Dagur - 04.04.1984, Page 9
4. apríl 1984 - DAGUR - 9
KAí
2. sæti
- í úrslitum 4. fl.
á íslandsmótinu
í handknattleik
„Ég er sannfærður um að ef
við hefðum ekki fengið KR-
ingana strax í fyrsta leik okkar
þá hefðum við unnið þá,“
sagði Jóhannes Bjamason
þjálfari 4. flokks KA í hand-
knattleik sem um helgina varð
í 2. sæti í úrslitakeppni íslands-
mótsins.
„Við bárum of mikla virðingu
fyrir KR-ingum sem hafa verið
ósigrandi í vetur. Það kom hins
vegar í ljós að þeir eru ekki ósigr-
andi því Týr sem við unnum ör-
ugglega sigraði KR. KA strák-
arnir bættu sig hins vegar með
hverjum leik og sýndu er á
keppnina leið að þeir voru með
besta liðið,“ sagði Jóhannes.
KA lék 6 leiki í keppninni.
Liðið tapaði 7:13 fyrir KR, síðan
komu fjórir sigrar í röð, 10:7
gegn Tý, 9:6 gegn Stjörnunni, 9:7
gegn Víkingi og 10:4 gegn Sel-
fossi en í síðasta leik liðsins sem
var gegn Fylki varð jafntefli
10:10.
Lokastaðan varð sú að KR
fékk 10 stig, KA 9 en síðan komu
Selfoss, Fylkir, Týr, Víkingur og
Stjarnan. Sannarlega ágæt
frammistaða KA-piltanna.
3. flokkur:
Þar var KA í úrslitum íslands-
mótsins og hafnaði liðið í 5. sæti.
KA sigraði Fram 18:10 og Þór V.
15:10. Síðan kom jafntefli 13:13
gegn KR og þrír ósigrar voru
gegn Víkingi 7:10, Stjörnunni
11:13 og Gróttu 15:17 en Grótta
varð íslandsmeistari.
5. flokkur:
Þar var Þór í úrslitum og liðið var
í 5. sæti eftir harða keppni. Liðið
sigraði UMFS 11:6 og Stjömuna
10:9 og gerði jafntefli við Val.
Hins vegar tapaði liðið fyrir
Fram, Akranesi og Þór V. sem
sigraði í mótinu.
Þá var 3. flokkur stúlkna úr
Þór í úrslitum og fór liðið þangað
án keppni. Okkur er ekki kunn-
ugt um úrslit leikja stúlknanna
annað en að þær töpuðu leikjum
sínum fyrri dag úrslitanna.
Úrslitakeppni 2. deildar í blaki:
Kemst KA í
1. deild?
Úrslitakeppni 2. deildar í blaki
fer fram á Akureyri dagana 13.
pg 14. apríl og verður leikið í
íþróttahöllinni á Akureyri.
Þar munu fjögur lið berjast um
eitt laust sæti í 1. deild og er ekki
að efa að hart verður barist um
það sæti. Við spurðum Sigurð
Harðarson sem veit eitt og annað
um blak hér á landi hvaða mögu-
leika norðanliðin KA og Reyni-
vík ættu á að sigra í þessari
keppni og flytjast í 1. deild.
„Eg myndi telja möguleikana
nokkuð góða,“ sagði Sigurður.
„Ég veðja þá frekar á KA, sér-
staklega ef tekst að ná saman
öllum mannskap félagsins í þessa
leiki. Þó er Þróttur frá Nes-
kaupstað með sterkt lið en fjórða
liðið í úrslitakeppninni er
Samhygð."
- Sigurður sagði að nokkrir
leikmanna KA hefðu verið valdir
í unglingalandsliðshópinn sem
mun mæta Færeyingum í Reykja-
vík 16.-18. apríl í þremur
leikjum, en kjarninn í því liði
yrði úr KA og Þrótti Neskaup-
stað. Það má því búast við að
keppnin um lausa sætið í 1. deild
verði milli þessara félaga ef
marka má orð Sigurðar, en menn
skyldu þó fara varlega í að af-
skrifa Reynivík sem varð jöfn
KA að stigum í Norðurlandsriðli
2. deildar í vetur.
Setur Hjalti Úrsus Árnason heimsmet í réttstöðulyftu á Akureyrarmótinu í
kraftlyftingum ■ Dynheimum á laugardaginn? Þetta er spuming sem margir
velta fyrir sér en auk Hjalta sem keppir sem gestur er von á mörgum góðum
kraftlyftingamönnum á mótið sem hefst kl. 13.
Akureyrarmót
hjá þeim yngstu
Akureyrarmót I svigi 12 ára og
yngri fór nýlega fram í Hlíðar-
fjalli. Þar var keppt í fjölmörg-
um aldursflokkum og urðu úr-
slit sem hér segir:
11-12 ára drengir:
Jóhannes Baldurss. KA 63.92
Vilhelm Þorsteinss. KA 66.78
Sverrir Ragnarsson Þór 67.08
11-12 ára stúlkur:
Erna Káradóttir KA 71.31
Ása Þrastardóttir Þór 73.90
María Magnúsd. KA 79.20
10 ára drengir:
Gunnlaugur Magnúss. KA 69.31
Jóhann G. Rúnarss. Þór 75.73
Ellert Þórarinsson KA 75.88
10 ára stúlkur:
Linda Pálsdóttir KA 71.59
Harpa Hauksdóttir KA 74.20
Laufey Árnadóttir Þór 74.48
9 ára drengir:
Róbert Guðmundsson Þór 77.75
Örn Arnarson KA 79.22
Brynjólfur Ómarsson KA 83.26
9 ára stúlkur:
Sísí Malmquist KA 77.89
Inga Sigurðardóttir 94.75
Andrea Ásgrímsdóttir 97.08
8 ára stúlkur:
Erla Sigurðardóttir KA 91.27
Þórey Arnadóttir Þór 92.41
8 ára drengir:
Þorleifur Karlsson KA 85.07
Magnús Lárusson KA 112.89
7 ára stúlkur:
Heiga B. Jónsdóttir KA 88.44
Brynja Þorsteinsdóttir KA 96.46
7 ára drengir:
Magnús Sigurðsson KA 81.30
Elvar Óskarsson KA 89.67
Erlendur Óskarsson KA 89.71
Maraþonganga
hjá Gottlieb
Gottlieb Konráðsson skíða-
göngumaður frá Ólafsfirði
virðist vera í miklu formi þessa
dagana. Hann hefur forustu í
bikarmótum Skíðasambands-
ins ásamt Einari Ólafssyni frá
ísafírði, og um helgina sigraði
Gottlieb í mikilli göngukeppni.
Þá var gengin Ieið frá Skíða-
skálanum í Hveradölum, yfir
Hellisheiði og Fremstadal,
þaðan austur fyrir Hengil
niður að NesjavöUum og eftir
Grafningi og endað í Al-
mannagjá á ÞingvöUum.
Fyrir þá sem ekki þekkja þarna
til má benda á að leiðin er um 42
km löng og er því óhætt að segja
að þarna hafi verið um „mara-
þongöngu" að ræða. 17 vaskir
kappar lögðu af stað en Gottlieb
var í sérflokki. Hann kom í mark
á 3 klukkustundum sléttum og
var hálfri mínútu á undan næsta
manni sem var Halldór Matthías-
son. Þessi ganga var mjög erfið,
og talið að keppendur hafi misst
allt að 5 kg á leiðinni. En Gott-
lieb er í „formi“ og verður fróð-
legt að fylgjast með honum um
páskana í Hlíðárfjalli.
1-X-2 1-X-2
Einar Pálmi Árnason jók enn forskot sitt í getraunaleik Dags um
helgina. Hann var þá langbestur af „spámönnum“ okkar og fékk 7
leiki rétta. Tryggvi Gíslason var með fjóra leiki rétta en þeir Pálmi
Matthíasson og Eiríkur S. Eiríksson létu sér nægja 2 leiki hvor og
verða að taka á honum stóra sínum þótt ekki væri til annars en aö sýna
að þeir verðskuldi að taka þátt í úrslitakeppninni.
Einar Pálmi hefur nii hlotið 31 leik réttan af þeim 6« sem spáö hef-
ur verið um. Tryggví er með 23 og þeir Pálmi og Eiríkur lialda sig hliö
við hlið og eru með 20 leiki rétta.
Tryggvi Gíslason.
23
A. ViIIa-Coventry
Liverpool-W.-Ham
Luton-Everton
Man.Utd.-Birmingham
Norwich-Watford
N.For.-WBA
Sunderland-Tottenham
WoIves-N.County
Brighton-Grimsby
Chelsea-Fulham
Derby-C.Palace
Swansea-Man.City
1
1
2
1
X
1
X
X
1
1
2
X
Pálmi
Matthíasson.
20
A. Villa-Coventry
Liverpool-W.-Ham
Luton-Everton
Man.Utd.-Birmingham
Norwich-Watford
N.For.-WBA
Sunderland-Tottenham
Wolves-N.County
Brighton-Grimsby
Chelsea-Fulham
Derby-C.Palace
Swansea-Man.City
1
1
2
1
2
1
2
1
1
1
1
2
Einar Pálmi
Ámason.
31
A. ViUa-Coventry
Liverpool-W.-Ham
Luton-Everton
Man.Utd.-Birmingham
Norwich-Watford
N.For.-WBA
Sunderiand-Tottenham
Wolves-N.County
Brighton-Grimsby
Chelsea-Fulham
Derby-C.Palace
Swansea-Man.City
1
1
X
1
X
X
2
1
1
1
1
X
Eiríkur Eiríksson.
20
A. ViUa-Coventry
Liverpool-W.-Ham
Luton-Everton
Man.Utd.-Birmingham
Norwich-Watford
N.For.-WBA
Sunderland-Tottenham
Wolves-N.County
Brighton-Grimsby
Chelsea-Fulham
Derby-C.Palace
Swansea-Man.City
1
1
X
1
2
X
2
X
1
2
2
X
1-X-2 1-X-2