
vægilegu vandamál, sem eru á döf-
inni í þessum litla bæ. Bæjarfógetinn
er mannelskan uppmáluð, hann vill
ekki takak neinn fastan, og þegar
hann fer gönguferð sína um bæinn
heilsar hann \ingjarnlega til hægri og
vinstri og gætir þess að allir uni sér
vel.
Það eina sem truflar næturró íbú-
anna í bænum eru ræningjarnir þrír;
Kasper, Jesper og Jónatan. Þeir búa
í háu gömlu húsi á eyðilegri sléttu
fyrir utan Kardemommubæ. Allt er
á rúi og stúi í húsi þeirra og þeir ríf-
ast og nöldra sín á milli. Aðalvanda-
mál þeirra er að fá í sig að borða, en
sultinn seðja þeir við og við með
heimsóknum í bæinn, til pylsugerð-
armannsins, bakarans og Bergs
kaupmanns. í húsi sínu hafa ræningj-
arnir ljón, bæði til gamans og gagns.
Ljónið er besta skinn, af ljóni að
vera, þó er því ekki fyllilega treyst-
andi. En ræningjarnir hafa mikið
gagn af því, vegna þess að enginn
þorir að koma og taka þá fasta á
meðan ljónið er í húsinu.
Leikritið á að leika með einlægri
gleði og ekki má skopstæla persónur
eða dýr. Segja má að boðskapur
leikritsins sé, að með einlægri vináttu
megi breyta öllu til betri vegar og
meira að segja ræningjar geti orðið
heiðarlegt fólk. Enginn er bara hetja
og enginn er bara óþokki. Allir verða
að fá að vera svolítið öðruvísi en
hinir. Umburðarlyndi í einföldustu
mynd.“
4. apríl 1984 - DAGUR - 7
Theodór Júlíusson og Viðar Garðarsson í hita og þunga
leiksins.
Soffía frænka er ströng, kjarnyrt og skapvond, en henni er
þó ekki alls varnað.
'
Roar Kvam er hljómsveitarstjóri, en Hólmfríður Þórodds
dóttir hefur séð um undirleik á æfingum.
Myndir og texti: GS
Söngsveit Hlíðarbæjar:
Tónleikar
um helgina
Tónleikar verða í Hlíðarbæ
nk. laugardagskvöld 7. apríl
kl. 21. Söngsveit Hlíðarbæjar
flytur 16 lög eftir innlenda og
erlenda höfunda. Stjómandi er
Oliver Kentish og undirleik
annast Þórarinn Stefánsson.
Á árshátíð sinni 24. mars sl.
flutti kórinn hluta af söngskránni
fyrir troðfullu húsi áheyrenda og
við góðar undirtektir. Sunnudag-
inn 1. apríl söng kórinn fyrir vist-
fólk í dvalarheimilum aldraðra í
Skjaldarvík og Hlíð.
Söngsveit Hlíðarbæjar var
stofnuð haustið 1975. Fyrstu 4
árin naut kórinn leiðsagnar Sig-
urðar D. Franzsonar. Síðan hef-
ur Oliver Kentish annast
söngstjórn. Kórfélagar eru nú 36,
eru þeir úr Glæsibæjar- Skriðu-
Öxnadals- og Arnarneshreppi
ásamt nokkrum búsettum á Ak-
ureyri. Formaður er Ingólfur
Jónsson, Þelamerkurskóla.
Forsmíði
undirstaða
fyrir
Kröfiu-
virkjun
- 8 tilboð bárust
Nýlega voru opnuð tilboö í
forsmíði undirstaða fyrir
Kröfluvirkjun. Kostnaðaráætl-
un nam kr. 714 þús. Tilboðin
sem bárust voru þessi:
Sniðill Mývatnssv. 653.000 kr.(91.5%)
Norðurverk hf. Ak. 782.000 kr.(92.7%)
Stefán Óskarss. Rein 750.900 kr.(96.8%)
Aðalgeir & Viðar Ak. 832.880 kr.(99.8%)
Húsiðn, Húsavík 772.540 kr.(99.8%)
Fjölnir s.f. Ak. 884.080 kr.(107.0%)
Fjalar, Húsavík 950.415 kr.(124.7%)
Möl & Sandur Ak. 1.022.400 kr.(126.4%)
Áætlun hönnuða er miðuð við
Mývatnssveit og er flutnings-
kostnaður frá Akureyri um 120
þúsund og frá Húsavík um 60
þúsund. Prósentutölur eru mið-
aðar við það.
Hraðskákmót Norðlendinga:
Akureyringar í
sex efstu sætunum
— Ólafur Kristjánsson frá Akureyri sigraði
Ólafur Kristjánsson, frá Akur-
eyri varð hraðskákmcistari
Norðurlands á geysifjölmennu
Flytja
msl frá
fyrir-
tækjum
Stofnað hefur verið nýtt þjón-
ustufyrirtæki á Akureyri sem
ber heitið Gámur hf. en það
mun annast sorpflutninga frá
l'yrirtækjum í bænum. Til
þessa hafa fyrirtæki þurft að
annast þessa flutninga sjáif, en
nú verður sem sagt breyting á.
Að sögn Helga Bjarnasonar,
eins eiganda þessa nýja fyrirtækis,
virðist vera töluverður áhugi
meðal fyrirtækjaeigenda að not-
færa sér þessa þjónustu. Hægt
verður að fá losun á rusli eftir
þörfum hvers og eins, daglega
eða vikulega eftir því sem við á.
Þá er einnig gert ráð fyrir að ein-
staklingar geti notfært sér þjón-
ustu fyrirtækisins.
Fyrirtækið mun útvega kassa
eða gáma til að setja ruslið í, sem
síðan verður losað úr á sérhann-
aðan bíl sem fyrirtækið hefur fest
kaup á. - HS.
hraðskákmóti sem haldið var
á Blönduósi á sunnudag.
Alls tóku um 70 manns þátt í
mótinu en teflt var í karlaflokki
og unglingaflokki auk kvenna-
flokks. Unglingameistari varð
Páll A. Jónsson frá Siglufirði en
Sveinfríður Halldórsdóttir frá
Akureyri sigraði í kvennaflokki.
í karlaflokknum áttu Akureyr-
ingar sex efstu menn. Ólafur sigr-
aði með 16.5 v af 22 mögulegum,
í 2.-3. sæti urðu Áskell Örn
Kárason og Jón Garðar Viðars-
son með 16 v. í 4.-5. sæti Pálmi
Dagana 8.-12. apríl nk.
verður haldið námskeið á Ak-
ureyri fyrir þá sem vilja hætta
að reykja. Að námskeiðinu
standa Aðventistasöfnuðurinn
og JC Akureyri og er þetta
námskeið framlag JC Akureyri
til landsverkefnis JC félaga -
Andóf gegn eiturefnum.
Námskeiðið verður haldið í sal
Lundarskóla og hefst á hverju
kvöldi kl. 20 og stendur til kl. 22.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða Árni Þór Hilmarsson full-
trúi á Félagsmálastofnun og Skúli
Torfason tannlæknir.
Gefnar verða læknisfræðilegar
upplýsingar um skaðsemi reyk-
R. Pétursson og Jón Björgvins-
son með 15.5 v og sjötti varð Þór
Valtýsson með 13.5 v.
í unglingaflokki varð röðin
þessi: 1. Páll A. Jónsson, Siglu-
firði 14.5 v af 18 mögulegum. 2.
Erlingur Jensson, Sauðárkróki
13.5 v. 3.-4. Bogi Pálsson og
Tómas Hermannsson, Akureyri
með 11. v. 5.-8. Einar Héðins-
son, Eymundur -Eymundsson,
Skafti Ingimarsson, Ákureyri og
Snorri Sturluson, Raufarhöfn
með 10.5 v. - ESE.
inga og sýndar kvikmyndir og lit-
skyggnur. Fjölbreytt fræðsluefni
verður látið í té og allt tiltækt
gert til þess að hjálpa þátttakend-
um að sigrast á reykingum. Á
þeim reykingavarnarnámskeið-
um sem Aðventistasöfnuðurinn
hefur gengist fyrir, hefur náðst
góður árangur eða 85-100% ár-
angur á námskeiðinu sjálfu og
rúmlega 50% til lengri tíma.
Þátttökugjald er kr. 450 og eru
öll gögn innifalin í því verði.
Gjaldið greiðist við upphaf nám-
skeiðsins. Frekari upplýsingar og
innritun í síma 22377 milli kl. 2
og 7 e.h. og á kvöldin í síma
26151.
JC Akureyri:
Hættum
að reykja