Dagur - 16.04.1984, Side 1
SHARP
adidas^
KA-svæðið við Lundarskóla.
„Er allt á réttrí leið“
- segir Gústaf Baldvinsson þjálfari 1. deildarliðs KA
Þeir
þjálfa
í
sumar
Stjórn knattspyrnudeildar
KA hefur að undanförnu
verið að ráða þjálfara fyrir
alla flokka félagsins og er nú
Ijóst hverjir verða þjálfarar
að nær öllu leyti.
Eins og margoft hefur
komið fram verður Gústaf
Baldvinsson þjálfari meist-
araflokks karla og hefur
hann reyndar hafið störf fyrir
löngu síðan.
Hinrik Þórhallsson hefur
séð um þjálfun kvennaliðs
félagsins að undanförnu, en
svo getur farið að einhver
breyting verði þar á þegar
kemur fram á vorið.
Með 2. flokk verður Stein-
þór Þórarinsson sem er fyrr-
vcrandi leikmaður meistara-
flokks. Tómas Lárus Vil-
bergsson sér um þjálfun 3.
flokks. Gunnar Gunnarsson
verður þjálfari 4. flokks,
Njáll Eiðsson verður með 5.
flokk og þjálfari 6. og 7.
flokks verður Hinrik Þór-
hallsson. Er reiknað með að
Hinrik verði í fullu starfi eða
því sem næst við þjálfun í
sumar.
Stefnt er að því að allir
flokkar félagsins verði komn-
ir á fulla ferð við æfingar
fljótlega eftir páska, nema 6.
og 7. flokkur sem byrja
síðar.
„Mér finnst þetta allt vera á
réttri leið hjá okkur, strákarnir
eru duglegir og áhugasamir og
ég hef ekki neina ástæðu til að
kvarta,“ segir Gústaf Bald-
vinsson þjálfari meistarafiokks
karla hjá KA, en KA leikur
sem kunnugt er í 1. deild í
sumar.
Meistaraflokkurinn hélt í síð-
ustu viku til Ipswich í Englandi
þar sem liðið dvelur í 10 daga við
æfingar og keppni. Við spurðum
Gústaf hvað það væri sem fyrst
og fremst ynnist með slíkri ferð.
„Það er fyrst og fremst að geta
æft við bestu fáanlegar aðstæður.
Þá eru margir nýir leikmenn í
hópnum þannig að mönnum gefst
kjörið tækifæri til þess að kynnast
enn betur. En þetta verður engin
skemmtiferð því við munum hafa
einar 10 æfingar þarna úti og
spila auk þess eina fjóra leiki.
Svo bætum við einum leik við í
Reykjavík þegar við komum
heim um páskana.“
- Hvernig hefur liðið æft að
undanförnu?
„Við höfum verið með 4 æfing-
ar á viku og jafnvel bætt einni við
um helgar. Þetta er stífasti tím-
inn í undirbúningnum fyrir
sumarið og því hefur verið mikið
álag á mönnum."
Stefán Gunnlaugsson formaður Knattspyrnudeildar:
„Skemmtilegt sumar framundan“
Á aðalfundi knattspyrnudeild-
ar KA sem haldinn var í októ-
ber sl. komu margir nýir menn
inn í stjórn deildarinnar í stað
þeirra sem þar hættu og höfðu
skilað góðu starfi. Stefán
Gunnlaugsson var kjörinn for-
maður, en aðrir í stjórn Her-
mann Árnason, Indriði Jó-
hannsson, Gestur Jónsson,
Sigbjörn Gunnarsson, Regína
Siguróladóttir, Gunnar Kára-
son, Siguróli Sigurðsson og
Eiður Eiðsson.
Stjórn knattspyrnudeildarinn-
ar hefur ákveðið að gefa út einu
sinni í mánuði fram til haustsins
„KA-fréttir“ sem fylgirit með
Degi. Við spurðum Stefán Gunn-
laugsson hver væri tilgangunnn
með þessu.
„Hann er fyrst og fremst sá að
gefa okkur stuðningsmönnum
kost á því að fylgjast betur með
því sem er að gerast í herbúðum
okkar. Þá munum við leggja á
það talsverða áherslu þegar kem-
ur fram á sumarið að skýra frá
gangið mála hjá yngri keppend-
um KA sem að öllu jöfnu er ekki
mikið sinnt af fjölmiðlum."
- Hvernig er fjárhagsstaða
knattspyrnudeildarinnar í dag?
„Það hefur verið mikil barátta
undanfarin ár að ná endum sam-
an fjárhagslega. í vetur tók hins
vegar hópur einstaklinga saman
höndum og þessi hópur hjálpað-
ist við að greiða niður skuldir
deildarinnar þannig að nú stönd-
um við sléttir.
Stjórnin er með ýmislegt á
prjónunum varðandi fjáröflun í
sumar. Reyndar erum við þegar
byrjaðir og höfum gengið frá
samningum við fyrirtæki um
auglýsingar á búningum nær allra
flokka. Meistarflokkur karla sem
er andlit félagsins út á við mun
auglýsa Sharp hljómflutningstæki
frá Hljómbæ og ACT-skó frá
Iðnaðardeild Sambandsins en
önnur fyrirtæki sem þegar hefur
verið samið við um auglýsingar
eru Jöfur, Coca-Cola, Vaígarður
Stefánsson og Björgvin Schram
og við erum í viðræðum við fleiri
aðila. Við komum til með að hafa
meiri auglýsingatekjur í sumar en
aðrar knattspyrnudeildir á land-
inu.
Stefán Gunnlaugsson.
Fleira er í bígerð. Við höfum
mikinn áhuga á að vera með ýms-
ar uppákomur í göngugötunni
þegar vel viðrar. Þar myndum við
sýna fatnað og ýmsar vörur frá
fyrirtækjum sem sýna áhuga á
samstarfi við okkur. Við höfum
áhuga á að fá að reka þar ein-
hverja sölustarfsemi og að sjálf-
sögðu komum við til með að reka
þar áróður fyrir heimaleiki
okkar.“
- Nú hefur átt sér stað mikil
uppbygging á félagssvæði KA í
Lundahverfi. Hvernig standa þau
mál í dag?
„Við höfum nú þegar 13000
fermetra grasvöll sem þjónar
bæði sem æfinga- og keppnis-
völlur. malarvöllur okkar er góð-
ur cg í „umar reiknum við með
að þekja 7000-8000 fermetra æf-
ingasvæði. Þegar þetta er búið tel
ég að aðstaða okkar sé á við
besta sem þekkist hérlendis.
Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að koma á framfæri þökkum
til bæjarstarfsmanna. Samstarf
okkar við þá hefur verið sérstak-
lega gott og þeir hafa lagt sig alla
fram um að aðstoða okkur á allan
hátt.“.
- Og nú styttist óðum í það að
boltinn fari að rúlla, hvernig
leggst sumarið í þig?
„Ég geri mér grein fyrir því að
keppnin í 1. deild verður jöfn og
spennandi eins og undanfarin ár.
Bæði Akureyrarliðin koma vel
undirbúin til mótsins og þurfa
ekki að hafa neina minnimáttar-
kennd gagnvart andstæðingum
sínum. Knattspyrnuáhugamenn
á Akureyri eiga því skemmtilegt
sumar framundan.
Hvað varðar starfið sjálft í
deildinni þá hef ég trú á því að
okkur takist að reka deildina vel
fjárhagslega. Við eigum góða
stuðningsmenn hér í bænum og í
Reykjavík er KA-klúbburinn
góður bakhjarl með Sæmund
Óskarsson í farabroddi."