Dagur - 13.04.1984, Qupperneq 6
18 - DAGUR - 13. apríl 1984
BLAÐ 2
„Beta Geirs“
traustum fótum á stöllum. Öðru
máli gegnir um hina lítt klæddu
konu (Fortúnu) sem tyllir aðeins
tám annars fótar á hálf-kúlu, og
horfir út í bláinn - en heldur þó
allvel jafnvægi.
Ekki er minni jafnvægislist í
styttunni, „Glímumennirnir", -
þar sem annar hefur hlaupið upp
úr klofbragði, og er í kuðungi
uppi á bringu hins - án þess að
þeir missi tökin, en hinn heldur
uppi þunga og jafnvægi beggja á
öðrum, höllum fæti. Allar eru
þessar styttur úr einu stykki hver.
Þá er fagurlega gjörður og út-
skorinn bikar-en „töppin" á loki
hans, er Iistskautahlaupari, sem
stendur þar á öðrum fæti. (Þess
má geta innan sviga, að þau hjón
stunduðu bæði skautalistir; sagði
mér kunningi minn, sem þekkti
þau ung, að hrífandi hefði verið
að sjá þau dansa saman á skaut-
um).
Glímumennirnir, tré-
skurður.
Huldumærin stendur fögur og
heillandi uppi við klettinn sinn,
og eru ekki allar útlínur þeirra
skarpt aðgreindar. Ekki hygg ég
auðvelt að forma fegurri kvenlík-
ama en „Díönu" hennar, með
bogann í hendi. Sérlega eru bæði
skáldlegar og fagrar stytturnar,
„Perlan“, - og ekki síður „Sál
öldunnar", hina fyrrnefndu
þeirra vannst henni aldur og
heilsa til að stækka í stein, í garði
sínum, ásamt tveimur öðrum.
Læt ég þá þessu ágripi lokið, -
þó lengi mætti telja.
Ekki mun ég hafa verið einn
um það að þykja ekki Elísabet
metin að verðleikum, í sinni
hérvist, - hvað sem síðar kann að
verða. Skal hér aðeins nefnt eitt
dæmi þess: Einu sinni var mikil
sýning haldin, í nýju mjólkur-
stöðinni, áður en hún var tekin til
sinnar ákvörðuðu nota, og helg-
uð frístundamálurum; þar var
uppi mynd eftir Elísabetu, - en
sannfrétt þykist ég hafa að hún
sendi þangað þrjár, - og má mik-
ið vera, ef ekkert hefur slæðst þar
upp síðra, en þær tvær, sem ekki
hlutu þá náð. Hver aðgöngumiði
þarna gaf eiganda sínum rétt til
að greiða atkvæði um fyrstu, aðra
og þriðju bestu mynd, að eigin
áliti. Eftir því sem næst verður
komist, hefur mér verið sagt, að
mynd Elísabetar hafi fengið flest
atkvæði, - en hvorki veit ég né
aðrir til, að úrslit þeirrar at-
kvæðagreiðslu væru nokkurn
tíma opinberuð, - sem átt hefði
þó að vera, a.m.k. höfundi þeirr-
ar myndar sem sigraðj.
Þegar hún „Beta“ hafði leitt
mig inn í ríki sitt forðum, - vor-
um við fljót að átta okkur hvort
á öðru, hlédrægnin hvarf eins og
dögg fyrir sólu, og eftir litla stund
vorum við eins og samræmd syst-
kini, - eða legið hefði lengi ein-
hver taug á milli okkar, - sem
reynast mun ærið teygjanleg,
enda var margt líkt í lífsskoðun-
um okkar og áhugamálum. Hún
gaf mér, í alúð og hreinskilni,
glögga innsýn í sína fjölþættu list-
iðju. Ekki hittumst við nema
tvisvar, en bréf fóru aðeins á milli
okkar, á þeim fáu árum sem hún
átti þá eftir að dveljast hér, - og
taugin bilaði ekki. Má því vera
skiljanlegt, að mér hefði ekki
þótt önnur manneskja, mér
vandalaus, sem vant er að kalla,
hverfa jafn of-fljótt héðan, -
enda var hún enn á góðum aldri,
aðeins fjörutíu og fjögurra ár,
full af lífsorku og hugmyndum, -
þó aðdragandi væri að banameini
hennar, sem tafði þá fyrir eld-
legum áhuga hennar, og lamaði
starfsþróttinn.
Eitt það, sem eftir hana lá
teiknað, en henni entist ekki
aldur til að ljúka, var samstæða
mynda úr sívölu járni, ætluð til
að greypa í girðingu; þær eru af
konu við garðyrkjustörf, - og
hefur nú eftirlifandi eiginmaður
hennar fullgjört þær og gengið
frá þeim, eins og hún ætlaðist til,
í framhlið girðingarinnar um-
hverfis garðinn hennar kæra og
vel hirta.
Elísabet var fædd 16. febrúar
1915, í Aðalstræti 36, Akureyri,
húsið er sagt byggt 1866, og hafa
búið þar fimm liðir ættar hennar
og sá sjötti þeirra sem þar fæddist
var bróðurbróðurdóttir hennar
(Kristjáns Geirmundssonar).
Elísabet giftist átján ára, æsku-
leikbróður sínum og stöðugum
félaga, Ágústi Ásgrímssyni; þau
byrjuðu bláfátæk, - eins og þá
var títt, hjálpuðust að við að
steypa í handmótum r-steina í
húsið sitt, og byggja það, rækta
og planta í lóðina, - sem með
tímanum varð ofurlítill „Edens-
lundur", sem sýndi, þó ekki
hefðu verið önnur aukastörf frá
heimilisumsýslu, að tíminn var
vel notaður. En með hliðsjón af
því sem sagt er hér að framan,
gæti fleirum en mér orðið það
nokkur ráðgáta, hvernig kleift
varð að koma því öllu í verk sem
ég drap þar aðeins á, - og fjöl-
mörgu fleira, - án þess að sæjust
merki nokkurrar vanrækslu
mannfólks eða muna. Börn
þeirra hjóna urðu þrjú, en oft
voru þau sjö í heimili; liggur í
hlutarins eðli, að oft hefur hús-
freyjan unga notið góðrar að-
stoðar.
Rík listhneigð hennar gjörði
snemma vart við sig, - en fyrstu
myndirnar mótaði hún, 1931, -
úr því fagra en forgengilega efni,
snjónum, - en þá fór skriðan af
stað! Maður hennar, Ágúst, var
einnig listhneigður, - en hann
orðar það svo sjálfur, að það hafi
varla náð fram í hendurnar; ofur-
lítið mun það þá vera „afstætt"
álit, - því mikið hjálpaði hann
henni við gifsmyndagerðina, að
steypa þær, afgjöra og fága,
mála, - og þegar á leið, jafnvel
að draga „baldýringuna“ á bún-
ingana, sem aldrei var kastað til
höndum, - en frá andlitunum
gekk hún öllum sjálf. Mikið vann
hann líka í lóðinni, - og áhugi
hans við hugðarmál hennar var
henni nauðsynlegur og ómetan-
legur styrkur, - svo mjög, að án
þess er hætt við að hugmynda-
auðgi hennar og ástríðufullur
starfsáhugi hefðu aldrei notið sín
til fulls.
Þau voru mjög samrýmd og
samhent, - sem ég hef séð
óhrekjandi sannanir fyrir; þó hef-
ur hann látið þau orð falla, að
fáir viti að fuilu hvað átt hafi, fyrr
en það er misst.
Elísabet fékk meinsemd í
höfuðið, sem brátt sýndi sig að
vera alvarleg, og þrátt fyrir heila-
uppskurð erlendis, og aðrar til-
raunir, tókst ekki að bæta, en
varð henni að bana, 9. apríl 1959.
En listrænn áhugi hennar entist
til æviloka, - og ekki efast ég um
að hann haldi áfram að starfa
enn; fleiri hafa þá skoðun, og
nefni ég aðeins til dæmis hugsuð-
inn og skáldið, Grím Thomsen,
sbr.
„...Fegurð er vakti fyrir þeim,
- til fulls þótt yrði ei sén,
ódáins finna fyrst í heim,
Fídías Thorvaldsen;
fegurð er hér var fólgin rós,
í frjóvum sálum innst,
springur þar út í líf og Ijós,
- líka og skuggi ei finnst... “
Einn vottur um að listrænn
áhugi entist henni ævilangt, er lít-
ið kvæði sem fannst á borði
hennar, andaðrar, og telja má
víst, að sé það síðasta sem hún
orti; rúmsins vegna set ég hér
aðeins tvö síðustu erindin úr
þessum „svanasöng" þeirrar and-
ríku skáldsálar:
Litla jurt, á lautar barmi,
létti mínum þunga harmi
er mér skópu örlög þung.
Pað var eins og örsmá hendi
er mér boð frá lífi sendi,
leitaði upp í Ijósið, ung.
Alltaf lifnar allt á vorin
- ekki er taugin sundur skorin,
sem að tengir líf við líf;
þó að blási biturt móti
birtist þér á köldu grjóti,
undur lífsins: Hjálp og hlíf.
Árangurslaust hef ég lengi
beðið þess, að einhver mér færari
yrði til þess að minnast þessarar
prýðilegu konu, betur en mér
tekst að gera; herði ég mig því
loks upp, til að sýna lit á því, - í
von um að fátækleg orð mín
kunni samt að verða betri en al-
gjör þögn. Blessuð sé minning
hennar, sem öllum kunningjum
og vinum er dýrmæt; huggum
okkur við hið fornkveðna, að
„þeir sem guðirnir elska, deyja
ungir", - og „líf er að Ioknu
þessu".
í Guðs friði!
Sandvík, 6. júlí 1974.
Ljósmyndir:
Eðvarð Sigurgeirsson.
Jón Sigurgeirsson.
Ásgrímur Ágústsson.
Kristján Geirmundsson.
Perlan, tréskurðar-
mynd.
Fermingarbörn
í Akureyrarkirkju 15. apríi f.h. (pálmasunnudagur kl. 10.30)
Stúlkur:
Alda Sigrún Halldórsdóttir, Aðalstræti 28,
Anna Margrét Tryggvadóttir. Hamragerði 13,
Auður Ingólfsdóttir, Heiðarlundi 5b,
Ágústa Gully Malmquist Einarsdóttir, Jörfabyggð 1,
Ásta Sólveig Albertsdóttir, Tjarnarlundi 18c,
Borghildur Sigurðardóttir, Álfabyggð 10,
Brynja Þóranna Viðarsdóttir, Strandgötu 39,
Elín Sigurveig Sigurðardóttir, Hjarðarlundi 1,
Guðrún Hulda Þorsteinsdóttir, Norðurgötu 51,
Halldóra Konráðsdóttir, Kringlumýri 27,
Hildur Sigurðardóttir, Austurbyggð 9,
Jóhanna Bergsdóttir, Ránargötu 13,
Klara Björnsdóttir, Núpasíðu 8a,
Kristín Irene Valdemarsdóttir, Hjarðarlundi 2,
Laufey Hlín Jónsdóttir, Norðurgötu 56,
María Egilsdóttir, Stóragerði 17,
Nanný Arna Guðmundsdóttir, Akurgerði 3a,
Ruth Viðarsdóttir, Hamragerði 2,
Sigríður Ágústa Viðarsdóttir, Strandgötu 39,
Þorgerður Lilja Fossdal, Skálagerði 6.
Drengir:
Aðalgeir Jónas Hólmsteinsson, Hafnarstræti 17,
Albert Guðmundsson, Austurbyggð 16,
Árni Kristjánsson, Heiðarlundi 6h,
Baldur Heiðar Birgisson, Bjarmastíg 11,
Bergur Páll Sigurðsson, Vanabyggð 17,
Birgir Karl Birgisson, Furulundi 2e,
Borgþór Sævarsson, Grenivöllum 20,
Einar Þór Gunnarsson, Spónsgerði 3,
Guðmann Guðmannsson, Vanabyggð 4e,
Halldór Björn Halldórsson, Klettagerði 1,
Haukur Eiríksson, Lerkilundi 4,
Hilmar Trausti Harðarson, Mýrarvegi 124,
Hlynur Skagfjörð Pálsson, Eiðsvallagötu 32,
Jón Harðarson, Akurgerði 5e,
Kjartan Þorbjörnsson, Oddagötu 15,
Ragnar Kjærnested Ásmundsson, Klettagerði 3,
Sigurðúr Hörður Ingimarsson, Keilusíðu 2d,
Zophonías Magnús Þórhallsson, Ægisgötu 2.
í Akureyrarkirkju 15. apríl e.h. (pálmasunnudagur kl. 13.30)
Stúlkur:
Agnes Arnardóttir, Háalundi 6,
Anna Soffía Gunnlaugsdóttir, Þórunnarstræti 134,
Arna Sigrún Sigurðardóttir, Löngumýri 28,
Elísabet Stefánsdóttir, Skarðshlíð 18 e,
Guðfinna Reynis Eðvarðsdóttir, Lönguhlíð 6,
Inga Vala Birgisdóttir, Lækjargötu 11 a,
Ragnheiður Björnsdóttir, Norðurgötu 4,
Ragnheiður Arna Magnúsdóttir, Jörfabyggð 5,
Sigríður Rúna Þóroddsdóttir, Hjarðarlundi 10,
Sigurbjörg Ragna Arnarsdóttir, Hjallalundi 5 d,
Unnur Elín Guðmundsdóttir, Reynilundi 8,
Úlfhildur Óttarsdóttir, Hrísalundi 2 e,
Þórunn Guðlaugsdóttir, Dalgerði 1 h.
Drengir:
Anton Kristinn Stefánsson, Norðurgötu 16,
Arnar Stefánsson, Norðurbyggð 20,
Björn Björnsson, Espilundi 7,
Friðrik Þorbergsson, Furulundi 5 a,
Gísli Jóhannsson, Hamragerði 8,
Ingvi Rafn Ingvason, Löngumýri 22,
Jón Stefán Einarsson, Dalsgerði 1 g,
Jóhann Ragnar Sigurðsson, Hafnarstræti 81,
Muggur Matthíasson, Akurgerði 1 f,
Sigurður Vilhelm Steinarsson, Hríseyjargötu 11,
Snorri Halldórsson, Ásvegi 25,
Stefán Ákason, Espilundi 13,
Sveinn Sigtryggsson, Vanabyggð 10 b,
Tryggvi Pétur Tryggvason, Lerkilundi 25.
í Lögmannshlíðarkirkju pálmasunnudag kl. 10.30
Árni Ólafsson, Skarðshlíð 38e,
Axel Stefánsson, Stapasíðu 14,
Birgir Steinar Birgisson, Bakkahlíð 13,
Eiríkur Árni Oddsson, Einholti 13,
Hafdís Guðjónsdóttir, Bröttuhlíð 5,
Lára Halldórsdóttir, Bogasíðu 7,
Magnús Örn Sigurjónsson, Byggðavegi 140,
Rúnar Friðriksson, Áshlíð 7,
Sigríður Jóna Pálsdóttir, Áshlíð 3,
Sigrún Helga Sigurhjartardóttir, Höfðahlíð 14,
Steinunn Línbjörg Ragnarsdóttir, Steinahlíð 7c,
Örn Helgason, Seljahlíð llg.
í Lögmannshlíðarkirkju pálmasunnudag kl. 13.30
Anna Stefánsdóttir, Skarðshlíð 24d,
Árni Þór Árnason, Steinahlíð 8c,
Gunnhildur Gylfadóttir, Einholti lOd,
Hlynur Björn Pálmason, Keilusíðu 5g,
Ingólfur Jónsson Borgarhlíð 9e,
Karl Gústaf Gústafsson, Þverholti 16,
Kristín Laufey Ingólfsdóttir, Glerárholti 1,
Lára Gunndís Magnúsdóttir, Stapasíðu 3,
Magnús Þór Eggertsson, Kjalarsíðu 18f,
Sigurjón Egill Jósefsson, Lönguhlíð 9c,
Tómas Páll Sævarsson, Drangshlíð 1.