Dagur - 13.04.1984, Síða 2
14-DAGUR-13. apríl 1984
BLAÐ 2
Sveiflan réð ríkjum ;í
jazzkvöldi á Listadögum
MA. Nokkrir góðkunnir
borgarar létu í sér heyra
með aðstoð hljóðfæra og
útkoman varð skemmti-
legt kvöld undir léttri
sveiflu.
Það voru þeir Edvard
Fredriksen sem lék á
básúnu, Kristján Guð-
mundsson á píanó, Birg-
ir Karlsson á gítar,
Gríniur Sigurðsson á
bassa, Árni Friðriksson
á trommur og Þorsteinn
Kjartansson á saxófón.
Lögin voru létt, sum
þó erfið - „við svitnum",
sagði Edvard þegar þeir
félagarnir máttu taka á
honum stóra sínum til að
skila því sem þeir ætluðu
Það voru margir á
setustofu Heimavistar
MA, sem dilluðu sér í
takt við sveifluna og
enginn varð fyrir von-
brigöum.
Jazzkvöld eins og
þetta erstórkostleguppá-
koma og mörg eru þau
jazzfríkin sem sakna
þess aö hafa ekki lifandi
jazz oftar - því fátt er
eins sprelllifandi og ein-
mitt jazzsveiflan.
Myndir og texti: KGA.
Birgir Karlsson á gítarnum.
Kristján Guðmundsson grípur sóló
Ámi Friðriksson lemur húðirnar.
Eldfjörugir áhorfendur dilluðu sér í takt við sveifluna.
Grímur Sigurðsson á bassanum.