Dagur - 16.04.1984, Side 1
FERMINGAR
GJAFIR
í MIKLU
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
67. árgangur
Akureyri, mánudagur 16. apríl 1984
46. tölublað
Innbrotið í Hljóm-
ver er upplýst!
„Okkur tókst um helgina að
upplýsa innbrotið sem framið
var I verslunina Hljómver í
júlí 1982 og erum að sjálfsögðu
ánægðir með það,“ sagði
Ófeigur Baldursson rannsókn-
arlögreglumaður á Akureyri í
samtali við Dag í morgun.
Innbrot þetta vakti talsverða
athygli á sínum tíma. Pjófurinn
fór inn í fyrirtækið BTB sem er í
sama húsi og Hljómver og þaðan
komst hann inn í Hljómver. Þar
stal hann talsverðu magni af
hljómflutningstækjum og olli auk
þess nokkrum skemmdum á hús-
næði fyrirtækisins.
Til þess að koma þýfinu undan
notaði hann bifreið Hljómvers
sem var inni í bílskúr fyrirtækis-
ins. Hann hlóð þýfinu í bifreiðina
og ók bifreiðinni síðan af krafti í
gegnum bílskúrshurðina.
Mikil leit var gerð að bifreið-
inni á sínum tíma en hún var
vandlega merkt fyrirtækinu. Bár-
ust lögreglunni ábendingar um að
bifreiðin hefði sést í Reykjavík.
Ekki reyndist svo vera því hún
fannst í sjónum við Akureyri,
hafði verið ekið fram af Sverris-
bryggju.
Að sögn Ófeigs Baldurssonar
rannsóknarlögreglumanns var
bifreiðin talsvert skemmd, og
skemmdir á henni og annað tjón
sem þjófurinn olli nemur hundr-
uð þúsundum króna á verðlagi í
dag. Þjófurinn sem játaði um
helgina hefur ekki komið við
sögu lögreglunnar á Akureyri
áður.
Pess má að lokum geta að á
sínum tíma sat maður í gæslu-
varðhaldi vegna þessa máls. Sá
hafði komið þarna að um nótt-
ina, farið inn í Hljómver í slóð
fyrri þjófsins og stal sá síðari einu
hljómflutningstæki. gk-.
Rúnar Gunnarsson og Baldur Ellertsson skála í bjór fyrir „Bauknum“.
Mynd: GS.
- bls. 2
„Við gefum öllum
frítt á Baukinn“
- Tvær bjórstofur verða opnaðar á Akureyri á miðvikudaginn
„Við bjóðum öllum bæjarbú-
um frítt á Baukinn frá 18-20 á
miðvikudaginn, því þá opnum
við hér bjórstofu undir því
nafni og auk þess á H-100
fímm ára afmæli,“ sögðu þeir
Rúnar Gunnarsson og Baldur
Ellertsson, eigendur H-100, í
samtali við Dag.
Já, Akureyringar geta upplifað
kráarstemmninguna á miðviku-
dagskvöldið, því þá opna H-100
og Sjallinn bjórstofur. Við
sögðum frá ákvörðun Sjalla-
manna á föstudaginn, en vissum
ekki um hvað til stóð í H-100.
„Það er langt síðan þetta var
ákveðið hjá okkur og við höfum
grun um að þeir Sjallamenn hafi
brugðið við skjótt þegar þeir
fréttu hvað til stóð,“ sögðu þeir
Baldur og Rúnar. Þeir hafa inn-
réttað hluta af 1. hæð veitinga-
staðarins í sveitakráarstíl og það
er ekki að vita nema Hallbjörn
kántríkóngur troði þar upp fyrsta
kvöldið. Kráin heitir „Baukur-
inn“, en ölstofur með því nafni
voru eitt sinn við lýði á Akureyri.
Að vísu verður bjórbollan ekki
drukkin úr baukum, heldur hefð-
bundnum bjórkönnum. En á
staðnum verður tveggja lítra
baukur fullur af bjórbollu og þeir
sem geta siokrað í sig úr honum í
einni lotu verða verðlaunaðir.
Baukurinn verðúr opinn í hádeg-
inu um helgar og öll kvöld vik-
unnar. Og sem sagt, það er öllum
boðið í afmælisveislu upp á öl og
snittur á miðvikudaginn frá kl.
18-20. - GS
-bls.
13-16
Gunnar og
Haraldur
keyptu
byggingar
BTB við
Glerár-
götu
Gunnar Haraldsson, bflasali,
og Haraldur sonur hans,
hafa fest kaup á húseignum
Bvggingavöruverslunar
Tómasar Björnssonar við
Glerárgötu.
Samningar voru undirritaðir á
fimmtudagskvöldið og mun bíla-
sala þeirra feðga taka til starfa í
hluta húsnæðisins strax í byrjun
næsta mánaðar. Alls er húsnæðið
sem þeir keyptu um 1.700 fer-
metrar að gólffleti; á jarðhæð
Glerárgötu 34 og í bakhúsum.
„Það er óákveðið hvernig við
nýtum þetta húsnæði, en ég
reikna þó með að verslunin
Skemman verði þarna til húsa,
jafnframt því sem fjölskyldan
verður líklega með ýmiss konar
verslunarrekstur á verslunarhæð-
inni sem snýr að Glerárgötu,"
sagði Haraldur Gunnarsson í
stuttu spjalli við Dag. Hann gat
þess jafnframt, að ráðamenn
byggingavöruverslunarinnar ættu
að rýma aðra timburgeymsluna
strax fyrir bílasöluna, en verslun-
arhæðina við Glerárgötu eiga
þeir að rýma í október í haust.
Byggingavöruverslun Tómasar
Björnssonár verður flutt með
starfsemi sína út fyrir Lónsbrú,
þar sem þegar stendur fullbúin
myndarleg skemma. Önnur jafn
stór kemur til með að rísa þar í
sumar. - GS